24.07.1959
Neðri deild: 4. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (77)
3. mál, kosningar til Alþingis
Dómsmrh. (Friðjón Skarphéðinsson):
Herra forseti. Lagt hefur verið fyrir þessa hv. d. frv. til stjórnskipunarlaga um breytingu á stjórnarskránni, hið sama og samþ. var á Alþ. í maí-mánuði s.l. Í frv. þessu eru veigamiklar breytingar á kjördæmaskipun landsins. Verði frv. samþ., sem allar líkur benda til, svo að ekki sé fastara að orði kveðið, verður óhjákvæmilegt að breyta gildandi kosningalögum til Alþingis í samræmi við þær breyt., sem stjórnarskrárbreytingin hefur í för með sér.
Frv. það, sem hér er á dagskrá, um kosningar til Alþ. hefur verið samið og lagt fyrir hv. d. með það fyrir augum, að kosningalögin verði samræmd væntanlegri stjskrbreyt. Eðlilegt þykir, að frv. þetta fylgi í kjölfar stjskrbreyt., þar sem forsenda fyrir samþykkt þessa frv. er sú, að stjskrbreyt. verði samþykkt, og gert er ráð fyrir, að bæði þessi frv., stjórnskipunarlagafrv. og kosningalagafrv., öðlist gildi samtímis.
Kosningalagafrv. þetta er samið af þrem snjöllum lögfræðingum, þeim Þórði Eyjólfssyni, Jónatan Hallvarðssyni og Árna Tryggvasyni hæstaréttardómurum. Í frv. er gert ráð fyrir því, að ákvæði núgildandi kosningalaga verði látin haldast því nær óbreytt, önnur en þau ákvæði, sem stjskrbreyt. tekur til.
Helztu breytingarnar og veigamestu breyt., sem hér er um að ræða á kosningal., eru í fyrsta lagi ákvæðin um kjördæmin og tölu kjördæmakosinna þingmanna, sem breytt er til samræmis við stjórnskipunarlagafrv.
Í öðru lagi er ákvæðum um yfirkjörstjórnir breytt. Skipun þeirra nú er þannig, að sýslumenn og bæjarfógetar — í Reykjavík borgarfógeti — eru formenn yfirkjörstjórna, en aðra yfirkjörstjórnarmenn, 2 í hverju kjördæmi, kjósa hlutaðeigandi sýslunefndir eða bæjarstjórnir, þar sem kaupstaður er sérstakt kjördæmi.
Þessu verður að sjálfsögðu að breyta, þar sem nú verða væntanlega margar sýslur og kaupstaðir í hverju kjördæmi. Um ýmsar leiðir gat verið að velja í þessu efni, en í frv. er gert ráð fyrir því, að sú leið verði farin, að sýslumenn og bæjarfógetar í kjördæminu, þrír hinir elztu að embættisaldri, séu sjálfkjörnir yfirkjörstjórnarmenn, en varamenn þeirra séu skipaðir af ráðh., eins og hann skipar nú varamenn oddvita yfirkjörstjórna. Í Reykjavík er gert ráð fyrir, að hliðstætt fyrirkomulag gildi, þ.e. að borgarfógeti verði formaður yfirkjörstjórnar, svo sem hann hefur verið, en borgardómari og sakadómari eigi samkv. stöðu sinni sæti í yfirkjörstjórn.
Þá er í þriðja lagi breytt nokkuð kaflanum um kjörskrár frá því, sem nú gildir og í það horf, að kjörskrár til alþingiskosninga verði einungis samdar, þegar slíkar kosningar eiga að fara fram og gildi um þær kosningar einar. Ákvæði þetta er sett eftir ítrekuðum tilmælum hagstofustjóra, sem hefur mikinn áhuga á þessu máli, enda hvílir vegur og vandi af kjörskrárgerð að mestu á herðum hans eða þeirrar stofnunar, sem hann veitir forstöðu. Rökin fyrir þessu eru einfaldlega þau, að ekki sé ástæða til að sóa fé og starfskröftum til að gera kjörskrár, sem aldrei verða notaðar. Hins vegar getur það að sjálfsögðu átt sér stað og mundi vafalaust eiga sér stað, að gera þurfi kjörskrár, þótt þær verði ekki notaðar við alþingiskosningar eða sveitarstjórnarkosningar. Þetta mundi eiga sér stað t.d., þegar forsetakosningar fara fram og þær falla ekki á sama tíma og alþingiskosningar. Sama getur átt sér stað um einstaka kaupstaði, þegar atkvæðagreiðsla á að fara fram um opnun eða lokun áfengisútsölu, eins og fyrir er mælt í áfengislögum. Það liggur að sjálfsögðu í hlutarins eðli, að þegar þannig stendur á, verður að semja sérstakar kjörskrár í því skyni, en slíkt er að sjálfsögðu óviðkomandi lögum um kosningar til Alþingis.
Þá er í þessu frv. í fjórða lagi gert ráð fyrir því, að felld séu niður ákvæðin um röðun á landslista samkv. ákvörðun stjórnmálaflokks. Til álita getur komið hjá n. þeirri, sem væntanlega kemur til með að fjalla um frv., hvort fella eigi niður ákvæðin um landslista með öllu. Ákvæðin um landslista, sem eru í núgildandi stjórnarskrá, eru felld niður í hinu nýja stjórnarskrárfrv., og verða slík ákvæði því ekki bundin af stjórnarskrárákvæðum og því opin leið að fella þau úr kosningalögum, ef hv. Alþ. sýnist svo.
Í fimmta lagi má geta þess, að í frv. er lögð til grundvallar sú aðalregla, að enginn flokkur skuli fá nema eitt uppbótarþingsæti í hverju kjördæmi, en regla þessi var á sínum tíma sett til þess að dreifa uppbótarþingsætunum. Hugsanlegt er þó, að stjórnmálaflokkur hafi ekki haft menn í kjöri í eins mörgum kjördæmum og nemur tölu þeirra uppbótarþingsæta, sem hann á rétt til. Er þess vegna í frv. ráðgert, að víkja megi frá aðalreglunni, þegar þannig stendur á.
Um önnur atriði í frv. sýnist mér ekki að svo komnu ástæða til að ræða sérstaklega. Langflestar breytingarnar, sem eru æði margar að vísu, eru bein afleiðing af hinni fyrirhuguðu stjórnarskrárbreytingu og skýra sig sjálfar. Hins vegar getur að sjálfsögðu komið til álita að breyta ýmsum ákvæðum kosningalaganna, sem snerta önnur efni. Mun nefnd sú, sem málið fær til meðferðar, vafalaust taka afstöðu til þess eða einstakir þm., sem áhuga hafa á breytingum á einhverjum atriðum í gildandi kosningalögum.
Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og stjskrn., sem væntanlega verður kosin, enda hefur sú málsmeðferð á kosningalagafrv. tíðkazt, þegar eins hefur staðið á.