11.08.1959
Neðri deild: 14. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í B-deild Alþingistíðinda. (94)
3. mál, kosningar til Alþingis
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér eina brtt. við kosningalagafrv. Sú till. er á þskj. 28 og er um breyt. við 133. gr. frumvarpsins, eins og hún er nú eftir 2. umr.
Sú grein fjallar um það, sem nefnt er óleyfilegur kosningaáróður eða kosningaspjöll. Í till. minni legg ég til, að 3. tölul. þessarar gr. verði orðaður um og aðalbreyt. felst í því, að gerð verði nokkru strangari ákvæði, en verið hafa um það, hvað leyfilegt sé í sambandi við áróður flokkanna á sjálfan kjördaginn. Hingað til hefur það verið eða var svo í síðustu kosningum, að bannað var að hafa uppi flokksmerki, auglýsingar, ávörp eða annað þ.h. á kosningadaginn í næsta nágrenni við kjörstaðinn sjálfan eða á kjörstaðnum. En mín till. miðar að því að banna þetta að verulegu leyti einnig á öðrum stöðum í kjördæminu á sjálfan kjördaginn. Það atriði, sem ég hafði hér einkum í huga, var það, sem kom mjög greinilega fram í síðustu kosningum, þegar flokkarnir fóru, t.d. hér í Reykjavík, í ofsafengið kapphlaup á kjördaginn sjálfan með að hengja hér upp í nágrenni Reykjavíkur og um allan Reykjavíkurbæ stór máluð skilti og auglýsingar, hvatningar og ávörp, þar sem hver reyndi í rauninni að líma sitt plagg yfir annars plagg o.s.frv. Þetta setti mjög ógeðugan svip á kosningadaginn hér í kring og ég hygg, að flestir sanngjarnir menn viðurkenni það, að ekki fer vel á slíku auglýsingastríði. Og það ætti að vera sama í raun og veru fyrir flokkana í sambandi við allan þann áróður, sem þeir hafa í frammi og alla þá möguleika, sem þeir hafa til áróðurs allt fram að kjördegi, þó að þeir neiti sér um slíka starfsemi, sem þessa, á sjálfan kjördaginn. Að þessu miðar mín till., að gera ákvæði í þessu efni nokkru strangari, að banna það sem sagt að hafa uppi áróðursspjöld og áróðursborða, flokksmerki, merki lista eða önnur slík auðkenni á sjálfum kjörstaðnum og einnig annars staðar í kjördæminu á kjördaginn sjálfan, en heimila aðeins að auðkenna flokkshús og kosningaskrifstofur flokkanna. Ég tel, að allir flokkar mættu vel við una, þó að ákvæðin yrðu gerð nokkru strangari í þessum efnum, en slíkt mundi spara mörgum útgjöld og mikið erfiði og setja ólíkt meiri menningarbrag á kjördaginn, en verið hefur undanfarið.
Það er einkum ein önnur till., sem ég vildi víkja hér nokkrum orðum að, sem fram hefur komið til breyt. á kosningal. og mig undrar allmikið að ekki skuli hafa fengið frekari undirtektir í hv. stjskrn., en það er sú till., sem miðar að því að breyta nokkuð til um hinn fasta kosningadag, þegar almennar alþingiskosningar fara fram.
Eins og kunnugt er, hafa ákvæði laganna verið þannig og eru enn í frv., að gert er ráð fyrir því, að fastur kosningadagur sé síðasti sunnudagur í júnímánuði. En nú hefur komið fram till. um að breyta þessu á þá lund, að þessi fasti kosningadagur verði ákveðinn 2. sunnudagur í júnímánuði eða færa kjördaginn nokkuð fram. Fyrir þessari till. hafa verið færð fram hér alveg augljós rök, sem flestir eða allir hljóta að taka undir og af því undrar mig það stórlega, að meiri hl. stjskrn. skuli ekki hafa séð sér fært að fallast á þessa sanngjörnu till.
Það er öllum kunnugt, að með því að ákveða kosningadaginn síðasta sunnudag í júní er málum háttað þannig, að það er beinlínis knúið fram, að allir þeir sjómenn okkar, sem stunda síldveiðar, geta ekki fengið að taka þátt í meginhluta kosningaundirbúningsins í sínu heimahéraði, þeir verða að kjósa utan kjörstaðar og eru þannig sviptir að verulegu leyti möguleikum til þess að hafa eðlileg áhrif á gang kosninganna. Hér er um þúsundir manna að ræða. Á venjulegum síldveiðum munu vera á síldarflotanum í kringum 5 þús. manns og allt upp í 7 þús. En miklu fleiri menn, en beinlínis þeir, sem eru á flotanum, verða að leita frá heimastöðvum sínum vegna hinnar miklu síldaratvinnu um þetta leyti. Það gildir því sama um þessa menn. Allur þessi stóri hópur er raunverulega sviptur aðstöðu til þess að taka beinum þátt heima í héruðum sínum í eðlilegum kosningaundirbúningi og kosningaþátttöku og dæmdur til þess að verða að neyta atkvæðisréttar síns utan kjörstaðar.
