10.08.1959
Efri deild: 6. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í B-deild Alþingistíðinda. (53)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég mun ekki hér við þessa umr. ræða þau atriði, sem hv. frsm. minni hl. ræddi hér um áðan, það verður verkefni hv. frsm. meiri hl. og er engin ástæða fyrir mig að grípa þar inn í. En hér við 1. umr. féllu ýmis orð, m.a. frá hv. þm. Str., sem gáfu mér tilefni til þess að ræða nokkuð þetta mál, auk þess sem það hefur aldrei verið tækifæri fyrir mig til þess að ræða málið hér á Alþ. áður.
Í stjskrn. þessarar hv. d. lagði hv. minni hl., þeir Hermann Jónasson, hv. þm. Str., og Karl Kristjánsson, hv. þm. S-Þ., fram till. um að afgreiða frv. það til stjórnarskipunarlaga á þskj. 1 shlj. þeirri dagskrá, sem hv. frsm. minni hl. hefur nú lýst hér á þskj. 24 og minni hl. n. hefur nú gert grein fyrir. Minni hl. rökstuddi dagskrártill. sína með því, að kosning sú, sem fram fór 28. júní s.l., hefði ekki snúizt eingöngu um þetta mál, eins og raunverulega hefði átt að gera, heldur samtímis verið haldið uppi áróðri á vinstri stjórnina, sem ríkt hefði 2½ ár af því kjörtímabili, sem lauk 28. júní s.l. Það sé því vitað, að af þessum ástæðum hefði ekki komið fram mynd af vilja þjóðarinnar í stjórnarskrármálinu. Þessari sömu skoðun höfðu hv. þm. Framsfl. haldið fram í báðum hv. d. Alþ., auk þess sem blaðakostur flokksins beitir þessum rökum óspart gegn samþykkt frv. á þessu þingi. Í sambandi við þennan málflutning sagði hv. þm. Str. við 1. umr. málsins hér í þessari hv. d., að á framboðsfundum fyrir síðustu kosningar hefðu fylgjendur frv. hvergi viljað ræða málið, heldur notað allan ræðutíma sinn til þess að deila á vinstri stjórnina. Eftir kosningarnar væri því hins vegar haldið fram, að málið væri endanlega afgert, þar sem nærri ¾ greiddra atkv. hefðu léð því fylgi. Og þessi sama skoðun kom einnig fram nú hjá hv. frsm. minni hl. Hér hefðu vægast sagt verið notaðir hrekkir í þessu máli, hér væri ekki verið að hugsa um réttlæti, um hag þjóðarinnar eða vilja kjósenda, heldur væri verið að spinna voðir í pólitískar tjaldbúðir fyrir framtíðina, eins og hv. þm. orðaði það. Þm. fullyrti, að þannig hefði málsmeðferðin verið á öllu Vesturlandi og hvarvetna annars staðar á landinu, þar sem hann hefði fréttir af og það hefði einkum verið Sjálfstfl. og frambjóðendur hans, sem lengst hefðu gengið fram í þessum hrekkjabrögðum í kosningunum.
Hv. 1. þm. Eyf. tók einnig mjög undir þessi ummæli formanns Framsfl. og staðfesti, að þannig hefði málflutningurinn einnig verið í hans kjördæmi af hálfu þeirra frambjóðenda, sem fylgdu frv. En hann bætti því við, að hann hygði það einsdæmi meðal lýðræðisþjóða, að þrír stjórnmálaflokkar þytu saman og reiknuðu út, hve mikinn hag þeir hefðu af breytingu á stjórnarskránni og hespuðu svo málið í gegn með það fyrir augum og helzt á þann hátt, að ekkert mætti um það ræða. Sami hv. þm. hélt því fram einnig, að nú ætti ekki lengur að kjósa um menn, heldur aðeins um flokka, það væri hneyksli að breyta stjórnarskránni án heildarendurskoðunar, svo sem lofað hefði verið árið 1944.
Þó að stjórnarskrárbreyt. hafi verið þrautrædd, bæði á síðasta þingi, á öllum framboðsfundum fyrir síðustu kosningar, í útvarpi fyrir þær kosningar, í málgögnum allra flokka og nú síðast í báðum d. hæstv. Alþ., sem allt sýnir, að þau ummæli hv. 1. þm. Eyf., að hespa eigi málið í gegn, helzt á þann veg, að ekkert megi um það ræða, eru í fullu ósamræmi við staðreyndir og engan veginn samboðin jafnágætum og jafnmerkum þm. og hann er, þá vil ég við þessa umr. málsins ræða málið nokkuð og þó einkum þær fullyrðingar hv. þm. Framsfl., sem ég minntist hér á, í upphafi og ég tel að eigi megi standa ómótmæltar í þingtíðindunum.
