02.06.1960
Neðri deild: 94. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2643 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)
169. mál, Búnaðarbanki Íslands
Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Samkvæmt þeim lögum, sem nú gilda; hefur meiri hl. bankaráðs Búnaðarbankans verið kosinn af sameinuðum landbn. Alþ. Það má líta svo á, að þetta sé staðfesting á því, að bankinn sé fyrst og fremst stofnun þeirra, er stunda landbúnað, eins og nafn hans líka bendir til. En samkv. frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir að nema þetta úr lögum og láta Alþ. kjósa allt bankaráðið.
Ég vil leyfa mér að leggja hér fram brtt. um skipun ráðsins. Till. þessi, sem ég ætla að flytja, er samhljóða till., sem hv. 1. þm. Norðurl. e. (KK) bar fram í Ed. Till. er þannig, með leyfi hæstv. forseta, að 2. efnismálsgr. 1. gr. frv. orðist svo: „Sameinað Alþ. kýs fjóra bankaráðsmenn hlutbundinni kosningu til fjögurra ára í senn og jafnmarga varamenn á sama hátt til sama tíma, einn fyrir hvern aðalmann. Stjórn Stéttarsambands bænda kýs fimmta bankaráðsmanninn, einnig til fjögurra ára, og varamann hans til sama tíma. Varamenn taka sæti í bankaráðinu í forföllum aðalmanna. Ráðh. skipar formann og varaformann bankaráðs úr hópi kjörinna varamanna eða aðalmanna, til fjögurra ára í senn.“
Breyt., sem hér er lagt til að gerð verði, er sú, að Alþ. kjósi aðelns 4 af 5 bankaráðsmönnum, en Stéttarsamband bænda tilnefni hinn fimmta. Það er sanngjarnt og það er eðlilegt, að landbúnaðarmenn hafi með þessu móti íhlutunarrétt um stjórn þess banka, sem sérstaklega er þeirra stofnun.
Ég vil óska þess við hæstv. forseta, að hann leiti afbrigða um þessa skrifl. brtt., þannig að hún megi koma hér fyrir og verða borin upp til atkvæða.