01.04.1960
Neðri deild: 60. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2697 í B-deild Alþingistíðinda. (1042)

112. mál, útsvör

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er gerð mjög mikil breyting á því, sem hingað til hefur átt sér stað viðvíkjandi stöðu sveitarfélaganna í þjóðfélaginu, og ég held, að það sé rétt, að hv. d. geri sér það alveg ljóst, hverjar þær breytingar eru, vegna þess að sumpart hefur kannske sú venja, sem skapazt hefur á undanförnum árum, hjálpað til að draga úr meðvitund manna um það, hve veigamiklar þær breytingar eru, sem gerast á útsvarslögunum, þegar fellt er niður ákvæði um, að leggja megi á útsvar eftir efnum og ástæðum. Ég álít, að með þessu frv. sé verið að skerða af hálfu ríkisvaldsins vald og efnahagslegt sjálfstæði stóru sveitarfélaganna og það sé alveg nauðsynlegt, að mönnum sé það ljóst, þegar þeir samþykkja þetta frv., að þeir eru að taka þátt í því að afnema að mjög miklu leyti sjálfstæði, sem sveitarfélögin hafa haft um óralangan tíma á Íslandi.

Það er rétt, sem hæstv. fjmrh. sagði, að á undanförnum árum hafa sveitarfélög haft þann hátt á að skapa sér útsvarsstiga, og hefur síðan verið hægt að deila um, hvort hann væri réttlátur eða ranglátur, hvort hann væri haldinn eða ekki haldinn, og annað slíkt, en allir þeir útsvarsstigar, sem sveitarfélög hafa fram að þessu skapað sér, hafa verið samkv. þeirra eigin valdi. Það hefur verið þeirra eigin vald, meðlima sveitarfélaganna og þeirra fulltrúa, sem þeir hafa kjörið, að ákveða þetta. Það vald hefur verið ótvirætt, og það vald hefur verið í lögunum mjög víðtækt. Ef sveitarfélögin hafa viljað það viðhafa eða þótzt þurfa á því að halda, þá hafa þau getað gengið mjög langt í því að jafna niður eftir efnum og ástæðum. Ég skal að vísu viðurkenna, að yfirvöldin í landinu, skattstjórar, yfirskattanefnd, ríkisskattanefnd og aðrir slíkir aðilar ríkisins, hafa reynt að draga úr þessu valdi sveitarfélaganna og þeim hefur mjög oft tekizt þetta, stundum máske með réttu og stundum með röngu. Og staðreynd er, að þróunin, sem hefur verið að gerast, hefur verið sú, að ríkisvaldið hefur verið að sölsa undir sig ýmist í krafti embættisvalds eða með löggjöf meira og meira af því valdi, sem sveitarfélögin frá upphafi vega hafa haft. Ég vil þess vegna leggja áherzlu á, að með þessum lögum, með því að afnema 3. og 4. gr., eins og tekið er fram í 1. gr. þessara laga, er verið endanlega að afnema það vald, sem sveitarfélögin hafa haft um ákaflega langan tíma til þess að jafna niður eftir efnum og ástæðum. Grundvöllurinn að því efnahagslega sjálfsforræði sveitarfélaganna er rifinn burt með lögum, ef frv. verður að lögum. Og það er rétt, að menn geri sér það ljóst, að með þessum lögum tekur ríkisvaldið í sínar hendur að segja fyrir um, hvernig sveitarfélög skuli leggja á. Hér eftir er það þá ríkisvaldið, ef þetta verður samþykkt, sem ákveður þetta. Menn geta verið á mismunandi skoðun um, hvort þetta sé rétt eða hvort þetta sé rangt, en ég held, að það sé nauðsynlegt, að mönnum sé gert það alveg greinilegt, hvert þessi þróun leiðir, hvað er verið að gera.

Við skulum bara taka sem dæmi, að íhaldssamur, borgaralegur meiri hluti í bæjarstjórn Reykjavíkur er með þessum lögum sviptur rétti til þess að ráða, á hvern hátt skuli leggja á í Reykjavík. Ef t.d. róttæk stjórn, alþýðustjórn, væri að völdum í ríkinu, þá hefur hún með þessari lagasetningu fengið vald til þess að ákveða endanlega, hvernig lagt skuli á í Reykjavík, og öfugt. Það er rétt, að menn geri sér þessa hluti alveg greinilega ljósa, til þess að menn viti, hvað þeir eru að gera. Sjálfsforræði sveitarfélaga, sem margir hafa álitið mjög þýðingarmikið á Íslandi fram að þessu og ég fyrir mitt leyti álít mjög þýðingarmikið, það er í aðalatriðum afnumið með þessu, þegar ríkisvaldið tekur upp á að fyrirskipa, á hvern hátt þessi sveitarfélög skuli leggja á.