Ég átti þess engan kost að ræða þetta mál á framboðsfundum fyrir síðustu kosningar við hv. þm. Str., sem ég þó á engan hátt hefði skorazt undan, ef tækifæri hefði boðizt til þess, en það atvikaðist nú þannig einhvern veginn, að fyrir þær kosningar lágu leiðir okkar ekki saman, eins og oft áður hefur verið. Ég get því ekkert um það sagt, hvernig umr. um málið hefur verið háttað á þeim fundum, sem hann vísar til á Vesturlandi og hann sjálfur var á, né heldur neitt sagt um þá fundi, sem hv. 1. þm. Eyf. eða aðrir frambjóðendur Framsfl. ræddu málið á. En mér er hins vegar vel kunnugt um þá sjö framboðsfundi, sem haldnir voru í Barðastrandarsýslu fyrir kosningarnar, en á þeim fundum munu hafa mætt um 6/4 allra kjósenda þar í sýslu. Það tókst svo til, að frambjóðandi Framsfl., þáverandi þm. kjördæmisins, var fyrstur á mælendaskrá og hafði 40 mínútur til umráða í fyrstu umferð. Mest allan þann tíma notaði hann til þess að ræða um stjórnarskrárbreyt. Hann flutti þar skelegga, vélritaða ræðu um málið, taldi þar fram alla galla þess og enga kosti og gekk svo langt í málflutningi sínum gegn málinu að fullyrða, að íslenzk menning væri í mikilli hættu stödd, ef mál þetta næði fram að ganga. Hitt væri aftur óumdeilanlegt og óafturkallanlegt, að sjálfstæði Barðstrendinga væri með samþykkt þessa máls að fullu og öllu úr sögunni og þar með einnig möguleikar þeirra til batnandi lífskjara á öllum sviðum í framtíðinni. Reykjavíkurvaldið, þ.e. Sjálfstfl., eins og hann komst að orði, mundi gera sér íbúa í dreifbýlinu vinveitta og háða, eins og hann orðaði það. En það væri sama sem að gera þá að þrælum sínum, bæði í hugsunum og athöfnum. Ekkert minna var nú í húfi, ef Barðstrendingar fylktu ekki liði gegn þessu voðamáli. Ég skal taka það fram, að ég hneykslaðist ekkert á því, þótt þessi ræða væri flutt af blöðum, eins og hv. þm. Str. virtist hafa gert um ræður þeirra andstæðinga sinna, er hann hlustaði á og hann gaf í skyn að hefðu e.t.v. verið búnar til af öðrum að öllu eða einhverju leyti. Og ég var ekki einn um það að álykta og viðurkenna, að ef frambjóðandinn treysti sér til þess betur að flytja svo alvarlegt mál skriflega, en munnlega, þá væri ekkert til þess takandi, það var hans einkamál og kom okkur hinum ekkert við. Hitt vakti hjá mér nokkra furðu að hlusta síðar á nákvæmlega sömu ræðuna í útvarpi flutta af Daníel Ágústínussyni, frambjóðanda Framsfl. í Borgarfjarðarsýslu og er ég spurði mótframbjóðanda minn að því, hvort hann hefði lánað Daníel sína ræðu eða fengið hana lánaða hjá Daníel, varð honum svarafátt. Upplýstist í þeim umr., að ræðan mundi hafa verið samin af miðstjórn Framsfl. og e.t.v. af sjálfum formanni hans, hv. þm. Str., og útbýtt í hæfilega mörgum eintökum fyrir þá umbjóðendur flokksins, sem ekki væri treystandi til að geta varið málið betur eða haldið betur á sókn málsins á fundunum.
Er því ekki að leyna, að allt varð þetta til þess, að áhrif ræðunnar fóru ekki vaxandi og var þó ekkert að finna að flutningi hennar. Sjálfstfl. átti á þessu enga sök. Þessa sömu snjöllu ræðu um málið flutti frambjóðandi Framsfl. í Barðastrandarsýslu á fimm af sjö fundum, sem við héldum sameiginlega í sýslunni. En hann gerði meira, en það til þess að kynna kjósendum þennan voða, sem af því hlyti að leiða að samþykkja stjórnarskrárbreyt. Hann ferðaðist þar um, svo að segja á hvert einasta heimili og skýrði kjósendum frá því persónulega og á sinn hátt, hversu mikill voði væri hér á ferðum og þá var gengið svo langt, að reynt var að telja bændum trú um, að þetta væri nú síðasta skiptið, sem þeir fengju greiddan jarðabótastyrkinn, ef stjórnarskrárbreytingin næði fram að ganga, því að þá mundu einnig þau fríðindi verða afnumin og kosningin í Barðastrandarsýslu gæti vel orðið lóðið á vogarskálunum, því að ef Framsfl. og Alþb. næðu sameiginlega meiri hluta í þessum kosningum, mundu Sjálfstfl. og Alþfl. ekki hafa þingfylgi einir til þess að koma málinu fram — og þá mætti svo sem semja um lausn málsins á milli Framsfl. og Alþb. Ég skal ekki leggja á það neinn dóm, hvort slík bardagaaðferð kallast hrekkir á siðferðismælistiku Framsfl., en þetta allt sýnir fyllilega, að þessi frambjóðandi gerði allt, sem í hans valdi stóð, til þess að afla fylgis gegn samþykkt málsins.
