24.05.1960
Neðri deild: 87. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2748 í B-deild Alþingistíðinda. (1055)
112. mál, útsvör
Frsm. 1. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Eins og fram kom af ræðu hv. frsm. meiri hl., ræddi heilbr.- og félmn. á nokkuð mörgum fundum frv. hæstv. ríkisstj. um bráðabirgðabreyt. á l. um útsvör og gat ekki orðið sammála um afgreiðslu þess.
Það kom fram strax hér við 1. umr. málsins í hv. þd., að mjög voru skiptar skoðanir um þetta frv. Það sætti þá þegar allmikilli gagnrýni, og á sömu lund fór, þegar umr. hófust um málið í heilbr: og félmn. Frv. kom til n. nokkru fyrir páska, en þegar við höfðum rætt um það á tveimur fundum, var það áreiðanlega að tilstuðlan hæstv. ríkisstj. eða stuðningsflokka hennar, að umr. var þá hætt um sinn um frv., og við í minni hl. n. höfðum helzt þær spurnir af, að hæstv. ríkisstj. mundi hafa fengið einhvern höfuðverk út af þessu frv. og hefði skipað undirnefnd eða undirnefndir til þess að athuga smíðina betur og hugleiða, hvort ekki yrði samkomulag í stjórnarliðinu um að gera þar á meiri eða minni breyt. Svo mikið er víst, að horfið var frá að fjalla um málið fyrir páskana um nokkurt skeið, og þegar þm. komu aftur úr páskafríi og þingstörf hófust á ný, þá liðu langir tímar, án þess að heilbr.- og félmn. fengi aftur þetta frv. til meðferðar, og voru gefnar þær upplýsingar, að málið væri í gagngerðri athugun hjá stjórnarflokkunum. Og það var því nú fyrir örskömmu, að aftur hófust fundir í heilbr.- og félmn. til þess að fjalla um útsvarslagafrv. Meðan á þessum hvíldartíma stóð, að því er snertir meðferð þessa máls, hafði dunið á Alþ. skæðadrífa mótmæla úr ýmsum áttum, einkanlega frá sveitarstjórnum og kaupfélagsstjórnum — stjórnum samvinnufélaga — út af sérstökum ákvæðum frv. og raunar þó út af meginstefnu þess í ýmsum atriðum.
Þegar umr. hófust um málið aftur í n., kom í ljós, að þeir óánægðu í stjórnarliðinu, sem sennilega hafa ekki gefið þess kost að fylgja þessu frv. fram, nema á því yrðu gerðar breytingar, höfðu verið frekar lítilþægir, sætt sig við smávægilegar breytingar, því að það er ekki hægt að segja annað en þær breytingar, sem eftir alla biðina og töfina komu frá stjórnarliðinu, eru smávægilegar. Frv. heldur öllum sínum meginókostum eftir sem áður.
Breytingarnar eru aðallega þrjár:
Það er í fyrsta lagi fallizt á það, að mjólkurbú og sláturhús verði undanþegin veltuútsvari, en að öðru leyti er ekkert hróflað við veltuútsvarsákvæðunum í frv.
Önnur breyt. er sú, að í stað þess, sem var gert ráð fyrir í frv. um útsvör, eins og það var lagt fyrir hér í vetur, í þeim útsvarsstiga, sem lögfesta skyldi fyrir kauptúnahreppa og sveitahreppa, þá yrði útsvarsstiginn ekki látinn byrja á 3000 kr. árstekjum, eins og þar var gert, heldur skyldu 3 neðstu þrepin — eða efstu þrepin í honum, ef maður vill heldur orða það þannig — numin burt, þannig að sá einstaklingur, sem hefði 3000 kr., 4000 kr., 5000 kr. og allt upp í 6000 kr. árstekjur, skyldi ekki falla undir útsvarsstigann. Eftir breyt. skal byrja að leggja útsvör í sveitarhreppunum á hvern þann einstakling, sem hefur markið 7000 kr. árstekjur. Og þannig liggur frv. fyrir Alþ. nú, að því er þann útsvarsstiga snertir, sem gilda skal fyrir sveitirnar. Þar skal byrja að leggja útsvar á 7000 kr. hreinar tekjur einstaklings, og skulu slíkar árstekjur bera 530 kr. útsvar, ef ég man rétt.
