04.04.1960
Neðri deild: 61. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2719 í B-deild Alþingistíðinda. (1046)

112. mál, útsvör

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að halda áfram þeim almennu umr., sem urðu um þetta mál við fyrsta hluta 1. umr., en hafði búizt við því, að hæstv. fjmrh. mundi svara fyrirspurnum þeim, sem ég beindi til hans, og hafði þess vegna dregið að kveðja mér hljóðs til þess að bíða eftir því, að þeim yrði svarað. En nú hefur hæstv. ráðh. ekki kvatt sér hljóðs, og verð ég þá að nota þennan síðari ræðutíma minn til þess að endurtaka þær spurningar, sem ég hafði beint til hæstv. ráðh., í þeirri von, að hann svari þessum spurningum, því að þær eru satt að segja þannig vaxnar, að þær snerta höfuðatriði þessa máls, og innihald málsins er alveg óljóst, þangað til skýringar liggja fyrir á þessum atriðum, sem ég spurði um. Spurningarnar voru þessar:

Hverjar eru þær undanþágur, sem bæjar- og sveitarfélög hafa gefið undanfarið, eða að hvaða leyti hafa bæjar- og sveitarfélög brugðið út frá reglum skattalaganna um þau atriði, sem til eru tekin í 3. gr. þessa frv.? Þar sem ætlazt er til með frv., að þessi frávik verði lögfest á hv. Alþ., verður vitaskuld að koma hér fram, hver þessi frávík eru, sem ætlazt er til að Alþ. heimili áfram.

Annað atriðið var um það, hvað átt er við í frv. og þar með löggjöfinni, ef þetta verður að lögum, með orðinu „velta“, og á því veltur ekkert smáræði, hvað átt er við með þessu orði í frv., t.d. hvort þar er ekki aðeins átt við kaup og sölu eða hvort svo kynni að vera, að þar væri átt við það, ef einstaklingur eða félag rekur umboðsverzlun eða umboðsviðskipti, að þar sé átt við andvirði allra þeirra vara, sem í slíkum umboðsviðskiptum er séð um innkaup á fyrir aðra, m.ö.o.: þegar um umboðssölu er að ræða, hvort þar er aðeins átt við umboðslaunin eða hvort það er átt við andvirði þeirra vara, sem útvegaðar eru eða hafðar til meðferðar á einn eða annan hátt í umboðsviðskiptum. Ég veit, að allir, sem íhugað hafa þessi mál, sjá, hversu gífurlega þýðingu það hefur, hvernig líta beri á ákvæði l. að þessu leyti. Ég mundi telja eftir þeim reglum, sem fylgja um útsvarsálagningu í Reykjavík, þar sem er talað um umboðslaun í sérstökum flokki til veltuútsvars, að það mundi eiga að líta þannig á, að þegar um umboðsviðskipti eða umboðsmeðferð væri að ræða, þá væri það aðeins umboðsþóknunin sjálf, sem kæmi til veltugjalds. En hér er um svo stórkostlegt atriði að ræða, að það er alveg óhjákvæmilegt að gera þetta alveg ljóst, bæði með yfirlýsingum frá hæstv. ráðh. og eins með því að gera sjálft lagaákvæðið skýrara. Hér á veltur t.d. hvorki meira né minna en það, hvernig á að líta á svo að segja allar innlendar vörur, sem eru til sölumeðferðar hjá verzlunarfélögum og til vinnslumeðferðar, bæði fiskafurðir og landbúnaðarafurðir. Langmest af þeim gífurlegu viðskiptum, sem þarna er um að ræða, er rekið á umboðssölugrundvelli, og vinnsla á þessum afurðum fer fram á þeim grundvelli, og þess vegna getur skilningurinn á þessu ákvæði skorið úr um það, hvort hundruð milljóna af viðskiptum í landinu eiga að koma undir veltuútsvar framvegis eða ekki, — hundruð milljóna og jafnvel meira, með því verðlagi, sem nú er orðið. Hér er því um grundvallaratriði í löggjöfinni að ræða, sem má ekki fara neitt á milli mála um.

Þá spurði ég, hvort samkv. þessu frv. eða lögum, ef það verður að lögum, væri ekki skylt að leggja jafnt veltuútsvar á hverja viðskiptagrein innan hvers byggðarlags, hvort það væri heimilt að leggja mismunandi á viðskipti í hverri viðskiptagrein, t.d. hvort nýlenduvöruverzlun — svo að ég taki dæmi — í sama byggðarlagi yrði ekki að sæta undir öllum kringumstæðum sama veltugjaldi. Og í þessu sambandi spurðist ég fyrir um, hvað fyrirvarinn um þetta, sem er í Reykjavíkurreglunum, þýðir. En þar stendur, að það skuli vera allt að þessi eða hin prósentan í hverri grein, — hvernig beri að skilja þessi ákvæði. Og hér er ekki heldur um neitt smámál að ræða, því að ætlunin er að lögfesta sem heimild Reykjavíkurreglurnar, sem fylgja frv.

