10.08.1959
Neðri deild: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í B-deild Alþingistíðinda. (86)
3. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Eins og gert var ráð fyrir við 2. umr. þessa máls, hefur stjskrn. athugað frv. að nýju og flytur nú á þskj. 23 nokkrar brtt., sem hún stendur öll sameiginlega að. það voru allmörg önnur atriði en þessar brtt. taka til, sem til umræðu kom innan n. að breyta, en það eru eins og áður aðeins fluttar þær till. af n., sem menn voru einróma um. Hins vegar hafa nm. enn frjálsar hendur að flytja sjálfir og fylgja öðrum brtt., sem fram kunna að koma og má vænta þess, að einhverjar slíkar till. verði fluttar. Ég skal takmarka mig við það núna að gera grein fyrir þessum brtt. stjskrn.
1. brtt., við 13. gr., er um það, að þegar kjörstjórar eru í framboði, — og hér er átt við, eins og fram kemur í 1. mgr. gr., kjörstjórar utan kjörfundar, — skulu þeir víkja sæti og varamenn gegna störfum þeirra, eins og sagði áður, en hér eru tekin inn ákvæði um það, hverjir þessir varamenn skuli vera, en var ekki áður í greininni. En varamennirnir eru sem sé fulltrúar sýslumanna og bæjarfógeta, í Reykjavík borgarfógeta og ef hreppstjóri verður að víkja, þá skipar sýslumaður varamann hreppstjórans. Eins er ákvæði um það, að ef skipstjóri þarf að víkja sæti sem kjörstjóri utan kjörfundar, komi í hans stað 1. stýrimaður, sem gengur honum næst á skipinu. 2. brtt., við 33. gr., er þess eðlis, að ákvæði var áður þannig, að ef umboðsmenn lista væru ekki viðstaddir eða viðlátnir, væru það fremstu frambjóðendurnir á listanum, en brtt. þessi segir, að þá geti hvaða frambjóðandi sem er í aðalsæti komið fram fyrir hönd listans sem aðalmaður hans. Þetta er mjög eðlilegt, þar sem kjördæmin eru nú orðin svo stór og ef umboðsmenn vantar, en einhver af aðalmönnunum er viðstaddur, að hver þeirra sem væri gæti komið fram fyrir hönd listans þá sem umboðsmaður hans.
3. brtt. er smávægileg. Hún er aðeins til þess að árétta, hvernig með skuli fara þau bréf með utankjörfundaratkvæðum, sem send eru sérstaklega til yfirkjörstjórnar. En ef svo stendur á, að slíkum bréfum með utankjörfundaratkvæði er komið í aðra kjördeild en þar, sem viðkomandi kjósandi mundi hafa átt að kjósa, á að senda þau bréf sérstaklega til yfirkjörstjórnarinnar. Það er tekið hér inn ákvæði, hvernig yfirkjörstjórn skuli fara með þessi bréf og þá vitnað til þess, að hún fari með þau á sama hátt og undirkjörstjórnir, þegar þær veita móttöku slíkum bréfum, setja kjörseðlana, eftir að hún hefur athugað þá og borið saman við kjörskrá, í atkvæðakassann.
Kem ég þá að 4. brtt., við 110. gr., sem er náttúrlega nokkurt álitamál um. Hv. þm. taka eftir því, að brtt., sem flutt var við 2. umr. og n. tók aftur, er nú komin fram í annarri mynd, en hún var í brtt. n. og aðalefni þeirra breytinga, sem nú hafa orðið á henni er, að samkvæmt þessari reglu, sem nú er lagt til að samþykkt verði, þurfa fleiri að hafa breytt eða strikað út af listanum, til þess að það geti hróflað við röð manna á listanum, heldur en áður var. Í stórum dráttum verður niðurstaðan þessi, að fyrst telst mönnum atkvæðamagnið, eins og allir listarnir væru óbreyttir eða seðlarnir væru óbreyttir og af því atkvæðamagni, sem frambjóðandinn á listanum fær þannig, teljast honum 2/3 hlutar, en hins vegar 1/3, þegar aftur er reiknað í tvennu lagi, fyrst þeir seðlar, sem eru óbreyttir og svo þeir seðlar, sem einhver breyting hefur verið gerð á. En almenna reglan, sú sem áður var í kosningalögunum, helzt, að efsta manni teljist t.d. í 5 manna kjördæmi, þar sem eru 5 aðalmenn og 5 til vara, 10/10 hlutar af atkvæðunum og næsta manni 9/10, 8/10 o.s.frv. og í 6 manna kjördæmi þá 12/12 o.s.frv. og 24/24 í 12 manna kjördæmi, í Reykjavík, aðalmenn 12 og 12 til vara.