Þriðja breyt. er svo sú, að það verður heimilað — ekki skylt, það verður heimilað að undanþiggja bætur almannatrygginganna útsvarsálagningu, það skal ekki teljast til lögbrota. Og það má lækka frá útsvarsstiga útsvör á gamalmenni, sem orðin eru eldri en 65 ára.
Ég held, að það sé rétt hjá mér, að þetta séu þær meginbreyt., sem nú eru lagðar fram eftir alla þessa bið og hvíld, og þar með virðist allt stjórnarliðið vera orðið sammála um, að nú sé útsvarslagafrv. gott, nú geti þeir rétt upp puttana með því og stutt að því, að það verði að lögum.
Ég hefði sannast að segja búizt við, að ýmsir menn í stjórnarliðinu þyrftu að fá fram miklu stórfelldari breyt. á frv. í meginatriðum en þessar brtt., sem nú eru orðnar kunnar, bera vitni um.
Þegar menn hafa í huga þessar brtt., sem meiri hl. leggur fram, þá liggur frv. nú fyrir hv. Alþ. að öðru leyti í sama formi og upphaflega.
Það er í raun og veru þrennt, sem hægt er að segja að sé meginefni þessa frv. Það er í fyrsta lagi það, að svipta á sveitarfélögin í landinu aldagömlum sjálfsákvörðunarrétti um það, hvernig sveitarstjórnirnar jafni útsvörum niður á gjaldþegna sína. Og það er ekki svo óveruleg réttarskerðing gagnvart sveitarfélögunum, sem í þessu felst, að ekki sé orð á því hafandi. Það er vitanlega geysilega mikilsverður réttur — sjálfsákvörðunarréttur, að sveitarfélögin sjálf megi ráða því að sinni vild, hvernig þau afla fjár til síns rekstrar og til sinna nauðsynlegu framkvæmda og athafna. En með samþykkt slíks frv. sem hér liggur fyrir er verið að taka þennan rétt af sveitarfélögunum og leggja hann eins og margt fleira í hendur ríkisvaldsins. Það er verið að „sentralisera“ valdið í þjóðfélaginu, taka það af sveitarfélögunum.
Það er rétt, sem hv. frsm. meiri hl. sagði hér áðan, að fram að þessu hefur það verið meginatriði — grundvallarregla — í gildandi útsvarslöggjöf, og það ákvæði er víst aldagamalt, að sveitarstjórnirnar mættu leggja á eða skyldu leggja á útsvör fyrst og fremst eftir efnum og ástæðum. Ákvæðin um þetta eru í 4. gr. útsvarsl. frá 1945 og hljóða svo, með leyfi hæstv. forseta, það eru upphafsorð 4. gr.: „Útsvar skal leggja á eftir efnum og ástæðum. Skal þá til greina taka eignir aðila, hverjar þær eru og hversu verðmætar, hversu miklar skuldir hvíla á aðila og hversu miklar eignir hann á afgangs skuldum.“ Síðar í gr. segir: „Ástæður aðila að öðru leyti, svo sem fjölskyldu hans, heilsufar hans og þeirra, sem á vegum hans eru, höpp eða óhöpp, sem hann hefur orðið fyrir, svo sem slys, dauðsföll, fjárskaða af sjó, veðri eða vötnum, sérstakan uppeldiskostnað eða menningarkostnað barna hans, er nauðsynlegan má telja eða venjulegan, tap á ábyrgðum og sérhvað annað, er telja má máli skipta um gjaldþol hans og með sanngirni má til greina taka til hækkunar útsvari hans eða lækkunar.“
