01.04.1960
Neðri deild: 60. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2689 í B-deild Alþingistíðinda. (1041)

112. mál, útsvör

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Þetta mál, sem hér liggur fyrir núna, er æðistórt í vöfum og hefur þannig verið á því haldið, að þess hefur enginn kostur gefizt að átta sig á því til nokkurrar hlítar, hvað í þessu frv. raunverulega felst. Því var útbýtt hér á sérstökum fundi í gærkvöld og er tekið fyrir nú, og sá tími, sem liðið hefur síðan í gærkvöld, hefur á engan hátt nægt til þess að átta sig á þessu til fullnustu.

Ég mun þó láta falla nokkrar almennar aths. um ýmislegt, sem strax liggur í augum uppi við fyrstu athugun á frv., og spyrjast fyrir um nokkur þýðingarmikil atriði, ef það gæti orðið ljósara við svör frá hæstv. ráðh., hvað fyrir vakir með þessari nýju löggjöf.

Það hefur lengi verið skoðun margra, að það væri nauðsynlegt að endurskoða núgildandi útsvarslöggjöf, enda er hún að meginstofni orðin nokkuð gömul, enda þótt hún hafi verið endurbætt ekki alls fyrir löngu með nokkrum ákvæðum, og ýmis atvík hafa gerzt, sem hafa skýrt fyrir mönnum nauðsyn á þessu, m.a. hið fræga útsvarshneyksli í Reykjavík, sem upp komst á síðasta ári, þegar það kom í ljós, að ýmsum mönnum hafði verið stórkostlega ívilnað í útsvörum af hendi niðurjöfnunarnefndar í höfuðborginni þvert ofan í reglur og gildandi lög. Og þetta varð þannig, að niðurjöfnunarnefndinni tókst alls ekki að skýra fyrir mönnum, hvernig á þessum ósköpum stóð. Allt það mál varð vitanlega til þess að gera það augljósara en áður, að nauðsynlegt væri að setja nýja löggjöf um útsvarsmálin og reyna að fella þau í fastari skorður en enn þá hefur verið gert.

Annað mál er svo hitt, hvort frv., sem rubbað er upp á fáum vikum, án þess að fram fari nokkur viðhlítandi skoðun á þessum málum, nær að bæta nokkuð úr. Það er annað mál, og ég vil strax láta í ljós óánægju mína með það, að hæstv. ríkisstj. skuli hafa þann hátt á að láta taka þessi mál, jafnvíðtæk og þýðingarmikil og þau eru og vandasöm, slíkum tökum í skyndingi og fleygja síðan fram lítt eða ekki undirbúnu frv: um málið, eins og þetta frv. óneitanlega er og ég mun sýna fram á að nokkru í þeim fáu orðum, sem ég segi hér um málið.

Það, sem hefði átt að gera, var að efna til vandaðrar endurskoðunar á útsvarslöggjöfinni og kveðja þar til þá, sem þar máttu gerst til þekkja, og miklu víðtækara en hæstv. ríkisstj. hefur gert, og þá að sjálfsögðu gefa þann tíma, sem þurfti til þess, að hægt væri að komast að niðurstöðu.

Það má segja kannske, að það séu tvö höfuðatriði í þessu máli. Annað atriðið er að lögfesta útsvarsstiga, að vísu með margs konar fyrirvörum og raunar marga stiga, sem hægt er að nota eftir vali. Það er þó skref í þá átt að lögfesta útsvarsstiga. Það hefur í raun og veru áður verið stigið spor í þessa átt, og ég tel fyrir mitt leyti, að það eigi að stefna að því að lögfesta sem mest um þessi mál, að mögulegt er, og setja um þetta sem nánastar reglur í lögum, og það var stigið spor í þá átt 1954, því að þá var sett í lög svo hljóðandi lagagrein, með leyfi hæstv. forseta:

„Skylt er niðurjöfnunarnefnd að leggja fram með útsvarsskrá skýrslu um þær reglur, sem hún hefur farið eftir við álagningu útsvaranna, svo sundurliðaða og skilmerkilega, að hver gjaldandi eigi að geta reiknað út útsvar sitt. Einnig er niðurjöfnunarnefnd skylt að gefa sérstaklega hverjum gjaldanda, sem þess krefst, nákvæmar sundurliðaðar upplýsingar um það, hvernig útsvar hans er á lagt.“

Þetta var spor í þá átt að koma meiri festu í þessi mál. En þessa lagagrein hafa sumar niðurjöfnunarnefndir brotið, m.a. niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur með framkomu sinni á s.l. ári, því að hún hagaði þannig álagningunni, að það var ekki mögulegt fyrir gjaldendurna að reikna út útsvar sitt eftir þeim reglum, sem birtar voru, og þessi lagagrein var alveg tvímælalaust brotin með þeirri framkvæmd, sem þá var í Reykjavík á útsvarsmálunum.