Á öðrum framboðsfundinum, sem haldinn var í Flatey, henti það slys, að frambjóðandi Framsfl. gleymdi gersamlega framsöguræðunni í 35 mínútur af þeim 40, er hann hafði til umráða í 1. umferð og hafði þá og í seinni umferðum nóg með að verjast spjótalögum út af öðrum atriðum, en hann notaði þó síðustu tvær mínúturnar til þess að biðja afsökunar á því, að þetta skyldi hafa farið þannig, að hann fékk engan tíma til þess að ræða aðalmálið, hann yrði því að láta sér nægja að vísa í rök, sem fram væru sett í Tímanum, í Kjördæmablaðinu og menn heyrðu í útvarpinu flutt af öðrum frambjóðendum Framsfl. En allt slysið var því að kenna, að ég notaði 5 mínútur af mínum frumræðutíma til þess að lýsa sök á hendur þm. og Framsfl. fyrir að hafa brugðizt þeirri skyldu sinni að framkvæma skýlaus fyrirmæli Alþ. um afhendingu atvinnutækis til hreppsins og aðstoða hann til þess að reka það, svo að fólksflótti úr hreppnum yrði stöðvaður. Afleiðingin af því hafði orðið sú, að nú vofir sú hætta yfir, — ekki einasta yfir þeim hreppi, heldur og tveim aðliggjandi hreppum, að þeir fari í eyði — þvert ofan í fyrirmæli þingsins og án nokkurrar heimildar voru hlutir þessa atvinnutækis fluttir í aðra staði, þar sem nóg var um atvinnu og með því drepin öll von fólksins um möguleika til áframhaldandi búsetu í þeim hluta héraðsins, sem það ekki vildi flýja, en varð að yfirgefa og ganga þar frá eignum sínum, sem verða mundu verðlausar og eyðast að síðustu að fullu vegna niðurníðslu og vanrækslu Framsfl. Og þetta var látið ske, á sama tíma sem margfalt stærri upphæðir voru greiddar til annarra héraða, sem höfðu þess miklu minni þörf, samanber Seyðisfjörð.
Sjálfstfl. átti enga sök á þessu óhappi. Hér var að verki hin sígilda staðreynd, að sök bítur sekan og það svo grimmilega, að hann gleymdi aðalerindi sínu, að halda uppi sókn fyrir málstað flokksins í kjördæmamálinu. Á fimmta framboðsfundinum stytti frambjóðandi Framsfl. frumræðu sína um helming. Við höfðum allir komið okkur saman um að halda aðeins eina ræðu hver og stytta hana um helming, en haga þannig orðum okkar, að ekki gæfist tilefni til andsvara. Var þetta tilkynnt í upphafi fundarins. En þegar við höfðum hver um sig talað þannig hinn tilsetta tíma og bjuggumst við fundarslitum, þá reis upp greind bóndakona og gerði þessa fsp. til frambjóðendanna: Hvers vegna hrökklaðist vinstri stjórnin frá? Ég hef aldrei á pólitískum fundi fundið dýpri þögn, en varð við þessa einföldu spurningu, þegar henni var varpað fram. Þegar enginn af okkur frambjóðendum varð til svara eða andsvara, krafðist ég þess af þm., að hann svaraði spurningunni, enda skyldi ég fyrir mitt leyti leysa hann undan því samkomulagi, sem gert hefði verið um ræðutíma. Ég minnist þess ekki að hafa skemmt mér betur á nokkrum framboðsfundi, en engan þátt tók ég í þeim umr., sem út af þessari spurningu spunnust.
Ég hef hér skýrt frá, á hvern hátt frambjóðandi Framsfl. hélt á þessu máli á framboðsfundum og hve langan tíma hann notaði í frumræðu til þess að skýra málið fyrir kjósendum, en þess skal jafnframt getið, að í svarræðum sínum, sem hver frambjóðandi hafði 30 mín, í tveim umferðum, minntist hann varla á málið, nema hvað hann jafnan í ræðulok bað menn að gleyma því ekki við kjörborðið, hvað við lægi, ef hann næði ekki kosningu og fylgjendur stjórnarskrárbreyt. héldu meiri hluta kjörinna fulltrúa til Alþingis.