Eins og þessi regla var áður í kosningalögunum, þurfti ekki nema rétt yfir 4% að strika einn mann út á lista í Reykjavík, 12 manna kjördæmi, til þess að geta breytt röð listans og fella hann niður í næsta sæti, í 6 manna kjördæmi þurftu aðeins 79/18% af kjósendum að stika yfir til þess að geta fellt mann um sæti og í 5 manna kjördæmi 91/11%. En eftir reglunni, eins og hún er nú orðuð hér í 4. brtt., hækka þessar tölur verulega, þannig að í Reykjavík þurfa yfir 12% kjósendanna að hafa strikað yfir mann, til þess að það geti haft áhrif á röðina á listanum, í 6 manna kjördæmi 231/13% og í 5 manna kjördæmi 273/11%.
Menn eru ekki alls kostar ánægðir í n. með þann mismun, sem fram kemur í kjördæmunum eftir því, hve margir þm. eru kosnir í hverju kjördæmi. En þó er á það að líta, að viðhorfið er nokkuð annað í minna kjördæmi en stærra, þar sem fólksfjöldinn er meiri, svo að það er kannske ekki með öllu óeðlilegt, þó að einhver munur væri á þessu. En hann er nokkuð mikill og verulega mikill, eins og er, þar sem annars vegar, eins og ég sagði áðan, þarf í Reykjavík t.d. aðeins yfir 12%, en í hinum kjördæmunum, 6 manna 23% rúmlega og 5 manna kjördæmunum 27% rúmlega. Það var mikið rætt innan nefndarinnar að miða hér aðeins við eina ákveðna prósentu, sömu prósentu í öllum kjördæmunum, að breytingar eða útstrikanir hefðu ekki áhrif á röð frambjóðenda t.d., ef það væru ekki yfir 20%, sem hefðu gert breytingar á röð viðkomandi manns. En þetta var sem sagt niðurstaðan í n. og er í meira samræmi við regluna, sem gilt hefur í kosningalögunum, en hins vegar sú breyting í raun og veru ein gerð, að það þarf allverulega miklu meiri breytingar til þess að hafa áhrif en áður var og það fæst með því að gefa í raun og veru hverjum atkvæðisseðli, þar sem fyrst er talið eins og ekkert hefði verið breytt, helmingi meira gildi, en þeim atkvæðaseðli, sem breytt er á, og þess vegna deilt með 2/3 skv. fyrstu málsgr., en 1/3 í hinum, annarri og þriðju.
Ég vona, að menn geti áttað sig nægjanlega á þessu, þar sem í raun og veru má segja, að í verulegum atriðum sé um sama fyrirkomulag að ræða og áður, með þeim breytingum, sem ég hef nú sagt.
5. brtt. er bara leiðrétting, sem leiðir af 4. brtt.
Svo er í 6. brtt. bætt inn í 128. gr. ákvæðum til nánari skilgreiningar á því, hvernig fara skuli með kjörgögn og kjörkassa og annað slíkt, ef kosningu einhverra hluta vegna hefur verið frestað, en heimild til frestunar var, eins og menn muna eftir, tekin upp í brtt. n. við 2. umr. og samþykkt þá.
Loks hefur n. flutt ákvæði til bráðabirgða, sem kveður á um það, að þar sem kosningar eru nú væntanlegar á hausti, sennilega ekki fyrr en í októbermánuði, þá skuli vera tveir kjördagar, og er ákvæðið alveg samhljóða og áður hefur verið, 1942, við svipaðar kringumstæður, og 1919, þegar haustkosningar fóru fram.
Ég held ekki, að ég þurfi að hafa fleiri orð til að skilgreina þetta, nema sérstakt tilefni gefist til þess.