16.05.1960
Neðri deild: 82. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2644 í B-deild Alþingistíðinda. (1014)
164. mál, efnahagsmál
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Þegar ríkisstj. var að ræða væntanlegar aðgerðir í efnahagsmálum, nokkru eftir að hún tók við völdum, þótti strax sýnt, að nauðsyn bæri til að leggja útflutningstoll á útfluttar framleiðsluvörur landsmanna í því skyni að jafna þann halla, sem yrði á útflutningssjóðnum, þegar starfsemi hans félli niður. Þetta var rætt frá ýmsum hliðum og enginn verulegur ágreiningur um efnishlið málsins, þó að nokkuð sýndist sitt hverjum um það, hvort gjaldið ætti að vera hærra eða lægra og þá standa hlutfallslega því lengur. Að lokum var hnigið að því ráði að hafa gjaldið 5%, eins og mönnum er kunnugt. Og þá var ætlað, að til þess að jafna þessar þarfir, ef það má kalla, mundi þurfa að halda þessu gjaldi mestan hluta yfirstandandi árs.
Þeir, sem hlut áttu að máli, báru strax nokkurn kvíða fyrir, að þetta gjald mundi leggjast of þungt á framleiðsluna, en sættu sig þó við þetta framan af og allt þar til þeir voru að ljúka samningum sín á milli, útgerðarmennirnir fyrir sína hönd og sjómanna um aflann og vinnslustöðvarnar, bæði hraðfrystihús og þeir, sem kaupa til söltunar og í skreið. Þegar þær umr. voru á lokastigi, komu fram óskir frá útvegsmönnum og fiskkaupendum um, að gjaldið yrði lækkað og stæði þá því lengur, skyldi ákveðið 21/2 % í staðinn fyrir 5%, en yrði þá innheimt á helmingi lengri tíma. Ríkisstj. taldi að sjálfsögðu ekkert við þetta að athuga og fannst, að þeir, sem gjaldið ættu að greiða, yrðu mestu um þetta að ráða, á meðan a.m.k. þær óskir væru innan ramma sanngirninnar og ekki talin stafa nein hætta af þeirri breytingu, sem um er rætt, fyrir efnahagskerfið, sem stjórnin hefur beitt sér fyrir.
Það er eins og áður hefur verið sagt frá, að í öndverðu var útgerðarmönnum tilkynnt, að þegar í stað, er þessi halli hefði verið greiddur og þessum þörfum fullnægt, skyldi gjaldið afnumið. Upphæðin, sem átti að greiða, lá þess vegna frá byrjun ljóst fyrir, að svo miklu leyti sem um var að ræða hugtakið, — við skulum segja, að það hafi verið, en ekki legið alveg ljóst fyrir, hvað upphæðin mundi að lokum verða há. Það var nokkuð í óvissu um það, og seinni tímar hafa betur kveðið upp dóm um það, að sem betur fer er þessi þörf minni en gert var ráð fyrir í upphafi.
Það, sem hér skeður, er þess vegna ekkert annað en það, að til þess að greiða áfallna skuld, ef við viljum kalla það það, er gefinn lengri frestur til þess að létta undir með mönnum, sem eiga sjálfir að borga hana eftir sem áður. Og ég hygg, að engin stjórnvöld hefðu talið rétt að neita slíkri ósk. Það liggur nærri, að mér finnist, að útvegurinn ætti að hafa allt að því einræði um fyrirkomulagið, ef það er innan þess ramma, að það geti engin hætta stafað af því, að kerfið verði fyrir einhverju áfalli af þessum ástæðum.
Ég sé ekki ástæðu á þessu stigi málsins að fara um þetta fleiri orðum, einnig vegna þess, að fyrir skömmu hafa hér staðið yfir utan dagskrár umr. um þetta, þar sem hæstv. félmrh., sem þetta mál fellur undir hvað þessa hlið áhrærir, þó að ég gerist hér frsm. fyrir frv., af því það er breyt. á efnahagsmálalöggjöfinni, gaf tæmandi skýringar um málið og menn fengu líka nokkra svölun sinna þarfa til að láta gamminn geysa.
Ég skal ekki orðlengja þetta og leyfi mér að mælast til þess, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjhn.