05.08.1959
Neðri deild: 10. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Eysteinn Jónason:

Herra forseti. Ég hafði nú raunar ekki ætlað mér að taka aftur til máls í þessu stóra máli, þar sem ég hafði tekið fram flest það, sem ég taldi þýðingarmest að fram kæmi af minni hendi. En vegna þess að hv. 3. þm. Reykv. hefur rætt hér almennt um landsmálin enn í dag og vikið nokkuð sérstaklega að mér og Framsfl., þá mun ég bæta við nokkrum orðum. En ég mun reyna að takmarka mál mitt eins og mögulegt er.

Segja má með verulegum rétti, að þær umr., sem orðið hafa um þetta, séu orðnar talsvert víðtækar og það er ekkert einkennilegt, þó að þær verði allvíðtækar, þegar þess er gætt, hversu mikil áhrif einmitt þetta mál, sem nú er verið að afgreiða, hefur á alla þróun þjóðmála í landinu á næstunni. Ég verð að segja, að mér finnst ræður hv. 3. þm. Reykv. bera vott um ofsahræðslu þingmannsins við, að áfram haldi það hrun, sem varð hjá Alþb. við næstliðnar kosningar og finnst mér þessi ótti í sjálfu sér ekkert einkennilegur né ástæðulaus. En aftur á móti finnst mér hv. þm. lesa kosningaúrslitin mjög einkennilega og bregðast ákaflega einkennilega við þeim. Ég hélt, að hv. 3, þm. Reykv. mundi hafa gert sér grein fyrir því, að kosningaúrslitin urðu svona óhagstæð fyrir hans fylkingu vegna þess, að hann varð uppvís að því að hafa setið á svikráðum við vinstri stjórnina og komið henni fyrir kattarnef. Ég hélt satt að segja, að hv. 3. þm. Reykv. hefði gert sér grein fyrir þessu. En í stað þess að þetta komi fram í hans máli, þá virðist hann alveg staurblindur að þessu leyti og forherðist hreinlega, forherðist í þeim fyrirætlunum, sem komu í ljós hjá honum fyrir kosningarnar og urðu hans flokki erfiðastar í þeirri kosningabaráttu, sem nýlega var háð. En þessar fyrirætlanir voru einmitt þær að taka upp samvinnu við þá menn í hinum flokkunum, sem vildu standa að því að leggja niður öll héraðakjördæmin og byggja síðan nýja efnahags- og fjárfestingarstefnu á því verki, — stefnu, sem væri miðuð við það að draga úr fjárfestingunni víðs vegar um landið. Það voru einmitt þessar fyrirætlanir, sem urðu svo örlagaríkar fyrir hv. þm. og hans fylkingu í kosningabaráttunni og hefði mér því virzt eðlilegast, að hann hefði dregið af þessu þá lærdóma að hætta við þessar fyrirætlanir. En þess í stað forherðir hann sig, eins og ræðuhöld hans öll bera ljósan vott um, því þótt hann sé með málflutningi sínum að reyna að láta bera lítið á þeim þætti, þ.e.a.s. fjárfestingarmálunum og stefnu sinni í þeim, sem áður var í hans munni aðalatriðið, þá vitum við, að það er bara af ótta við það uppgjör, sem fram undan er, að hann nú er að reyna að leiða athyglina nokkuð að öðrum atriðum. En með því að reyna þetta tekst honum ekki á nokkurn hátt að strika yfir það, sem hann hefur áður látið frá sér fara um þetta og liggur ljósara fyrir en svo, að nokkuð sé um að villast.

Það er enn sem fyrr höfuðinnihaldið í málflutningi hv. 3. þm. Reykv. varðandi vinstra samstarfið, að Framsfl. hafi viljað launalækkun fyrst og fremst og ágreiningurinn um launapólitíkina hafi þannig orðið þeirri stjórn að fjörtjóni, en þeir í Alþb. hafi haldið þar uppi málstað launafólksins í landinu og verkalýðsins sérstaklega. En hv. þm. verður að gæta þess, að það, sem Framsfl, lagði til að gert yrði í launamálunum, var alveg nákvæmlega það sama sem Alþb. hafði fallizt á sumarið 1956, alveg sama eðlis. Það var að falla frá því að taka inn í launin hækkun vegna vísitölustiga, sem fram voru komin vegna þess, sem áður hafði skeð. Það var nákvæmlega sama eðlis eins og það, sem samþykkt var sumarið 1956. Og ég fullyrði, að alveg eins og því var haldið fram 1956 með réttu, að enginn tapaði á því að láta það vera að taka þessi 6 stig inn í kaupgjaldið, eins hefði enginn tapað á því að láta vera að taka nokkur vísitölustig inn í kaupið haustið 1958, eins og Framsfl. lagði til. En það var bara sá munurinn, að hv. 3. þm. Reykv. og hans fylgismenn, kommúnistarnir í Alþb., höfðu ákveðið að koma vinstri stjórninni frá og þess vegna gerðu þeir bandalag við hægra lið Alþfl. og Sjálfstfl. um að koma í veg fyrir, að nokkuð yrði slakað til í þessu efni. Það er alveg vonlaust verk fyrir hv. 3. þm. Reykv. að ætla sér að telja almenningi í landinu trú um það, að till. framsóknarmanna í þessu efni hafi verið fjandsamlegar fyrir launafólk í landinu, — alveg þýðingarlaust. Sú plata, sem hv. þm. spilaði um þetta, er fyrir langa löngu gersamlega útslitin orðin og einskis nýt.

Hv. 3. þm. Reykv. ræddi mikið í þessu sambandi um afskipti framsóknarmanna af launamálum yfir höfuð og spurði t.d.: Hvenær hefur hv. 1. þm. S-M. álitið, að hægt væri að hækka kaupið? Þráfaldlega. Þráfaldlega á undanförnum áratugum hef ég álitið, að það væri hægt að hækka kaupið og sjálfsagt að gera það. En hitt er annað mál, að ég hef ævinlega bent á, að ef kauphækkanir væru gerðar þannig, að það vantaði grundvöll í framleiðslunni, þá mundi ekki verða ávinningur af því að hækka, það yrði sem sagt að miða kaupgjaldið við það, sem framleiðslan gæti ýtrast borið — og ég segi: ýtrast borið. Hv. 3. þm. Reykv. sagði í þessu sambandi, að það væri athyglisverð þróun, sem lægi fyrir í landinu, að almenningur hefði núna lægra kaup, en hann hafði 1947. Heldur nú hv. 3. þm. Reykv. og hans menn, sem hafa ráðið miklu um launapólitíkina og verið talsvert mikils ráðandi í landinu yfir höfuð, — heldur hann nú ekki, að það sé eitthvað bogið við þá stefnu, sem þeir hafa framfylgt, þegar niðurstaðan í þessum málum er að hans eigin dómi sú, uppskeran sú, að kjör verkalýðsins séu lakari nú, en þau voru 1947? Dettur honum ekki í hug, að eitthvað sé bogið við þetta meira en lítið?

Sé þetta rétt hjá hv. þm., þá er vitanlega meginástæðuna fyrir þessu að finna í því, að hv. 3. þm. Reykv. hefur með afskiptum sínum af íslenzkri pólitík komið í veg fyrir, að kauphækkanir þær, sem orðið hafi, hafi notazt fyrir verkalýðinn í landinu. Hann hefur komið í veg fyrir það með því að vera sífellt þrándur í götu eðlilegs vinstra samstarfs, vera það afl í íslenzkri pólitík, sem ævinlega hefur orðið þar til sundrungar og komið í veg fyrir, að slíkt gæti átt sér stað og þarf engan að undra það, þó að hv. þm. hafi komið svona fram, sem hefur hlustað á málflutning hans þessa dagana hér á hæstv. Alþ., að ég nú ekki tali um þá, sem þekktu áður, hvernig hann hefur starfað.

Hv. 3. þm. Reykv. ræddi nokkuð um erfiðleika þá, sem urðu í vinstra samstarfinu, vegna þess að verkalýðsflokkarnir gátu ekki komið sér saman og hann sagði, að Framsfl. hefði viljað sundra verkalýðsflokkunum. Þetta er gersamlega öfugmæli og engum kunnugra um það en hv. 3. þm. Reykv., að framsóknarmenn gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að reyna að bera sáttarorð á milli Alþfl.-manna og Alþb.-manna í verkalýðsfélögunum til þess að fá þá til þess að standa saman að þeirri vinstri pólítík, sem stjórnin vildi reka í efnahagsmálum. En þetta var ekki hægt. Það var komið í veg fyrir það, m.a. af hendi hv. 3. þm. Reykv. og þeirra, sem með honum stóðu. Nú segir hann, að það hafi náðst eining einmitt á milli þessara afla, en þá hefði Framsfl. sundrað vinstri stjórninni. Jú, það var þokkaleg eining, sem náðist. Það náðist samkomulag um það milli kommúnistanna í Alþb. og hægri aflanna í Alþfl. að stöðva allar hugsanlegar efnahagsmálaráðstafanir fyrir vinstri stjórninni. Samkomulag við Sjálfstfl. náðist einnig um þetta. Það var samkomulagið, sem náðist og gladdi svo mjög hv. 3. þm. Reykv. Hvað stóð svo það samkomulag lengi? Hvað stóð það lengi? Hvað var langt þangað til Alþýðuflokksmennirnir sneru svo algerlega við blaðinu? Það stóð nákvæmlega á meðan var verið að koma vinstri stjórninni fyrir kattarnef. Þegar því var lokið, þá var samkomulaginu líka lokið, og þá var það, sem Alþfl.-mennirnir söðluðu algerlega um í kaupgjaldsmálunum og tóku að beita sér fyrir því, að fallið yrði frá vísitölustigunum, sem alls ekki mátti falla frá, á meðan vinstri stjórnin sat. En þá var ágætt að gera það. — Þetta var einingin, sem náðist á milli Alþfl.-manna í verkalýðsfélögunum og Alþb.-manna, sem hv. 3. þm. Reykv. var að dásama og hann sagði að hefði bara hreinlega orðið til þess, að Framsfl. hefði slitið vinstra samstarfinu. Einingin, sem náðist, var einvörðungu um að loka öllum leiðum í efnahagsmálunum fyrir vinstri stjórninni. Það er ákaflega eðlilegt, að hv. 3. þm. Reykv. væri ánægður með þetta, vegna þess að þetta var hans plan, sem hann svo er að reyna að útfæra áfram, sem sé að loka fyrir þennan möguleika í því skyni, að þá hljóti að lokum hitt að verða ofan á, að mynda þessa nýju valdasamsteypu, sem hann dreymir um og byggð er á þeirri stefnu, sem liggur að baki kjördæmabreytingunni.

