06.08.1959
Neðri deild: 11. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (82)
3. mál, kosningar til Alþingis
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Við framsóknarmenn höfum gagnrýnt hér mjög þann hátt, sem hafður hefur verið á við stjórnarskrárbreytingu þá, sem hér er um að ræða, þ.e.a.s. að taka út úr einn þátt stjórnarskrármálsins og afgreiða hann af nokkurri skyndingu og að lítt athuguðu máli. Ég ætla ekki að fara að rifja þá gagnrýni upp hér, en vil aðeins minna á þetta, vegna þess að ég held, að það sé einmitt óhjákvæmilegt, að þau vinnubrögð, sem hafa verið viðhöfð í sambandi við afgreiðslu stjórnarskrármálsins að þessu leyti, hljóti einnig að setja að nokkru sitt svipmót á afgreiðslu kosningalaga að þessu sinni, þannig að setning kosningalaganna geti ekki orðið jafnvönduð og æskilegt væri að þessu sinni.
Það er að vísu svo, að þetta frv. til kosningalaga er samið af ágætum mönnum, eins og hæstv. dómsmrh. gat um, þegar hann á sínum tíma lagði þetta frv. fram, en þeir menn töldu það eðlilega sitt hlutverk aðeins að gera þær breyt. á þessu frv., sem óhjákvæmilega leiddi af hinni fyrirhuguðu stjórnarskrárbreytingu, en endurskoða ekki kosningalögin að öðru leyti. En nú er það auðvitað svo um kosningalögin, að þau hafa verið í gildi nokkuð lengi og á þeim tíma, sem liðinn er, síðan þau voru sett, hefur fengizt af þeim margháttuð reynsla og þess vegna hefði verið ástæða til þess að athuga, hvort ekki væri þörf á gagngerðari endurskoðun á kosningalögunum, en tækifæri er til nú að þessu sinni. Ég hefði þess vegna talið það miklu heppilegri aðferð og raunar nauðsynlega, að það hefði verið sérstök mþn., sem hefði haft slík lög og lagasetningu til meðferðar og hefði henni þá gefizt kostur á að athuga þau mjög nákvæmlega.
Nú segir að vísu stjskrn. eða meiri hluti hennar a.m.k., sem haft hefur málið til meðferðar, í sínu nál., að hún hafi athugað frv. þetta mjög ýtarlega. Ég verð að segja það að ég dáist að því, hve miklir afkastamenn þeir eru, sem hafa haft frv. þannig til meðferðar og hafa haft tíma til þess jafnframt þeim störfum, sem þeir hafa haft að sinna hér á Alþingi, að endurskoða þennan mikla bálk ýtarlega. Nú er að vísu ekki því að neita, að afköst þeirra eru allmikil að því leyti til, að frá þeirra hendi liggja hér fyrir mjög margar brtt., að vísu brtt. margar hverjar, sem leiðir beinlínis af þessari stjórnarskrárbreytingu, sem nú skal gera, en þó einnig ýmsar aðrar, og ég verð að segja það, að við fljótlega athugun sýnist mér margar af þessum brtt. og reyndar till. yfirleitt vera til bóta. Hins vegar verður að ætla það, að ef nefndin hefði haft meiri tíma og meira ráðrúm hefði gefizt til athugunar þessa máls, þá hefði kannske fleira getað vakizt upp, sem ástæða hefði verið til að breyta í þessu frv. Um það ætla ég annars ekki að fjölyrða og ég ætla ekki heldur að fjölyrða um það, sem mér þykir óviðkunnanlegt í þessum tillögum, þ.e.a.s. sá háttur, sem nefndin hefur haft á að því leyti til, að hún hefur endilega viljað halda sér við þá greinatölu, sem var í frv. Þetta er nú kannske smekksatriði. En það leiðir til þess, að mér finnst, að það eru klofnar í sundur greinar, sem er í rauninni óeðlilegt að slitni í sundur. Þetta er sem sagt ekki mikið atriði og ég ætla ekki að fara að fjölyrða um það, það er kannske smekksatriði, en kemur þó fram, að mér finnst, dálítið óviðkunnanlega á vissum stöðum, þar sem þessi klofningur á greinum á sér stað.
