11.08.1959
Efri deild: 7. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (57)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég hef gert mér nokkurt far um að fylgjast með umr. um það mál, sem hér liggur fyrir, fyrst við afgreiðslu þess í hv. Nd. og síðar hér í þessari hv. d. Andstæðingar þeirrar breytingar á stjórnarskránni, sem fyrir Alþ. liggur og hér er verið að ræða, halda því mjög á lofti og rökstyðja málstað sinn einna helzt með, að kjósendur hafi í kosningunum í sumar verið blekktir og að þeir hafi raunverulega ekki vitað, um hvað þeir voru að kjósa.
Ég verð að segja, að mér kemur það mjög á óvart, að slíkri fásinnu skuli vera haldið fram hér á hv. Alþingi, að því er virðist í fullri alvöru. Ég get fullyrt, að þar sem ég þekki bezt til, þ.e. í því kjördæmi, sem ég er fulltrúi fyrir, þar a.m.k. vissi hver einasti kjósandi nákvæmlega, um hvað hann var að kjósa. Allar fullyrðingar í gagnstæða átt eru fjarstæða, sem enga stoð eiga í raunveruleikanum.
Mál þetta var fyrir kosningarnar rætt mjög ýtarlega af fulltrúum allra flokka, bæði í blöðum þeirra og á framboðsfundum. Meira að segja kom sjálfur formaður Framsfl., hv. þm. Str, (HermJ), til Vestmannaeyja og hélt þar almennan kjósendafund og var ræða hans síðan birt í málgagni flokksins úti í Eyjum og snerist hún aðallega og að mestu leyti um kjördæmamálið. Þó að ekki hafi verið fjölmennt á þessum kjósendafundi, er það þó staðreynd, að málgagn framsóknarmanna fer eins og blöð annarra flokka inn á nærfellt hvert einasta heimili í Vestmannaeyjum. Ef hv. fulltrúar Framsfl. vilja halda því fram, að kjósendur í þessu kjördæmi hafi ekki verið nægilega upplýstir um málið, þá er ekki hægt að álíta annað, en formanni flokksins, hv. þm. Str., hafi tekizt illa til í málflutningi sínum. Ég las ræðu hv. þm. Str. og satt að segja held ég, að hann verði ekki sakaður um blekkingar í því skyni að afla kjördæmamálinu fylgis úti í Vestmannaeyjum. Í umræddri ræðu fengu kjósendur í þessu kjördæmi ábyggilega nægilega greinargóðar útskýringar á þeim hættum, sem Framsfl. telur að felist í þeirri breytingu á stjórnarskránni, sem nú er verið að ræða í þessari hv. deild.
Sjálfstfl. í Vestmannaeyjum eins og annars staðar gerði þetta mál, kjördæmamálið, að aðalbaráttumáli sínu í kosningunum. Hann skoraði á kjósendur þar í blaði sínu og á framboðsfundum að styðja flokkinn til þess að tryggja framgang málsins.
Það eru því hrein falsrök, þegar verið er að halda því fram, að Sjálfstfl. hafi farið á bak við kjósendur sína eða blekkt þá. Hver einasti kjósandi, sem greiddi honum atkvæði, vissi, að með því var hann að stuðla að því, að stjórnarskrárbreytingin yrði samþykkt á því þingi, sem nú situr. Mér þykir það því mjög einkennilegt, þegar ég heyri því haldið fram hér á hv. Alþingi, að kjósendur hafi verið blekktir í kosningunum í sumar og ekki vitað, hvað þeir voru að kjósa um. Ég tel slíkar fullyrðingar óraunhæfar og beinlínis móðgandi við kjósendur, ekki einasta í því kjördæmi, sem ég er fulltrúi fyrir, heldur hvar á landinu sem er og í hvaða flokki sem þeir eru.
Í framsöguræðu sinni um þetta mál í þessari hv. d. benti hæstv. forsrh. á, að við alla meðferð málsins hefði þess að sjálfsögðu verið gætt að fylgja í öllum atriðum fyrirmælum stjórnarskrárinnar, einnig því að leggja málið undir dóm kjósenda, eftir að það hafði hlotið löglega samþykkt síðasta Alþingis.
Það, sem að er og nokkuð hefur tafið framgang málsins nú á þessu þingi, er, að hv. fulltrúar Framsfl. hér á Alþingi vilja ekki viðurkenna þann dóm, sem kjósendur kváðu upp um málið í kosningunum 28. júní s.l. Frá þeirra bæjardyrum séð er þetta e.t.v. skiljanlegt, þó að þessi afstaða þeirra sé bæði óraunhæf og algerlega tilgangslaus. Það er öllum ljóst, sem fylgzt hafa með þjóðmálum að undanförnu, að vegna þeirra þjóðflutninga, sem átt hafa sér stað hér á landi undanfarna tæpa tvo áratugi, hefur grundvöllur fyrir kjördæmaskipuninni algerlega raskazt og það svo, að ekki verður við unað. Þessa staðreynd viðurkenndu nær ¾ hlutar kjósenda í kosningunum í sumar. Fram hjá því verður ekki gengið. Ég tel, að hv. Alþingi verði að haga afgreiðslu sinni á því máli, sem hér liggur fyrir, samkvæmt þessum ótvíræða þjóðarvilja.
Ef Framsfl. vildi viðurkenna þessa staðreynd, þyrftu flokkarnir ekkert um þetta mál að deila, svo sjálfsagt sem það er. En því miður virðast hv. fulltrúar Framsfl. meta meir það, sem þeir telja flokkshagsmuni sína, en að veita kjósendum þá sjálfsögðu réttarbót, sem allt heilbrigt og eðlilegt lýðræðisfyrirkomulag byggist á, þ.e. að réttur kjósenda sé sem jafnastur, eftir því sem við verður komið, hvar á landinu sem þeir búa.
Framsóknarmenn mega hvorki né geta ætlazt til þess, að þeir endalaust geti haft sérstöðu til áhrifa á málefni þjóðarinnar. Því fyrr sem þeir gera sér þetta ljóst, því betra fyrir þá sjálfa og fyrir þjóðarheildina. Þeir verða í þessum efnum að sætta sig við sama hlut og aðrir flokkar. Ég tel, að þeir eigi hvorki að hafa þar betri né verri aðstöðu.
Sú niðurstaða, sem minni hl. stjskrn. hefur komizt að í nál. sínu, bæði í hv. Nd. og einnig í þessari hv. d., ber að mínu áliti vægast sagt keim af fyrirlitningu á dómgreind kjósenda. Kjósendum var í kosningunum í sumar alveg ljóst, hvað um var kosið og þeir höguðu atkvæðum sínum samkvæmt því. Að neita þessari staðreynd og ætla að ómerkja þennan úrskurð kjósenda með einfaldri samþykkt hér á hv. Alþingi og efna til kosninga á ný rúmlega mánuði síðar er að mínu áliti bein móðgun við kjósendur þessa lands.