04.12.1959
Neðri deild: 11. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í B-deild Alþingistíðinda. (101)

16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960

Þórarinn Þórarinsson:

Hæstv. forseti. Ég skal standa við það að hafa þetta stutta athugasemd.

Ég get vel skilið hæstv. fjmrh., þegar honum finnst það ámælisvert af vinstri stj. að hafa látið þingið sitja að störfum, á meðan hún var að undirbúa sín efnahagsmál. Hæstv. fjmrh., sem vill engin samráð við þingið hafa um þessi mál, er að sjálfsögðu á móti þessu. En vinstri stj. gerði ekki annað í þessu sambandi en að fylgja alveg viðteknum þingræðisvenjum, sem viðgangast — held ég — hvarvetna annars staðar í heiminum, þar sem þingræði er. Eða getur hæstv. fjmrh. bent á dæmi þess á Norðurlöndum, í Bretlandi, í VesturÞýzkalandi, í Frakklandi, í Bandaríkjunum eða annars staðar, þar sem þingræðisstjórnir eru, að ríkisstj. sendi þingin heim eftir geðþótta sínum, ef þær hafa ekki einhver mál tilbúin handa þeim til að fjalla um? Ég held, að það séu engin dæmi þess. Og vinstri stjórnin kaus að fylgja þeirri viðteknu þingræðisvenju að hafa samráð um þessi mál við þingið, en ekki að senda það heim og hafa vilja þess að engu.

Hæstv. fjmrh. var einnig að hneykslast á því, að vinstri stjórnin skyldi hafa samráð við stéttasamtökin. Ég álít þetta ekki hneykslunarvert. Ég álít, að eins og okkar þjóðfélag er nú upp byggt og verkalýðsfélögin og stéttasamtökin eru orðin sterk og öflug, að þá eigi ríkisstj. að hafa samráð við þessa aðila um efnahagsmálin, en ekki sniðganga þau. Hæstv. fjmrh. er hér bersýnilega á öðru máll. En það kemur hins vegar fram hjá landbrh., að hann er, sem betur fer, ekki sammála fjmrh. um þetta, því að hann var að hæla sér af því hér áðan, að hann væri að reyna að hafa samráð bæði við fulltrúa framleiðenda og neytenda um landbúnaðarmálin, og það álit ég að sé alveg rétt hjá honum. Og ég álít, að aðrir ráðh. í ríkisstj. eigi að þessu leyti að taka hann sér til fyrirmyndar, það sé ekkert hneykslunarvert að hafa samráð við stéttasamtökin, heldur eigi að gera það.

Ég skal svo koma að síðasta atriðinu í því, sem ég segi hér í kvöld. Hæstv. fjmrh. byrjaði að ræða hér um störf manna, og hann gerði starf mitt sérstaklega að umtalsefni. Ég held, að þess vegna verði það ekki talið neitt ámælisvert, þó að ég geri einnig störf hæstv. fjmrh. að nokkru umtalsefni, og ég skal gera það í stuttu máli og aðeins í sambandi við það að varpa fram þeirri spurningu og reyna að svara henni í stuttu máli: Hvers vegna er þessi maður orðinn fjmrh.? Hvers vegna var í skyndi búið til sjöunda ráðherraembættið og lagðar í það nætur og dagar að búa til nýjan ráðherrastól til að koma hæstv. ráðherra í þennan stól? Já, hvers vegna var þetta gert?

Svarið við þessari spurningu er ákaflega einfalt. Það var af þeirri einföldu ástæðu, að flokksbræður hans í Reykjavík vildu losna við hann sem borgarstjóra. Þessi maður er búinn að stjórna bænum með þeim hætti, búinn að koma fjárhag hans í þær rústir, að flokksbræður hans vildu losna við hann úr embættinu. Og það var annað, sem bættist hér líka við. Hæstv. fjmrh. hafði sem borgarstjóri tekið upp á arma sér, með hvaða hætti sem það gerðist, að tryggja sér alveg sérstök útsvarshlunnindi og sínum helztu flokksgæðingum. Þetta var upplýst nú fyrir kosningarnar, og það hafði réttilega þau áhrif, að hæstv. borgarstjóri hafði af sínum flokki um 2000 atkv. með þessum hætti. Það var ákaflega skiljanlegt, að flokksbræður hans kysu ekki að þurfa að ganga til næstu bæjarstjórnarkosninga undir merkjum þess manns, sem hafði tryggt sér sérstök útsvarshlunnindi og hlotið þennan dóm bæjarbúa að launum. Það er af þessum ástæðum, sem þessi hæstv. ráðh. er orðinn fjmrh. En það má rétt minna á það í þessu sambandi, að hér er vissulega um mjög einkennileg og óvenjuleg vinnubrögð að ræða hjá Sjálfstfl. í sambandi við þessa stöðuveitingu. Við skulum gera okkur það í hugarlund, hvað hefði t.d. gerzt í Bretlandi, ef borgarstjóri í einhverjum bæ þar hefði orðið uppvís að því að tryggja sjálfum sér og sínum gæðingum sérstök hlunnindi í sambandi við álögur bæjarins. Hvað mundi hafa orðið um slíkan borgarstjóra? Mundi hann hafa verið gerður að ráðherra? Áreiðanlega ekki. Meira ætla ég ekki að segja. Þess vegna held ég, að þessum hæstv. ráðh. farist ekki að vera með neinn sérstakan gorgeir og tala um störf annarra manna hér á Alþingi.