Hv. 3. þm. Reykv. kvartaði yfir því, að ég vildi ekki ræða um mótsetningarnar, sem væru í þjóðfélaginu á milli alþýðu annars vegar og auðmanna hins vegar og væri blindur fyrir því, hvernig þær andstæður væru. Ég ætla, að ég hafi sýnt fram á það í minni ræðu í gærkvöld svo glögglega, að það þurfi ekkert við það að bæta frá minni hendi, að bezti bandamaður auðvaldsins eða milljóneranna — hinna nýríku milljónera á Íslandi — hefur verið hv. 3. þm. Reykv. Ég sýndi fram á það í minni ræðu í gærkvöld. Og það er með því, að hann hefur sí og æ verið reiðubúinn til þess að beita áhrifum sinum í þá átt, að verðbólgan gæti haldið áfram, og aldrei mátt til þess hugsa að eiga þátt í neinum ráðstöfunum, sem gætu orðið til þess að skapa jafnvægi í þjóðarbúskapnum. En einmitt þetta, að verðbólgan héldi áfram að vaxa, var höfuðráðið til þess að gera þá ríku ríkari. Og þarna liggur þráðurinn á milli hv. 3. þm. Reykv. og þeirra manna, sem hann hyggst nú reyna að ná samstarfi við, hvað sem úr því kann nú að verða, því að eins og ég hef margtekið fram í þessum umr., þá er alveg óvíst, hvernig fer um þessar áætlanir. Það getur svo margt komið til greina í því sambandi, sem óhæfa er að reyna að fara út í nú, því að það mundi lengja allt of mikið þessar umr.

Það er svo bara til gamans, til þess að sýna sýnishorn af málflutningi hv. 3. þm. Reykv., frekar, en það hafi mikla málefnalega þýðingu að benda á slíkt, að ég vil aðeins leiða athygli manna að því, að fyrst byggir hann upp ræðu sína að mjög verulegu leyti á því, að ég hafi það sem höfuðhugsjón að slíta allt stjórnarsamstarf í sundur, sem ég hef komið nærri. Síðan byggir hann svo langan kafla í ræðu sinni ofur litlu seinna á því, að ég byggi alla mína meginhugsun á því einu að taka þátt í ríkisstjórn. Hvernig á að koma þessu heim og saman? Ég bendi nú á þetta til gamans meira en þetta hafi nokkra þýðingu. Þetta er litið sýnishorn. Það er nú of mikið sagt, að það sé ekki heil brú, ég vil ekki viðhafa svo sterk orð, m.a. vegna þess, hvílíka virðingarstöðu hv. þm. hefur með höndum hér í þinginu, þá vil ég ekki segja, að það sé ekki heil brú í þessu, en þetta er lítið sýnishorn af því, hversu samhengislaust þetta spjall hv. þm. er, þegar það er skoðað ofan í kjölinn.

Þá kom hv. þm. enn að nýsköpunarstjórninni og ræddi talsvert mikið um það enn á ný, hversu fráleitt það hefði verið af framsóknarmönnum að taka ekki þátt í henni. Ég hafði nú og aðrir framsóknarmenn gert þessu atriði full skil og skal ekki fara að endurtaka það hér, aðeins segja eina setningu. Framsóknarmenn gátu ekki verið í þeirri stjórn, vegna þess að það var augljóst frá byrjun, að hennar framkvæmdir voru miðaðar við að framfylgja hreinni verðbólgustefnu í efnahagsmálum og ýta undir eyðsluna á öllum sviðum. Það var því augljóst, að þar gat ekki orðið um nýsköpun að ræða, heldur hlaut þetta að verða eyðslustjórn í versta skilningi þess orðs, enda fór það svo, eins og við höfum sýnt fram á í þessum umr., að þannig varð þetta.

Hv. 3. þm. Reykv. viðurkenndi, og það er framför, að framsóknarmenn hefðu viljað leggja 400 millj. til hliðar af gjaldeyrinum eða 100 millj. meira, en sjálfir nýsköpunarkapparnir. En hann sagði, að þetta hefði komið svo seint hjá Framsókn, það hefði komið fram fyrst, þegar hún var orðin utan við. En hv. þm. veit vel og mundi viðurkenna það, ef hann vildi bregða upp réttu ljósi af þessum málum, að það var aldrei neinn ágreiningur um það við Framsfl. að leggja til hliðar sem allra mest af gjaldeyrinum til þess að byggja upp ný atvinnutæki. Um það var aldrei nokkur ágreiningur til. Það mundi hv. þm. líka viðurkenna, ef hann kærði sig um að sýna af þessu rétta mynd. Og þess vegna sýndi þessi tillöguflutningur framsóknarmanna alveg rétta mynd af þeirra viðhorfi og var engin uppfinning eftir á, enda er í þessu sambandi líka nauðsynlegt að taka fram, að það var síður en svo, að framsóknarmenn væru á móti því að setja upp stofnlánadeild fyrir sjávarútveginn og kaupa inn togara. Ágreiningurinn snerist aðeins um það, að framsóknarmenn vildu láta afla raunverulegra fjármuna inn í stofnlánadeildina innanlands, en ekki taka það með verðbólguaðferðum úr seðlabankanum. Þeir vildu láta gera ráðstafanir til þess að skrapa stríðsgróðann innanlands inn í stofnlánadeildina. Um þetta var ágreiningurinn, enda þarf ekki annað en kynna sér meðferð þessa máls, til þess að þetta verði algerlega ljóst.

Hv. þm. segir, að þá fyrst hafi ég og aðrir fengið áhuga fyrir að dreifa togurum út um land, þegar við hefðum komizt að þeirri niðurstöðu, að það gæti staðið í einhverju sambandi við pólitískt fylgi. Þetta er nú ágæt gamansemi hjá hv. þm., því að náttúrlega dettur engum manni það í hug, að honum t.d. gæti dottið í hug, að innkaup á togurum eða annað slíkt gæti staðið nokkuð í sambandi við pólitískt fylgi. Nei, svoleiðis hugsanir koma aldrei til greina hjá þeim hjartahreinu, eins og hv. 3. þm. Reykv., að hugsa svo syndsamlega. Nei, það er algerlega útilokað, það er bara Eysteinn, sem gæti látið sér detta slíkt í hug, að setja innkaup á skipum og annað slíkt í samband við pólitík. — Þetta kalla ég nú hræsni, hreinlega hræsni, —málflutning eins og þetta, — og ekkert annað.

Af og til var hv. 3. þm. Reykv. í ræðu sinni að tala um, að ég hafi verið dragbítur á eitt og annað. Ég er ekki að eyða tíma manna til að fara út í einstök atriði um það, því að flest af því er svo þrautrætt hér áður. En jafnframt var hann að segja, að ég hefði verið hér ráðherra í 25 ár. Það er náttúrlega alveg rangt hjá hv. þm. eins og margt fleira, sem hann sagði. Og má segja um það eins og þar stendur, að hann kærir sig ekki um að hafa það svo nákvæmt, en æði langan tíma að vísu. En hvað hefur skeð um framfarir á Íslandi á því tímabili, sem ég hef átt sæti í ríkisstj. og m.a. verið fjmrh.? Hvað hefur skeð? Hefur það verið eitthvert afturhaldstímabil eða kyrrstöðutímabil í sögu landsins? Það held ég ekki. Ég hygg helzt, að það hafi verið glæsilegasta framfaratímabil í sögu þjóðarinnar. Og ég býst við, að það verði ákaflega erfitt fyrir hv. 3. þm. Reykv., verði svona heldur á brekkuna fyrir hv. þm. að sýna fram á, að slíkt mundi hafa getað farið saman við, að fjárútveganir í þessar framfarir hefði átt að annast maður, sem hefði verið alveg sérstakur dragbítur á allar meiri háttar framfarir í landinu. Ég veit ekki, hvort svona málflutningur á að vera gamansemi eða hvað þetta á að vera, en a.m.k. missir þetta algerlega marks.

Þegar hv. þm. er — eins og hann segir stundum sjálfur, hann notar stundum þau orð — að stilla upp þjóðfélagsmyndinni, þá eru æði víða auðir blettir í þeirri mynd, eins og ég sýndi fram á í gærkvöld. T.d. þegar verið er að ræða um viðskiptamál og uppbyggingu í landinu, þá sér hv. þm. alls ekki samvinnufélögin og vill ekki sjá þau og vill alls ekki viðurkenna, að þau séu neinn sérstakur þáttur í þjóðarbúskapnum, sem þurfi að taka tillit til eða ræða um. Það er þarna eyða í heilabúi hv. þm. Hann virðist alls ekki skilja, að samvinnufélagsskapurinn í landinu er einhver allra þýðingarmesti þátturinn í þeirri viðreisnarbaráttu, sem þjóðin hefur háð og þeirri uppbyggingu, sem átt hefur sér stað síðustu áratugina. Einmitt þessi samtök fólksins eru ein allra þýðingarmestu samtök, sem til eru í landinu. Og ef þeirra hefði ekki notið við, þá hefði alls ekki verið hægt að koma við þeirri uppbyggingu, sem orðið hefur.

Hv. þm. setur þessi samtök fólksins á bekk með heildsölum og öðrum slíkum aðilum í landinu. Hann sér engan greinarmun á því. Það rennur allt út í eitt fyrir hv. þm. Hann a.m.k. læzt ekki sjá þetta. Maður veit svo sem, af hverju þetta er. Það er af því, að hann þarf á þessari falskenningu að halda til þess að flytja þá blekkingu, sem hann lifir á eða reynir að lifa á, þó að það sé nú hálfgert uppdráttarlíf, pólitískt séð, þá stórfelldu blekkingu, að þarna sé enginn munur á, þetta sé allt saman fésýsla, almenn uppbygging í samvinnufélögum sé bara fésýsla, sem eigi að metast á borð við starfsemi heildsala og stórgróðamanna í landinu.

Það er auðvitað ekki von, að hv. þm. geti stefnt rétt, á meðan hann lokar algerlega augunum fyrir þessu, og er full ástæða til þess að benda á þetta.

