11.08.1959
Efri deild: 7. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (63)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég skal nú ekki vera langorður, en hins vegar vil ég ekki lofa því að fara ekki svolítið út fyrir efnið og það er af tilefnum, sem hafa komið fram hér í deildinni.

Því var haldið fram núna, að þetta fyrirkomulag, sem nú er tekið upp með breytingu á kjördæmaskipuninni, tryggi miklu betra jafnvægi í byggð landsins en það fyrirkomulag, sem við búum við. Nú er dálítið erfitt að átta sig á skoðun flokkanna á stundum. Það eru til stefnuskrár, sem segja í meginmálum, að hverju flokkarnir vilji stefna, en oft svo óljóst, að það má túlka á marga vegu. Ég skal t.d. benda á hjá Sjálfstfl., sem viðkemur þessu jafnvægi í byggð landsins, sem talað er um og síðasti ræðumaður vildi gera svo óttalega mikið úr og taldi, að Framsfl. hefði svikið eitthvert samkomulag, sem hann var að tala um, að 1957 hélt Gunnar Bjarnason kennari á Hvanneyri og ráðunautur Búnaðarfélags Íslands í hrossarækt og tvisvar eða þrisvar sinnum frambjóðandi Sjálfstfl. erindi í útvarpsviku Búnaðarfélags Íslands rétt eftir búnaðarþingið, ég ætla í marzmánuði. Þá hélt hann því fram, að það væri engin þörf á því að hafa fleiri en 1.000 bændur í landinu til þess að fullnægja mjólkurþörfinni og það væri alrangt að framleiða meira, en þyrfti til neyzlu í landinu sjálfu. Hann hélt því fram, að það þyrfti einhverja tölu, nefndi ekki hverja, en ákaflega miklu færri, en nú væri af bændum í landinu, til þess með fjárbúum sínum að fullnægja kjötþörfinni og það væri alrangt að framleiða meira kjöt, en landsmennirnir sjálfir þyrftu að neyta. Svona vildi hann í erindi sínu láta byggð landsins þróast. Ekki nefndi hann, í hvaða sýslum byggðin ætti að hverfa, en að bændum ætti að fækka um allt að helmingi.

Nokkru seinna sama árið var haldin ráðstefna, sem var kölluð bændaráðstefna ungra sjálfstæðismanna. Ekki var ég þar, en Morgunblaðið sagði frá því, að þar hefðu verið ræðumenn Gunnar Bjarnason, frambjóðandi flokksins tvívegis eða oftar, Árni G. Eylands, frambjóðandi flokksins líka tvisvar eða þrisvar eða oftar, Pétur Gunnarsson, líka frambjóðandi flokksins. Og það var sagt, að mótið hafi verið ákaflega vel sótt af framámönnum yngri hluta Sjálfstæðisfl. í sveitunum af landinu öllu, hafði verið áætlað milli 50 eða 60 manns alls úr öllum kjördæmum landsins. Að hér hafi verið um góða aðsókn að ræða, skal ég nú ekki segja um, en Morgunblaðið sagði, að hún hefði verið góð, gróflega góð. Og Morgunblaðið birtir svo till., sem þarna var samþ., og hún var á þessa leið: „Ráðstefnan telur það þjóðarnauðsyn, að arðvænlegur búskapur blómgist og framleiðslan aukist, eftir því sem markaður fyrir búsafurðir fer vaxandi með auknum mannfjölda.“ Þannig var boginn spenntur. Nú skal ég viðurkenna það, að um svipað leyti og þetta, var hér á þingi verið að tala um að leggja fram fé til að stækka öll túnin hjá bændum í landinu upp í 10 ha. hvert tún og þm. Sjálfstfl. æmtu ekki eða skræmtu á móti því, þeir þögðu bara og greiddu atkvæði með því, flestir. Og það var samþ. En á sama tíma láta þeir hina, ungu mennina, framtíðina, samþykkja hitt á bændaráðstefnunni. Þetta er trúin á byggð landsins, að framleiða bara fyrir innlenda markaðinn. Þetta er jafnvægið, sem á að komast á í byggð landsins. Þeir halda, að þeir nái því með þessu frv., halda að þeir nái því með því að breyta stjórnarskránni eins og nú er verið að gera.

Í þessu sambandi skil ég vel hugsunarhátt þm. N-Ísf. (SB). Hann er búinn að vera þm., ég man ekki hvað, 15 eða 16 ár, eitthvað svoleiðis, kannske meira, kannske eitthvað í kringum 20 ár. Hann tók við öllum hreppunum í byggð í sýslunni, þar sem voru 1.536 menn á kosningaaldri og hann hefur látið sér svo annt um sýsluna, að einn hreppurinn, sem þá voru í 213 menn, er gersamlega kominn í eyði, ekki einn maður til þar núna. Hann hefur látið sér svo annt um sýsluna, að annar hreppurinn, sem í voru 111 menn, er núna eftir með 38. Hann hefur látið sér svo annt um sýsluna, að í þriðja hreppnum, sem í voru 60 menn, eru núna eftir liðugir 20. Hann er uppgefinn. Hann segir: Ég get ekkert. Ég get ekkert spornað við, að byggðin fari í eyði. Ég er að reyna að gera að þjóðvegum afleggjara heim að Skjaldfönn og Laugabóli og einstökum bæjum í hinum hreppunum, en ekki til þessara hreppa, þar sem byggðin er að fara í eyði. — En hann er uppgefinn og þá grípur hann í það hálmstrá, sem Sjálfstfl. heldur fram: Jú, jú, ef við getum bara einhvern veginn myndað eina heild úr mörgum sýslum, þá ber minna á þessu, þá verð ég ekki skammaður fyrir mína framkomu þarna, — það ber minna á þessu. Við skulum reyna að fela þetta með því að hafa kjördæmið stórt, svo að þessi mistök, sem orðið hafa þarna, hverfi. — Ég skil þennan hugsunarhátt, en hann er ekki karlmannlegur. Það var miklu nær á síðasta þingi að flytja frv. um það að koma vegi til þessara hreppa, sem nú eru þó eftir með 26 eða 30 menn, heldur en vera að koma vegi heim á bæi, þar sem vegurinn liggur fyrir neðan túnið í hreppunum, sem eru fjölmennari og fólkið tollir enn þá í. Nei, hann var að hugsa um allt annað. Ég skil þennan hugsunarhátt og ég kenni í brjósti um hann fyrir að hafa þennan hugsunarhátt, því að mér líkar hann ekki.