Þetta eru meginatriðin í gildandi útsvarslöggjöf um það, hvaða tillit eigi að taka af niðurjöfnunarnefnd eða sveitarstjórn við útsvarsálagningu á gjaldþegnana. Og þarna er sýnilega ætlazt til þess, að mikillar sanngirni sé gætt og álagningu nokkuð hagað eftir því, hvernig blásið hefur í seglin hjá hinum ýmsu gjaldendum, hvort þeir hafa orðið fyrir áföllum, meiri eða minni, eða hvort þeir hafa orðið fyrir höppum, og þar með gefið í skyn, að það sé í raun og veru ekki fullnæging á réttlæti að binda sig við einhverjar fastar reglur og leggja á útsvör miskunnarlaust eftir tölum tekna og eigna, heldur taka margvísleg mannleg tillit. Og ég verð að segja það, að ólíkt felli ég mig betur við þann anda útsvarslöggjafarinnar heldur en þann, sem hér skal nú innleiða, að lögfesta tölulegan útsvarsstiga fyrir sveitarfélögin, og það meira að segja mismunandi eftir tegundum sveitarfélaga, þannig að Reykjavík skuli hafa einar útsvarsreglur lögfestar, aðrir kaupstaðir talsvert aðrar og kauptúnahreppar og sveitahreppar þriðju lögfestu reglurnar, sem ég mun koma nánar að síðar.
Ég held, að í kaupstöðum úti um land hafi það komið fyrir og komi fyrir í hvert einasta skipti, sem niðurjöfnunarnefnd situr að störfum, að þeir menn, sem þar starfa, teldu sig gera rangt, vera að fremja ranglæti, ef þeir legðu sömu útsvarsupphæð á jafnháar tekjur tveggja gjaldenda, ef ástæður þeirra að öðru leyti væru gerólíkar, annars gjaldþegnsins að ýmsu leyti bágbornar vegna ýmiss konar ástæðna hans eða hans fjölskyldu, en ástæður hins mannsins að öllu leyti miklu betri. En svigrúmið til þess að taka slík tillit yrði mjög svo takmarkað, þegar búið væri að lögfesta ákveðinn útsvarsstiga, sem útsvörin skyldu á lögð eftir, og þá ekki hægt að taka önnur tillit en þau, sem beint væru upp talin í löggjöfinni, en það eru ein 3 eða 4 atriði, sem eru upp talin hér í þessu frv., sem orkað geta til þess að lækka eða hækka útsvar frá útsvarsstiganum.
Ég tel, að þetta atriði útsvarslagafrv. sé til hins verra. Í fyrsta lagi sé það lítt verjandi að svipta sveitarfélögin þessu mikilsverða sjálfsstjórnaratriði um tilhögun útsvarsálagningarinnar og festa það í l., svo að lítt frávíkjanlegt er, af hendi ríkisvaldsins. Það grípur mjög inn í fjárhagslegt sjálfræði og sjálfstæði sveitarfélaganna, og ég hygg, að það verði sízt til þess að örva þeirra sjálfsbjargarviðleitni eða fyrirhyggju í fjármálaefnum, að ríkisvaldið grípi um úlnliði þeirra manna, sem eiga að stjórna sveitarfélögunum, og segi þeim fyrir í smáu og stóru með lagastaf, hvernig þeir eigi að haga sér um stjórn sveitarfélagsins. Ég hef trú á því, að frjálsræði sveitarstjórnarmanna hafi mikla þýðingu að því er það snertir, að þeir leggi sig betur fram um stjórn sveitarmálefnanna, ef ábyrgðin og skyldurnar hvíla á sveitarstjórnarmönnunum í nokkuð ríkum mæli og þeir verða því kallaðir til ábyrgðar, ef illa tekst til um þeirra stjórnarháttu í hinum einstöku tilfellum. En ábyrgðin hvílir að miklu meira leyti á ríkisvaldinu sjálfu, þegar það er búið að taka völd og ráð úr höndum sveitarstjórnarmannanna og binda þeirra athafnafrelsi og takmarka það með lagastaf.