Ég skal vissulega viðurkenna, að þessi þróun á sér stað bæði hér á Íslandi og erlendis í alríkjum mæli. Og að sumu leyti má máske segja, að þetta sé að nokkru leyti eðlileg afleiðing af þróun bæjarfélaga. Engu að síður vil ég láta þá skoðun í ljós, að ég álít þessa þróun slæma. Ég álít það slæma þróun að vera í sífellu að svipta sveitarfélög valdi, sem þau hafa haft. Ég álít það slæma þróun — og af hverju? Af því að ég álít, að það lýðræði, sem verið er að berjast fyrir að koma á og auka í þjóðfélaginu, njóti sín hvað bezt í smáum heildum. Það lýðræði, sem framkvæmt er af einu sveitarfélagi, verður alltaf raunhæfara lýðræði en það, sem framkvæmt er af ríkisvaldi, vegna þess að eftirliti almennings sjálfs, sem er það raunverulega inntak í öllu lýðræði, verði betur komið við, þar sem aðstaðan er þröng og smá, heldur en þar, sem hún er orðin eins stór og hún er í heilu ríki. Þess vegna álít ég alla þá þróun, sem skerðir vald sveitarfélaganna og dregur úr höndum sveitarfélaganna vald yfir til ríkisins, vera þróun, sem sé andstæð því lýðræði, sem eigi að ríkja í þjóðfélaginu almennt, vegna þess að lýðræðið njóti sín betur t.d. í einu sveitarfélagi en í einu stóru ríki. Því meiri möguleika sem einstaklingurinn hefur til þess að koma sínum áhrifum að sem beinast, því meira verður lýðræðið þar. Ég veit, að það má færa fram mörg rök fyrir hinu, — rök, sem yfirleitt hníga að því, að það sé gott, að ríkisvaldið sé sterkt. En við skulum gera okkur grein fyrir því, að um leið þýða öll slík rök, að frelsi einstaklingsins, að lýðræði fjöldans verður minna. Því meira sem valdið er, sem hæst er í þjóðfélaginu, því sterkara sem það verður, því veikari verður hver einstaklingur og hver smáheild einstaklinganna, og um leið og farið er að draga úr höndum sveitarfélaganna það vald, er þau hafa haft fram að þessu, þá er verið að auka og efla ríkisvaldið og gera þannig ríkisvaldið sterkara á kostnað lýðræðisins í þjóðfélaginu.