Ég tel, að þessi lagagrein hafi verið spor í rétta átt og tilraun til að skapa meiri festu í þessum málum, og ég tel, eins og ég sagði áðan, að það eigi að stefna að því að setja um þetta mun fastari reglur en verið hafa í lögum.

En þá kemur spurningin, hvernig tekizt hefur um þetta í því frv., sem hér liggur fyrir. Þá vil ég strax segja það sem mína skoðun, að frv. ber greinilega með sér, að undirbúningur þess er allsendis ófullnægjandi. Að mínu viti er ómögulegt að fallast á að lögfesta sum af þeim ákvæðum, sem lúta að þessu og standa í sambandi við útsvarsstigana. Ég vil nefna dæmi um þetta mál. Það stendur hér í 3. gr., að útsvörin og stigarnir skuli miðast við hreinar tekjur og eignir. En síðan er tekið fram, að um sérstakan frádrátt frá tekjum, bæði tapfrádrátt á milli ára, um fyrningarfrádrátt og afskriftir og ýmislegt fleira, megi víkja frá skattalögunum, og síðan segir, að frávik samkv. þessum staflið gjaldanda í óhag megi þó eigi meiri vera en þau voru í hlutaðeigandi sveitarfélögum á árinu 1959. M.ö.o.: það er fasið fram á eða lagt til, að Alþingi lögfesti þessa útsvarsstiga, sem hér eru, með þeim undanþágum að þessu leyti, sem voru viðhafðar í sveitarfélögunum árið 1959. En nú spyr ég: Hefur hæstv. ráðh. í höndum, hverjar þessar undanþágur voru? Hann vill láta lögleiða, að þessar undanþágur séu heimilar, en hefur hann í höndum upplýsingar um það, hverjar þessar undanþágur voru? Og vill hann ekki leggja þær fram hér á Alþingi eða í n., sem hefur þessi mál með höndum? Eða er það kannske ætlunin, að Alþingi setji svona lagaákvæði án þess að hafa hugmynd um, hvaða undanþágur verið er að heimila með slíku lagaákvæði? Þetta ætla ég að sé glöggt dæmi um, að þetta mál hefur alls ekki fengið þann undirbúning, sem þarf að vera, því að svona ákvæði er að mínu viti óhugsandi að setja í lög. Það er óhugsandi að mínu viti, að löggjafinn, ef hann ætlar að halda virðingu sinni, lögleiði slíkar undanþágur án þess að vita, hvað verið er að gera.

Þá vil ég benda á atriði í þessu sambandi, sem sýnir líka, að þetta mál er ekki nægilega krufið til mergjar. Í 9. gr. er gert ráð fyrir því, að það skuli lækka útsvör gjaldenda, þegar tilteknar ástæður eru fyrir hendi, sem síðan eru taldar upp. Og þar er m.a. svo víðtækt ákvæði, að það er talað um, að það eigi að lækka útsvörin, ef „önnur óhöpp“ hendi gjaldandann. Hér eru niðurjöfnunarnefndir framvegis, eins og verið hefur, svo frjálsar um þetta, að ef þær vilja, geta þær í raun og veru gegnum þetta ákvæði gert útsvarsstigana að engu. Þetta er auðvitað sumpart vegna þess, að það hefur ekki gefizt tóm til þess að hnitmiða þessar reglur, sem þurfa að vera hnitmiðaðar, ef á að lögbjóða þessi efni á annað borð. Þá þarf að keppa að því, að þær verði hnitmiðaðar, eins og er í skattalöggjöfinni, eða þá a.m.k., að niðurjöfnunarnefndum sé skylt að setja um þetta almenna reglu fyrir byggðarlagið, sem sé birt, og þannig geti menn borið saman útsvar sitt og komizt að þeirri niðurstöðu, hvort það er rétt á lagt eftir útsvarsstigunum og þeim reglum, sem gilda almennt um undanþágur. En það er ekkert um það í þessari lagagrein, að svo þurfi að gera, og ef gengið verður frá þessu svona, eins og þarna er gert ráð fyrir, þá er það að sumu leyti spor aftur á bak frá því, sem sú málsgrein kveður nú á um, sem ég las upp áðan, ef hún er framkvæmd svikalaust, því að þar er greinilega tekið fram, að það skuli birtar reglur, þannig að hver gjaldandi geti reiknað útsvar sitt. M.ö.o.: það á í raun og veru að birta líka reglur um það, hvernig sérástæður eru teknar til greina, ef lagagreininni er fylgt.