Af þessu atriði leiðir, að meginmál frv. fjallar um þá væntanlegu útsvarsstiga, sem ætlunin er að lögleiða, og þeir eru 3, eins og ég áðan sagði. Ég tel það rangt, sem hv. frsm. meiri hl. sagði hér áðan, að í rauninni væri breyt. ákaflega lítil, því að það hefðu verið í gildi, — ég held hann hafi sagt í kringum 200 útsvarsstigar í landinu, en nú væri meiningin að fækka þeim niður í 3. Það væri meginbreytingin. Nei, það er annað, sem er meginbreyting, og það er þetta: að útsvarsstigarnir, sem hafa verið notaðir til hliðsjónar með regluna um að leggja á útsvör eftir efnum og ástæðum fyrst og fremst, það er gersamlega annað en lögfesta útsvarsstigann. Að hafa útsvarsstiga til hliðsjónar við álagningu útsvara er allt annað. Það er reginmunur á því eða eiga að fara eftir lögfestum tölum útsvarsstiga við álagningu útsvara, svo að hér er um allt annað að ræða en það, að útsvarsstigum sé fækkað úr 200 í það, að nú séu þeir bara 3.
Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að lögfesta útsvarsstiga fyrir Reykjavík. Þar skulu vera hjá einstaklingi útsvarsfrjálsar árstekjur allt að 25 þús. kr. En af hreinum 25 þús. kr. árstekjum skal einstaklingurinn síðan greiða 940 kr. í útsvar. En svo fer maður út fyrir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, t.d. í Kópavogskaupstað eða Hafnarfjarðarkaupstað eða í einhvern kaupstað úti um land. Þar skal vera annar lögfestur útsvarsstigi. Og í hvaða kaupstað sem maður grípur niður, þá eiga útsvarsfrjálsar tekjur einstaklings í öllum þessum kaupstöðum aðeins að vera 15 þús. kr., 10 þús. kr. lægri. Í þeim kaupstöðum skal byrja að leggja útsvör á 10 þús. kr. upphæð, sem útsvarsfrjáls skal vera í Reykjavík. Og á 15 þús. kr. tekjur skal leggja 2150 kr. í kaupstöðunum, en 940 kr. á 10 þús. kr. hærri tekjur í Reykjavík, sem sé 25 þús. kr. hreinar tekjur. Þó versnar til muna, þegar kemur að þriðja lögfesta útsvarsstiganum, sem hér er gert ráð fyrir, þ.e.a.s. stiganum, sem á að gilda í öðrum sveitarfélögum en kaupstöðum, því að þar á, eins og ég áður drap á, að byrja að leggja útsvar á 7000 kr. árstekjur. Þeir góðu menn höfðu þó í haust eða í vetur, þegar þeir lögðu útsvarslagafrv. fram, látið sér detta í hug, að það væri sæmandi að byrja á útsvarsálagningu á 3000 kr. árstekjur, en hafa nú horfið frá því, talið það fulldjúpt í ár tekið. Og útsvarið á 7000 kr. árstekjurnar í sveitarhreppi skal vera 530 kr. Á 10 þús. kr. árstekjur einstaklings í hreppsfélagi skal leggja 830 kr. útsvar. Á 15 þús. kr. árstekjur, sem var lágmarkið í kaupstöðunum, sem skyldi vera útsvarsskylt, skal leggja 1380 kr. útsvar. Og á 25 þús. kr. árstekjur, sem er lágmarkið í Reykjavík, skal leggja 2630 kr. útsvar. Það fer þannig ekkert á milli mála, að með slíkum lögfestum útsvarsstiga eru það þeir tekjulægstu í sveitunum, sem verða langharðast úti um útsvarsgreiðslur. Þeir eiga að borga umtalsverðar upphæðir í útsvar af tekjum, sem engum dettur í hug í kaupstað að sé forsvaranlegt að taka útsvar af.
