02.06.1960
Neðri deild: 93. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2635 í B-deild Alþingistíðinda. (1006)

169. mál, Búnaðarbanki Íslands

Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Eins og hv. frsm. meiri hl. skýrði frá. var ágreiningur í fjhn. um þetta frv. Ég hef skilað um það sérstöku áliti á þskj. 594.

Frv. er um breyt. á l. um Búnaðarbankann. Upphaflegu lögin um þá stofnun eru frá árinu 1929. Skömmu áður, árið 1927, urðu þáttaskil í stjórnmálunum með stjórnarmyndun Framsfl. eftir kosningasigur hans á því ári. Þá hófst mikil framfarasókn í landbúnaðinum og á fleiri sviðum. Eitt af fyrstu viðfangsefnum þeirrar stjórnar var að koma upp lánastofnun fyrir landbúnaðinn. Hún fékk sett lög um byggingar- og landnámssjóð strax á næsta ári, 1928. og árið eftir í byrjun þings. í febr. 1929, lagði Tryggvi Þórhallsson forsrh. fram frv. stjórnarinnar um Búnaðarbankann. Það var samþ. á því þingi. Bankinn tók til starfa á næsta ári.

Stofnun Búnaðarbankans var merkisatburður í sögu þjóðarinnar. Þá var stigið stórt skref á framfarabraut. Þær miklu umbætur, sem orðið hafa á sviði landbúnaðarins síðustu áratugina, hafa verið framkvæmanlegar vegna þess stuðnings, sem bankinn og sjóðir hans hafa veitt.

Nú vill hæstv. ríkisstj. gera breyt. á stjórn bankans og flytur frv. um það. Fyrir þremur árum voru gerðar breyt. á l. um Landsbankann og Útvegsbankann. Sjálfstæðismenn. sem þá voru í stjórnarandstöðu, heittu sér gegn þeim breyt. M.a. töluðu þeir há um aukinn kostnað, sem leiða mundi af fjölgun bankaráðsmanna og bankastjóra, sem þeir töldu ekki þörf .fyrir. Einn komst svo að orði, að tilgangur þáv. stjórnarflokka væri að ná í sem flest bein og bitlinga handa sínum mönnum. En flutningur þessa frv. sýnir. að sjálfstæðismönnum hefur ekki þótt nóg að gert 1957. Þeir vilja enn fjölga bankaráðsmönnum og bankastjórum og tala nú ekkert um aukinn kostnað. Sennilegt má teljast, að ríkisstj. geti auðveldlega fundið menn í sínu stuðningsliði, sem verði fáanlegir til fyrir góð orð og einhverja borgun að taka sæti í bankaráði og bankastjórastól í Búnaðarbankanum. og þá er takmarki stjórnarinnar náð að ná meiri hluta í yfirstjórn bankans. En er þetta hollt fyrir bankann og þann atvinnuveg, sem hann er sérstaklega tengdur? Áður en þeirri spurningu er svarað, er rétt að athuga, hvert viðhorf stjórnarflokkanna er til bankans og starfsemi hans, eins og það hefur birzt hér á þingi, t.d. á þeim tíma, sem liðinn er síðan núverandi stjórnarflokkar tóku að sér að fara með stjórn landsins, en síðan er nú tæplega 11/2 ár.

Meðan framsóknarmenn voru í ríkisstj. og fóru þar með landbúnaðarmálin, höfðu þeir forgöngu um, að hluta af greiðsluafgangi ríkissjóðs yrði varið til lánveitinga handa sjóðum Búnaðarbankans, þegar þá vantaði fé til lánveitinga. T.d. var þetta gert árið 1955 og aftur 1956. Þegar sýnt var, að þó nokkur greiðsluafgangur yrði hjá ríkissjóði 1958, en sjóðum bankans var fjárvant, fluttu framsóknarmenn till. á þingi um 10 millj. kr. lán af greiðsluafganginum, sem skiptist að jöfnu milli byggingarsjóðs og veðdeildar Búnaðarbankans. Þetta var í samræmi við það, sem áður hafði verið gert, en þm. núverandi stjórnarflokka felldu þessa till. í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna í apríl í fyrra.

Það hefur verið algild regla, að þeir bændur, sem ráðizt hafa í byggingar íbúðarhúsa á jörðum sínum, hafa getað fengið hluta af láni úr byggingarsjóði bankans fyrir lok ársins, er bygging var hafin, ef þeir hafa þá getað lagt fram vottorð í tæka tíð um, að bygging væri orðin fokheld. Þeir bændur, sem hófu íbúðarhúsabyggingar á næstliðnu árí, 1959, höfðu vitanlega reiknað með því, að þessari reglu yrði fylgt, en þeir urðu þar fyrir vonbrigðum. Þá að þeir legðu inn hin venjulegu lánsskjöl til bankans fyrir nóvemberlok, gátu þeir ekki fengið þar lán. Byggingarsjóðinn skorti fé. Þeir gátu ekki fengið þessi lán fyrir árslokin, eins og venja hafði verið og eins og þeir þurftu mjög á að halda. Þetta var vegna þess, að hér var komin ný ríkisstj., sem hirti ekki um að útvega sjóðnum fé að láni. Hefði þó ekki þurft í þetta sinn stóra fjárhæð til þess, að hægt væri að afgreiða lánin með venjulegum hætti. Þetta varð vitanlega til þess að valda bændum verulegum erfiðleikum við áramótauppgjörið. Það er fyrst nú í vor, sem þessir menn hafa getað fengið byrjunarlán út á byggingarnar frá í fyrra og þá með nýju vöxtunum, vöxtum núverandi ríkisstj., sem eru þriðjungi hærri en þeir, sem áður þurfti að borga af slíkum lánum. Sjóðir Búnaðarbankans, ræktunarsjóður og byggingarsjóður, hafa veitt lán með lægri vöxtum en vextir gerast almennt í viðskiptum manna á milli og hjá peningastofnunum. Þetta var ákveðið þegar í upphafi, þegar sett voru lögin um byggingar- og landnámssjóð og um Búnaðarbankann. Þetta er sanngjarnt og eðlilegt, þetta er réttmætur stuðningur frá hálfu þess opinbera til þeirra, sem vinna að því að rækta og byggja landið. Og það er fleira, sem hér kemur til greina og styður þetta, að landbúnaðurinn njóti lána með sérstaklega hagstæðum kjörum. Þegar Tryggvi Þórhallsson lagði fram bankafrv. sitt 1929, taldi hann réttilega, að það renndi einnig stoðum undir þessa ákvörðun með lágu vextina, að það hefðu orðið tiltölulega mjög lítil töp á útlánum til landbúnaðarins. Hann hafði kynnt sér þetta mál á þeirri tíð og komizt að þeirri niðurstöðu, að bankarnir höfðu þá tapað sáralitlu á útlánum til landbúnaðarins, en hins vegar voru þá fram komin allmikil töp á bankalánum til annarra aðila. Þetta mun eiga við enn í dag. Bankarnir hafa mjög litlu tapað af lánum til landbúnaðarins, þó að aðra sögu sé að segja, því miður, af lánum til ýmissa annarra atvinnugreina. En það liggur í augum uppi, að þegar sjóðirnir lána féð út með lægri vöxtum yfirleitt en þeir verða að borga fyrir fé, sem þeim er útvegað að láni, og oft einnig til lengri tíma, þá verður þeim að koma stuðningur til starfseminnar annars staðar að. Þessi stuðningur hefur verið veittur með því, að ríkið hefur lagt fram til þessara sjóða nokkurt fé með fjárveitingum á fjárlögum, og það hefur einnig komið fyrir oftar en einu sinni, að það hefur verið ákveðið, að ríkið tæki að sér að greiða vexti og afborganir af lánum, sem tekin höfðu verið handa sjóðum Búnaðarbankans. Þannig hefur verið létt vaxtabyrði sjóðanna og þeim gert fært að starfa í samræmi við þann tilgang, sem þeim var ætlaður. Það má nefna þau dæmi um þetta, að árið 1953 ákvað Alþ. með lögum, að ríkissjóður skyldi létta af ræktunarsjóði láni, sem var 14.4 millj., og öðru jafnháu af byggingarsjóðnum. Fjórum árum síðar, árið 1957, ákvað Alþ. aftur með heimild í fjárl., að ríkissjóður létti af þessum sjóðum alls 36–37 millj. kr. Ríkið tók að sér alveg að standa straum af þessum lánum. Þegar þetta gerðist hvort tveggja, voru framsóknarmenn í ríkisstj., fóru þar með landbúnaðarmál og höfðu forgöngu um þennan stuðning við Búnaðarbankann. En það hefur aldrei verið hægt að gera ráð fyrir því, að það væri hægt í eitt skipti fyrir öll á einhverjum tíma að sjá að fullu fyrir öllum framtíðarþörfum landbúnaðarins fyrir lánsfé. Þess vegna þarf að gera slík átök öðru hverju, og þess er einmitt mikil þörf nú, ekki sízt vegna þess, að gengisbreyt., sem ákveðin var nú á þessu þingi, veldur vitanlega mikilli hækkun í íslenzkum krónum á þeim útlendu lánum, sem hvíla á Búnaðarbankanum og sjóðum hans, og það er ekki fært fyrir sjóðina að standa undir þessum lánum af eigin rammleik. Þess vegna er nauðsynlegt, að ríkið komi nú enn til skjalanna elns og áður og létti hæfilegri upphæð af sjóðunum.

