11.08.1959
Sameinað þing: 9. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):

Herra forseti. Fyrir kjörbréfanefnd hefur legið kjörbréf landskjörins varaþingmanns, Geirs Gunnarssonar skrifstofustjóra, sem hlotið hefur 1. varauppbótarþingsæti Alþb.

Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréfið og hefur ekkert fundið við það athugavert. N. leggur því til, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt.