13.08.1959
Efri deild: 9. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

Blaðaljósmyndarar í alþingishúsinu

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég hef nú setið á þingi síðan 1934 og oftast í þessari hv. d. Allan þann tíma, sem ég hef hér setið, hefur svo kallað stigaherbergi hér til hægri handar verið sem nokkurs konar hvíldarherbergi fyrir þm. Við höfum skroppið þangað inn til að reykja, og milli funda höfum við setið þar og masað og líka setið þar til að slappa af, létta af okkur áhyggjum dagsins og hvíla okkur. Allan þennan tíma hefur það aldrei verið siður, að ljósmyndasnápar frá blöðunum væru hér inni um þinghús, deildir og fundarherbergi þingmanna til að taka myndir af þeim og því, sem þar gerist. Þetta er í fyrsta skipti, sem það kemur fyrir. Nú birtist í einu dagblaði bæjarins mynd af einum þm., þar sem hann á milli funda hefur lagt sig fyrir hér inni í herberginu til að hvíla sig og lagt út af því, að svona sinni hann þingstörfum. Ég geri ráð fyrir, að það sé kannske annar hvor maður eða fleiri, sem hefur verið hér á Alþingi með mér, sem einhvern tíma hefur verið í hliðarherberginu milli funda til að geta hvílt sig. Er það herra forsetinn, sem hefur leyft blaðamönnunum að fara hér inn til að mynda menn í herbergjum, sem tilheyra ekki deildunum, en ætluð eru þm. til að vinna þingstörf og hvíla sig?

Ég vil óska þess, að þeir, sem sitja hér á næstu þingum, — það verður ekki ég, — að þeir verði friðaðir fyrir svona árásum — svona svívirðilegum árásum eins og hér er gert, þar sem ljósmyndari frá blaði fer inn í þinghús, myndar þingmann milli funda, sem er að hvíla sig og leggur svo út af því í blöðunum, að svona vinni þingmenn sín störf. Þetta á ekki að eiga sér stað, og ég vona, að forsetinn nú og hver sem hann verður síðar komi í veg fyrir, að þetta geti komið fyrir aftur.