Þá spurði ég um, hvort ríkisstj. ætlaði að beita sér fyrir því, að veltuútsvör verði frádráttarbær við tekjuskattsálagningu. Þessi spurning snertir náttúrlega ekki beint það frv., sem hér liggur fyrir, en snertir það óbeint. Má vel vera, að hæstv. ráðh. geti ekki svarað þessu. Kann að vera, að það sé ekki ákveðið, og er þá ekkert við því að segja. En það væri mjög nauðsynlegt að fá upplýst, hvað ríkisstj. hefur í hyggju í þessu efni, ef hún hefur tekið um það ákvörðun.

Loks er svo ný spurning, sem ég vildi bæta við, og hún er þessi: Verður veltuútsvarið tekið inn í verðlagsgrundvöll varanna, þegar þær verða verðlagðar af verðlagsyfirvöldunum? Þetta er grundvallaratriði í sambandi við þetta mál, hvort veltuútsvarið verður tekið inn í verðlagninguna, inn í verðið á vörunum eða ekki, og um þetta skilst mér að hljóti að verða einhver allsherjarregla. Mér leikur grunur á því, að undanfarið hafi þetta verið mjög á reiki. Mér leikur grunur á því, að í sumum dæmum hafi veltuútsvörin verið tekin inn í verðlagsgrundvöllinn eða verðið, sem leyft hefur verið að taka fyrir vöruna, en í öðrum tilfellum ekki. En hér er náttúrlega alveg nauðsynlegt að hafa einhverja fasta reglu, því að segja má, að ef það væri t.d. lögboðið eða alveg fastákveðin regla, að veltuútsvar sé tekið inn í verð á vörum, þá er veltuútsvarið orðið hliðstætt söluskattinum og skattur alveg hliðstæður honum. En ef veltuútsvarið er ekki tekið inn f verð varanna, þá er veltuútsvarið skattur á fyrirtæki og einstaklinga, sem hafa viðskiptin með höndum, m.ö.o. eins konar beinn skattur, sem er mældur með svona undarlegu móti. Hann er ekki miðaður við afkomu fyrirtækjanna á neinn hátt, heldur hvað þau selja mikið.

En þeir, sem beita sér fyrir því að lögfesta veltuútsvar, sem hefur nú verið í ýmsum dæmum lagt á við útjaðar laganna einhvers staðar, — þeir, sem beita sér fyrir því að lögleiða veltuútsvar, verða að gera það alveg ljóst, hvernig á að fara með veltuútsvarið að þessu leyti, hvort það á að vera hliðstætt söluskattinum eða hvort það á að vera skattur á einstaklinga og fyrirtæki. Það getur náttúrlega ekki undir neinum kringumstæðum staðizt, að þetta sé gersamlega á reiki og að í einu tilfelli sé farið með þetta á einn veg og í öðru tilfelli á annan veg.

Loks vil ég enn bæta við þá spurningu, hvað átt er við með veltu. Ég gleymdi því áðan í sambandi við það atriði. Á orðið „velta“ í frv. líka við allar tegundir framleiðslu? Það er sagt, að gjaldendur, sem hafi atvinnurekstur með höndum, skuli greiða þetta af veltu, og síðan er talað um vörusölu o.fl. En gildir það sama um framleiðslu? Er t.d. samkv. löggjöfinni heimilt að leggja veltuútsvar á fisk, sem útgerðarmaður framleiðir? Kemur hann undir þetta ákvæði? Það er ekki beinlínis talað um framleiðslu, og þess vegna spyr ég.

Eins og ég sagði, hafði ég spurt allra þessara spurninga nema einnar, og urðu mér það vonbrigði, að hæstv. ráðh. skyldi ekki svara þessum spurningum, áður en ég talaði aftur um þetta mál, því að það gat gefizt tækifæri til þess að ræða svör hans. En nú er þannig haldið á þessu, — ekki veit ég, hvort það er eftir áætlun, — að svör við þessu, sem ég vona að hljóti að koma, koma ekki fyrr en ég hef notað ræðutíma minn til fulls og á ekki eftir nema stutta aths. En máske kemur það ekki svo mikið að sök. Ef skýrt er svarað um þessi efni, þá er það aðalatriðið, því að vitanlega er hægt að kappræða um málið fram og aftur á síðari stigum þess.