Nú sjá það allir, að hér er um mjög óaðgengileg kjör að ræða fyrir sjómannastétt landsins og mig furðar alveg stórkostlega, að til skuli vera þeir menn hér á Alþingi, sem að algerlega þarflausu vilja beita sjómannastétt landsins slíkum órétti eins og því að reyna að þvinga það fram, að kosningadagurinn verði áfram á þeim tíma hafður, þegar þeir hafa ekki aðstöðu til þess til jafns við aðra landsmenn að fá að njóta kosningadagsins.
Þær röksemdir hefur verið reynt að hafa uppi og m.a. sá, sem hér talaði næstur á undan mér, reyndi það, hv. 2. þm. N-M., að það mundi jafnvel geta staðið svo á, ef kosningadagurinn yrði 14. júní, sem hefði m.a. gert á þessu ári, ef valinn hefði verið annar sunnudagur í júní, þá hefði tíðarfarið m.a. verið þannig nú á þessu sumri, að sett hefði niður snjó á nokkrum stöðum og þar af leiðandi ferðir manna eitthvað truflazt. Getur það nú verið nokkur maður, sem þekkir til aðstæðna á Íslandi, sem vill telja, að þetta geti verið gild rök? Vissulega eru til dæmi um það, að slíkt hafi átt sér stað einnig 28. júní. Vissulega hefur það líka komið fyrir hvað eftir annað á einstökum stöðum, að orðið hafi önnur slík náttúruspjöll, að það hafi verið erfitt fyrir menn að ferðast á milli, jafnvel innanbæjar í sumum bæjarfélögum. Og hvar skyldi þá eiga að setja kjördaginn á árið, ef maður ætlar að eltast við slíkar algerar undantekningar? Nei, það getur vitanlega enginn maður haldið því fram með nokkrum rökum, að það sé hætta á því, að t.d. dagurinn 14. júní sé miklum mun örðugri fyrir kjósendur almennt í landinu til þess að ganga til kjörborðs heldur en t.d. dagurinn 28. júní. Engin frambærileg rök, eru fyrir slíku.
Ég minnist þess, að þau rök, sem lengst af var reynt að halda í, í þessum efnum, voru þau, að sagt var, að það mundi vera heldur betra fyrir bændur landsins, að kjördagurinn yrði síðasti sunnudagur í júní, heldur en eitthvað fyrr í þeim mánuði og það stafaði af því, að störf þeirra í sveitinni væru á þá lund. Ég hef reynt að kynna mér þetta sérstaklega og lagt þessa spurningu fyrir marga bændur, marga starfandi menn í sveitum landsins, og þeim kemur yfirleitt saman um, að það mundi vera, ef nokkuð væri, orðið hentugra fyrir bændur landsins, að kosningadagurinn yrði t.d. annar sunnudagur í júní, fremur en síðasti sunnudagur í júní, enda veit ég, að það er síður en svo, að það sé á nokkurn hátt óhentugra fyrir bændur landsins. Það er því ekki um það að ræða. Hér er annaðhvort um að ræða meðfædda íhaldssemi, eins og mér virðist nú koma fram ákaflega greinilega, m.a. í þessu máli, hjá ýmsum fulltrúum Framsfl., það er sem sagt þessi eiginleiki að vera á móti öllum breytingum, halda að eilífu í það, sem áður hefur verið einhvern tíma, og telja það alltaf bezt. En undan því verður ekki vikizt að þessu sinni, að það verður ekki hægt að leggja það út á neinn annan hátt, ef einstakir flokkar hér á Alþingi ætla að halda fast við að knýja það í gegn, að kjördagurinn skuli áfram verða síðasti sunnudagur í júní, heldur en sem beint fjandskaparbragð við sjómannastétt landsins, það sé beinlínis verið að mismuna þeim stöðum á landinu. Ég vil benda á, að það eru mörg byggðarlög, sem svo stendur á um, að um það bil þriðjungur manna í viðkomandi byggðarlagi leitar til síldveiða, fer í burtu, og það er allhart að gengið þar, að knýja þá alla til þess að vera fjarverandi frá sínum heimastað, þegar jafnmikilvæg átök fara fram eins og jafnan fara fram á sjálfum kjördeginum.