Ég skal þá að gefnu tilefni skýra frá málflutningi okkar hinna frambjóðendanna þriggja, sem vorum fylgjendur breyt., vegna þess að það var mjög véfengt hér af hv. þm. Framsfl., að við eða frambjóðendur þríflokkanna vildu nokkuð ræða þessi mál. Ég fullyrði, að hver okkar notaði meira, en helming af öllum ræðutíma okkar hvers um sig til þess einmitt að ræða þetta aðalmál kosninganna og sumir miklu meira. Og mér þykir rétt, að hér komi fram efnislega þau rök, sem ég færði fram fyrir því, að samþykkja bæri stjórnarskrárbreyt., bæði til þess að sýna, að þær fullyrðingar hv. þm. Str., að málið hafi ekki verið rætt af frambjóðendum þríflokkanna á framboðsfundum á Vesturlandi, hafi ekki við rök að styðjast og eins til þess að gera hér grein fyrir afstöðu minni til málsins, en þess hef ég ekki átt kost fyrr við umr. á Alþingi.
Eins og kunnugt er, var stjórnarskipunarlögum breytt síðast 1944 vegna lýðveldisstofnunarinnar. Um sjálfa lýðveldisstofnunina höfðu þá um tveggja ára skeið staðið harðar deilur hér á Alþ. og þótt að lokum tækist að sameina allan þingheim og alla þjóðina um farsæla afgreiðslu málsins og það mest fyrir frábæra sameiningarhæfileika formanns Sjálfstfl., hv. þm. G-K., þá er þó vitað, að Alþfl. og hálfur Framsfl. með formann sinn í broddi fylkingar voru andvígir lausn málsins á því tímabili og stóðu því gegn því svo lengi sem stætt var. Er skemmst að minnast í því sambandi á danska handtakið, sem frægt var lengi fyrir og menn munu lengi muna eftir. Það skal þó viðurkennt, að andstaða Framsóknarflokks heiftarinnar mun að miklu leyti hafa stafað af valdarýrnun flokksins vegna breytingar á stjórnarskipunarlögunum 1942, en það ár var kjördæmaskipuninni breytt í það horf, sem hún er nú í, gegn hörðum og lítt skynsamlegum mótmælum Framsfl. Þá var á lofti haldið öllum þeim hrakspám um réttindamissi dreifbýlisins, sem nú hafa verið færðar fram gegn þessari breyt., sem nú er rætt um og stendur til að lögfest verði. En allt reyndist þetta á annan og betri veg. Þess var því ekki að vænta, að nokkurt samkomulag yrði á þeim tíma um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar eða aðrar breyt. en þær, sem nauðsynlegar voru til þess að koma lýðveldisstofnun á, enda reyndist það svo.
Það var þá fullt samkomulag um að breyta 1. gr. stjórnarskipunarlaganna frá 1942, en hún hljóðaði þá — með leyfi hæstv. forseta — þannig: „Stjórnskipulagið er þingbundin konungsstjórn.“ Var gr. breytt á þann veg, sem hún er enn í dag, en hljóðar þannig — með leyfi hæstv. forseta: „Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn.“
Það var kaldhæðni örlaganna og sýndi berlega virðingarskort þáv. meiri hl. Alþ. fyrir sjálfri stofnuninni og skilningsleysi þeirra sem fulltrúa þjóðarinnar að samþykkja einróma greinina þannig undir óþingbundinni ríkisstj. Það jók á engan hátt virðingu þingsins, að það skyldi ekki ríkja nægur samstarfsvilji til þess að mynda þingbundna ríkisstj. til að koma fram jafnörlagaríku máli, sem þjóðin þó stóð öll einhuga um að síðustu. Þetta vakti þá slíka gremju meðal þjóðarinnar, að það hrikti um stund raunverulega í sjálfu þingræðinu og háar raddir heyrðust um það, að réttast væri að senda slíka fulltrúa heim, þeir væru sannarlega betur fallnir til einhverra annarra hluta, en að sitja á Alþingi sem fulltrúar þjóðar sinnar á örlagastundu. En meginástæðan fyrir því, að þetta tókst ekki, var sú, að Framsfl. á Alþingi með hv. þm. Str. í forsæti fyrir flokknum þar, var ekki viðmælandi vegna þeirrar breyt., sem þá hafði nýlega verið gerð á stjórnarskipuninni, á stjórnarskipunarlögunum.
Skömmu eftir lýðveldisstofnunina hrinti meiri hl. Alþ. af sér þessu ámæli, að hér sæti óþingbundin ríkisstj., og myndaði þá undir forustu Sjálfstfl. þá ríkisstj., sem lagði undirstöðu undir allar þær framkvæmdir, sem síðar hafa orðið í landinu og hver útlendur gestur, sem hingað kemur og ber nokkurt skyn á þau mál, undrast yfir og telur ævintýri líkastar. En eins og kunnugt er, átti Framsfl. ekkert sæti í þeirri ríkisstj.