Ég veit hins vegar, að það eru flutt fram mörg rök fyrir því, að þetta sé nauðsynlegt, og ein af höfuðrökunum í sambandi við þetta eru, að sveitarfélögin gangi svo langt í sínum álögum á einstaklingana með sinni útsvarsálagningu, að það sé nauðsynlegt að draga úr þessu. Sveitarfélögin allt að því misbeiti sínu valdi og þeirra álögur verði svo þungar. Hvernig stendur á þessu? Hvernig stendur á því, að þessar álögur á sveitarfélögin eru þyngdar í sífellu, hafa verið þyngdar með þeirri þróun, sem átt hefur sér stað, og þannig hefur verið sköpuð sú aðstaða, sem ríkisvaldið nú notar til þess að draga úr valdi sveitarfélaganna? Hver er aðilinn, sem hefur aukið þessar álögur á sveitarfélögin? Það er ríkisvaldið sjálft. Það er ríkisvaldið, sem með lögum hefur gert sveitarfélögunum að greiða meira og meira af margs konar framlögum, sem sveitarfélögin hafa ekki lagt á sjálf. Svo og svo miklu, skulum við segja, af eins góðum og nauðsynlegum lögum og l. um almannatryggingarnar og tekjunum, sem teknar eru til þeirra, hefur verið velt yfir á sveitarfélögin af hálfu löggjafans. Svo framarlega t.d. sem ríkisvaldið frá upphafi hefði sjálft lagt fram allt, sem átti að leggja til almannatrygginganna, og bæirnir hefðu ekki átt að leggja þar fram neitt, þá hefði ekki komið til þess, að bæjarfélög og sveitarfélög hefðu þurft að ganga eins langt og þau hafa gert með álagningu útsvara. M.ö.o.: það er ríkisvaldið, sem hefur tekið sér vald í sínar hendur til þess að fyrirskipa, hvað sveitarfélögin skuli leggja á almenning eftir efnum og ástæðum. Þau hafa gert þetta á undanförnum áratugum, og það er sífellt verið að íþyngja sveitarfélögunum og neyða þau til að íþyngja sínum meðlimum með álögum. Svo þegar sveitarfélögin eru komin svo langt í því að þyngja þannig álögurnar á sína meðlimi, að mönnum tinnst þetta ekki fært lengur, þá kemur ríkisvaldið og segir við sveitarfélögin: Þú gengur svo langt í því að leggja á álögur, að ég verð að svipta þig valdinu til þess að leggja á eftir efnum og ástæðum. – M.ö.o.: það er fyrst ríkisvaldið, sem grípur inn í og knýr sveitarfélögin til þessara aðgerða, og síðan er það nú með þessu lagafrv. ríkisvaldið, sem kemur og segir: Ég tek af þér það vald, sem þú hefur haft, vegna þess að þú hefur ekki verið fær um að beita því. — Sökin liggur öll hjá ríkisvaldinu í þessu efni. Og þetta var ekki nauðsynlegt. Það var frá upphafi hægt að fara þannig að, að þessar álögur, sem sveitarfélögin hafa verið látin leggja á almenning, gat ríkið lagt á beint sjálft og þurfti þess vegna aldrei að fallast á að leggja þetta á þennan hátt á bæjarfélögin, sem gert hefur verið, og nota þetta síðan á eftir sem átyllu til þess að skerða frelsi og efnahagslegt sjálfstæði sveitarfélaganna. Og ég álít þetta slæmt. Ég álít þetta slæma og ranga þróun.

Upphaflega er höfuðástæðan til útsvara og var frá upphafi vega í okkar þjóðfélagi, frá því að það fyrst var myndað, að hjálpa þeim, sem fátækir voru. Útsvörin voru lögð á eingöngu með tilliti til þess. Það hefur verið stefna með almannatryggingunum að komast burt frá þeirri gömlu framfærsluskyldu, sem á sveitarfélögunum lá, og það var rétt stefna. Það var rétt að stefna til ríkisframfærslu, og það var rétt að láta almannatryggingarnar smám saman geta afnumið allt það, sem í gamla daga var fátækrastyrkur. Þó var alltaf hugsanlegt, að eitthvað af slíku yrði eftir hjá bæjarfélögunum, þar sem til kæmi og þyrfti að koma við úthlutun slíks sérþekking, sem aðeins kemur til greina í smáum samfélögum manna. Og ég held, að það hefði verið betra, að sveitarfélögin hefðu fengið að þróast sjálfstætt hvað snertir sína fjárhagslegu afkomu, verið meira hlíft við gjöldunum af almannatryggingum og öðru slíku, en fengið að sjá um annars vegar það, sem óhjákvæmilega yrði eftir á þeirra vettvangi af framfærslunni, og svo hins vegar um framkvæmdir.