Þegar ég benti á þennan mikilsverða þátt og hvernig hann skiptir að verulegu leyti vötnum í íslenzkri pólitík: annars vegar þeir, sem vilja gjarnan styðja þessa uppbyggingu fólksins og hins vegar hinir, sem ofsækja þennan félagsskap, af því að þeir þola ekki samkeppnina frá honum, — þegar ég vakti athygli á þessu, þá fór hv. þm. að tala um olíu. Þar með er það mál afgreitt af hans hendi. Það er bara olían. En hvað er með þessa olíu, sem hv. þm. var að tala um? Jú, það er einn þáttur í þessum efnum, og þótt ég vilji ekki eyða stórfelldum tíma til að ræða fram og aftur um það mál, þá vil ég bara benda á þetta í því sambandi:

Það gerðist fyrir nokkrum árum, að samtök útgerðarmanna í landinu og samvinnufélögin sameinuðust um að búa til félag eða félög —tvö munu þau vera — til þess að hafa olíuviðskipti. Þetta er algerlega innlendur félagsskapur byggður á samvinnusamtökunum annars vegar og samtökum útvegsmanna hins vegar. Nú segir hv. þm., að þessi félagsskapur um olíuviðskipti, sem ég var að greina frá, sé í öllu hliðstæður þeim olíufélögum, sem til voru hér, áður en þetta kom til og voru eins konar útibú frá tilteknum erlendum olíuhringum. En þessi félagsskapur er annars eðlis, vegna þess að hann er byggður á innlendri rót algerlega og samansettur af þessum tveimur aðilum, sem ég var að lýsa. Nú er engin ástæða til að ræða um einstök atriði í þessu sambandi, annað en benda á, að þessi félagsskapur, vegna þess, hvernig hann er uppbyggður, hefur haft nú þegar verulega þýðingu fyrir framleiðsluna og þjóðarbúskapinn, í fyrsta lagi með því að lækka olíuverð og bæta viðskiptakjörin, þegar hann tók til starfa, með samkeppni sinni, og í annan stað með því að skila stórum fúlgum til viðskiptaaðila sinna innlendra, í afslætti af því verði, sem annars var gangverð á olíu, þegar þannig hefur árað, að afgangur hefur orðið og loks vegna þess, að með starfsemi þessa félags, sem byggt er upp á þennan hátt, verður til í landinu myndarlegt dreifingarkerfi fyrir olíu og benzín, sem er á vegum innlends félagsskapar, sem á rætur sínar í útvegsmannasamtökunum annars vegar og samvinnusamtökunum hins vegar. Þetta eru stóru línurnar í þessu máli, sem hv. þm. vill alls ekki eða fæst ekki til að veita neina athygli, líka af því, að hann þarf á þessu að halda til þess að skjóta leirfótum undir sína skökku stefnu.

Ég var að minnast hér áðan á það, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði um nýsköpunarstjórnina eða nýsköpunarmálin og í hverju ágreiningurinn var raunverulega fólginn, þegar átökin áttu sér stað um það, hvernig þá skyldi haga stjórnarmyndun. Ég fór ekki langt út í þetta, vegna þess að það er ekki aðstaða til þess og var gert hér ýtarlega í gær. En ég get þó ekki stillt mig um vegna þess, hversu mikið veður er í hv. þm. ætíð, þegar hann minnist á þetta fyrirtæki, — þá get ég ekki stillt mig um að minnast á það örfáum orðum til viðbótar. Sérstaklega er hv. þm. mikið í mun að draga það fram, hversu gífurleg framkvæmd það hefði verið að endurnýja togaraflotann. Einu sinni voru þeir að ræðast hér við, hv. 3. þm. Reykv., sem nú er og hv. þm. G-K. (ÓTh), sem þá var forsrh., –þetta var hér í Nd. 15. des. 1955, — og þá sagði hv. þm. G-K. á þessa lund orðrétt í sambandi við þessi orðaskipti þeirra þá, fornvinanna: „Ég skal nú ekki fara að tala um ræðuna fögru um togarana frá 11. maí 1944.“ Það var ræða., sem hv. 3. þm. Reykv. hafði vitnað til. „Mér þótti hún mjög falleg, líklega af því, að ég hafði skrifað grein um áramótin 1943–44, þ.e. 5 mánuðum áður, um dálítið svipaðar hugleiðingar, svo að það gutlar víðar á hugsjónum en hjá þessum hv. þm.“ Síðar kemur enn orðrétt: „Þurfti nú reyndar enga spekinga til að láta sér detta í hug, að ef við hefðum nokkur hundruð milljónir, þá væri rétt að verja þeim að vissu leyti og að vissu marki til að endurnýja okkar úr sér gengnu atvinnutæki.“ Þetta er nú lýsing hv. þm. G-K. á því, sem raunverulega gerðist þá og hv. 3. þm. Reykv. gumar svo af. Þetta var nú afrekið í augum hv. þm. G-K., sem ásamt fleirum stóð að þessu. Það var sem sé ekki þakkarvert og mátti ekki minna vera, en þessi endurnýjun ætti sér stað, miðað við þau gífurlegu auðæfi, sem höfðu safnazt hér fyrir á stríðsárunum.

Til viðbótar þessu vil ég enn og að sumu leyti þá mönnum til gamans í leiðinni, þó að það sé raunar ekkert gamanmál, því að það er sorgarsaga, sem þjóðin í raun og veru bítur aldrei úr nálinni út af, hvernig fór með þau gífurlegu auðæfi, sem söfnuðust einmitt á stríðsárunum, hvernig fór fyrir tilverknað þeirrar eyðslustjórnar, sem settist að og kallaði sig nýsköpunarstjórn, en aldrei ætti að sjást öðruvísi nefnd svo, en í gæsalöppum, — en til viðbótar vil ég minna á, hvernig svo fór um þessar 300 millj. kr., sem voru bundnar af þessum auðæfum öllum og áttu að renna til nýsköpunarinnar. því fór fjarri, að þær rynnu allar til þeirrar uppbyggingar. Og ég vil aðeins nefna mönnum dæmi um það, hvernig útkoman varð og hvað það var, sem þessir framkvæmdamenn þurftu að tína til upp í þessar 300 millj. til þess að reyna að láta líta svo út eins og sá hluti gjaldeyrisins hefði farið í nýsköpun eða uppbyggingu. Ég nefni aðeins örfá dæmi um, hvað tínt var undir þetta.

Fyrst vil ég nefna, að þar voru taldir vörubílar, eins og ekki hefðu verið til vörubílar áður á Íslandi, það hefði verið alveg sérstök uppfinning. Það var sem sé fært undir nýsköpun að endurnýja vörubílakost landsmanna. En þetta er bara byrjunin. Þá var m.a. á nýsköpunarlistanum prentsmiðja Þjóðviljans, Reykjavík, endurbyggðar prentvélar, 70 þús. dollarar. Þetta var einn liður nýsköpunarinnar. Þá var einhver O.K.A. í Reykjavík með rjómaísvél. Það var einn liður nýsköpunarinnar. Ég tala nú ekki um bökunarofna, sem voru taldir alveg stórfelld nýmæli og yrðu að koma á þennan lista. Þá kemur Óskar Halldórsson, Reykjavík: Veritas-klössun á b.v. Sigríði, 139 þús. kr. Það var nýsköpunarframkvæmd að láta fara fram klössun á eldgömlu skipi. Þá var það Morgunblaðið í Reykjavík. Það hefur sjálfsagt verið ákaflega merkileg nýjung, sem kom þar til greina og sett var á nýsköpunarlistann. Það var blýbræðslutæki. Þá var kökugerðarvél. Og svo var liður, sem hét meðalaglös, — það var einn liður uppbyggingarinnar, meðalaglösin. Ég tala nú ekki um strauvél fyrir hálsbindi, því að það mátti nú kallast merkileg nýsköpun samanborið við meðalaglösin, eða sokkaviðgerðarvélar og því líkt, því að það gat nú verið tæknileg framför í því, enda ekki varið til þess nema 2.050 kr. Svo var möndluvél fyrir G. Ólafsson & Sandholt. Og loks nefni ég fyrir reiðhjólaverzlunina Fálkann varahluti í reiðhjól, — ekki reiðhjól, heldur varahluti í reiðhjól. Það var einn liður nýsköpunarinnar. Í þetta m.a. fór nýsköpunargjaldeyririnn. Og í hvað haldið þið svo að hitt hafi farið, þegar þurfti að tína þetta til til þess að ná upp í 300 millj. kr. af gjaldeyrissölu þessara ára, sem hægt væri að klína á nafninu „nýsköpun“?

Þetta er nú bara ofur lítið sýnishorn af því, hvers konar uppbygging það var eða nýsköpunarframkvæmdir, sem raunverulega urðu á þessu tímabili, eins og raunar hefur verið kröftuglega sýnt fram á, í þessum umr. og yrði bara endurtekning, ef ég færi nánar út í það.

En að lokum vil ég svo aðeins segja þetta:

Það er nú alveg augljóst orðið, að þeir hv. þm., sem standa að þessari kjördæmabreyt., hafa meiri beyg af málinu nú, en nokkru sinni áður við meðferð þess og er þá mikið sagt, enda hafa þeir sannarlega fulla ástæðu til þess. Menn gera sér alveg ljóst, að hér er aðeins verið að byggja grunn. Það er verið að reyna að byggja grunn, ef það mætti líkja svona aðförum við svo göfuga framkvæmd eins og það er að byggja grunn, — hér er verið að reyna að byggja grunn undir það, sem á svo að hlaða ofan á. Og það, sem þeir ætla sér að hlaða ofan á, er hin nýja fjárfestingar- og efnahagsmálastefna, sem ég lýsti hér í gærkvöld og skal ekki ræða nú.

Og þeir munu fá það, sem þeir hafa til stofnað, þeir munu fá það. — Þeir hafa bolmagn til þess að samþykkja þessa stjórnarskrárbreyt. og þeir eru ráðnir í að gera það. Þeir byggja það á meiri hluta á hæstv. Alþ., sem ég segi að sé fenginn með klækjum. Þeir byggja samþykkt stjórnarskrárinnar á meiri hl., sem er þannig fenginn og síðan efna þeir til áframhaldandi baráttu um þetta mál, nú á þessu hausti og hún fer að sjálfsögðu fram. Og þeir hafa stillt þannig til, að sú barátta verður alveg hiklaust framhald af þeirri baráttu, sem varð í vor. Hún verður barátta um byggðastefnuna í kjördæmamálinu og um byggðastefnuna í fjárfestingar- og efnahagsmálunum. Og það er ljósara núna, en nokkru sinni fyrr almenningi í landinu, að Framsfl. er eini flokkurinn, sem fylgir fram byggðastefnunni í kjördæmamálinu og byggðastefnunni í efnahags- og fjárfestingarmálunum. Og það er búið að koma þessum málum þannig fyrir, það hafa hinir gert, að allir þeir, sem byggðastefnunni vilja fylgja, verða og munu fylkja sér um Framsóknarflokkinn í þeim kosningum, sem fram undan eru.