Bæði þá og tvisvar sinnum síðar hefur Sjálfstfl, bægt frá þeim vansa, að hér sætu óþingbundnar ríkisstj. og með því ekki einasta séð um, að þessi ákvæði stjórnarskipunarl. væru haldin, heldur haldið uppi virðingu þingsins og aukið hana. Að uppfyllt yrði hitt ákvæði 1. gr. l., að hér á landi skyldi vera lýðveldi, hefur Sjálfstfl. jafnan barizt fyrir, allt síðan það var lögtekið 1944. En þar hefur Framsfl. staðið á móti af öllu afli og stendur enn með afstöðu sinni til afgreiðslu þessa máls, sem hér er til umr. í dag.
Í þessu sambandi er rétt að spyrja: Hvað er lýðveldi? Er það lýðveldi, að meiri hl. kjörinna þm. með mikinn minni hl. að baki sér fyrirskipi miklum meiri hl. kjósenda að beygja sig undir lög og reglur, sem settar eru af slíkum meiri hl. á Alþ., hversu óvinsæl sem slík lög kunna að vera? Nei, slíkt er ekkert lýðræði. Slíkt stríðir fullkomlega gegn fyrirmælum 1. gr. gildandi stjórnskipunarlaga. En það er þetta lýðræði, sem Framsfl. berst fyrir að skapa og viðhalda beinlínis vegna þess, að honum er það lífsnauðsyn til þess að halda völdum í landinu. Reynslan hefur margsýnt oss, að það er ógerningur að framkvæma jafnvel nauðsynlegustu lagaákvæði fyrir þjóðarheildina, sem þannig eru til orðin, ef þau á sama tíma skerða um stundarsakir hag hennar eða valda henni erfiðleikum. Þegar svo stendur á, vill þjóðin sjálf ráða, á hvern hátt byrðinni er deilt niður á þegnana. Kom þetta og greinilega fram í ræðu hv. 2. þm. S-M. við 1. umr., er hann sagði, að ógerlegt hefði verið fyrir Framsfl. að stjórna landinu í næstu 4 ár, þó að hann hefði hlotið meiri hl. kjörinna þm. við síðustu kosningar og gæti stöðvað kjördæmabreyt. og því hefði það verið rangt að halda því fram, að ekki hefði orðið að kjósa að nýju í haust, þótt svo hefði til tekizt. — [Fundarhlé.]
Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að bera fram í sambandi við það, sem ég hef skýrt frá hér að framan, hvort það sé skoðun þessarar hv. d., að það sé lýðræði, að rétt kjörinn meiri hl. þm. með meiri hl. kjósenda að baki við sig beiti valdi sínu takmarkalaust í löggjöf og framkvæmd. Ég frá mínu sjónarmiði tel það ekki vera. Það eitt er lýðræði að mínu áliti og í samræmi við 1. gr. stjórnskipunarlaganna, að rétt kjörinn meiri hl. þm., sem á bak við stendur meiri hl. kjósenda, beiti valdi sínu í löggjöf og framkvæmd með fullu tilliti til tillagna og óska minni hl., að svo miklu leyti sem það er þjóðinni allri í hag. Ekkert annað er lýðveldi. Allt annað er flokksveldi eða eitthvað annað lakara.
Í Bretlandi, þar sem lýðræðið er talið einna traustast, þó að þar sé annars konungsríki, er þetta viðurkennt á þann hátt, að þar er stjórnarandstaðan launuð til þess að halda uppi gagnrýni, beinlínis til þess að tryggja það, að viturlegar till. minni hl. séu ekki að engu hafðar. En starfaði vinstri stjórnin á slikum lýðræðisgrundvelli, þegar hún setti sér það takmark að útiloka Sjálfstfl. frá öllum áhrifum í landsmálum, flokkinn, sem hafði þó um og yfir 40% af kjósendum landsins, og sú prósentutala hefur fylgt honum um langt skeið? Ég held nú, að það hafi verið síður en svo. En sú reynsla, sem þjóðin fékk af þeirri stjórn, sýnir bezt, hversu fjarri það er alþjóðarhag að ætla sér að stjórna málum þjóðarinnar á þennan hátt.
Árið 1953 ber Alþfl. fram í Nd. frv. til l. um breyt. á l. nr. 80 7. sept. 1942, um kosningar til Alþingis. Í þessu frv. var svo ákveðið, að tveir eða fleiri stjórnmálaflokkar gætu gert með sér bandalag eftir þeim reglum, sem þar voru settar. En þær voru í meginatriðum þessar, að leggja skyldi saman öll atkvæði þeirra frambjóðenda, sem þannig hefðu gert með sér bandalag, í hverju kjördæmi og ef samanlögð atkvæðatala þeirra varð hærri, en atkvæðatala nokkurs annars frambjóðanda í sama kjördæmi, skyldi sá af bandalags frambjóðendum, sem hæsta atkvæðatölu hefði, vera rétt kjörinn þm. fyrir það kjördæmi og það alveg án tillits til þess, þó að allir bandalagsflokkarnir hefðu hver fyrir sig frambjóðanda í kjöri í sama kjördæmi, deildu þar hver á annan, hefðu óspart kapphlaup um kjósendur og atkv. þeirra og þrátt fyrir það þó að annar frambjóðandi hefði miklu hærra atkvæðamagn, aðeins ef það væri undir samanlögðu atkvæðamagni bandalagsframbjóðendanna.