Og þar kem ég sérstaklega að því, sem á vissan hátt gerir mestan muninn á, hvílíkt vandamál álögurnar og tekjuaflanirnar eru fyrir meginið af öllum sveitarfélögum landsins annars vegar og hins vegar fyrir Reykjavík. Það er engum efa bundið, enda almennt viðurkennt og jafnvel sérstaklega í þessari löggjöf, sem hér er lagt til að setja á, að það eru alveg gerólík viðhorf, hvað snertir Reykjavík annars vegar og svo að segja hinn helming allra landsbúa hins vegar, sem m.a. kemur fram í því, að það skuli gengið út frá að nokkru leyti, að það séu lægri lögboðin útsvör fyrir Reykjavík en úti um land. Og við vitum, hvernig stendur á þessu. Það er sá gífurlegi aðstöðumunur, sem hefur skapazt við það, að hér hefur risið upp í Reykjavík og nágrenni svo að segja nýtízku auðvaldsskipulag, þar sem að heita má meginið af öllu auðmagni landsins er saman komið á litlum bletti og þar sem landsbúar hafa þess vegna við að búa öll venjuleg fyrirbrigði háþroskaðs auðvaldsskipulags. Hins vegar úti um allt land býr fólkið við þær aðstæður, að menn berjast í bökkum við að reyna að skapa sér atvinnulíf, halda við atvinnulífi eða þróa atvinnulíf, og vandamálin, sem fyrir fólkinu liggja þess vegna úti um allt land og þess bæjarfélögum, eru alveg gerólík því, sem við erum hér að fást við í höfuðborginni. Það þýðir, að nauðsynin fyrir bæjarfélögin og sveitarfélögin úti um allt land er fyrst og fremst sú að fá fjárhagslegar aðstæður til að geta glímt við þessi vandamál, og frumskilyrðið fyrir því að geta glímt við þessi vandamál er þeirra efnahagslega sjálfstæði og efnahagslega vald til þess. Þess vegna er það hættulegt fyrir öll þessi bæjar- og sveitarfélög, að dregið sé úr þeirra efnahagslega valdi, að grundvöllurinn fyrir þeirra efnahagslega sjálfstæði sé svo að segja afnuminn og fenginn í hendur ríkisvaldinu, og þess vegna ættu bæjar- og sveitarfélögin úti um land sérstaklega að gjalda varhuga við þessari þróun. Það hefði verið eðlilegt einmitt fyrir þessi bæjar- og sveitarfélög, að þau hefðu barizt fyrir því; að þróunin í þjóðfélaginu hefði orðið sú, að létt hefði verið af bæjar- og sveitarfélögunum þeim álögum, sem á hafa verið lagðar vegna t.d. almannatrygginganna, en að þessi bæjar- og sveitarfélög hefðu í sífellt ríkara mæli fengið að nota það, sem þau treystu sér til þess að leggja á eftir efnum og ástæðum, til þess að byggja upp atvinnulíf á sínum stöðum. Þetta hefði verið langheilbrigðasta þróunin til þess að gera þessu fólki úti um allt land mögulegt að glíma við það, sem er höfuðvandamálið fyrir það, það að hindra eyðinguna, sem alltaf vofir þar yfir, það að byggja upp atvinnulífið á þessum stöðum. Ég álít, að til þess hefði að vísu fyrst og fremst titt að halda útsvörunum með því gamla fyrirkomulagi, sem var, að leggja þau á eftir efnum og ástæðum, en sveitarfélögin áttu að fá að ýta af sér yfir á ríkið í ríkari mæli útgjöldunum til almannatrygginganna. Og ég er ákaflega hræddur um, að með þessum ráðstöfunum, sem nú er verið að gera, muni aðstaða bæjar- og sveitarfélaganna úti um allt land versna til þess að geta barizt sjálfstæðri efnahagslegri baráttu fyrir að gera það viðunandi að lifa á þessum stöðum.

Ég segi þetta vegna þess, að ég þekki nokkuð og hef átt sjálfur nokkurn þátt í tvisvar sinnum á undanförnum 20 árum, að ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að hjálpa þessum bæjarfélögum og sveitarfélögum útí um land til að afla þeirra atvinnutækja, sem hafa svo að segja haldið lífinu í þeim. Það var gert af hálfu ríkisvaldsins fyrst með aðgerðum nýsköpunarstjórnarinnar á árunum 1944–47, þar sem bæði togurum og fleiri tækjum var svo að segja miðlað út um land með sérstökum ráðstöfunum til þess að reyna að leggja grundvöll að atvinnulífi þar, og síðan með ráðstöfunum vinstri stjórnarinnar á árunum 1956–58, þar sem sérstaklega voru gerðar ráðstafanir til allmikillar útvegunar á vélbátum til landsins til þess að nýskapa atvinnulífið alveg sérstaklega úti um land. M.ö.o.: af hálfu ríkisvaldsins hefur tvisvar sinnum á undanförnum 20 árum orðið að gera sérstakar ráðstafanir til þess, að menn gætu lifað í þremur fjórðungum landsins. Ríkisvaldið hefur orðið að grípa inn í, vegna þess að flokkar, sem trúað hafa á afskipti ríkisvalds, heillavænleg afskipti ríkisvaldsins af atvinnulífinu, hafa verið það áhrifaríkir, að þeir hafa getað megnað gegn afturhaldsöflunum í þjóðfélaginu, eins og bankavaldinu og öðru slíku, að knýja slíkar aðgerðir fram. Og ég býst við, að eyðing landsbyggðarinnar, sem alltaf vofir yfir sem eðlileg afleiðing af kapítalistískri þróun á Íslandi, mundi vera allmiklu lengra komin, ef ekki gætti þessara tveggja átaka, fyrst á árunum 1944–47 og síðan á árunum 1956–58. Nú hins vegar er komin til valda í þjóðfélaginu stefna, sem trúir ekki á og vill ekki belta afskiptum ríkisvaldsins í þessum efnum, heldur trúir á framtak einstaklingsins, eins og það er kallað, m.ö.o. óhindraða kapítalistíska þróun, sem þýðir óhjákvæmilega hraða eyðingu á öllum byggðarlögunum úti um land, vegna þess að lögmál auðmagnsins er að einbeitast á þá staði, þar sem auðmagnið er fyrir. Það eina, sem þess vegna gæti staðið að einhverju leyti á móti slíkri hættulegri efnahagsþróun, væri, að bæjar- og sveitarfélögin úti um land hefðu að einhverju leyti efnahagslega aðstöðu, efnahagslegt frjálsræði og efnahagslegan grundvöll til þess sjálf að skapa sér atvinnulíf og vinna á móti. þessari óheillaþróun út frá sínum sjónarmiðum, hvert heima hjá sér. Það gætu þau aðeins gert með verulegu efnahagslegu sjálfstæði sínu. Því efnahagslega sjálfstæði er burt kippt með 1. gr. þessa frv. — [Fundarhlé.]