En samkv. því, sem hér er stefnt að, þá verða að vísu þessir útsvarsstigar, en lögboðin um leið ýmiss konar frávik, sem hv. Alþ. mundi þá ekki einu sinni vita hver væru, sbr. 3. gr., og síðan þessar almennu undanþágur við 9. gr., án þess að nokkuð fylgi um, að það sé skylt opinberlega að gera grein fyrir þeim. Þá sé ég ekki betur en allt sé opið til að leika sama leikinn og leikinn var í Reykjavík á s.l. ári, þrátt fyrir löggjöfina.

Þá er hitt langsamlega aðalatriði málsins, eftir því sem mér sýnist, ákvæðin, sem eru í frv. um veltuútsvörin, og það, sem þar er á ferðinni. Það er till. um að lögfesta veltuútsvarafarganið og stórauka veltuútsvörin frá því, sem þau hafa verið. Samkv. þessu á að lögfesta, að það megi leggja á allt að 3% veltuútsvar í byggðarlögunum, og skilgreiningar á því eða takmörk eru svo ófullkomin, að það er t.d. hægt að leggja oft veltuútsvar á sömu vöruna. Það er hægt að leggja á vöruna á heildsölustiginu, það er hægt að leggja á vöruna t.d. á iðnaðarstiginu, það er hægt að leggja á vöruna á smásölustiginu, og það er hægt að leggja á vöruna hjá framleiðandanum. Það er því hægt að leggja oft veltuútsvar á sömu vöruna, og það virðist vera tilætlun þeirra, sem standa að þessu frv„ að þetta verði lögfest, án þess að um þetta verði settar nokkrar frekari reglur í löggjöfinni. Hér hafa aldrei verið nein lög um veltuútsvör. Þau hafa verið lögð á í skjóli almennra ákvæða í útsvarslöggjöfinni og hafa sannast að segja verið ákaflega mikið gagnrýnd og hafa orðið að hreinu fargani í framkvæmdinni. En ég sé ekki annað en að það sé fullkomlega meining þeirra, sem standa nú að þessu frv., í stað þess að endurskoða rækilega og breyta til frá því, sem verið hefur í þessum efnum til bóta, þá sé meiningin að lögfesta þetta veltuútsvarafargan og það í enn þá verri mynd en það hefur tíðkazt, eins og ég kem að síðar.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að álagning veltuútsvara hefur í ýmsum dæmum orðið til þess, að fyrirtæki og einstaklingar hafa jafnvel ár eftir ár verið dæmd eða úrskurðuð til að borga hærra útsvar en nam öllum tekjum þeirra. Ég efast um, að svona löguð framkvæmd eða lög, sem heimila slíkt, séu til nokkurs staðar í heiminum, nema að því leyti sem íslenzka útsvarslöggjöfin hefur verið túlkuð þannig, að hún heimilaði þetta. Ég hefði haldið, að það mundi vera ætlunin hjá ýmsum að endurskoða alveg sérstaklega þetta atriði í sambandi við veltuútsvörin og framkvæmd þeirra. En það virðist ekki vera, því að ef þetta frv. verður leitt í lög, þá verður það í framkvæmdinni þannig, það er í raun og veru lögleiðing á því, að það megi leggja útsvör hiklaust á fyrirtæki, sem nemi mun meira en öllum tekjum þeirra. Það er það, sem nú á að fara að lögbjóða m.a. skýrum stöfum í sambandi við þessi nýju lagaákvæði um veltuskattinn. Það hefur verið talað um í því sambandi, að samvinnufélög og einstaklingar sætu ekki við sama borð, því að það hefur fallið dómur um, að það mætti ekki leggja meira útsvar á utanfélagsviðskipti samvinnufélaga en næmi öllum hagnaðinum af viðskiptunum. Ég hefði nú haldið, að ýmsir hefðu brugðizt þannig við því máli, að þeir hefðu þá viljað lögleiða það, að ekki væri heldur hægt að leggja á einstaklinga eða önnur fyrirtæki meiri útsvör en næmi öllum þeirra hagnaði. Maður skyldi halda, að sjálfstæðismenn brygðust þannig við þeim dómi, að þeir vildu kappkosta að koma slíku ákvæði í lög, koma í lög ákvæði, sem fyrirbyggði, að það væri hægt ár eftir ár að úrskurða einstaklinga og fyrirtæki til þess að borga meiri útsvör en nemur öllum tekjum þeirra, m.ö.o. hreinlega eignarnám ár eftir ár. Maður hefði getað búizt við því, að þannig hefðu einhverjir viljað vinna að þessu og skapa jafnrétti þá leiðina. Og það hefði ekki verið óeðlilegt. En nú sýnist annað uppi. Meiningin með þessu frv. er að lögfesta það alyeg hreinlega, að það megi halda áfram að leggja hærri útsvör á einstaklinga og fyrirtæki en nemur öllum tekjum þeirra og samvinnufélögin verði að koma þarna með líka. Það á að vera lausnin á vandamálinu. Ýmislegt kemur nú fyrir. Ég hefði talið, að það væri miklu eðlilegra að setja inn ákvæði til verulegrar takmörkunar á veltuútsvörunum og til þess að fyrirbyggja, að þetta gæti átt sér stað.