Nei, það er langt frá því, að þetta fyrirkomulag, sem nú er tekið upp um kosningar til Alþingis með stóru kjördæmunum, stuðli að jafnvægi í byggð landsins. Það er alveg þvert á móti. Það er nokkurn veginn alveg gefið, að þegar t.d. 20 þm., fimm af hverjum lista af fjórum, við skulum segja, að það séu fjórir — eða kannske 25, ef þjóðvarnarmenn eru með líka, — fara að tala um og halda sína fundi, þá tala þeir ekki norður í Grunnavíkurhreppi t.d. að taka, svo að ég haldi mig við Norður-Ísafjarðarsýslu, þeir fara ekki í fámennustu hreppana, hvorki á þessum stað né hinum. Þeir láta þá bara eiga sig. Þeir reyna að halda fundina þar, sem þéttbýlið er og þeir eiga von á flestum atkvæðunum. Þar reyna þeir að halda fundina, og þar reyna þeir að ná í fylgið og svæðin, sem byggðin er gisnust í, verða alveg út úr, enn þá meira út úr, en hefur orðið, þar sem hafa verið menn, sem hafa hugsað almennilega um sitt kjördæmi.

Þm. Barð. má eiga það, að hann hefur komið síma og veg út á nes, sem hefur kostað hátt á annað hundrað þús. kr. fyrir eitt einasta heimili, þegar hann var þm. Það er náttúrlega dýrkeypt að halda þannig lagaðri byggð á einum bæ, þó að vel sé þar búið og myndarheimili mesta. Og slík dæmi eru til, að þar sem eru harðvítugir menn, sem ekki gefa sér tíma til að sjá yfir heildina og hafa kannske aldrei haft tækifæri til þess að sjá yfir heildina, ekki sjá nema lítið takmarkað svæði og sjá, hvar þar þrengir að, en þá mega þeir aldrei, þó að þar séu góðir kjósendur, láta það villa sér sýn og fara að mismuna þeim fram yfir aðra, þar sem þörfin er margfalt meiri.

Nei, ég er alveg viss um, að þegar þetta fyrirkomulag er komið á með kosningarnar, þá verður það mjög fljótt svo, að þeir, sem verða á listunum fyrir flokkana, það verða menn, sem þekkja til á þeim stöðunum, sem fólksflestir eru úti í hinum einstöku kjördæmum, en alls ekki skipta sér af sveitunum, sem berjast í bökkum og þurfa á einhvern óbeinan hátt a.m.k. og stundum beinan líka að fá aðstöðu til þess að rétta sig við. Um það verður ekkert hugsað, þó að þau hverfi smám saman úr tölu byggðra svæða á landi hér.

Ég skal ekki segja um það, það er náttúrlega sums staðar, sem hagar þannig til, að ég get fallizt á, að það sé rétt að láta bæi og byggðir hverfa og gera þau að afréttarlöndum frá öðrum þéttbyggðari og betri sveitum, sums staðar, en það er náttúrlega mjög fjarri því, að það sé alls staðar og það verður ekki heldur hugsað um það, þegar svona er.

Þm. Barð. hefur nú ekki tekizt betur, en það þessi ár, sem hann hefur setið á þingi og þau hafa verið nokkur og þó að hann hafi nú getað fest byggð á þessu nesinu, sem hann lagði til veginn og símann og fékk stórfé í, þá hefur fólkinu hjá honum fækkað rétt um 200 í þingmennskutíð hans og sumar sveitirnar þar eru á svipaðri leið og þær eru í Norður-Ísafjarðarsýslu.

Nei, þeim veitti ekki af að hugsa um sitt. Þeir hafa alveg nóg, bæði þm. N-Ísf. og þm. Barð., um að hugsa um sýslurnar, sem þeir eru núna fulltrúar fyrir, þó að þeir fari ekki að reyna að hugsa um allt Vestfjarðasvæðið í heild. Þeim mun ekki ganga það betur, úr því að þeir hafa ekki getað hugsað meira um þessar sýslur, sem þeir hafa verið fulltrúar fyrir í nokkur ár.

Það er svo langt frá því, að þetta mál, sem hér er til umr. núna, styðji á nokkurn hátt að því að auka jafnvægi í byggð landsins, að það leggur í eyði smám saman heila landshluta.