Ég tel, að það hefði að skaðlausu mátt ákveða kjördaginn síðasta sunnudag í maímánuði, en tel, að höfð sé svo mikil sanngirni í frammi, þegar farið er fram á annan sunnudag í júní, að það megi telja fullan fjandskap gagnvart sjómannastéttinni að standa gegn því, að slíkt ná fram að ganga.
Ég vil því vænta þess, að hv. alþm. athugi þessa till., sem hér hefur verið flutt um það að breyta kjördeginum, sérstaklega, því að hér er fullt alvörumál á ferð. Þessi tillaga er flutt af fullri nauðsyn. Ég vil líka benda á, að fólk það, sem er í sjávarútvegsbæjum landsins, er búið að búa við það nógu lengi, að kjördagur sé ákveðinn á þeim tíma árs, sem er því hvað óhagstæðastur, þó að það sé ekki gert algerlega að þarflausu. Ég veit, að í mínu byggðarlagi hefur það verið svo, að um áraraðir hafa nær allar kosningar verið á þeim tíma árs, að um það bil einn þriðji hluti íbúanna hefur þurft að kjósa utan kjörstaðar. Þegar bæjarstjórnarkosningar hafa farið fram, hafa þær þurft að vera síðasta sunnudag í janúarmánuði, þegar fólk er almennt farið til vertíðar, og þegar alþingiskosningar fara fram, hafa þær þurft að vera síðasta sunnudag í júnímánuði, þegar menn eru almennt farnir til síldveiða.
Nú er hins vegar farið fram á að færa þetta þannig til, að mögulegt ætti að vera fyrir flesta sjómenn að ná því að kjósa heima á kjördegi, ef annar sunnudagur í júní væri valinn, a.m.k. að vera heima meginhlutann af þeim tíma, sem aðalkosningabaráttan stendur yfir og það er í rauninni algert lágmark.
Ég sagði hér áðan, að mér virtist, að ýmsir af fulltrúum Framsfl. tækju einna helzt þá afstöðu hér í sambandi við þetta mál, að það líktist því, að þeir teldu alltaf bezt að halda sem mest í öll gömul ákvæði, hvernig svo sem þau væru. Mér kom þetta til hugar, þegar ég heyrði, að hv. 2. þm. N-M., sem talaði hér næst á undan mér, talaði af talsvert miklum þunga gegn till., sem hér hefur komið fram um það, að yfirkjörstjórnir í hinum nýju kjördæmum skuli valdar þannig, að þær verði kosnar almennum hlutfallskosningum hér á Alþingi, í stað þess að hafa þá reglu, sem lögð var til í frv. í byrjun, að sýslumennirnir og bæjarfógetarnir í viðkomandi kjördæmum ættu að vera sjálfskipaðir yfirkjörstjórnarmenn, hver í sínu umdæmi. Og svo var lagt út af því af þessum hv. þm., að hér væri í enn einu tilfellinu verið að ráðast á byggðavaldið, það væri verið að ráðast að valdsviði byggðanna og nú væri verið að toga þetta vald hingað suður. Ja, mikil er sú skammsýni að mínum dómi. Hvernig var í rauninni sú till., sem hér lá fyrir um það í frv. að velja bæjarfógeta og sýslumenn í hverju kjördæmi sem sjálfsagða yfirkjörstjórnarmenn? Það er einhver fráleitasta till., sem ég hef séð um slík efni eins og þetta. Ef ég tel t.d. mitt umdæmi á Austurlandi og lít yfir það, þá er þar um að ræða þrjá slíka embættismenn, þeir hefðu allir komizt að sem réttkjörnir menn í yfirkjörstjórn þar í umdæminu. Það er bæjarfógetinn á Seyðisfirði og sýslumaðurinn í Norður-Múlasýslu, sem er einn og sami maðurinn, það er bæjarfógetinn í Neskaupstað, og svo er það sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu. Það eru þessir þrír menn, sem hefðu verið sjálfkjörnir í yfirkjörstjórn.