Til þess að sýna, hversu útsvarsbyrðarnar koma misjafnlega niður á menn eftir því, hvar menn eru búsettir, ef þetta frv. verður að l., vil ég taka nokkur dæmi. Og ég vil þá taka fyrst 50 þús. kr. árstekjur, sem eru mjög algengar, venjulegar tekjur hjá vinnandi fólki og verða þó að teljast með lægri tekjum. Maður með 50 þús. kr. árstekjur, búsettur í Reykjavík, mundi af þeim borga 6100 kr. útsvar. Í hverjum hinna kaupstaðanna yrði hann að borga 8200 kr. í útsvar, en í kauptúns- eða sveitarhreppi 6680 kr. Einstaklingur í Reykjavík, sem hefði 70 þús. kr. hreinar árstekjur, á skv. útsvarsstiganum í þessu frv. að borga 10890 kr. útsvar. Sé hann búsettur í einhverjum kaupstaðanna úti á landi eða utan Reykjavíkur, á hann að borga 13500 kr. í útsvar. Og sé hann í kauptúns- eða sveitarhreppi, þá 10880 kr. Einstaklingur í Reykjavík, sem hefði 100 þús. kr. tekjur, á að borga 18390 kr. í útsvar, í einhverjum hinna kaupstaðanna skyldi hann greiða 22200 kr. og í sveitarhreppi 18380 kr., eða nálega sömu upphæð, þegar komið er upp í þessar tekjur, 100 þús. kr. tekjur, eins og gjaldþegn í Reykjavík. En slíkar tekjur mundu vera frekar fágætar í sveit, nema þá hjá allra stærstu búhöldum. Að lokum langar mig svo til að bera saman útsvar á tekjur manns, sem hefði 150 þús. kr. Þá væri útsvarið á Reykvíkingnum 33390 kr., ef honum hefði ekki verið ívilnað neitt, hefði ekki verið þannig settur, í kaupstað utan Reykjavíkur 37200 kr. og í kauptúns- eða sveitarhreppi 30880 kr.
Þessi dæmi frá lægstu tekjum og allt upp í 150 þús. kr. tekjur sýna það, að eftir þessum lögfestu útsvarsstigum væri mönnum mjög mismunað í útsvarsgreiðslum eingöngu eftir því, hvar þeir væru búsettir á landinu. Lágtekjumenn sveitanna yrðu langharðast úti, hundeltir með útsvarsgreiðslur af allt niður í 7 þús. kr. árstekjur, meðan Reykvíkingur slyppi þó með að borga ekki einn einasta eyri í útsvar, nema því aðeins að hann hefði 25 þús. kr. árstekjur. Gjaldendurnir í kaupstöðunum utan Reykjavíkur yrðu, hvort sem þeir væru lágtekjumenn eða hátekjumenn, yfirleitt langþyngst úti, bæru þyngstu byrðarnar að því er snerti útsvarsgreiðslur. En Reykvíkingar slyppu verulega léttara, og liggja til þess margvíslegar sérstakar ástæður, sem ég vil víkja nokkru nánar að.
Það má segja, að útsvörin yrðu yfirleitt léttbærust í Reykjavík, þungbærust í kaupstöðunum, að undanteknu fólkinu með lægstu tekjurnar í sveitunum. Ég held, að það verði að segja, að það sé frekar ólíklegt, að það yrði almenn ánægja með slíkt misrétti, lögfest misrétti. Ég efast um, að það yrði stætt á því til lengdar, þó að ríkisvaldið gæti knúið það í gegn á Alþingi, að viðhalda svona mismunandi lagaákvæðum um útsvarsgreiðslur, eingöngu eftir því, hvar menn hefðu lögheimili á þessum hólma okkar.