Lúðvík Jósefsson: Herra forseti. Umr. um það stjórnarskrárfrv., sem hér liggur fyrir, eru nú löngu hættar að vera beinar umr. um það mál og komnar út á miklu víðari vettvang og segja má, að nú sé hér farið að ræða um stjórnmálaátökin í landinu almennt. Það hefði vissulega verið freistandi að taka hér frekari þátt í þeim umr., sem hér hafa farið fram, en gert hefur verið frá hálfu andstæðinga þeirra framsóknarmanna. En það liggur alveg augljóst fyrir, hvernig á því stendur, að ekki hafa jafnmargir tekið þátt í þessum umr. eða þær verið jafnmiklar og umr. þeirra framsóknarmanna hafa þó gefið tilefni til. Það er mjög augljóst mál, að þeir hafa leitað eftir því hér að halda uppi almennu málþófi og ræða það mál, sem löngu er fullútrætt, stjórnarskrárbreytinguna. Hér fóru fram mjög ýtarlegar umr. um það mál, áður en kosningar fóru fram, að maður segi ekki á kosningafundum um allt land auk þess. Frá hálfu þeirra framsóknarmanna hefur því í umr. hér ekkert nýtt komið fram til viðbótar við það, sem margsinnis hafði komið fram hjá þeim áður varðandi stjórnarskrárbreytingarmálið sjálft. Ég mun því ekki í þessum orðum, sem ég mæli hér, fara að ræða við þá á nýjan leik um þá breyt. á kjördæmaskipuninni, sem nú má telja ákveðið að hér verði lögleidd, en ég vildi víkja hér nokkrum orðum að þeim almennu pólitísku hugleiðingum, sem hér hafa komið fram.

Hv. 1. þm. S-M. (EystJ) hefur lagt á það hér mikla áherzlu, að vinstri stjórnin hafi verið felld á sínum tíma af ýmsum af forustumönnum Alþb. og fall vinstri stjórnarinnar hafi í rauninni orsakazt af því, að þá hafi menn í Alþb. verið að taka höndum saman við andstæðinga vinstri stjórnarinnar um að reyna að koma þeirri stjórn fyrir kattarnef og fundið til þess sérstaklega kjördæmabreytingarmálið og á bak við það mál liggi sú löngun þessara flokka að ráðast sérstaklega á hagsmuni þess fólks, sem býr úti á landi. Á þessu hefur hv. 1. þm. S-M. þrástagazt hér í þessum umr. og enginn veit það þó betur en hann, að þetta er hans eigin uppspuni frá rótum. Hann veit það mætavel, að það vorum ekki við Alþb.-menn, sem lýstum yfir slitum vinstri stjórnarinnar. Það var hann, sem gerði það og forsrh., Hermann Jónasson, það voru þeir, sem lýstu yfir slitum stjórnarinnar, þó að við samstarfsmennirnir bæði í Alþb. og Alþfl. skoruðum beinlínis á Framsfl. að taka til endurskoðunar þessa yfirlýsingu sína og þó að fyrir lægi sérstök áskorun frá Alþýðusambandi Íslands til forsrh. að taka upp samninga við Alþýðusambandið um lausn á efnahagsmálunum.

Nú vissu allir, að vinstri stjórnin var samningslega skuldbundin til þess að leysa efnahagsmálin í samráði við verkalýðssamtökin í landinu. Því hafði hún lofað. En þegar þingi Alþýðusambandsins er að ljúka, sendir það sérstakt bréf til forsrh. og skorar á hann að taka upp samninga um lausn á efnahagsmálunum við verkalýðssamtökin, en því bréfi var aldrei svarað. Verkalýðssamtökin voru ekki virt svars. Og svo koma þessir menn, sem svona hafa staðið að málunum og halda því fram, að við Alþb.-menn eða Alþfl.-menn, sem í ríkisstj. voru, að við höfum slitið stjórnarsamstarfið. Nei, hið rétta er, að það var uppi ágreiningur út af kaupgjaldsmálunum og sá ágreiningur hafði verið uppi um langan tíma. Þeir framsóknarmenn höfðu flutt till. um, að lækka yrði umsamið kaup í landinu um 8%, eða verkalýðssamtökin í landinu yrðu að gefa eftir 15 vísitölustig af kauplagsvísitölunni án allra bóta. Fyrir þetta atriði þýðir ekki að þræta. Þetta liggur skjalfest fyrir. Þetta var krafa Framsfl. Hitt er líka jafnljóst, að verkalýðssamtökin í landinu vildu ekki fallast á þessa kröfu. Auðvitað er hægt að halda enn uppi ágreiningi um það, hvort krafa framsóknarmanna um eftirgjöf á þessum 15 vísitölustigum hefur verið réttmæt eða ekki og hvort það svar verkalýðssamtakanna í landinu að neita því að verða við þessari kröfu hafi verið réttmætt. En það var deilan um þetta atriði, sem dró til þess, að framsóknarmenn ákváðu, þegar þeir komu ekki fram vilja sínum, að slíta stjórnarsamstarfinu. Það er ekki stórmannlegt að neita þessum staðreyndum á þann hátt, sem hv. 1. þm. S-M. hefur gert hér í þessum umr. og enn þá síður er það stórt af hans hendi, að búa til sögu um, að það, sem olli slitum vinstri stjórnarinnar, hafi verið það, að við Alþb.-menn hefðum ekki viljað veita nægilegt fjármagn til framkvæmda úti á landi. Hann hefur ekki hér í þessum umr. getað nefnt eitt einasta dæmi eða þeir framsóknarmenn, sem þessu hafa hér haldið fram, um það, að við Alþb.-menn höfum staðið á móti réttlátum fjárveitingum til eðlilegra framkvæmda úti á landi, — ekki eitt einasta dæmi. Þeir eru aðeins með fullyrðingar út í bláinn um, að þetta hafi verið vilji okkar.

1. þm. S-M. hefur margendurtekið það hér í þessum umr., að það megi hafa til sannindamerkis um, að okkur hafi ekki verið svo mikið áhugamál að standa gegn kauplækkuninni um þetta leyti, að það hefði út af fyrir sig átt að draga til stjórnarslitanna, að haustið 1956 hefðum við fallizt á, að 6 vísitölustig væru þá gefin eftir af kauplagsvísitölunni, og segir, að það, sem þeir framsóknarmenn hafi farið fram á um það leyti, sem vinstri stjórninni var slitið, hafi í rauninni verið það sama sem gert var 1956. Þetta segir hv. 1. þm. S-M. líka gegn betri vitund. Hann veit miklu betur sjálfur, hvernig þessi mál eru. Hann veit það, að haustið 1956, þegar verkalýðshreyfingin í landinu samþykkti einum rómi að falla frá þessum 6 vísitölustigum, þá gerði hún það með þeim skilyrðum, að tilteknar verðhækkanir, sem annars áttu að skella á og vógu jafnmikið í kaupmætti fyrir verkalýðinn f landi og þessi 6 vísitölustíg, að þessar verðlagshækkanir yrðu ekki látnar koma til framkvæmda. Hér voru því gerð kaup á sléttu og kaupmáttur launþega rýrnaði ekki á neinn hátt í sambandi við þessi vísitölustig. En það, sem farið var fram á nú haustið 1958, var það, að strikuð væru út 15 vísitölustig algerlega bótalaust. Þar átti ekkert að koma á móti. Hann getur því ekki borið þetta tvennt saman sem hliðstæður, þegar hann veit hið sanna, nema þá hann sé vísvitandi að fara með rangt mál.

Hv. 1. þm. S-M. sagði, að við Alþb.-menn hefðum raunverulega gert bandalag við Sjálfstfl. og Alþfl. um að koma vinstri stjórninni frá. Ja, er þetta nú ekki nokkuð mikið sagt af hans hálfu, þegar hann veit, að ágreiningsefnin, sem hér var deilt um, voru einmitt þessi kaupgjaldsmál? Hvernig gátu Sjálfstfl. og Alþfl. komið fram þeirri kauplækkun, sem hér hafði einmitt verið deilt um, nema með því að fá beinan stuðning Framsfl. með þessum till. sínum? Þeir gátu ekki komið kauplækkuninni fram með lögum á Alþingi nema njóta á óbeinan hátt stuðnings Framsfl. Það var því Framsfl., sem í framkvæmdinni sýndi það, að hann brást við þannig í sambandi við það deilumál, sem hafði leyst stjórnina upp, að hann hljóp til fylgis við Sjálfstfl. og Alþfl., því að ef Framsfl. hefði ekki stutt þessa lagasetningu varðandi efnahagsmálin, eins og hann gerði eða með þeim hætti, sem hann gerði, þá hefði stjórnin þá þegar gefizt upp. En Framsfl. var það svo mikið í mun að koma fram kauplækkun hjá launþegum í landinu, að hann hleypti þessum lögum í gegn og vissi vel, hvað hann var að gera.

Það hefur verið athyglisvert í þessum umr., sem þeir framsóknarmenn og alveg sérstaklega hv. þm. S-M. hefur sagt um verðbólguna. Hann hefur flutt hér langt mál um það, hvernig verðbólgan hafi á undanförnum árum skapað ýmsum auðmönnum landsins og auðfyrirtækjum mikinn gróða og hann hefur svo auðvitað í sambandi við allan sinn málflutning reynt að halla þessu á þá lund, að það væru vissir menn í Alþb. og alveg sérstaklega hv. 3. þm. Reykv., sem hafi allan tímann verið að hjálpa auðmönnum í landinu með því að koma þessari verðbólgu sem hæst upp. Ég get að vísu tekið undir það með hv. 1. þm. S-M., að vissulega hefur verðbólgan skapað ýmsum gróðaaðilum í landinu mikinn gróða, ýmsum bröskurum í landinu. Um það er ekki að villast. En það vil ég segja, að enginn maður á Íslandi ber eins mikla ábyrgð á vexti verðbólgunnar á Íslandi á undanförnum tveimur áratugum og einmitt 1. þm. S-M., — enginn einn. Hvað er það, sem hefur orðið stórtækast í þessum efnum? Hvað er að segja um þær miklu verðsveiflur, sem hafa orðið í sambandi við gengislækkanirnar? Kom hann kannske ekki neitt nærri gengislækkununum, sem samþykktar hafa verið? Skyldi það ekki hafa komið ýmsum gróðabrallsmönnum heldur þægilega í þessu landi að fá þá verðsveiflu samþykkta með lögum frá Alþingi, sem þýddi það raunverulega, að miðað við þau skapandi verðmæti, sem voru að falla til, lækkuðu skuldir þessara manna sem gengislækkuninni nam? Og voru það ekki einmitt við Alþb.-menn, sem stóðum á móti þessum verðsveiflum? Og hvað var svo að segja um átökin í efnahagsmálunum, sem urðu hér á Alþingi og innan vinstri stjórnarinnar vorið 1958, eftir einmitt að 1. þm. S-M. hafði lagt fram í vinstri stjórninni hvað eftir annað till. um nýja gengislækkun og eftir að hann hafði lýst því þar yfir, að hann vildi fallast á 90% yfirfærslugjald, sem hefði þýtt stórkostlega aukna verðbólgu frá því, sem áður var? Þá var það, sem einmitt 1. þm. S-M. var að stríða við þetta, sem hann hefur unnið að árum saman, að reyna að spenna verðlagið í landinu sem allra hæst upp, auka einmitt á verðbólgugróða braskaranna. Við Alþb.-menn stóðum á móti þessum till. hans í vinstri stjórninni. Við stóðum á móti því, að verðbólgubraskararnir fengju að græða á þessari pólitík. En við féllumst á það sem síðustu tilraun okkar til þess að halda vinstri stjórninni saman, að þó yrði farin hér millileið inn á mun minni verðhækkun en 1. þm. S-M. hafði sérstaklega barizt fyrir. Þá var 55% yfirfærslugjaldið samþ., sem vitanlega hratt af stað nýrri verðhækkunaröldu í landinu og kallaði vitanlega á eftir á almennar kauphækkanir.

Þegar hv. 1. þm. S-M. greinir hér frá þeirri staðreynd, að kaupmáttur vinnulauna sé jafnvel minni nú árið 1959, en hann var árið 1947, þá er það ekki vegna þess, að það sé að kenna verkalýðssamtökunum í landinu, að þau hafi raunverulega unnið of slælega að því að halda uppi kaupmætti launa sinna meðlima, heldur er það vegna þess, að hann hefur sjálfur haft það mikil áhrif á stjórn landsins, að hann hefur í sífellu verið að koma fram þeim aðgerðum í efnahagsmálunum, sem hafa stefnt til þess að minnka kaupmátt launþeganna í landinu, að hækka verðlagið, auka verðbólguna, auka á gróða braskaranna, verðbólgubraskaranna í landinu. En svo kemur þessi hv. þm. hér fram og spyr hv. 3. þm. Reykv. að því, hvort það muni nú ekki vera eitthvað gallað í vinnubrögðunum hjá honum og verkalýðshreyfingunni, að kaupmátturinn skuli hafa minnkað. Hann, 1. þm. S-M., hefur hér ekki komið nærri. Hann hefur ekki haft neina aðstöðu til þess að hafa nein áhrif á þessi mál. Hann á hér enga sök. Nei, þetta heitir að snúa við staðreyndum. Þetta heitir að reyna að koma sök af sjálfum sér yfir á aðra.

Það er með öllu rangt, að það hafi staðið á okkur Alþb.-mönnum eða forustumönnum verkalýðshreyfingarinnar í landinu að vilja standa að vinstri stjórn, sem ræki heilbrigða vinstri stefnu. Hitt hefur legið ljóst fyrir allan tímann og liggur fyrir jafnljóst í dag, að slíkri vinstri stefnu eins og 1. þm. S-M. dreymir í sífellu um, vinstri stefnu, sem miði að því að hækka verðlag í landinu, lækka kaup í landinu, skerða kaupmátt launþega í landinu, — slíkri vinstri stefnu viljum við ekki vinna að með honum. Hann verður að hafa aðra samstarfsmenn, en okkur Alþb.-menn til þess að koma slíku fram, enda hefur hann allajafna fundið sér þá og það er mjög sennilegt, að hann finni slíka samstarfsmenn áfram. En hann ætti ekki eða þeir framsóknarmenn að reyna að halda því fram fyrir hugsandi fólki í landinu, að það, sem þeir berjist fyrir í þessum efnum, sé vinstri stefna. Og finnst mönnum ekki æði kátbroslegt að hlusta á þá framsóknarmenn hér í þessum umr., þegar þeir telja sig vera komna vinstra megin við okkur, þeir eru orðnir aðalvinstriflokkurinn? Við erum víst orðnir einhver miðflokkur?

Ég minnist nú þess, að hv. 1. þm. S-M. hefur ekki alltaf mátt heyra það nefnt, að Framsfl. væri vinstri flokkur. Þá hefur hann þurft að undirstrika það, að hann væri einmitt miðflokkur, Framsfl., á milli öfganna til hægri og vinstri, hann væri miðflokkur, hann vildi ekki láta flokka sig sem neinn vinstri flokk. En nú stendur hann lengst til vinstri, og Alþb. og Alþfl. eru bara miðflokkar. Hann er sá rétti vinstri flokkur. Hvílík öfugmæli.

Það er rangt, að það hafi nokkurn tíma verið stefnt að því af verkalýðssamtökunum í landinu eða okkur Alþb.-mönnum að stöðva eðlilegar efnahagsmálaráðstafanir, t.d. í tíð vinstri stjórnarinnar. En við vildum, að það væri staðið við það, sem heitið var í stjórnarsáttmálanum, en það var að reyna að stöðva verðlagið, reyna að koma í veg fyrir aukna verðbólgu. En það var einmitt krafa þeirra framsóknarmanna, að það væri stefnt að hækkandi verðlagi, að aukinni verðbólgu, og á því sprengdu þeir ríkisstj., þegar þeir fengu ekki vilja sínum framgengt í þeim efnum. Þeir vildu ganga alveg þvert á þann stjórnarsáttmála, sem var lagður til grundvallar samstarfinu.

Þessi málflutningur allur viðvíkjandi samstarfi flokkanna á undanförnum árum og tildrögum til þess, að vinstri stjórnin fór frá völdum, málflutningur þeirra framsóknarmanna í þessum efnum hefur verið svona álíka réttur eins og þegar þeir fara að skýra frá því, hvað var raunverulega að gerast í íslenzkum stjórnmálum á tíma nýsköpunarstjórnarinnar. Nú er það aðalatriðið, að þeir framsóknarmenn vildu sem sagt, eftir þeirra útskýringu nú, gera miklu meira til nýsköpunar á þessum tíma en hinir flokkarnir. Af því gátu þeir ekki verið með þeim. Og svo er reynt að gera eins lítið úr því, sem þá ávannst í sambandi við nýsköpun atvinnutækjanna í landinu, og hugsanlegt er og gleggst kom fram í síðustu ræðu 1. þm. S-M., þegar hann hljóp í það að telja upp hvers kyns innflutning, sem hefði verið heimilaður af þeim reikningi, sem stofnaður hafði verið sérstaklega í sambandi við þessar nýsköpunarframkvæmdir. Auðvitað er rétt, að það þurfti á þessum tíma að veita gjaldeyri til innflutnings á ýmsum almennum neyzluvörum og almennum eyðsluvörum, sem ekki er hægt að komast hjá, vegna þess að svo höfðu verið stjórnarhættirnir, sem m.a. þeir framsóknarmenn báru mesta ábyrgð á og 1. þm. S-M., að það hafði ekki verið hægt að endurnýja vörubílakost landsmanna. Það hafði ekki verið hægt að fá að kaupa eðlilega varahluti í hinar nauðsynlegustu vélar landsmanna, og menn höfðu jafnvel verið sektaðir fyrir að leyfa sér þá ósvinnu að flytja inn fiskiskip. Það þurfti að snúa þessum málum þannig við, að það var ekki hægt að komast hjá því að veita nokkurn gjaldeyri til þessa, til þess að taka nokkuð af þeirri miklu skekkju, sem hans skammsýna stjórn hafði ráðið. En það er ekki nein ástæða til þess að gera lítið úr því, að á þessum tíma voru keyptir 33 nýsköpunartogarar, okkar langsamlega öflugustu og fullkomnustu framleiðslutæki, sem við eigum enn í dag og hafa á undanförnum árum — eða frá því að þeir voru keyptir — malað þjóðinni margfalt innkaupsverð sitt eða fullt innkaupsverð sitt svo að segja árlega síðan.

Þeir framsóknarmenn skildu það ekki á þessum tíma, þegar efnt var til nýsköpunarsamstarfsins, að við þyrftum að endurnýja togaraflotann. Aðalfjármálasérfræðingur þeirra framsóknarmanna um þessar mundir, sá maðurinn, sem þeir settu af sinni hálfu sem bankastjóra Landsbankans, skrifaði um það fræðilega grein, lagði það til opinberlega og skrifaði um það í blöð líka, að það væri mesta fásinna að taka þennan dýrmæta gjaldeyri þjóðarinnar og kaupa fyrir hann togara. Hann lagði til, að við lánuðum útlendingum þessa peninga og hirtum vextina í staðinn. Hann benti á, að það mundi mega fá árlega í kringum 12 millj. kr. í vexti, ef við lánuðum út alla summuna með 4% vöxtum. Þetta voru tillögur Jóns Árnasonar. Ekki kom það fram á þessum tíma, að þeir framsóknarmenn stæðu á móti þessu. Þeir trúðu meira á það á þessum tíma að lána erlendum aðilum út gjaldeyriseign þjóðarinnar heldur en að við ættum að nota þessa gjaldeyriseign okkar til þess að kaupa okkur framleiðslutæki, sem gætu malað okkur gjaldeyri á hverju ár, og þeir voru með hvers konar fyrirslátt í frammi þá, eins og reyndar hv. 1. þm. S-M. varð að viðurkenna nú. Þá var ástandið þannig hér í efnahagsmálunum, að það þurfti sitt hvað að gera. Það var ekki hægt að taka þann gjaldeyri, sem fyrir lá á reikningum bankanna erlendis og kaupa fyrir hann skip erlendis. Nei, fyrst þurfti að hans dómi að fara í það, eins og hann sagði hér í umr. núna, að skrapa saman stríðsgróðann innanlands og ef ekki náðist samkomulag um það og það var ekki hægt að ná saman nógu miklum fjárfúlgum innanlands, þá urðum við auðvitað að vera án allra togaranna. Nei, hér var um hina herfilegustu skammsýni að ræða, — skammsýni, sem lengi mun tolla við forustu Framsfl.

En það voru ekki aðeins þessir 33 nýsköpunartogarar, sem voru keyptir á þessum tíma þrátt fyrir skilningsleysi þeirra framsóknarmanna. Um þetta leyti endurnýjuðum við okkar bátaflota svo, að í einu vetfangi keyptum við inn nýja báta, sem jafngiltu 1/3 af öllum bátaflota landsmanna og á þessum tíma réðumst við í mestu framkvæmdir, sem við þekkjum í sambandi við uppbyggingu í okkar fiskiðnaði, byggingu frystihúsa um allt land. Og það er einmitt þessi stofn, sem hefur verið fram til dagsins í dag meginstofninn undir gjaldeyrisframleiðslu þjóðarinnar á undanförnum árum og á þessu ári. Ég held því, að það sé kominn tími til þess, að þeir framsóknarmenn hætti að gera lítið úr því, sem ávannst á nýsköpunartímanum, því að þeir eru einmitt sjálfir búnir að lifa á því, sem þá var gert, nú um margra ára skeið. Það hefði sannarlega orðið þröngt í búi, bæði hjá ríkissjóði og auðvitað öllum landsmönnum, ef ekki hefði verið farið í þessar miklu framkvæmdir, sem þá var ráðizt í. Hefðum við þá farið eftir þessari skammsýnisleið fjármálasérfræðings framsóknarmanna, að lána gjaldeyri okkar út til erlendra aðila í staðinn fyrir að kaupa okkur sjálfir framleiðslutæki, þá hefði farið illa fyrir okkur.