Þá mun ég í sambandi við þennan kafla gera nokkrar fsp. til hæstv. ráðh. Ég sé nú, að ég hef talað hér um tíma, án þess að fjmrh. væri við. Það voru nokkrar spurningar, sem mig langaði til að beina til hæstv. ráðh. til þess að skýra málið.

Það er hér talað um í frv., að það skuli leggja útsvar á veltuna. En mér skilst, að það sé mikil nauðsyn á því að útlista það nánar en gert er í frv., hvað velta er í þessu sambandi. Hvað er t.d. velta umboðssölufyrirtækis? Eru það umboðslaunin, eða er það andvirði allra þeirra vara, sem þetta fyrirtæki útvegar fyrir aðra? Ég spyr um þetta vegna þess, að þetta er höfuðatriði í málinu.

Þá stendur í frv., að upphæð veltuútsvarsins skuli vera ákveðinn hundraðshluti af veltu, og að því er Reykjavík varðar er vísað í þær reglur um veltuútsvar, sem notaðar voru 1959 og prentaðar eru sem fskj. með frv. En að því er varðar kaupstaðina eru settar upp reglur í 6. gr. frv. um það, hvað útsvarið megi vera hátt á veltuna. Eru fyrirtækin flokkuð bæði í reglum Reykjavíkur og eins í 6. gr. frv. Nú spyr ég: Á að skilja þessi lagaákvæði þannig, að það sé skylt að leggja sömu prósentu á veltu allra fyrirtækja í sömu viðskiptagrein, er það skylt? Er heimilt að leggja t.d. 0.5% á eina nýlenduvöruverzlun eða t.d. eina grein nýlenduvöruverzlunar, en t.d. 0.4% á aðra nýlenduvöruverzlun? Er það heimilt eða óheimilt, ef þetta verður gert að lögum? Er skylt að leggja sömu prósentu á sams konar viðskipti hjá öllum? Og ef þetta er meiningin, sem mér þætti ekki ósennilegt að væri, hvað er þá átt við með þeim orðum í reglunum fyrir Reykjavík, þar sem sagt er, að það megi leggja allt að 0.5% á nýlenduvöruverzlun? Hvað þýða þá orðin „allt að“ í þessu falli? En áður en kemur að því, þá segir í sömu reglum, að upphæð útsvarsins sé ákveðin í hundraðshlutum af umsetningu, mismunandi eftir tegund, starfsemi og aðstöðu, svo sem þar segir, og síðan segir: Allt að 0.5% hjá nýlenduvöruverzlun, allt að 0.6% hjá kjöt- og fiskverzlun, fisk- og kjötiðnaði o.s.frv. Það er ákaflega þýðingarmikið að fá þetta alveg ljóst, og það er vitanlega lífsnauðsyn, að þetta sé alveg skýrt tekið fram í lögunum, hvað átt er við með þessu.