Hvaða orsakir liggja nú til þess, að Reykjavík telur sig geta haft aðstöðu til að leggja á skv. vægari útsvarsstiga en t.d. bæjarfélögin hin? Það mundu vafalaust einhverjir úr röðum Sjálfstfl. segja: Það er af því, að Gunnar Thoroddsen borgarstjóri hefur stjórnað borginni svo vel, og þess vegna er betra að vera í Reykjavík, þess vegna sleppa menn með lægri útsvör þar. — Nú sem sé félli það lof á hæstv. fjmrh. Ég held, að þegar menn líta á þetta með allri virðingu fyrir snilli hæstv. núv. fjmrh. og hans kunnáttu í því að stjórna Reykjavíkurborg sem borgarstjóri, þá liggi aðrar, ég vil segja allt aðrar ástæður til þess, að Reykjavík getur sloppið með lægri útsvör á sína einstaklinga en hin smærri bæjarfélög úti um land. Öllum er það kunnugt, að Reykjavík sem höfuðborg landsins nýtur þeirrar sérstöðu að taka útsvör af öllum embættismönnum ríkisins, sem hér eru staðsettir, einungis af því að þessi borg er höfuðborg landsins. Og þessir menn eru í mörgum tilfellum alltekjuháir menn, góðir gjaldþegnar, og útsvör þeirra falla Reykjavík einni til, þó að þeir séu starfsmenn þjóðarinnar allrar. Það er sennilega allálitleg milljónafúlga, sem Reykjavíkurbær fær í útsvörum af embættismannaliði ríkisins, sem hér hefur búsetu, vegna þess að Reykjavík er höfuðborg landsins.
En það kemur fleira til. Hér í Reykjavík eru staðsett fjöldamörg fyrirtæki og stofnanir, sem alls ekki eru rekin eingöngu í þjónustu Reykjavíkur eða Reykvíkinga, heldur eru í þjónustu landsins alls. Starfsemi þeirra nær til landsins alls. Meðal slíkra fyrirtækja má nefna skipafélög, heildsölufyrirtæki, útflutningssamtök margs konar, tryggingafélög, verzlunarstofnanir ríkisins og margvísleg fyrirtæki önnur. Og það eitt er víst, að slík fyrirtæki borga marga tugi milljóna í bæjarsjóð Reykjavíkur í útsvörum. Ég held það liggi tölur fyrir um það, hvaða útsvarsupphæð bæjarsjóði Reykjavíkur kemur árlega frá tveimur ríkisstofnunum, sem þarna falla undir, Áfengisverzluninni og Tóbakseinkasölu ríkisins, og ef ég man rétt, þá held ég, að útsvör þessara fyrirtækja tveggja séu 13 millj. kr. (Gripið fram í.) Nú, 11.1 núna. Það er sem sé góður milljónatugur þar, bara frá þessum tveimur fyrirtækjum. Það er hærri útsvarsfúlga en til fellur í kaupstað hv. frsm. meiri hl. af fyrirtækjum og einstaklingum í því álitlega bæjarfélagi. Það munar um slíkt. Það er þetta, sem skapar sérstöðu Reykjavíkur og gerir það að verkum, að það er auðvelt, jafnvel þótt fjármálastjórn borgarinnar sjálfrar væri ekki neitt betri en í öðrum bæjarfélögum, sem hún er heldur ekki, að geta létt þannig á öðrum gjaldendum, að naumast sé fært hinum smærri bæjarfélögum úti um land.
