04.12.1959
Neðri deild: 11. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í B-deild Alþingistíðinda. (103)
16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960
Lúðvík Jósefsson:
Ég er á móti brbl. þeim, sem sett voru á s.l. hausti um verðlagningu á landbúnaðarafurðum. En ég tel mig hins vegar ekki hafa í höndum nein gögn um það, hvað réttmætt sé að greiða bændum mikla hækkun frá því verðlagi, sem verið hefur á landbúnaðarafurðum. Ég tel líka, að ríkisstj. hafi þá heimild fyrir í lögum, sem gert er ráð fyrir í þessari till. Af þessari ástæðu greiði ég ekki atkv. um þessa tillögu.
1. gr. samþ. með 20:13 atkv.
2. gr. samþ. með 20:1 atkv.
Fyrirsögn samþ. án atkvgr.
Frv. vísað til 3. umr. með 20:1 atkv.