Við 1. umr. málsins var bent á það af hálfu þm. Sjálfstfl., að hér væri um að ræða breyt. á stjórnskipunarlögum landsins og ætti því að vísa málinu frá skv. fyrirmælum 27. gr. þingskapalaganna. Fyrsti varaforseti d., hv.2. þm. N-M., Halldór Ásgrímsson, sem þá stýrði þar fundum í fjarveru forseta, hv. þm. N-Ísf., leyfði áframhaldandi umr. um málið, en kvaðst mundu, áður en til atkv. kæmi, kveða upp úrskurð um það, hvort samþykkt þessi bryti í bága við stjórnskipunarlög landsins. Um málið sjálft urðu bæði langar og heitar umr., en er þeim var lokið, kvað 1. varaforseti d. upp svo hljóðandi úrskurð, með leyfi hæstv. forseta:
„Því hefur verið haldið fram, að frv. á þskj. 121 um breyt. á 1. nr. 80 7. sept. 1942, um kosningar til Alþingis, feli í sér till. um breyt. á stjórnarskránni og beri því að vísa frv. frá skv. 27. gr. þingskapa, þar sem það er ekki í fyrirsögn nefnt frv. til stjórnarskipunarlaga.“
Svo er gerð löng grg., sem ég skal ekki tefja hv. deild á að lesa, heldur aðeins lesa úrskurðinn, en hann hljóðar svo:
„Það er því úrskurður minn, að frv. á þskj. 121 um breyt. á l. nr. 80 7. sept. 1942, um kosningar til Alþ. feli ekki í sér till. um breyt. á stjórnarskránni og beri því ekki að vísa því frá skv. 27. gr. þingskapa.“
Með þessu hafði þáv. hæstv. forseti d. ákveðið og úrskurðað, að frambjóðandi, sem fengi minna atkvæðamagn en sá, sem mest fengi, skyldi löglega kosinn. Ég skal ekki hér ræða efnislega um úrskurð þáv. hæstv. 1. varaforseta, en vil aðeins benda á, að ef hann skyldi vera í einu og öllu óskeikull og í fullu samræmi við ákvæði stjórnarskipunarlaga landsins, þá var a.m.k. engin vörn í þeim lögum gegn alls konar pólitískum hrekkjum, sem fram mætti koma með breyt. á kosningalögunum.
Að málið aldrei kom úr n., bendir til þess, að þrátt fyrir hinn fellda úrskurð hafi fundizt innan þingsala meiri hl. þm., sem höfðu á málinu allt aðra og betri skoðun. En þegar þessi leið lokaðist, var þreifað fyrir sér um aðrar leiðir að sama marki. Var nú myndað kosningabandalag á milli Framsfl. og Alþfl., eins og kunnugt er og gerðir samningar um kosningarnar, sem fram fóru 1956. Það var að vísu ekki hægt að koma því við að fá kosinn á þing frambjóðanda, sem fengið hafði færri atkv. en annar í sama héraði, eins og áður hafði verið hugsað, eða bandalagsmennirnir gætu boðið fram hver á móti öðrum í sama kjördæmi, en samt sem áður verið bandalagsmenn, eins og einnig var ákveðið í kosningalagafrv. En það var hægt með flokksvaldi og flokksaga að fyrirskipa flokksbundnum kjósendum tveggja flokka að kjósa skv. fyrirframgerðum samningi á milli flokksstjórnanna og flytja kjósendurna þannig í kippum milli frambjóðendanna eftir því, sem snjöllustu reikningsmeistarar flokkanna hefðu komið sér saman um, að mestur hagur yrði að fyrir hvorn flokkinn fyrir sig. Á þennan hátt tókst hvorum flokki fyrir sig að ná í fjögur viðbótarsæti fram yfir það, sem þeir hefðu annars fengið, ef kosningar hefðu farið fram skv. fyrirmælum stjórnarskipunarl. og klækjalaust að venjulegum hætti.