Herra forseti. Ég hafði komið þar í minni ræðu, að ég var að ljúka við að segja mína skoðun á afstöðunni viðvíkjandi sveitarfélögunum og þeirra rétti, og vil aðeins ljúka því með því að segja, að ég álít, að það hefði átt að taka aðra stefnu viðvíkjandi sveitarfélögunum en nú er tekin með þessu frv., að svipta þau svona því efnahagslega sjálfstæði, sem þau hingað til hafa haft. Ég álít, að það hefði átt að taka þá stefnu að létta af þeim t.d. byrðunum af almannatryggingunum og ríkið tæki þær yfir á sig, gefa jafnframt sveitarfélögunum möguleika til fleiri tekjulinda, láta þau eignast sjálf lóðirnar, sem í bæjarfélögunum eru, og leigja þær út og taka með því nokkrar tekjur í ríkari mæli en nú er gert, og enn fremur með því að hjálpa þeim til þess að koma sjálf upp fyrirtækjum. Ég er sem sagt í grundvallaratriðum andvígur þeirri stefnu, sem farið er inn á viðvíkjandi sveitarfélögunum með þessum útsvarslögum, og álít, að það hefði verið giftusamlegra að breyta þarna um frá þeirri stefnu, sem ríkt hefur yfirleitt í þessum atriðum síðustu 20–30 árin. Ég held, að það auki hvorki lýðræðið á Íslandi né velferð almennings, að þessar smærri einingar, þessi smærri samfélög mannanna, eins og sveitarfélögin eru, séu svipt því sjálfstæði, sem þau hafa haft, en að því er stefnt með þessum lögum. Ég veit sem sé og ætla ekki að endurtaka það, að það má á margan hátt gagnrýna ýmislegt, sem fram hefur farið í skjóli fyrirmælanna um álagningu eftir efnum og ástæðum, en í grundvallaratriðum fólst í því vald sveitarfélaga til þess að ráða þessu sjálf.

Þá er í öðru lagi sú stóra breyting í þessu frv., að það eru afnumin viss réttindi, sem samvinnufélögin hafa haft. Það er máske alveg í samræmi við það, sem gert er viðvíkjandi þeim heildum, sem bæjarfélögin og sveitarfélögin hafa verið, þessum smærri samfélögum mannanna, að þeirra efnahagslega sjálfstæði er raunverulega afnumið, að með þessum lögum er verið að afnema þau réttindi, sem þeir menn, sem hafa tekið höndum saman í samvinnufélögum, hafa haft, þó held ég meira að segja án þess, að um leið sé afnuminn sá samvinnuskattur, sem þeir áttu réttilega að bera vegna þessara réttinda, sem þeir nutu, og er það atriði, sem þarf að athugast í nefnd.