Þá vildi ég spyrja um eitt atriði enn. Það stendur í frv., að það skuli draga álögð útsvör frá tekjum, áður en tekjuútsvör eru á lögð. En ég spyr: Ætlar hæstv. ríkisstj. að beita sér fyrir því, að sami háttur verði á hafður við álagningu skatta til ríkisins? Það er ekkert um það í því frv. um tekjuskattinn, sem nú hefur verið lagt fram. En ég spyr: Ætlar hæstv. ríkisstj. að beita sér fyrir því, að útsvör verði einnig frádráttarbær við álagningu tekjuskatts til ríkissjóðs.

Þá kem ég að nýjum þætti, sem er í þessu máli, en það er sú stórfellda útfærsla á veltuútsvarinu eða veltuútsvarskerfinu, sem lagt er til að lögfesta með þessu frv. Eins og allir hv. þm. vita og hæstv. ráðh. tók fram, þá eru sérákvæði um samvinnufélögin í útsvarslöggjöfinni, þ.e.a.s. að um félagsmannaviðskipti samvinnufélaganna eru alveg sérstök ákvæði. Þau eru ekki útsvarsskyld eftir venjulegum reglum, heldur er samvinnufélögunum ætlað að borga sérstakan skatt vegna félagsmannaviðskiptanna, samvinnuskatt, sem kallaður hefur verið. Hvernig stendur á því, að þessi háttur hefur verið á hafður um samvinnufélögin? Ég hygg, að fyrir því liggi tvær aðalástæður, og munu þó kannske fleiri hafa komið til.

Það fyrsta er, að sú starfsemi manna í félagi að útvega sér nauðsynjavörur með sannvirði, eins og samvinnufélögunum er ætlað að gera, og að koma afurðum í rétt verð og vinna þær, — sú starfsemi er ekki gróðastarfsemi og á ekkert skylt við gróðastarfsemi eða venjulegan gróðarekstur. Hún á ekkert skylt við slíkt, enda eru þau ákvæði, sem um þetta gilda í löggjöf landsins, þannig, að ef afgangur verður, þegar þessi viðskipti eru gerð upp, sem félögin hafa vegna félagsmanna, þá er afganginum ýmist jafnað út til félagsmannanna sem tekjuafgangi eða eins konar afslætti á viðskiptum eða lagður í varasjóð og verður þá eign félaganna, — eign, sem aldrei má úthluta til félagsmannanna. Þetta eru stofnanir í byggðarlögunum, og þeim fjármunum, sem þannig safnast fyrir af félagsmannaviðskiptum, má aldrei úthluta til félagsmanna. Þetta eru eins konar sjóðsstofnanir í byggðarlögunum, sem verða þar áfram til afnota fyrir alla þá, sem vilja ganga í félögin, því að þau eru opin fyrir alla. Þannig eru þessi viðskipti byggð upp, og þannig eru samvinnufélögin byggð upp, og af þessum ástæðum hefur aldrei þótt eðlilegt, að það væru lögð á þau útsvör eftir sömu reglum og venjulega gróðastarfsemi.

Annað atriði, sem hefur komið hér áreiðanlega mjög til greina, er það, að þessi félög eru oftast nær á okkar landi byggð upp af fólki úr mörgum byggðarlögum, en ekki bara einu byggðarlagi eða einu þorpi. Það tekur sig saman, fólkið, og stofnar með sér félög, ýmist til að koma afurðum sínum í verð eða útvega sér nauðsynjar með réttu verði. Og það tekur saman höndum um þetta úr mörgum byggðarlögum. Svo eru líka til heildarsamtök þessara félaga, sem fólk um allt landið tekur þátt í. En einmitt vegna þess, að félögin eru byggð upp á þennan hátt, af fólki úr mörgum byggðarlögum, sem tekur sig saman til að hafa fyrir sig sjálft þessa þjónustu, þá getur ekki gilt um þau hið sama og annan rekstur, sem venjulega eða a.m.k. oftast nær hér hjá okkur er rekinn af mönnum, sem eiga heimilisfang í einu byggðarlagi.

Þessar munu vera aðalástæðurnar fyrir því, að það hefur alltaf þótt sjálfsagt, að það væri sérregla um álagningu á þessi félagsmannaviðskipti.

