06.08.1959
Neðri deild: 11. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

3. mál, kosningar til Alþingis

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Tvennt vil ég nefna í sambandi við brtt. stjskrn., sem fyrir liggja.

Það er fyrst viðkomandi 17. brtt., sem snertir 42. gr. frv. Ég held, að þrjú orð í þessari brtt. ættu að falla niður. Í till. eru fyrirmæli um það, að yfirkjörstjórn skuli gera almenningi kunna listana, sem fram hafa verið bornir, með auglýsingu í útvarpi og Lögbirtingablaði og auk þess í blöðum. Ég held, að orðin „framboðslista í Reykjavík“ eigi að falla niður, þeim sé ofaukið þarna og gr. verði skýrari með því að fella þau niður, því að mér skilst, að þessi ákvæði eigi að gilda um öll kjördæmi og það eigi að birta í blöðum í öllum kjördæmum, þar sem annars blöð eru, vikublöð eða dagblöð. Ég vildi skjóta þessu til hv. nefndar.

Þá er það viðkomandi 24. brtt. Þar er um nýmæli að ræða, gert ráð fyrir í brtt., að það sé nægjanlegt að koma bréfi með utankjörstaðaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis, þar sem hlutaðeigandi kjósandi er á kjörskrá. En þegar svo stendur á, að bréfi er komið í aðra kjördeild en þá, sem hlutaðeigandi kjósanda hefur borið að kjósa í, þá á undirkjörstjórn að geta þess sérstaklega í kjörbókinni og senda slík bréf að sjálfsögðu óopnuð til yfirkjörstjórnar. Hv. frsm. gerði grein fyrir þessari brtt., benti á, að þetta gæti orðið til þess að minnka fyrirhöfn við að koma utankjörfundaratkv. til skila. En þá held ég að sé nauðsynlegt að setja inn nýtt ákvæði í 100. gr. Í þeirri gr. er kveðið á um það, hvaða gögn undirkjörstjórn skuli senda til yfirkjörstjórnar með atkvæðakössum og ég held, ef þessi 24. brtt. verður samþ., þá sé nauðsynlegt að mæla fyrir um það í 100. gr., að undirkjörstjórn skuli senda til yfirkjörstjórnar kjörskrá, merkta kjörskrá, þ.e.a.s. kjörskrá, þar sem hún hefur merkt við nöfn þeirra, sem kosið hafa á kjörstað. Þetta þarf yfirkjörstjórn að hafa til þess að ganga úr skugga um það, að viðkomandi kjósandi hafi ekki greitt atkv. á kjörstað í sinni kjördeild, því að því aðeins að hann hafi ekki gert það, má hún taka utankjörfundaratkv. frá honum gilt og setja það í atkvæðasafnið. Ég hygg, að sumar undirkjörstjórnir hafi gert það að undanförnu að senda kjörskráreintak þannig merkt til yfirkjörstjórnar, en aðrar munu ekki hafa gert það, en þetta þyrfti að gera, ef þessi breyt. verður gerð.

Að svo stöddu er það ekki fleira, sem ég vildi taka fram, en vildi beina þessu til n. til athugunar.