Það er ekki nema 3 ár, síðan þetta gerðist og þó getur hv. þm. Str. haldið því fram hér í þessari hv. d., að þríflokkarnir, sem standa nú að breyt. á stjórnarskipunarl., séu með pólitíska hrekki við kjósendur, af því að þeir hafi ekki rætt málið nægilega ýtarlega á framboðsfundunum fyrir síðustu kosningar. Mér verður að spyrja: Á hvaða siðferðismælistiku mælir hv. þm. Str. pólitískt siðgæði og pólitíska hrekki? Er allt það pólitískt siðgæði, sem eflt getur Framsfl. og völd hans á Alþ., allt hitt pólitískir hrekkir, sem kynni að draga úr valdi, sem honum ekki ber skv. anda og orðum stjórnarskipunarlaga landsins? Og ég vil einnig spyrja hv. 1 þm. Eyf. út af þeim ummælum hans, sem hann lét falla við 1. umr. um þetta mál, að ef málið yrði samþ., ætti framvegis að kjósa um lista, en ekki menn, hvort hann hefði algerlega gleymt því, að við kosningarnar 1956 greiddu þeir Alþýðuflokkskjósendur í Eyjafirði, sem skv. fyrirmælum kusu þá Framsóknarlistann, ekki honum atkv. sitt. Þess var hvergi vart, að honum þætti þá við það nokkuð að athuga. Hefur hann nú breytt um skoðun og þykir nú þessi aðferð óréttlát, af því að hún sýnist ekki auka vald Framsfl. á sama hátt og 1956? Annars má í þessu sambandi benda á, að hvort tveggja er það, að kjósendur hafa eftir þá breyt., sem hér á að gera, fullt og ótakmarkað frelsi til þess að ráða frambjóðendum og raða þeim á lista sem og að breyta um röð á þeim við kjörborðið eða strika þá út, allt eftir eigin ósk. Er hér sama rétti haldið og nú er almennt í þeim kjördæmum, þar sem kosið er hlutbundnum kosningum, svo sem verið hefur í kjördæmi hv. þm. Eyf. frá 1952.
Í kosningunum 1958 fær Hræðslubandalagið svonefnda 25 kjörna þm. og vantar þá aðeins 2 til að ná hreinum meiri hluta á Alþingi. Á bak við þessa þingmenn stóðu alls 28 þús. kjósendur af tæpum 83 þús., sem til kosninganna gengu. Með sáralítilli viðbót í atkvæðamagni hefði bandalaginu tekizt að ná hreinum meiri hl. á Alþingi, þótt bak við þann meiri hl. stæði aðeins um þriðjungur kjósenda og það er þetta réttlæti, sem Framsfl. berst fyrir að við sé haldið í landinu. Það er fróðlegt að athuga, að ef allir þm. frá einmenningskjördæmum, sem kosnir voru 1956, hefðu verið af sama flokki, og það hefði ekki verið alveg óhugsandi, þá hefði sá flokkur fengið kosinn 21 þm. með 16.289 atkv. Ef sami flokkur hefði auk þess fengið einn þm. úr hverju tvímenningskjördæmi, hefði hann enn bætt við sig 6 þm., sem kjörnir hefðu verið með 7.390 atkv. Hann hefði þannig komið að 27 þm. kosnum af 23.670 kjósendum af tæpum 83.000, sem atkv. greiddu. Sjá allir, sem ekki eru staurblindir, að hér væri ekki um neitt lýðræði að ræða.
Því var haldið mjög fram í kosningunum í Barðastrandarsýslu, að með þessu móti væri verið að samþykkja stórkostlegt böl, m.a. yfir Vesturland. Út af því þótti mér rétt að fletta upp fundargerð, sem gerð var 14. sept. 1950 í fjórðungssambandi Vestfjarða, en þar er tekið til meðferðar stjórnarskrármálið í heild, og þar koma þeir menn, sem þar eru mættir, sér saman um að leggja til, að sú breyt. verði gerð á kjördæmaskipun landsins, að Reykjavík og Hafnarfjörður verði eitt kjördæmi eða eitt fylki, eins og þeir kalla það, Vesturland frá Hvalfjarðarbotni að Gilsfjarðarbotni, þ.e.a.s. allt það, sem nú er lagt til að verði Vesturlandskjördæmi, verði eitt kjördæmi, en það, sem nú er lagt til að verði Vestfjarðakjördæmi, Vestfjarðakjálkinn allur frá Gilsfjarðarbotni að Hrútafjarðarbotni, þ.e. Barðastrandarsýsla, Ísafjarðarsýslur og Strandasýsla, verði allt eitt kjördæmi eða eitt fylki, eins og þeir kalla hér. Og önnur skipting er gerð nákvæmlega eins og tekið er fram hér í frv. Mér þykir rétt að upplýsa, að undir þessa till. rita þeir Jóhann Salberg sýslumaður, Jóhann Skaftason sýslumaður og hefur verið talið, að þeir væru gjaldgengir framsóknarmenn, Jónatan Benediktsson, Alfreð Halldórsson, Sæmundur Guðjónsson, Óskar Arinbjarnarson, Ólafur Ólafsson, Sigurður Elíasson, Jónas Magnússon, Snæbjörn Thoroddsen, Hjörtur Hjálmarsson, Sturla Jónsson, Páll Pálsson, Jón H. Fjalldal, Einar Guðfinnsson, Hannibal Valdimarsson, Halldór Ólafsson og Kjartan Jóhannsson. (Gripið fram í: Þetta var fylkjaskipun.) Þetta er kallað fylki hér í staðinn fyrir kjördæmi annars staðar. (Gripið fram í: Það er allt annað mál.) Það er ekkert annað mál, því að það er ætlazt til, að þessir menn kjósi fimm þm. til þings, á sama hátt og hér er lagt til.