Nú er ætlunin með þessu frv., sem er sýnilega rubbað upp í flýti og á margan hátt, eins og ég hef þegar sýnt fram á, mesta hrákasmíði, að gerbreyta þessu, kollvarpa þessu alveg, og þá blasa við afleiðingar, sem ég efast um að þeir, sem standa að þessu frv., hafi haft nokkurn tíma eða tóm, til þess að gera sér grein fyrir. Hvað gerist þá? Það gerist, ef þessi háttur verður á hafður, að það er lögfest heimild handa niðurjöfnunarnefndum víðs vegar um landið til að skattleggja með veltuskatti alla starfsemi, sem fer fram á vegum samvinnufélaganna og þau annast fyrir félagsmenn sína. Vakna í því sambandi ótal spurningar, sem eru geysiþýðingarmiklar og verður að svara.

Verður þá t.d. heimilt samkv. þessu að leggja veltuútsvar á framleiðslu mjólkurbúa í því byggðarlagi, þar sem þau starfa, frystihúsa, sem vinna vörur fyrir bæði bændur og útvegsmenn og fiskimenn, verður heimilt samkv. þessum nýju lagaákvæðum að leggja veltuútsvar á þessa starfsemi? Verður líka heimilt eftir þessum nýju lögum að leggja veltuútsvar t.d. á rekstrarnauðsynjar, sem framleiðendur útvega sér gegnum sinn eigin félagsskap? Verður heimilt víðs vegar um landið að leggja veltuútsvar á áburðarkaup, fóðurbætiskaup, veiðarfæri, salt og allt slíkt, sem lýtur að framleiðslu félagsmanna í þessum félögum, sem þeir útvega sér gegnum sín eigin félög? Verður heimilt að skattleggja þessar vörur, og einnig þær neyzluvörur, sem félagsmenn þessara samtaka fá handa sjálfum sér? Og í því sambandi vil ég spyrja, ef það er raunverulega svo, að mönnum hafi dottið í hug að kollvarpa á þennan hátt öllu þessu kerfi, sem við höfum búið við: hvernig verður þetta þá í framkvæmdinni? Við skulum taka bændur t.d. Er það þá meiningin, að þeir borgi fyrst veltuútsvar af framleiðslu sinni heima í sveitinni sinni, síðan verði lagt veltuútsvar á þessar afurðir, þegar þær koma í mjólkurbúið eða sláturhúsið og frystihúsið, ef um sláturafurðir er að ræða, síðan verði lagt veltuútsvar á þessar afurðir, þegar þær koma á markaðinn í höfuðstaðnum eða annars staðar, kannske jafnvel umboðssala fyrir framleiðendur í þessu tilfelli túlkuð velta og skattlögð enn einu sinni, og afurðirnar síðan skattlagðar í fjórða eða fimmta sinn, þegar varan er seld í smásöluverzluninni í bæjunum, og jafnvel kannske í sjötta sinn, ef unnið yrði eitthvað úr þessum afurðum í bæjunum, áður en þær koma á markaðinn? Hefur þeim, sem að þessu frv. standa, dottið í hug, að þetta verði framkvæmt á þessa lund eða ekki? Það er lífsnauðsyn, að upplýst verði til fulls, hvernig þetta er hugsað, því að ef þetta er hugsað á þennan hátt, þá eru hér á ferðinni stórkostlegar nýjar álögur á framleiðsluna, bæði til sjávar og sveita, sem skerða stórlega afkomu þeirra, sem þar eiga hlut að máli. Ég í því sambandi vakna enn spurningar, sem menn eiga heimtingu á að fá svarað. Ef þetta verður gert, hvernig verða þessar álögur bættar upp framleiðendunum? Eiga þeir að bera þessar álögur, eða verður þetta sett inn í verð afurðanna? Þessu verður að svara.

Þá kemur einnig það atriði, að ef á þennan hátt verður haldið á málum, verða neytendur og framleiðendur víðs vegar um landið skattlagðir af einstökum byggðarlögum á þann hátt, sem er algerlega óviðunandi og engum datt í hug að gæti komið til greina, þegar t.d. samvinnulögin voru sett. Þá datt engum í hug, að það væri nokkur sanngirni í því að skattleggja allar afurðir framleiðendanna og vöru neytendanna í samvinnufélögunum, skattleggja þetta allt alveg sérstaklega til ágóða fyrir þann stað, þar sem viðskiptin fóru fram. Engum datt slíkt í hug, enda auðvitað ekki nokkur sanngirnisglóra til í slíku. Og sannleikurinn er sá, að þessi ákvæði, sem hér er stungið upp á, geta með engu móti staðizt, og þó að það yrði reynt að setja þessi ákvæði í lög, þá mundu þau ýmist reynast ill- eða ekki framkvæmanleg og alls ekki verða þoluð til lengdar. Það er því misskilningur, ef það vakir fyrir mönnum að lögfesta þetta á þann hátt, sem í fljótu bragði mætti virðast eftir þessu frv., eins og það liggur fyrir.