Ég held því fram, að það mæli engin sanngirni með því, að útsvör slíkra stofnana, sem ég hér hef verið að ræða um, eigi að renna til neins eins sveitarfélags, og vitanlega þá sízt af öllu til þess sveitarfélagsins í landinu, sem hefur bezta aðstöðu sökum fjölmennis og margvíslegrar sérstöðu annarrar, m.a. þeirrar, að flestir embættismenn ríkisins eru hér búsettir og að fjöldamörg landsfyrirtæki eru hér staðsett. Og þá blasir sú hugsun eðlilega og beint við, að öll fyrirtæki, sem starfa í þjónustu landsins alls, eigi að greiða landsútsvör, en vera laus við það að greiða sveitarútsvar á þeim stað, þar sem þau eru sjálf staðsett með sínar höfuðbækistöðvar. Og það er till. mín í sambandi við þetta frv., að metin verði jöfnuð milli Reykjavíkur og annarra kaupstaða með því, að öll þau fyrirtæki, þær stofnanir, sem starfa fyrir landið allt, eigi að greiða landsútsvör, en vera laus við greiðslu sveitarútsvars í því sveitarfélagi, þar sem þau eru staðsett. Þegar þetta hefur verið gert, er mér nær að halda, að það væri framkvæmanlegt, sem hv. frsm. meiri hl. lét í veðri vaka að stefnt væri að og þyrfti að vera hægt að framkvæma, þegar aðalendurskoðun útsvarslaganna hefði farið fram, t.d. á næsta ári, að koma saman einum og sama útsvarsstiga fyrir öll bæjarfélögin í landinu.
Ég tel, að þau landsútsvör, sem þannig yrðu á lögð, ef brtt. mín yrði samþ., ættu öllsömun að renna í jöfnunarsjóð sveitarfélaganna og þar ætti að skipta þeim niður á öll sveitarfélög landsins, auðvitað eftir íbúatölu þeirra, þannig að þau fengju öll hlutfallslega sinn skerf af landsútsvörunum. Á þennan hátt teldi ég mjög eðlilegt og sanngjarnt, að aðstaða sveitarfélaganna yrði jöfnuð sem mest fjárhagslega.
En í framhaldi af því, þegar þetta hefði verið gert, þá hefði ég talið langæskilegast, að hinum aldagamla grundvelli um niðurjöfnun útsvara eftir efnum og ástæðum væri síðan haldið, af því að ég tel, eins og ég áður hef sagt, að sveitarstjórnarmenn njóti sín bezt við sín störf og inni þau bezt af hendi, ef þeir hafa sem mest svigrúm og finna þannig, að þeir bera hina fyllstu ábyrgð. Að vísu er það svo, að það má halda því fram, að Reykjavík sé nú orðin svo stór, að niðurjöfnunarnefnd, þótt aldrei nema hún sé skipuð mjög kunnugum mönnum í borginni, þá geti þeir alls ekki haft nægilega nánan persónulegan kunnugleika til þess að geta dæmt svo um hagi manna sem nauðsynlegt sé, ef grundvöllur útsvarsálagningarinnar eigi að vera efni og ástæður gjaldþegnanna. Ég játa, að það gæti í ýmsum tilfellum verið svo, að enginn niðurjöfnunarnefndarmanna hér í Reykjavík hefði þá yfirsýn, að hann vissi um sérástæður, höpp eða óhöpp, sem taka bæri tillit til, ef þetta væri meginreglan hér í Reykjavík. Þess vegna hef ég nú látið mig hafa það, hálfgert þó með samvizkunnar mótmælum, að það yrði þá látið eftir vilja meiri hl. um að lögfesta útsvarsstiga í Reykjavík með tilliti til þessara sérástæðna og svo hins, að þetta vilja þeir endilega hafa, þeir vilja ekki, að niðurjöfnunarnefndin hafi það frjálsræði, sem sveitarstjórnarmönnum hefur verið trúað fyrir um aldir og yfirleitt hefur verið nokkuð almenn ánægja með. En ég vil hins vegar halda því fram, að í öllum kaupstöðum öðrum sé það vorkunnarlaust fyrir niðurjöfnunarnefndarmenn að starfa eftir grundvelli núv. útsvarslaga, að leggja útsvörin á fyrst og fremst eftir efnum og ástæðum, og teldi því rangt að lögfesta útsvarsstiga fyrir aðra kaupstaði landsins og alveg tilefnislaust að gera það fyrir kauptúna- og sveitarhreppana.