Það er t.d. brtt. 17. Mér finnst það heldur óviðkunnanlegt, þegar ný grein byrjar þannig: „Yfirkjörstjórn gerir síðan ....“ Þetta er orðalagið úr gömlu greininni, þegar þessi grein var 2. mgr., en þegar þetta er gert þarna að nýrri grein, á þetta „síðan“ auðvitað að hverfa. Þannig mætti fleiri dæmi tína til, en ég fer ekki út í slíkt.
En það, sem gaf mér tilefni til þess að standa hér upp, var sú yfirlýsing frsm., að nefndin mundi taka þetta mál til athugunar á nýjan leik fyrir 3. umr. og þess vegna vildi ég koma á framfæri aðeins örfáum aths. í því skyni, að nefndin tæki þær til athugunar.
Ég vil aðeins geta þess í sambandi við brtt. þá, sem nefndin flytur fyrst, við 3. gr., að fyrri málsliður falli niður, sem er á þá lund, að gift kona telst fjárráð, þó að hún eigi óskilið fjárlag með manni sínum, að ég er þessari brtt. alveg sammála, enda þótt eftir sem áður standi þessi hortittur í stjórnarskránni. En það er náttúrlega ekki um það að ræða. En þá vil ég bara benda á í því sambandi, að jafnframt er náttúrlega alveg sama ástæða og eins mikil ástæða til þess að fella niður 2. málsliðinn, að maður telst fjárráður, þó að bú hans sé undir gjaldþrotaskiptum. Það er a.m.k. enginn lögfræðingur, sem heldur, að maður sé ekki fjárráður, þó að bú hans sé undir gjaldþrotaskiptum. En ef þetta litla ákvæði ætti að standa þarna enn, þá finnst mér óeðlilegt, að það sé í sérstakri grein, heldur ætti það að bætast við 2. gr. og vera þannig, að í einni gr. væri skýring á ákvæðum í 1. gr.
En það, sem ég vildi sérstaklega benda á, er í sambandi við 11. gr., þar sem segir, að sá, sem sæti á í yfirkjörstjórn eða undirkjörstjórn, skuli víkja sæti, ef hann er í kjöri til Alþingis og sá, sem á sæti í landskjörstjórn, skuli víkja sæti, þegar úthlutað er uppbótarþingsæfum, ef hann getur sjálfur komið til greina í uppbótarþingsæti. Ef á að skilja þessi ákvæði á þá lund, að þau séu tæmandi, að því er tekur til yfirkjörstjórnar- og landskjörstjórnarmanna, að þeim beri ekki að víkja sæti í öðrum tilfellum, en þessum, sem þarna greinir, þá finnst mér fyrir mitt leyti allt of vægar kröfur gerðar til þessara manna. Þetta eru aðilar, yfirkjörstjórnir og þó ekki síður landskjörstjórnir, sem fara með mjög þýðingarmikla úrskurði og geta farið með mjög örlagaríka úrskurði, eins og dæmin sanna. Þess vegna ríður á því, að það sé búið svo vel um hnútana sem hægt er og komist ekki að neinn grunur um það, að þeir menn, sem í þessum nefndum sitja og fara með þetta úrskurðarvald, séu vilhallir. Þess vegna teldi ég eðlilegt, að til þessara stjórnvalda væru gerðar ekki öllu minni kröfur en til dómara, þegar þeir fara með einstakt mál, að þeir yrðu t.d. að víkja sæti vegna afstöðu sinnar til frambjóðenda eftir svipuðum reglum og dómarar verða að víkja vegna afstöðu sinnar til málsaðila, t.d. að landskjörstjórnarmaður ætti ekki aðeins að víkja, ef hann sjálfur gæti komið til greina, þegar úthlutað væri uppbótarþingsætum, heldur líka ef t.d. einhver aðili honum skyldur eða tengdur að feðgatali eða niðja eða í annan lið til hliðar gæti þar komið til greina. Þessu vildi ég koma á framfæri og vildi mælast til þess, að n. tæki þetta til athugunar. Ég geri raunar ráð fyrir, að það gæti komið til mála að skýra þessi ákvæði á þessa lund, jafnvel þótt þetta standi nú svo. En það verður a.m.k. ekki um það deilt, að æskilegra væri að taka þetta fram, og ég held, að flestir hljóti að verða mér sammála um, að það væri til bóta að gera þarna strangari kröfur og skýrari, en nú er gert. Það miðar að því að búa betur um úrskurðarvaldið í þessum efnum, og ég held, að allir hljóti að verða sammála um, að það sé æskilegt.