Viðvíkjandi samvinnufélögunum þykist ég vita, hvernig þarna sé í pottinn búið. Það hefur á undanförnum árum komið fram ýmiss konar gagnrýni á þann hátt, sem t.d. Samband ísi. samvinnufélaga að ýmsu leyti hefur haft með höndum um rekstur stórra atvinnufyrirtækja í sambandi við samvinnuhreyfinguna, erl að nokkru leyti líka tengd venjulegum auðvaldsfyrirtækjum, og ég veit ósköp vel, að elnmitt þessi tengsl hafa verið notuð ákaflega mikið til þess að reyna að spilla fyrir samvinnuhreyfingunni í landinu, og vissar óvinsældir, sem skapazt hafa gegnum slík tengsl við stór og mikil auðvaldsfyrirtæki, hafa orðið samvinnuhreyfingunni nokkurt áfall í augum almennings. En ég vil taka það fram, að þrátt fyrir þessa hluti, sem ég hef oft gagnrýnt, þá álít ég, að það nái ekki nokkurri átt að ætla að nota sér slíkt, jafnvel þó að um misnotkun hafi verið að ræða, til þess að vega að samvinnufélögunum sjálfum og þeirra réttindum. Og ég álít, að það, sem hér er gert og farið inn á nú með þessum lögum, sé bein árás á samvinnufélögin og þann eðlilega rétt, sem neytendur og aðrir aðilar á Íslandi og sérstaklega fátækt fólk á Íslandi á að hafa til þess að bindast samtökum um að reyna að afla sér lífsnauðsynja, án þess að það sé sérstaklega skattlagt. Og hvað svo sem menn kunna að reyna að bera í bætifláka fyrir og verja þetta, þá er þetta óverjandi aðferð. Þegar alþýða manna binzt samtökum um að reyna að kaupa sér lífsnauðsynjar án þess að verða að láta þær verða svo að segja skattskyldar gróðafélögum eða gróðaaðilum í þjóðfélaginu, þá á ríkisvaldið að veita þessum samtökum manna þann rétt, að þau geti starfað, án þess að þau séu sérstaklega skattlögð eða a.m.k. hvað þessa starfsemi snertir, starfsemi sjálfra félagsmannanna, og um annað er ekki að ræða. Ég álít þess vegna, að með þessu lagafrv. sé beinlínis verið að ráðast að grundvallarréttindum þessara annarra fjölmennustu samtaka í landinu og að þessi árás sé að öllu leyti óréttmæt og skaðleg. Og ég álít alveg sérstaklega, að það sé harkalegt að ráðast á þennan hátt á starfsemi samvinnufélaganna, á sama tíma sem verið er að ýta undir gróðastarfsemina í landinu og skapa sérréttindi fyrir gróðafélögin í landinu og aukið vald þeim til handa og jafnvel gefa þeim sérstaka aðstöðu til þess að tengjast útlendu auðvaldi, — það sé sérstaklega hættulegt, að á sama tíma skuli svo ráðizt að þeim samtökum almennings, sem samvinnufélögin eru, og reynt að draga úr þeim réttindum, sem þau hafa fram að þessu notið. Þessari árás ber að hrinda.