Ég vil svo segja að lokum við þessa umr., að ég álít, að það væri alveg ósamboðið hv. Alþ. að ganga frá tekjuöflunarlöggjöf um jafnstórfellt og þýðingarmikið mál eins og hér er gert í þessu frv. Og ég tel, að það nái engri átt að afgreiða þetta frv. núna, — að fara nú t.d. út í það að lögfesta veltuútsvarafarganið og færa það stórkostlega út. Það er talað um, að þetta sé bráðabirgðalöggjöf. Það er sem sé ætlunin að læða þessari löggjöf inn á þjóðina undir því yfirskini, að hér sé um bráðabirgðalöggjöf að ræða. En það kom fram hjá hæstv. ráðh., að hann gerði því skóna, að þessi löggjöf kynni að þurfa að gilda áfram, enda eru náttúrlega allar líkur til þess, ef þessi óskapnaður yrði lögfestur, þá yrði endurskoðunin lögð á hilluna og látið við þetta sitja, a.m.k. þangað til þessi löggjöf yrði brotin niður af almenningsálitinu, sem yrði raunar áður en mjög langir tímar liðu. En ég álít, að það eigi nú að hafa þann hátt á að fresta þessu máli, — það er engin ástæða til þess að hraða því, — fresta þessu máli og láta halda áfram með heildarendurskoðun þessara mála, sem nú er byrjað á, en efna þó til hennar á víðtækara grundvelli en hæstv. ríkisstj. hefur gert.

Það er sagt, að þessi löggjöf eigi að einhverju leyti að vera til þess að koma í veg fyrir það, að útsvör hækki. Það er auðvitað ekkert annað en fyrirsláttur. Það er að vísu þarna eitt ákvæði í bráðabirgðaákvæði um þessa löggjöf, sem segir, að það megi ekki hækka útsvör nema 20% frá því, sem verið hefur, að frádregnu jöfnunarsjóðstillaginu, nema með samþykki ráðuneytisins, ef um kaupstað er að ræða, og sýslunefndar, að því er hreppa snertir. En í fyrsta lagi er nú það, að jafnvel samkvæmt þessu ákvæði skilst mér, að það gæti farið svo, þó að ég hafi ekki athugað það til hlítar, að útsvörin lækkuðu ekki, auk þess sem byggðarlög mundu þá neyðast til, ef þau þyrftu á því að halda, að sækja um þessar undanþágur, sem þarna er gert ráð fyrir, og mundu fá þær vegna þess, að það mundi ekki verða búið þannig að sveitar- og bæjarfélögunum, að þau yrðu rekin með halla. En við vitum, að ráðstafanir hæstv. ríkisstj. og meiri hl. í efnahagsmálum hafa j för með sér stórfelldar hækkanir á útgjöldum bæjar- og sveitarfélaga. Þannig eru engar líkur til þess, að það verði neitt úr þessum útsvarslækkunum, sem verið er að bollaleggja um nú um þessar mundir, þó að það komi raunar greinilegar fram síðar. Það er heldur engin þörf á þessari löggjöf, sem hér er fjallað um, til þess að koma í veg fyrir hækkun útsvara. Til að setja þessu þær skorður, sem ráð er fyrir gert í þessu frv., dygði einfalt lagaákvæði. Þetta frv. á ekkert skylt við það að tryggja mönnum neitt hagstæðari útkomu á útsvörum þeirra nú í vor.

Þetta frv. mundi að mínu viti verða til stórtjóns, ef það verður að lögum, og stenzt ekki nema stutta hríð, jafnvel þó að það verði gert að lögum, vegna þess að í því eru svo mikil rangindi. Það ætti að vísa þessu frv. frá og halda áfram með endurskoðunina.

Ég mun ekki hafa þessi orð fleiri, en vonast eftir því, að hæstv. ráðh. svari fyrirspurnum þeim, sem ég beindi til hans.