Ég vildi aðeins benda á það, að í sambandi við skiptingu í kjördeildir, sem 6. gr. fjallar um, hef ég orðið var við, að það er nokkuð mismunandi praksis í þeim efnum, þannig að sums staðar er þessi skipting gerð, að ég held, við hverjar kosningar, en annars staðar, — og ég hygg, að það sé nú víðast hvar, — er hún gerð í eitt skipti fyrir öll og látin síðan haldast, en það er ekki glöggt af þessari grein, hver meiningin er. Ég held, að það væri æskilegt að taka það alveg skýrt fram, hver ætlunin er.
Ég skal svo ekki fara út í smáatriði, sem mörg gætu komið hér til greina, það er hlutverk n. að athuga það nánar.
En ég ætla þá að víkja að öðru höfuðatriði, sem mér finnst vera í þessum brtt. og í sambandi við það, sem frsm. meiri hl. sérstaklega gat um og það er sú grein, sem fjallar um útreikninga á því, hverjir séu kjörnir, eða nánar tiltekið um þýðingu útstrikana og tilfærslna. Ég vildi gjarnan koma á framfæri þeirri skoðun minni hér, að ég álít, að það eigi að gera glöggan greinarmun á útstrikunum og tilfærslum. Ég álít, að það sé algerlega sitthvað. Ég álít, að í raun og veru eigi ekki að leyfa útstrikanir, það er þessi listi, sem fram er boðinn, listinn er núna kominn í staðinn fyrir eina manninn, sem var í framboði og það er þessi listi, sem um er að velja og ekki annað. Ef menn vildu vera rökréttir í þessu og taka afleiðingunni af þessu, að manni er leyft að strika út, þá ætti hún að vera sú, að honum væri heimilt að bæta inn í staðinn nafni. Ég er ekki að gera það að minni till., að sá háttur sé tekinn upp, en í raun og veru er það alveg í framhaldi af hugsuninni um að leyfa útstrikun. Ég er þess vegna í raun og veru alveg á móti útstrikunum og held, að heimildin til þeirra ætti alveg að falla niður. Á hinn bóginn held ég, að það sé jafnsjálfsagt að leyfa tilfærslur á listum. En ég er sammála um það, að þær tilfærslur og þá sérstaklega útstrikanir, sem leyfðar hafa verið, hafa verið látnar vega of þungt til þessa. Hvort sú regla, sem þarna er sett fram, er heppileg eða ekki, treysti ég mér ekki til að dæma um að svo stöddu, en ég býst við, að hún miði í rétta átt: að draga nokkuð úr þýðingu þeirri, sem tilfærslur og útstrikanir hafa verið látnar hafa. En ég vildi gjarnan, að þessi sjónarmið yrðu tekin til athugunar í n., hvort ekki væri ástæða til einmitt að gera þennan greinarmun á, að hverfa frá útstrikunum alveg, enda þótt réttinum til tilfærslna sé að sjálfsögðu haldið.
Þá vil ég að lokum aðeins víkja að 44. brtt., við 127. gr. Ég er ekki alveg viss um, að ég skilji það mál rétt. Sú gr. stóðst algerlega eftir gamla skipulaginu. Það er enginn vafi á því, vegna þess að það var engin nauðsyn að úthluta ákveðinni tölu þingsæta. Nú skilst mér, að það sé ákveðið alveg tvímælalaust, að það eigi að vera 11 landskjörnir þm. Afleiðingin af fyrri mgr. 107. gr. er sú, að landskjörnir þm. geti misst umboð vegna breytingar þeirrar, sem kemur í ljós við uppkosninguna. Ef landskjörinn þm. missir umboð sitt, það hefur verið úthlutað 11 þingsætum, þá á einhver að fá það þingsæti í staðinn og gæti þá ekki verið, að þessi gamla regla, sem tekin er upp í brtt., stangist á við það? Ég hef ekki athugað þetta, en skýt þessu aðeins fram n. til athugunar. Ég ætla svo ekki að hafa þessi orð fleiri.