Eitt af því, sem hv. 1. þm. S-M. minntist hér á, voru þær deilur, sem hér hafa verið uppi æði oft um olíufélögin í landinu og þá pólitík, sem Framsfl. hefur rekið í þeim efnum og eins og jafnan áður, þegar komið er að því, að þeir lýsi sjálfir sínum verkum, þá er allt fallegt þar að sjá. Olíufélag þeirra var ágætt félag, alíslenzkt félag og að því stóðu samvinnuhreyfingin í landinu og útvegsmenn, og þessi samtök höfðu unnið að því að lækka verð á olíum og verið á margan hátt mjög gagnleg. Þetta var lýsing 1. þm. S-M., og það mátti svo sem skilja, að mikill var munur á þessum olíufélögum og hinum tveimur. En ég er nú hræddur um, að staðreyndirnar séu heldur á annan veg, ef menn vilja skoða þær.

Nei, þessi olíufélög þeirra framsóknarmanna hafa verið byggð upp á alveg hliðstæðum grundvelli og braskararnir hafa byggt upp hin olíufélögin. Það vantar svo sem ekki, að þeir kalla þau félög vera alinnlend félög, sem eigi bara viðskipti við tiltekin útlend félög, nákvæmlega eins og þeir framsóknarmenn gera með sitt. Það vantar ekki, það er íslenzkt nafn á því, það heitir Olíufélagið h/f, þó að það þurfi nú reyndar að merkja mikið af eignum sínum með Esso, vegna þess að það er þetta heimsolíufélag, sem vitanlega ræður þarna öllum lögum og lofum og er alveg hliðstætt því, sem hið brezka B.P. er gagnvart Olíuverzlun Íslands h/f. Það er enginn munur á uppbyggingunni þar. Og útvegsmönnum var ekki gefinn kostur á því að vera í þessu félagi, þegar það var stofnað, nema með þeim skilyrðum, að þeir væru þar í greinilegum minnihluta. Það voru tiltekin 5 félög, sem voru talin upp, sem áskildu sér rétt til að hafa yfir 50% af hlutafénu. Almenn olíusamlög útvegsmanna úti um landið fengu ekki að gerast aðilar að þessu olíufélagi þeirra framsóknarmanna nema undir þessum kringumstæðum, að 5 félög, sem þeir framsóknarmenn réðu algerlega yfir, áskildu sér þar meirihlutarétt. Og mín reynsla af þessum olíusamtökum þeirra framsóknarmanna er sú, að þann tíma, sem ég hafði nokkuð með þessi mál að gera í ríkisstj., þá bar það langt af, að olíufélag þeirra framsóknarmanna var langkröfuharðast um það og setti fram flestar kröfur og hæstar kröfur um að fá hækkun á því verðlagi á olíum, sem gilti á hverjum tíma. Það gekk alltaf fram fyrir bæði Shell og B.P. í kröfum sínum um að fá hækkaða verðlagningu. Og þessi félög hafa hvað eftir annað verið tekin og dæmd af opinberum dómstólum fyrir það að hafa ætlað að taka óréttilega til sín of hált verð á olíu.

Hið rétta í þessu er, að komið hafa fram tillögur og það æði oft hér á Alþingi og innan fyrrv. ríkisstj., vinstri stjórnarinnar, um það að gera einmitt olíuverzlunina þannig úr garði, að það væri alveg tryggt, að almenningur í landinu eða notendur olíu fengju notið beztu viðskiptakjara, að ríkið t.d. tæki í sínar hendur allan innflutning á olíum og að eðlileg olíusamlög útvegsmanna og annarra, sem vildu stofna til olíusamlaga samkv. þar gildandi lögum, gætu fengið að kaupa olíuna með sannvirði frá ríkisverzlun.

En hvernig fór þá fyrir hinum róttæka vinstri flokki, sem nú stendur til vinstri við alla flokka í landinu? Hvar stóð hann þá? Hann var á móti því, að það væri tryggt, að ríkið annaðist eitt innflutning á olíum til landsins. Hann var á móti því, að það væri tryggt, að einmitt olíusamlögin, sem eru byggð upp á hreinum samvinnufélagsgrundvelli, fengju eðlilega aðstöðu til þess að kaupa til sín olíur á sannvirði. Þá tók einmitt samvinnuflokkurinn, Framsfl., afstöðu með sérhagsmunafélagi sínu, sem var byggt upp á nákvæmlega sama sérhagsmunagrundvellinum og hin olíufélögin tvö, sem voru fyrir, — þá tók hann afstöðu með þeim og móti einmitt samvinnufél., sem höfðu verið stofnuð víða um landið sem olíusamlög til þess að dreifa olíu. Hugsjónin náði nú ekki lengra en þetta. En svona hefur þetta æði oft verið. Þegar reynt hefur á það, hversu mikill vinstri flokkur Framsfl. raunverulega er í framkvæmd, þá hefur það ekki náð lengra, en þetta.

Það hefur ekki staðið á okkur Alþb.-mönnum að styðja samvinnuhreyfinguna í landinu. Við höfum yfirleitt alls staðar gert það, þar sem við höfum haft aðstöðu til þess, og það munu engin dæmi þess hér á Alþ., að við höfum ekki viljað veita þeim samtökum eðlilegan styrk. En hitt er annað mál, að það er vitanlega ekki hægt að neita því, að Framsfl. hefur í framkvæmdinni, tíðum hagað sér svo, að hann hefur beinlínis stefnt að því, að það yrðu hörð pólitísk átök um starfsemi samvinnufélaganna. Það er ósköp eðlilegt um samvinnufélög, sem eru stofnuð á þeim grundveili, að það eru menn í þeim úr öllum flokkum, eða fleiri flokkum en Framsfl. a.m.k., að slíkir menn eru ekkert ánægðir með að sjá það, t.d. í almennum kosningum til Alþ., að þá sé hvert kaupfélagið af öðru gert að kosningaskrifstofu fyrir einn flokk og þar eigi allt starfsliðið að vera, launað starfsfólk hjá samvinnufélagi, að það eigi að vera sérstakt baráttulið á kosningadegi og nota einnig aðstöðu viðkomandi kaupfélags rétt eins og eignir síns flokks, einum flokki til framdráttar. Þetta vitanlega skapar deilur, slík misnotkun á almennum félögum eins og þetta og ég segi, að það er Framsfl., sem einmitt ber ábyrgð á því, ef þessar deilur leiða til óhapps fyrir samvinnuhreyfinguna, og hann ætti að sjá að sér í tíma og misnota ekki hreyfinguna á þennan hátt. Hann getur ekki nefnt um það nein dæmi, að við Alþb.-menn t.d. styðjum ekki kaupfélögin eða samvinnuhreyfinguna með eðlilegum hætti, bæði hér á Alþ. og einnig í framkvæmd. En auðvelt er að sanna svona misnotkun Framsfl. á þessari hreyfingu í vissum tilfellum.

Svo er það allsherjarinntak, sem nú er að verða í ræðum þeirra framsóknarmanna, m.a. þegar kjördæmabreytingarmálið er á dagskrá, að þeirra skoðun í því máli og þeirra stefna sé hin svonefnda byggðastefna, þeirra stefna sé byggðastefna, en hinir flokkarnir allir, sem hafa aðra skoðun á skipun kjördæmamálsins, séu á móti byggðastefnunni. Þeir séu á móti því, að hlúð sé að landsbyggðinni og því fólki, sem þar lifir. Það er rétt að skoða dálítið nánar, hvernig þetta hefur raunverulega komið fram.

Nýsköpunarstjórnin var svo ósvífin, þessir voðalegu flokkar, sem að henni stóðu og standa líka að þeirri kjördæmabreyt., sem nú liggur fyrir, hún var svo ægileg, að hún ráðstafaði fullum helmingi af togaraflotanum, sem þá var keyptur, út á land, til landsbyggðarinnar. Og þá risu upp margir togaraútgerðarbæir úti um land, sem aldrei höfðu tekið þátt í togararekstri áður. Svona voru nú þessir andstæðingar byggðarlaganna úti á landi voðalegir, sem stóðu að þessari stjórn. En einmitt þessi ráðstöfun hefur orðið einna drýgst til uppbyggingar á þessum stöðum. Og einnig sú uppbygging, sem þá átti sér stað í sambandi við fiskiðnaðinn í landinu og í sambandi við bátakaupin, fór aðallega fram til handa einmitt sjávarbyggðarlögunum úti um allt land. Þar urðu framkvæmdirnar mestar í þessum efnum. Það skipti stórkostlega um frá því, sem hafði verið áður, í tíð þess flokks, sem sérstaklega kallar sig byggðaflokk og flokk með byggðastefnu. Nei, hið rétta er það, að Framsfl. á sinn stóra þátt í því að hafa í nokkur undanfarin ár, sérstaklega á tímabilinu 1952–56, rekið þá stefnu í landinu í atvinnumálum, sem var landsbyggðinni hættulegust og stefndi hreinlega til þess að eyða landsbyggðinni í stórum landshlutum. Það var á þessu tímabili, sem efnt var til hinnar miklu hernámsvinnu suður á Keflavíkurflugvelli, og m.a. þm. Framsfl. þá gengu ötullega fram í að koma fólki utan af landsbyggðinni í þá vinnu. Á þessu tímabili var það, sem fólksflóttinn utan af landi byrjaði fyrir alvöru. Þá var það, sem jafnvel heil sveitarfélög lögðust gersamlega í auðn og önnur minnkuðu um helming. Þessi stefna var vitanlega gegn byggðunum úti á landi. Hún var stórhættuleg. En það voru einmitt forustumenn í verkalýðshreyfingunni, sem á árinu 1955 hófu upp kröfuna um það á þingi Alþýðusambandsins, að það væri alveg lífsnauðsyn að gera stórt átak til atvinnulegrar uppbyggingar úti á landi til þess að reyna að snúa við þessari óheillaþróun. Á þessum tíma hafði Framsfl. ekki fundið upp þetta orð: „byggðastefna“. Þá mundi hann ekki eftir byggðunum. Þá var þetta ekkert aðalatriði. En nú er reynt að mála þetta upp þannig, að hann einn sé með því að styrkja hagsmuni landsbyggðarinnar. En í hverju hefur það komið fram? Ja, mér vitanlega ekki í neinu öðru en því, sem framsóknarmenn mundu tilnefna sjálfir, að þeir vilji viðhalda einmenningskjördæmum úti á landi. En það er nú svo, að jafnvel þó að maður líti á það mál, þá er það auðvitað æði einkennilegt, hvernig það má vera aðalatriði fyrir menn úti á landi að hafa þann misjafna rétt, sem einmitt er á milli byggðarlaganna.