Ég skal ekki ræða hér sérstaklega viðvíkjandi veltuútsvörunum, — það hafa verið lagðar hér margar spurningar fyrir hæstv. fjmrh., sem hann mun vafalaust gera skil í sinni svarræðu, — en mér skilst á frv., að veltuútsvörin eigi að vera frádráttarhæf frá tekjum. Er það ekki rétt, að veltuútsvörin eigi að vera frádráttarhæf frá tekjum, þannig að menn fái ekki útsvar á eftir né heldur tekjuskatt út á það, sem menn hafa borgað í veltuútsvör? Er þetta rangt skilið hjá mér? (Fjmrh.: Nei, allt greitt útsvar dregst frá tekjum.) Líka greitt veltuútsvar. En þá vildi ég nefnilega spyrja: Greitt veltuútsvar má dragast frá tekjum. (Fjmrh.: Við útsvarsálagningu, en ekki tekjuskatts.) En ekki tekjuskatts, já. Þá skulum við segja það. Greitt veltuútsvar má dragast frá tekjum í sambandi við álagningu útsvars næst. En hvernig hagar þá, þegar engar tekjur eru, enginn tekjuafgangur er? Kemur þarna ekki fram alveg gríðarlegur aðstöðumunur fyrir þau félög annars vegar, sem rekin eru í gróðaskyni og safna gróða? Þau greiða ákveðið veltuútsvar og hafa ákveðinn gróða. Þau fá þetta veltuútsvar dregið frá, þegar útsvar er lagt á þau næst. Þau fá sem sé sérréttindi, vegna þess að þau eru rekin í gróðaskyni og til auðsöfnunar einstökum aðilum. Hins vegar þar sem starfandi er félagsverzlun almennings, sem er ekki rekin í gróðaskyni, heldur rekin í því skyni að gera alþýðuheimilum léttara fyrir, gera álögurnar, t.d. með söluskatti, gengislækkun eða öðru slíku, ekki eins þungbærar fyrir alþýðuheimilin, rekin af félagsskap, — við skulum segja eins og kaupfélögum eða samvinnufélögum. sem reyna að stilla álagningu sinni þannig í hóf, að vörur séu þeim ódýrari, þannig að almenningur sleppi sem bezt og þetta verði sem ódýrast alþýðuheimilum, — ef slíkur félagsskapur er starfandi og tekst að vinna þannig, að hann sé rétt á mörkunum, skilar engum gróða, stillir allri álagningu í hóf, þannig að hún er rétt fyrir kostnaði, en hefur máske mikla veltu, þýðir þetta þá ekki, að á slíkt kaupfélag eða samvinnufélag leggst veltuútsvar, en sökum þess að félagið hefur engan tekjuafgang, þá dregst þetta ekki frá þeim? Mér skilst, að þarna sé verið að íþyngja þeim félögum, sem eru að reyna að vinna með almenningshag fyrir augum, en skapa raunverulega sérréttindi þeim til handa, sem vinna í gróðaskyni, sem vinna að auðsöfnun og arðræna almenning, sem hafa af honum fé og græða á honum. Og raunar skilst mér, að það sé höfuðstefnan, sem nú eigi að fara að ryðja sér til rúms í þjóðfélaginu, að það skuli gefa sérréttindi öllum þeim aðilum, sem vilja safna auði eða safna gróða, hvernig sem þeir svo nota hann, en það skuli að sama skapi gera erfiðara fyrir hverjum þeim samtökum, sem starfa að almenningsheill, — helzt með það fyrir augum, ef þetta væri rétt skilið hjá mér og þetta væri svona framkvæmt, að leggja að velli hver þau samtök, sem starfa með almenningshag fyrir augum, og skilja helzt ekkert annað eftir en þau samtök, sem arðræna almenning. Ég vil sem sé leggja alveg sérstaka áherzlu á, að þessar greinar frv., sem svipta samvinnufélögin þeim rétti, sem þau hafa haft, fyrst og fremst 12. gr. og raunar líka 5. gr. og 6. gr., — þau ákvæði séu ranglát og eigi ekki að samþykkjast.

Þá er tekið upp, eins og hæstv. fjmrh. kom inn á, það ákvæði, að greiðsla útsvars fyrir hver áramót og nú í ár fyrir 1. maí skuli dragast frá útsvari næsta árs eða leggjast við tekjurnar. Ég er ákaflega hræddur um, þó að margt megi segja bæði með og móti þessari reglu, að þessi regla, ef hún verður tekin upp, komi fyrst og fremst þeim, sem fjáðastir eru, að gagni. Fyrir þau stóru fyrirtæki, sem mikla veltu hafa, mikið einkafjármagn í veltu eða góðan aðgang á einhvern hátt að lánsfé, er þetta mjög mikill munur. Mér skilst á því, sem hér hefur komið fram, að bara hér í Reykjavík geti lækkun á útsvörum jafnvel komizt allt upp í 40 millj., ef þetta er framkvæmt. Hvort það er að öllu leyti þannig, að bæjarfélagið þyldi það, það skal ég ekki segja, það vita aðrir betur en ég, en ég er hræddur um, að ákaflega mikið af þeirri upphæð mundi fyrst og fremst verða þeim til góðs, sem sízt þyrftu þess. Hættan er sú, að meginið af alþýðu manna komi til með í ár og næstu ár, með þeirri efnahagsstefnu, sem nú er upp tekin, að eiga erfitt með að greiða útsvör, bara vegna þess að lífsnauðsynjar hækka svo í verði, og sérstaklega á meðan kaupgjaldið hækkar ekki, að menn hafi ekki mikið afgangs og dragi það eins lengi og hægt er, láti hverjum degi nægja sínar þjáningar. Hins vegar þau stóru fyrirtæki, sem mikið fé hafa og mikið geta á þessu grætt, munu vafalaust reyna að notfæra sér þetta, og mér sýnist þetta því vera einn liður í þeim sérréttindum, sem þeim ríku í þjóðfélaginu og þeim, sem vel standa að vígi gagnvart lánsútvegunum, séu veitt, alveg á sama hátt og jafnvel í tekjuskattslöggjöfinni er nú lagt til, að það séu fyrst og fremst hátekjumennirnir og þeir ríku og þeir, sem mikla veltu hafa, sem græði.