Eru nú þessir menn virkilega saman komnir til þess að samþykkja eitthvert stórt böl yfir þetta hérað, sem þeir mættu fyrir? Ég hygg, að það verði ákaflega erfitt að fá nokkurn mann til þess að trúa því.
Ég hygg, að það, sem ég hef tekið hér fram, sé nægilegt til þess að sýna, að nauðsynlegt var að breyta kjördæmaskipuninni. Ég geri ráð fyrir því, að hv. þm. Framsfl. viðurkenni þetta ekki sem nein rök, þeir hafa ekki viðurkennt nein rök í þessu máli. En kosningin í Barðastrandarsýslu sýndi, að kjósendurnir þar tóku þetta sem gild rök og þess vegna féll hún eins og hún féll. Því verður engan veginn mótmælt, að framsóknarmenn sóttu málið af miklu kappi. Það er eins og ég tók fram, það voru umr. bæði í útvarpi, á þingi, í blöðum o.s.frv. um kjördæmamálið. Það verður varla sagt, að þeir hafi ekki varið mál sitt vel og hafi málstaður þeirra verið góður, átti það að vera þeim í hag, en ekki í óhag, að ekki var hreyft mótmælum á fundum, þar sem það hefur ekki verið gert. Hvað mundi t.d. dómari segja í sókn eða vörn í máli, ef hinn aðilinn færi í ræðum að ræða um allt annað, en málið hljóðar um? Hvað mundi hann þá segja? Hann mundi sannarlega ekki styrkja hann. En það er það, sem framsóknarmenn hér hafa haldið fram, að af því að þeir, sem fylgdu þessu máli, tóku sér leyfi til þess að ræða um ýmislegt annað, þá hafi þeir ekki getað komið fram vilja sínum. Mér sýnist einmitt, að þeir hafi staðið betur að vígi með því, að ekki hafi verið færð sterk rök á hverjum fundi, eins og þeir kalla það, fyrir því, að málið ætti að ná fram að ganga, eins og ég tel að hafi verið fært fram í Barðastrandarsýslu og ég veit að hefur verið fært fram víða annars staðar, í sambandi við þessar kosningar.
Rök Framsfl. um till. um frávísun eru því léttvæg og eiga enga stoð í raunveruleikanum.
Hv. þm. Str. hélt því einnig fram hér við 1. umr., að inn í þetta mál hefði verið blandað alls konar áróðri um verk vinstri stjórnarinnar. Það getur vel verið, að það hafi haft einhver áhrif á þetta mál. En þá er ekki heldur hægt að loka augunum fyrir því, að ef menn hafa litið svo á, að þau verk hafi verið svo vond, svo óþjóðholl, að það væri sjálfsagt að fylgja þessu máli, þó að þeir væru andstæðir því, til þess að fyrirbyggja, að slík vandræðastjórn kæmist að völdum, þá á það líka sinn rétt á sér.
Frambjóðandi Framsfl. í Barðastrandarsýslu taldi það eitt af höfuðrökum gegn málinu, að hvorki hann né hv. þm. Str. og veit ég ekki, hvort hann hefur haft umboð til þess að segja það, væru þess megnugir að rækja svo stórt kjördæmi sem væntanlegt Vestfjarðakjördæmi. Og mér heyrðist það nú einnig hjá hv. frsm. minni hl., að hann vantreysti jafnvel sjálfum sér til þess að rækja hið væntanlega nýja kjördæmi, sem hann væntanlega verður frambjóðandi í. En þá er bara að velja til þess aðra menn, sem eru hæfari, aðra menn, sem treysta sér til þess að gera það. Ég sé ekki neina lausn á þeim vanda aðra, en þá. Ég trúi því hins vegar ekki, að hv. þm. Str. telji sér það nokkra ofraun að sinna ekki stærri kjósendahóp, en er í Vestfirðingakjördæmi.
Ég trúi því fastlega, að breyt. hreinsi andrúmsloftið í íslenzkri pólitík, að dreifbýlið hafi sterkari aðstöðu til baráttu fyrir hagsmunamálum héraðanna, að breyt. sé stórt spor í áttina til, að þingið starfi jafnan eftir 1. gr. stjórnarskrárl., að hún skapi meiri samstarfsvilja á milli þingflokka og meiri virðingu fyrir þinginu, en minnki ekki virðingu þingsins. Þess vegna greiði ég því atkv., að frv. nái fram að ganga án breytinga.