Ég vil aðeins nefna dæmi úr mínum heimahögum, Suður-Múlasýslu eða því kjördæmi, að þar voru íbúar samkvæmt síðasta manntali 5.700 manns. Og þetta umdæmi átti að kjósa tvo þm., eins og allir vita. En ef við tökum hinn hlutann úr Austfjarðakjördæminu, Norður-Múlasýslu og Austur-Skaftafellssýslu og Seyðisfjörð, þá voru íbúar á þessu svæði ekki 5.700 eins og í Suður-Múlasýslu, heldur voru þeir 4.600, eða 1100 færri. En á þessu svæði átti að kjósa 4 þm. Ætli það sé eitthvað voðalegt fyrir Austfirðinga almennt, þó að þeir megi allir saman kjósa með jafnþungum og miklum atkvæðisrétti? Er það einhver sérstök byggðastefna að heimta mismun á milli byggðarlaganna í sambandi við kosningarrétt? Ég hef ekki orðið þess var, að þeir framsóknarmenn hvorki nú né fyrr stæðu með nokkrar sérstakar till., sem mættu verða landsbyggðinni til sérstakra hagsbóta, sem aðrir flokkar og þá þeir flokkar, sem vilja standa að kjördæmabreytingunni, stæðu á móti. Hvers vegna ekki að nefna eitthvað af þessum málum? Hvers vegna ekki að sanna með dæmum, í hverju þessi barátta Framsfl. lýsir sér fram yfir aðra flokka að hagsmunamálum fólksins úti á landi? Eða er það kannske þannig, að þeir séu búnir að slengja þessu saman, að sé unnið sérstaklega að hagsmunamálum Framsfl., þá séu það um leið hagsmunamál fólksins úti á landi? En það hefur ekki alltaf farið saman. Framsfl. hefur vegnað allvel stundum og hann hefur kunnað vel við sig í ríkisstjórnum, þó að fólkið flytti unnvörpum utan af landi og treysti sér ekki til þess að lifa við þau lífsskilyrði, sem því voru búin þar af stjórn Framsfl.

Þegar í þessum umr. var minnt á það, að Framsfl. hafi lagt á það höfuðáherzlu í tíð vinstri stjórnarinnar að fá samþykkta 8% bótalausa kauplækkun og talið það skipta svo miklu máli, að hann þurfti að slíta samstarfinu, þá spurði hv. 1. þm. S-M.: Ja, hvað fengu svo launþegar í staðinn fyrir það að fallast ekki á þessa 8% kauplækkun? Hafa þeir ekki fengið 13.4% kauplækkun í staðinn? — Í fyrsta lagi er hér ekki nákvæmlega með farið, því að þessi samanburður fær ekki fullkomlega staðizt. Krafa framsóknarmanna var 8% bótalaus kauplækkun, þar sem ekkert átti að koma í staðinn. 13.4% kauplækkunin var ekki alveg af sömu tegund. Þar var að vísu um talsverða alveg bótalausa kauplækkun að ræða. Ríkisstj. heldur því fram og þeir stjórnarflokkarnir, að hún hafi verið 5.4%, þessi bótalausa kauplækkun. Það er skoðun okkar, að hún hafi verið nokkru meiri. En það er þó mjög vafasamt, að hún hafi verið meiri en 8%, vegna þess að vissulega komu hér tilteknar niðurgreiðslur á móti, þó að öll sú verðlækkun, sem ríkisstj. var að spá, hafi ekki komið fram. En ekki viljum við neita því, að það var samþykkt tiltekin niðurgreiðsla á vöru, sem vitanlega kom hér á móti. En hvernig stóð á því, að þessi kauplækkun, hvað sem við köllum hana, 8 eða 9% eða 13.4%, hvernig stóð á því, að hún náði fram að ganga? Það vita þeir framsóknarmenn, að það eru þeir, sem bera höfuðábyrgðina á því, að þetta var samþykkt. Þeir höguðu afstöðu sinni þannig hér á Alþingi við afgreiðslu efnahagsmálafrv., að þeir raunverulega tryggðu því framgang. — [Fundarhlé].

Herra forseti. Ég hafði fyrst í þessari ræðu gert nokkrar athugasemdir við ýmsar ræður framsóknarmanna, sem haldnar hafa verið hér nú í þessari d. í sambandi við umr. um stjórnarskrármálið, og þá nær eingöngu vikið að þeim atriðum, sem fjölluðu um stjórnmálin almennt. Ég átti nokkuð eftir af minni ræðu, en get væntanlega lokið henni á stuttum tíma.

Eitt af því, sem þeir framsóknarmenn hafa í þessum almennu umr. lagt mjög þunga áherzlu á, er það, að nú stefnir til þess, að við Alþb.-menn séum að taka upp samstarf hér á Alþingi með sjálfstæðismönnum og Alþfl.-mönnum og þessu er sérstaklega haldið fram vegna þess, að við höfum gert samkomulag við þessa tvo flokka um kosningar á forsetum þessa þings. Nú má vera augljóst mál öllum mönnum, að það út af fyrir síg, þó að flokkar komi sér saman um að skipta með sér forsetum, segir harla lítið til um stjórnmálalegt samstarf, enda eru mörg dæmi þess, að flokkarnir hafi unnið þannig saman í sambandi við kosningu forseta, án þess að hafi verið um nokkurt frekara samstarf að ræða. Og hér í umr. hefur verið á það bent, að við höfum t.d. áður kosið forsetaefni þeirra framsóknarmanna, án þess að þar væri um nokkurt frekara samstarf að ræða. En að þessu sinni lá það í rauninni alveg augljóst fyrir, að það eina eðlilega var á þessu þingi, að þeir 3 flokkar, sem saman hafa staðið að stjórnarskrármálinu, héldu áfram nú á þessu sumarþingi og bæru sameiginlega ábyrgð á því, að þetta þing afgreiddi það mál, sem því er ætlað fyrst og fremst að sjá um afgreiðslu á, en það er afgreiðsla stjórnarskrárfrv. og þá um leið kosningalaga, sem séu í samræmi við þessa stjórnarskrárbreytingu. Það hefði ekki verið hægt að skilja það á annan veg en svo, að við Alþb.-menn, ef við hefðum skorazt undan því að taka að okkur forsetastörf til jafns við hina tvo flokkana hér á þessu þingi, værum að skorast undan ábyrgð af því að koma því máli hér fram með eðlilegum hætti, sem við höfðum þó staðið sameiginlega að, að samþykkja fyrr á Alþingi, enda vita framsóknarmenn fullvel, að það er ekki um neitt samstarf á milli okkar Alþb.-manna að ræða og sjálfstæðismanna eða Alþfl.-manna um nein önnur málefni, en að koma fram þessari stjórnarskrárbreytingu. Það vita þeir fullvel, enda er það auðvitað augljóst mál, að samstarf flokka getur ekki byggzt á þeim grundvelli einum, að þeir hafi komið sér saman um að skipta með sér forsetum deilda eða forsetum í þinginu. Það þurfa að vera ákveðin málefni til grundvallar og um það þarf vitanlega að gera tiltekið samkomulag.

En í þessu sambandi, þegar framsóknarmenn gera svona mikið úr þessu og að þetta eigi að tákna, að við Alþb.-menn stefnum nú til samstarfs við Sjálfstfl. og Alþfl., sem þeir hafa engin rök getað fært að önnur en þessi, að hér hafi orðið um samkosningu að ræða á Alþingi á milli þessara flokka um forseta þingsins, þá vildi ég benda á, að það virðist svo vera, að þeir framsóknarmenn hafi haft talsverðan hug á því fyrir ekki löngu að komast í samstarf með Sjálfstfl. um stjórn landsins. Ég minnist þess, að þeir voru ekki fyrr búnir að slíta vinstristjórnarsamstarfinu í vetur, en þeir gáfu það út, að þeir óskuðu sérstaklega eftir því, að það mætti takast með þeim og Sjálfstfl. og reyndar öðrum flokkum samstjórn. Þegar sem sagt þeir höfðu slitið samstarfinu við Alþfl. og Alþb. gegn þeirra vilja, þá óskuðu þeir eftir sérstöku samstarfi við Sjálfstfl. Þetta liggur ómótmælanlega fyrir. Og það sýndi sig líka, að þar var um að ræða nokkra málefnalega samstöðu í stóru máli, því að það var greinilegt, að það var samstaða á milli Sjálfstfl., Alþfl. og Framsfl. um þær efnahagsmálaráðstafanir, sem gerðar voru einmitt upp úr áramótunum. Í öllum aðalatriðum var þar um samstöðu að ræða. Og ég þykist hafa skilið það rétt, að eitt stærsta atriðið í efnahagsmálastefnu Framsfl. á s.l. ári og reyndar enn sé einmitt krafan um almenna gengislækkun, sem Sjálfstfl. hefur líka sett fram, sem sitt stefnuatriði, að það beri að stefna að gengislækkun. Það bendir því vissulega margt til þess, að þessir flokkar ættu að geta náð saman af þessum ástæðum, vegna þess að stefnur þeirra virðast liggja æði mikið saman í þessum stóru atriðum. Það væri því margföld ástæða fyrir okkur Alþb.-menn til þess að halda því fram, að framsóknarmenn stefni að því að setjast í stólana með íhaldinu, miðað við það, sem þeir hafa til þess að halda slíku fram um okkur Alþb.-menn. Hitt er svo annað mál, að eins og við vorum fúsir til þess að halda áfram stjórnarsamstarfi við Framsfl. um þau stefnumál, sem við gátum náð samkomulagi um, ef þeir vildu standa að þeim á heiðarlegan hátt og framkvæma þau, þá munum við ekki heldur neita því að samþykkja hér á Alþingi með Sjálfstæðisflokknum þau málefni, sem við metum mikils og teljum, að fram þurfi að ganga.

Breytingin á stjórnarskránni er eitt af þeim stóru málum, sem við höfum lengi barizt fyrir að fram þyrfti að koma. Það var hægt að nú viðhlítandi samkomulagi við Sjálfstfl. um þá breytingu og við vitanlega settum það ekki fyrir okkur, þó að það væru Sjálfstfl. og Alþfl., sem stóðu með okkur að þessari breytingu, en ekki Framsfl. og Alþfl., eins og við höfðum þó gert okkur vonir um áður.

Það er annars býsna athyglisvert hér í þessum umr., þessum almennu stjórnmálaumr., sem hér hafa farið fram í sambandi við þetta mál, hve mjög þeir framsóknarmenn leggja kapp á það að ráðast á okkur Alþb.-menn. Það er alveg greinilegt, að íhaldið er algert aukaatriði í þeim umr. Það er sérstaklega við okkur að deila. Ég hef að vísu einnig beint máli mínu til þeirra framsóknarmanna, en eingöngu sem svaratriði við því, sem þeir hafa þegar sagt í þessum umr.