Nú er það svo, að í síðustu kosningum voru tveir af þessum mönnum í kjöri. Þeir hefðu því báðir þurft að víkja og þá samkv. orðanna hljóðan hér í frv. hefði ráðherra átt að skipa í staðinn fyrir þessa báða menn. Þá var það orðið á valdi eins ráðherra suður í Reykjavík að skipa meiri hlutann í kjörstjórninni þarna í byggðarlaginu, í þessu héraði, og ótrúlegt þykir mér það að fenginni reynslu, að sýslumaðurinn í Suður–Múlasýslu hefði ekki fundizt einhvers staðar á 10 manna lista Framsfl., þegar hann var farinn að bjóða þar fram 10, þannig að ráðherrann hér fyrir sunnan hefði fengið að skipa þá alla. Og þessu var þetta líkt um flest kjördæmin í landinu, að þetta hefði orðið þannig, að ráðherra í Reykjavík hefði fengið aðstöðu til að skipa meiri hluta yfirkjörstjórnar eða yfirkjörstjórnina alla í flestum kjördæmum landsins. Þetta lá augljóst fyrir öllum, sem virtu fyrir sér staðreyndir í þessum efnum.
En svo var nú um réttlætið að öðru leyti. Á Austurlandi er nú svo, að tveir af þessum mönnum eru yfirlýstir sjálfstæðismenn og voru báðir, eins og ég sagði, í kjöri fyrir Sjálfstfl. og einn af þeim var yfirlýstur framsóknarmaður. Þá var verið að slá þessu föstu hér á Alþ., að Sjálfstfl. skyldi hafa meiri hluta í yfirkjörstjórninni í Austurlandskjördæmi. Ef hann væri við völd dálítinn tíma, er mjög sennilegt, að hann ætti alla yfirkjörstjórnina. Og alveg eins gat það orðið svo, að einn flokkur ætti alla yfirkjörstjórnina í ýmsum kjördæmum landsins, bara af því að hann átti viðkomandi þrjá bæjarfógeta eða sýslumenn. Hvaða frjálslyndur maður vill nú halda því fram, að það sé eðlilegt og sanngjarnt að búa til slík lög, sem beinlínis gera ráð fyrir því, að einn flokkur geti fengið meiri hlutann í hverri yfirkjörstjórninni af annarri? Það þarf mjög íhaldssaman mann í hugsun til þess að vilja halda við slíka skoðun að mínum dómi. Og svo reyna menn til viðbótar að halda því fram, að þetta væri sjálft byggðavaldið, bæjarfógetarnir og sýslumennirnir, skipaðir jafnvel þvert ofan í lög og reglur stundum af einhverjum pólitískum ráðherrum. Slíkir menn eru skipaðir í héruðin og þeir eiga að fá þetta vald og á þennan hátt. Þetta heitir byggðavald, sem þarf að vernda. Þetta eru réttindi fólksins úti á landi, sem einhverjir vondir menn í Reykjavík eru að reyna að taka af því, sanngjörn réttindi fólksins þar. Hvers konar hugsunarháttur er þetta?
En svona hefur þetta verið í sambandi við túlkun ýmissa manna hér á aðstöðu fólksins úti á landi, — þetta, sem sumir þykjast vera að vernda og berjast fyrir í einu og öllu og segja, að aðrir vondir menn séu að ráðast á. Ég veit það vel, að ýmsum hér er kært um ýmsa þessa menn úti á landi, sem búið er að setja inn í embættin á þennan hátt og vilja gera vel við þá, en það þýðir bara ekki hið sama og það sé eitthvert sérstakt áhugamál fólksins úti á landi. Það er mikill misskilningur. Það, sem er eðlilegt um yfirkjörstjórnirnar í landinu, er það, eins og allar kjörstjórnir, að þær séu kosnar á lýðræðislegan hátt og helzt af öllu, að það sé tryggt sem bezt, að sem flestir flokkar eigi þar fulltrúa í kjörstjórnunum. Það ætti að tryggja það bezt, að kosningarnar fari fram samkvæmt settum reglum og lýðræðislega. Það er engan veginn heppilegt, að einn flokkur af þeim, sem ganga til kosninga, eigi þar alveg ótvíræðan meirihluta, ég tala nú ekki um alla kjörstjórnarmennina. Það er ekki æskilegt skipulag.