Þá heyrði ég, að hæstv. fjmrh. talaði um, að í sambandi við þessar ráðstafanir, sem nú eru gerðar um útsvarsálagningu, fælist viss vörn gegn álagningu. Og ég veit, að það hefur oft af hálfu þeirra, sem verið hafa látnir bera þungar byrðar hjá ýmsum sveitarfélögum, verið yfir því kvartað, hve ágeng sveitarfélögin væru. Og þá þykist ég um leið sjá, að með þessu sé í raun og veru verið að tryggja ekki sízt þau ríku félög, sem þarna ættu í hlut, gegn slíkri álagningu, gefa þeim vörn gegn álagningu, og mér finnst þetta að nokkru leyti koma úr hörðustu átt hjá hæstv. fjmrh., þegar raunverulega er verið að gera ráðstafanir til þess að verja rík og voldug félög gegn álagningu fátækra sveitarfélaga, á sama tíma sem almenningur hins vegar stendur varnarlaus gagnvart þeirri gífurlegu álagningu, sem nú er á hann lögð með ægilegum vöruverðshækkunum, bæði í krafti söluskatts og gengislækkunar, sem nú fara fram, — varnarlaus gagnvart álagningu þeirra nefskatta, sem nú er verið að leggja á.

Ég held þess vegna, að heildarstefnan í þessu frv., sem hér liggur fyrir, sé að draga úr þeim réttindum og því valdi og því efnahagslega sjálfstæði, sem þær einingar mannlegra samtaka, sem bæði samvinnufélögin og sveitarfélögin eru, hafa haft fram að þessu, en auka að sama skapi vald ríkisvaldsins, afskipti þess og yfirráð þess og ágengni þess gagnvart þessum samtökum, bæði hinum frjálsu samtökum almennings, sem samvinnufélögin eru, og þeim lögskipuðu samtökum almennings, sem sveitarfélögin eru, sem til voru áður en nokkurt ríkisvald var til. Og þegar þetta er framkvæmt, þegar þessi stefna er tekin upp, á sama tíma sem ríkisvaldið gengst fyrir þyngri álögum á almenning en lagðar hafa verið á nokkru sinni fyrr og gerir almenning með sérstökum ráðstöfunum, með afnámi þeirra samninga, sem alþýða manna hefur haft um vísitölu á kaup fyrir almenning, varnarlausari gagnvart slíkum álögum en almenningur hefur verið um áratugi, þá held ég, að ekki fari hjá því, að þessi löggjöf verði skoðuð sem einn þáttur í allsherjarárás auðmannastéttarinnar á Íslandi í því að sölsa undir sig eina ríkisvaldið og beita því ríkisvaldi gagnvart sveitarfélögunum, gagnvart samvinnufélögunum, gagnvart almenningi í landinu til allsherjar árása á öll þau samtök, sem almenningur hefur ítök í og meira eða minna umráð yfir í landinu. Því meira lýðræði sem í þessum samtökum gildi, því frekar skulu þau svipt sínum efnahagslega rétti og aðstöðu til starfsemi í þjóðfélaginu. Mér sýnist þess vegna þessi breyting, sem hér liggur fyrir á útsvarslöggjöfinni, vera einn þáttur í allsherjarárás auðmannastéttar til að einoka undir sig efnahagslegt og pólitískt vald í þjóðfélaginu, og að sama skapi sem bæði verkalýðsfélög og samvinnufélög eru svipt réttindum, sem þau hafa haft, þá séu að sama skapi hátekjumönnum veitt fríðindi og sérréttindi.

Ég veit, að ýmislegt hefur farið afvega í ýmsu viðvíkjandi sveitarstjórnarmálum á undanförnum áratugum og ýmislegt þar, sem þurfti úr að bæta, og vandamál, sem þurfti úr að greiða, og ég held, að þessi leið, sem hér er farið inn á, sé röng leið, ekki aðeins óréttlát, eins og ég hef sýnt, heldur held ég líka verið að fara inn á allt aðra leið til þess að halda sjálfstæði sveitarfélaganna og gera þeim mögulegt að starfa að lausn vandamála sinna meðlima. Hins vegar sýnist mér, að með þessari aðferð, sem hér er upp tekin, séu sveitarfélögin endanlega alveg lögð undir ríkisvaldið og það ráði þessum hlutum héðan af.

Ég mun svo ekki frekar gera þessa löggjöf að umtalsefni við þessa umr., nema sérstakt tilefni gefist til.