Það verður enginn flokkur vinstri flokkur á því, þó að hann hrópi það nokkrum sinnum, að hann sé vinstri flokkur og þó að hann látist vera það. Hann verður ekki dæmdur vinstriflokkur, nema hann hafi sýnt það í raun og veru, að hann hafi staðið með vinstri málefnum og hans pólitík sé vinstrisinnuð í raun og veru. Það er vitanlega oft og tíðum hægt, ekki sízt rétt fyrir kosningar, að látast vilja allt annað, en maður hefur í reyndinni viljað. Ýmislegt af framkomu þeirra framsóknarmanna hér nú, sérstaklega í þessum almennu umr., bendir mjög til þess, að þeir látist nú vera allir aðrir, en þeir hafa komið fram með að vera. Ég verð t.d. að segja það, að mér finnst þær till., sem þeir hafa flutt hér viðvíkjandi húsnæðismálum, einmitt bera vott um þetta. Ekki það, að ég gæti á margan hátt samþykkt þessar till., sem þeir hafa verið að flytja hér, ég teldi aðeins eðlilegt að samþykkja þær, en hitt er mér jafnljóst, að á undanförnum árum, þegar þeir framsóknarmenn höfðu mjög sterka og góða aðstöðu til þess að koma þessum málum eitthvað áleiðis, þá lágu þeir alltaf þverir í veginum og þeir vita það manna bezt, að það, sem mest hefur staðið á í þessum efnum, t.d. af hálfu seðlabankans, er einmitt þeirra maður, Vilhjálmur Þór, sem þar hefur verið stærsti þröskuldurinn í veginum. Hann hefur alltaf mælt á móti því, að seðlabankinn stuðlaði að því að útvega fé til íbúðabygginga, og hann hefur rekið þau mál mjög slælega, t.d. hvað viðvíkur því að reyna sölu á vísitölubréfunum. Það kemur því í rauninni úr hörðustu átt, þegar framsóknarmenn hér á Alþingi núna rétt fyrir kosningar eru að reyna að gera sig digra í þessum efnum. Ég vil líka minna á, að í vinstri stjórninni gerðum við Alþb.-menn kröfu um það og fulltrúar í verkalýðshreyfingunni, að vinstri stjórnin legði fram nokkurt aukafé til byggingar á verkamannabústöðum, Það stóð í löngu samningastappi við forustumenn Framsfl. að koma þessu fram og upphæðin var verulega skorin niður, sem í þetta var lögð, vegna mótstöðu þeirra framsóknarmanna. Ég vil líka minna á þá miklu samninga, sem fram fóru í árslok 1957 og ársbyrjun 1958 milli forustumanna í verkalýðshreyfingunni og ríkisstj. þá um nauðsynleg fjárframlög til íbúðabygginga, sem enduðu með samkomulagi um það, að ríkisstj. skuldbatt sig til að sjá um, að húsnæðismálakerfið fengi þá um 40 millj. kr. til þess að leysa vanda húsnæðismálanna. Þetta hefst ekki fram, fyrr en eftir langa og harða samninga og meginkröfunum frá hálfu fulltrúa verkalýðssamtakanna var neitað. Og allan tímann í vinstri stjórninni stóð það svo, að þáv. fjmrh. neitaði því algerlega, að til mála kæmi að taka erlent lán til þess að greiða fyrir íbúðarhúsabyggingum í landinu.

Það má kannske segja, að það sé gott, ef þeir framsóknarmenn hafa skipt um skoðun í þessum efnum og eru nú allir aðrir en þeir voru og ekki skal standa á okkur út af fyrir sig að vera með þeirra till., sem miða í rétta átt í þessum efnum. En þeir gefa ómögulega slegið sig neitt til riddara í þessum efnum á svona till., þegar það er haft í huga, hver þeirra afstaða hefur verið til þessara mála þann tíma, sem þeir gátu raunverulega ráðið hér um framkvæmdir. Hið sama gildir um önnur atriði í sambandi við þá vinstri stefnu, sem þeir þykjast nú ætla að reka. Það verður tekið með fullri gætni af öllum að trúa því, hversu mikill vinstri flokkur Framsfl. er, hafandi í huga, hver stefna hans hefur verið einmitt að undanförnu.

Á það hefur verið minnzt hér nokkrum sinnum af þeim framsóknarmönnum, sem hér hafa talað, að allir flokkar, aðrir en flokkur þeirra hafi komið ódrengilega fram við kjósendur í síðustu alþingiskosningum í sambandi einmitt við kjördæmabreytingarmálið, þar sem aðrir flokkar hafi lagt áherzlu á, að það væri ekki kosið um kjördæmabreytingarmálið, heldur ýmis önnur málefni. Ég vil algerlega neita þessu og tel, að þetta sé alveg rangt. Mér er ekki kunnugt um annað, en að einmitt allir hinir flokkarnir hafi tekið það hvað eftir annað fram, jafnt í útvarpsumræðum sem annars staðar, að þeir skoruðust sannarlega ekki undan því að ræða kjördæmabreytingarmálið og þeir teldu það vissulega eitt af stærstu málum sumarkosninganna. Hins vegar bentum við á það, að kosningarnar voru samkvæmt okkar stjórnarskrá þannig, að þær gátu ekki verið eingöngu um kjördæmabreytingarmálið, þær voru jafnhliða almennar alþingiskosningar, það var verið að kjósa alþingismenn, sem vissulega gátu tekið þá afstöðu að afstöðnum kosningum að sitja út allt næsta kjörtímabil. Það var því vitanlegu eðlilegt, að flokkarnir væru einnig dæmdir í kosningunum með hliðsjón af því, hver stefna þeirra hafði verið í öðrum stórmálum þjóðarinnar, en auðvitað átti að dæma þá líka — og því héldum við fram — eftir því, hver afstaða þeirra hafði verið til þess stórmáls, sem stjórnarskrárbreytingarmálið vissulega var.

Ég vil minna á það í þessu sambandi, að þegar breyting var gerð á stjórnarskránni árið 1942 — eða síðast — og mjög stóð svipað á og nú, þá fjallaði sumarþingið, sem staðfesti stjórnarskrárbreytinguna, um allmörg önnur mál. Á því sumarþingi voru sett 11 lög, 7 stjórnarfrv. voru gerð að lögum og 4 frv. þingmanna, og á þessu sumarþingi voru samþykktar 22 þáltill. Þessi atriði sýna, að reynslan hefur verið sú, að vissulega hefur hið nýkjörna Alþingi haft vald til þess að afgreiða þýðingarmikil málefni og það hefur gert það. Ég býst líka við því, að hefðu þessar kosningar farið á annan veg en þær fóru, þá hefði t.d. komið hér upp nú á þessu sumarþingi stjórnarmyndunarmál. Það var vitanlegt mál, að hér var við völd bráðabirgðaminnihlutastjórn og það mátti alveg búast við því, að hér yrði það mál tekið upp á þessu sumarþingi, sem ekki hefur verið, eflaust að verulegu leyti vegna þess, að kosningarnar fóru þannig, að hér skapaðist jafnteflisaðstaða. Það má segja, að þeir flokkar, sem studdu ríkisstj., hafi fengið 26 þingmenn, en þeir, sem voru andvígir stjórninni, fengu líka 26. Það var líka algerlega rangt að halda því fram í sumarkosningunum, að þær kosningar snerust einvörðungu um kjördæmabreytingarmálið. En það er rangtúlkun í þessum umræðum frá hálfu þeirra framsóknarmanna að segja, að aðrir flokkar hafi algerlega mótmælt því, að kosið væri um kjördæmabreytingarmálið, því að það var viðurkennt af öllum hinum flokkunum sem eitt af þeim stærstu málum, sem fyrir kjósendum lágu.

Ég held, að stefna sú, sem Framsfl. hefur hvað eftir annað sýnt í ýmsum mikilvægustu þjóðmálum okkar og stefna sú, sem hann m.a. hefur barizt fyrir í sambandi við kjördæmaskipun landsins og kosningarrétt, sé þess eðlis, að það sé ekki hægt að kalla þá stefnu frjálslynda vinstri stefnu og miklu oftar hafi sá flokkur rekið beina hægri stefnu, enda lengst af verið í beinu sambandi við Sjálfstfl, í landinu. Það er því ekkert komið fram enn, sem bendir til þess, að Framsfl. geti sérstaklega kallað sig einhvern íhalds andstöðuflokk. Ég held, að rök þau, sem hafa verið færð fram í þessum umr. af hálfu þeirra framsóknarmanna í þá átt, verði dæmd heldur léttvæg, þegar til dóms kemur hjá hv. kjósendum. Það liggur sem sé alveg skýrt fyrir, að Framsfl. hefur tekið þátt í því á Alþingi á undanförnum árum hvað eftir annað að samþykkja beina launalækkun þvert ofan í gildandi samninga. Hann hefur slitið því stjórnarsamstarfi, sem hann hefur átt með vinstri flokkunum, æ ofan í æ á kröfu sinni um beina launalækkun. Slíkt bendir ekki til þess, að hann sé vinstri flokkur. Hans saga er sú, að hann stóð gegn ýmsum mikilvægustu þáttum í setningu tryggingalöggjafarinnar; og sú fjármálastefna, sem m.a. bankastjórar þessa flokks, eins og Jón Árnason, sem ég minntist á hér áður og Vilhjálmur Þór nú síðar, hafa sérstaklega sett fram, sú fjármálastefna hefur sannarlega ekki verið lituð mikilli vinstri stefnu. Og boðskapur flokksins um nauðsyn gengislækkunar, sem komið hefur fram æ ofan í æ, er ekki heldur sérstaklega sterk sönnun fyrir því, að Framsfl. sé vinstri flokkur.

Ég skal svo ljúka þessum athugasemdum mínum aðeins með því að víkja að því, að þær breytingar, sem nú stendur fyrir dyrum að gerðar verði á kjördæmaskipun landsins, um það verður ekki deilt, að þær breytingar voru orðnar óhjákvæmilegar. Barátta Framsfl. gegn þessum breytingum er ekki sprottin af því, að þeir framsóknarmenn viðurkenni ekki með sjálfum sér, að það hafi þurft að gera allvíðtækar breytingar á kjördæmaskipuninni, heldur er barátta þeirra eingöngu miðuð við það, að þeir geti hagnazt um nokkur atkvæði á þessari baráttu hjá því fólki víða á landinu, sem er nú þannig sett, að það vill gjarnan halda í gamalt form og gamlar reglur. Það hefur því komið fyrir í hvert skipti, sem kjördæmaskipuninni hefur verið breytt, að Framsfl., sem alltaf hefur verið á móti öllum breytingum, hefur hagnazt nokkuð á þessu brölti sínu í fyrri kosningunum, en svo hefur aftur gengið af honum fylgið í síðari kosningunum, vegna þess að þá hafa kjósendur viðurkennt staðreyndir. Breytingin var orðin og þá hafa menn farið að glíma við verkefnin, eins og þau lágu þá orðið fyrir og þá hefur farið svo, að Framsfl. hefur týnt atkvæðum aftur. Og það er spá mín, að það fari á sömu leið í þetta skiptið.