Þetta vil ég segja m.a. sem svar við því, sem hv. frsm. meiri hl. fjhn. sagði áðan, er hann var að tala um hörmulegt ástand bankans nú, eftir að framsóknarmenn hafi haft þar meiri hluta í bankaráði. Erfiðleikar bankans nú eða sjóðanna eru vitanlega ekki sízt vegna þeirra ráðstafana, sem gerðar hafa verið einmitt nú í tíð núv. hæstv. stjórnar.

Það er vitanlega öllum ljóst, sem um þetta mál hugsa og bera hag bankans fyrir brjósti, að nú þurfi nýjar ráðstafanir að koma til til að létta af honum afborgunum og vöxtum af lánum, sem á honum hvíla. Því var það, að nú á þessu þingi tímanlega báru framsóknarmenn í Ed. fram frv. til laga um, að ríkissjóður taki á sig greiðslu á erlendum lánum, sem hvíla á Ræktunarsjóði Íslands og byggingarsjóði sveitabæja. Þetta frv. er 62. mál þingsins og er á þskj. 124. Málið hefur síðan legið í þn. í hv. Ed., og stjórnarflokkarnir hafa hindrað, að það fái þinglega afgreiðslu. Allar horfur eru á því, að það verði fyrir þeirra tilverknað látið daga uppi á þessu þingi. En í framhaldi af flutningi þessa frv. og í samræmi við það fluttu fulltrúar Framsfl. í hv. fjvn. brtt. við fjárlagafrv. fyrir árið 1960 um það, að veita skyldi til Búnaðarbankans á 16. gr. fjárlaga 13.9 millj. kr. Það var reiknað út, að þessa upphæð þyrfti bankinn að fá nú í ár til þess að greiða af þeim lánum, sem lagt var til í frv. á þskj. 124, sem ég nefndi áðan, að ríkissjóður tæki að sér að annast. En þessi tili. var felld af stjórnarliðinu við fjárlagaafgreiðslu.

Á þessu þingi fluttu hv. þm. Sjálfstfl. þáltill. um ráðstafanir til að tryggja starfsgrundvöll veðdeildar Búnaðarbankans. Samkvæmt því átti að taka það til athugunar, hvernig væri hægt að efla veðdeildina í framtíðinni. Út af fyrir sig var það gott, ekki ágreiningur um það mál hér á þingi. En einmitt nú hefur verið þannig ástatt hjá veðdeildinni, að hún hefur ekki getað sinnt lánbeiðnum frá mönnum, sem mjög nauðsynlega þurfa á lánum að halda. Því var það, að ég bar fram brtt. við þessa þáltill., og var brtt. mín um það, að skorað yrði á ríkisstj. að útvega veðdeildinni nú þegar nokkra fjárupphæð, til þess að unnt væri að bæta úr brýnustu þörfum. Þarna var ekki til mikils mælzt. Ég nefndi að vísu ekki neina ákveðna upphæð, en gat þess, þegar ég talaði fyrir till., að það mundi koma að verulegu gagni, þó að ekki væri nema tiltölulega lítil upphæð útveguð nú þegar til veðdeildarinnar, miðað við þá veltu, sem nú er hjá okkur. En það kom fyrir ekki, stuðningsmenn ríkisstj. máttu ekki heyra þetta nefnt og felldu þessa till. Það gerðist 18. maí, nú á dögunum.