Mér dettur í hug, þegar farið er að minnast á byggðavald, að það er kannske ekki úr vegi að minnast á það, hvernig afstaða manna og flokka hefur verið hér í sambandi við það, sem mætti raunverulega veita fólki úti á landi raunverulegt vald. Hv. 2. þm. N-M. minntist hér á nokkur atriði, sem hafa verið til umtals á Alþ. æði oft áður og til afgreiðslu líka. Ég hafði flutt um það nokkrum sinnum tillögu hér og m.a. barizt fyrir því einnig í síðustu ríkisstj., að það yrði ákveðið, að nokkur hluti af gjaldeyrisvaldinu í landinu, veiting gjaldeyrisleyfa og bein sala gjaldeyris, gæti farið fram m.a. í nokkrum byggðarlögum úti á landi og ég veit ekki annað betur en einmitt flokkur hv. þm., sem hér var að tala, Framsfl., hafi staðið þar einna rammast á móti. Hann vildi hafa valdið hér í Reykjavík, hjá tiltekinni nefnd hér. Ég minnist þess líka í þessu sambandi, að það var allmikið rætt um það hér á Alþ. á sínum tíma, hvort það væri endilega nauðsynlegt, að öll raunveruleg ákvörðun um úthlutun á lánum til húsbygginga á öllum stöðum á landinu þyrfti endilega að fara fram í einhverri ákveðinni nefnd suður í Reykjavík, hvort það væri ekki hægt að dreifa þessu valdi og hvort það væri nauðsynlegt, að maður, sem væri að fá húsbyggingarlán einhvers staðar úti á landi, þyrfti endilega að ganga frá lánsskjölunum hér suður í Reykjavík, hvort það væri ekki hægt, eftir að búið væri að ákveða, að viðkomandi maður ætti að fá lánið, að senda lánsskjölin heim í hans byggðarlag og ganga frá þeim þar. Nei, m.a. Framsfl., flokkur byggðavaldsins, var á móti slíkri dreifingu valdsins. Og þannig mætti auðvitað nefna mörg dæmi.
Ég vil líka minna á það, það er búið að minnast á það æði oft í sambandi t.d. við Búnaðarbankann og lánveitingar til landbúnaðarins, að það getur nú enginn bóndi úti á landi fengið svo lán í sambandi við búskap sinn, að hann geti t.d. fengið að ganga frá láninu, skrifað undir pappíra sjálfur úti á landi í einhverju útibúi banka eða sparisjóðs þar. Það er óframkvæmanlegt. Hann verður að senda öll gögn hingað suður og hann verður að senda einhverjum manni suður í Reykjavík umboð fyrir sig til þess að skrifa undir lánið og taka út peningana hér. Vissulega mætti dreifa þessu valdi og gera það á annan hátt. En það eru ýmsir aðilar, sem beinlínis hafa haft af því pólitískan hag að hafa það með þeim hætti, að það þyrftu að vera einhverjir umboðsmenn í Reykjavík, einhverjir milligöngumenn og einhverjir, sem taka umboðið, sem skrifa undir, sem veita peningunum viðtöku og fara með peningana heim og borga þá út þar. Það eru ýmsir aðilar, sem hafa haft þessa hagsmuni og hafa því haldið við þessu kerfi.
Ég er sannarlega með því að dreifa ýmsu því valdi, sem hér hefur verið í Reykjavík og teldi, að það væri út af fyrir sig gott og lofsvert að dreifa því nokkuð, því að það hafi verið „sentraliserað“ hér óþarflega mikið. En við skulum ekki blanda inn í umr. um þetta mál, um kosningalögin, né heldur kjördæmabreytingarmálið þessu atriði, frekar en orðið er. Það er alveg óþarft að reyna að halda því fram, t.d. af fulltrúum Framsfl., að þeir flokkar, sem standa hér að kjördæmabreytingarmálinu og breytingu á kosningalögunum, séu með þessu að ræna byggðarlögin úti á landi einhverju af sínu valdi sérstaklega. Það hefur komið fram í allt öðru. En ég tók nú þetta hliðarspor í mínum umræðum um kosningalagabreytingar að gefnu tilefni.
Ég skal svo ljúka þessu spjalli mínu með þeim orðum, að ég vænti þess, að hv. Alþ. sjái sér fært að samþykkja brtt. mína á þskj. 28 um nokkuð frekari friðun á kjördeginum og þá ekki síður þá brtt., sem hér liggur fyrir um breytingu á kjördeginum, þannig að m.a. sjómannastétt landsins verði gert álíka hátt undir höfði og öðrum í landinu með það að geta raunverulega fengið að taka þátt í kosningum heima hjá sér á kjördegi og knýja það ekki fram, sem algerlega er óþarft og verður að líta á að sé hreinn fjandskapur við sjómannastéttina, ef á að knýja það fram, að kosningadagurinn verði ákveðinn síðasta sunnudag í júní. Ég vona því, að sú brtt., sem gerir ráð fyrir því að ákveða annan sunnudag í júní sem kjördag, verði samþykkt.