Enn má nefna þá gífurlegu vaxtahækkun, sem núv. ríkisstj. hefur komið fram, og styttingu lánstíma hjá stofnlánasjóðum. Þetta veldur bændum sem öðrum miklum erfiðleikum og stöðvar margar framkvæmdir, enda mun sá vera tilgangurinn.

Ég hef hér nefnt nokkur dæmi, sem sýna hug núv. ríkisstj. og stuðningsmanna hennar til Búnaðarbankans og þess atvinnuvegar, sem honum er fyrst og fremst ætlað að styðja. Þegar þetta er athugað, og þótt ekki sé fleira nefnt, ætti mönnum að vera auðvelt að svara spurningunni um það, hvort hyggilegt sé að fela núverandi stjórnarflokkum meiri hlutann í yfirstjórn Búnaðarbankans. Svar þeirra, sem vilja efla bankann og landbúnaðinn, hlýtur að verða á þá leið, að það sé ekki rétt að veita stjórnarflokkunum þetta meirihlutavald.

Hv. frsm. meiri hl., 5. þm. Reykv. (JóhH), var að kvarta um það, að nál. mitt á þskj. 594 væri pólitískt innlegg. Það lítur út fyrir, að það hafi farið eitthvað í taugarnar á þessum hv. meðnm. mínum. En hér er vitanlega um pólitískt mál að ræða, mjög stórpólitískt mál. Áframhaldandi framfarir í landbúnaðinum eru þjóðinni lífsnauðsyn. Þar má ekki verða kyrrstaða, enda er hún í rauninni ekki möguleg. Jafnskjótt sem hætt er að stíga skref fram á leið,. þokast menn aftur á bak. Það má ekki verða. En það er einmitt það, sem núv. hæstv. ríkisstj. vinnur að með efnahagsmálastefnu sinni, að stöðva framfarasóknina, sem þýðir að hverfa til baka. Stefna hennar er því afturhaldsstefna. Stefnt er aftur á bak til hinna „gömlu góðu daga“, sem svo voru nefndir. Það eru tímarnir fyrir 1927, áður en framfarasóknin hófst.

Frv., sem hér er til 2. umr., er einn liðurinn í viðleitni stjórnarinnar til að taka upp úrelta þjóðfélagshætti, stöðva framkvæmdir og framfarir. Í því skyni eru lánveitingar takmarkaðar og vextir stórhækkaðir. Í því skyni er dreginn til Reykjavíkur í banka þar hluti af þeim skildingum, sem fólkið í öðrum byggðarlögum hefur yfir að ráða, sem sannanlega eru ekki of margir til þess að sinna þeim þörfum, sem þar eru, og í þeim tilgangi seilist stjórnin til valda í peningastofnun landbúnaðarins handa sínum mönnum, svo að þar verði unnið með samdráttarstefnu hennar, en ekki á móti henni.

Framfarirnar í landbúnaðinum þurfa að halda áfram, eftír því sem mögulegt er. Þess vegna á ekki að fela mönnum afturhaldsstefnunnar að stjórna Búnaðarbanka Íslands. Ekki fyrir það, að það séu ekki til í liði stjórnarflokkanna hæflleikamenn, sem vel geti setið í bankaráði eða í bankastjórn, heldur fyrir það, að stefnan, sem þeir fylgja nú, er röng og þjóðinni hættuleg. Þess vegna er það tillaga mín, að frv. verði fellt.. Ef ekki verður fallizt á þá till., geri ég ráð fyrir að flytja brtt. við 3. umr. frv. um, að Stéttarsamband bænda skuli tilnefna einn bankaráðsmann í Búnaðarbankanum. Slíka till. flutti hv. 1. þm. Norðurl. e. (KK) í Ed., en hún hlaut þar ekki samþykki.