Brtt., sem ég flyt á þskj. 500 ásamt Karli Guðjónssyni, eru fyrst og fremst um þetta, að landsútsvör verði lögð á fyrirtæki og stofnanir, sem reka starfsemi, er ná til landsins alls, og að ákvæði frv. um lögfesta útsvarsstiga í öðrum kaupstöðum en Reykjavík og í kauptúnum og sveitarhreppum skuli niður falla.
Þá vil ég þessu næst fara nokkrum orðum um það atriði frv., sem kveður svo á, að leggja skuli ekki aðeins veltuútsvör á samvinnufélög sem önnur viðskiptafyrirtæki, eftir sömu reglum, heldur að veltuútsvörin gildi ekki aðeins um viðskipti samvinnufélaganna við utanfélagsmenn, heldur einnig félagsmennina í samvinnufélögunum. Ég tel það alrangt að leggja sama mælikvarða á samvinnufyrirtæki og einkafyrirtæki. Það er mikill eðlismunur á þessum rekstrarformum, og er hægt að rökstyðja það í löngu máli. En það nægir að benda á þann eðlismun, að samvinnufélögin eru skylduð til þess skv. lögum, skv. ákvæðum samvinnulaganna, að ráðstafa arði, sem myndast vegna viðskiptanna, á aðalfundi, dreifa þannig þeim arði, sem myndast við starfsemi þeirra. Og arðsúthlutunin verður í flestum tilfellum á aðalfundum gerð að samfélagsins eign. Sá hluti af arði, sem myndazt hefur, sem á að verða eign félagsmannanna, fer í stofnsjóð þeirra og er skattlagður þar, skattlagður bæði til tekjuskatts og útsvars, allar stofnsjóðsinnstæður meðlima samvinnufélaganna. Og vitanlega væri alrangt að skattleggja þetta líka hjá fyrirtækinu sjálfu. Í þriðja lagi er það svo alkunnugt, að samvinnufélögin hafa með höndum margvíslega þjónustu fyrir fólkið á sínu félagssvæði, sem þau í sumum tilfellum hafa engar heimildir til að taka gjald fyrir og hafa í öðrum tilfellum ekki aðstöðu til þess. Mikið af verzlun samvinnufélaganna er umboðssala innlendra afurða, og tilhögunin er sú, að framleiðendurnir fá nákvæmlega það verð fyrir vöruna, sem hún gefur, að frádregnum sannanlegum kostnaði við dreifingu og sölumeðferð. En slík viðskipti, sem af þessu leiðir hjá mörgum samvinnufélögum, nema háum upphæðum að því er veltuna snertir, en það er þarna enginn afgangur til til þess að leggja veltuútsvar á og allt öðruvísi farið en hjá einkafyrirtæki, sem ræki verzlun og nyti venjulegs frjálsræðis einkarekstrarins í verzlunarrekstri.
Það er því óneitanlega mikið af starfsemi samvinnufélaganna óarðbær verzlunarrekstur, óarðbær þjónusta fyrir fólkið í byggðarlögunum, og sannanlega í mörgum tilfellum enginn verzlunarlegur hagnaður af þessari starfsemi. Þeir menn, sem neita því að gera greinarmun á samvinnufélagsskap og einkarekstri í verzlun, setja kíkinn fyrir blinda augað og sjá ekki það, sem við blasir öllum heilskyggnum mönnum. Og það er þessi aðferð, sem sýnilega hefur verið viðhöfð af þeim mönnum, sem hafa staðið að því að semja þetta útsvarslagafrv. Þeir sjá engan eðlismun á samvinnufélögum og t.d. verzlunarfyrirtæki í einstaklingseign.
Ég held, að rökin, sem samvinnumenn geta borið fram til þess að sanna það, að rekstri kaupfélaganna er allt annan veg farið en venjulega er í kaupmannaverzlun, komi vel fram í áskorun á Alþingi, sem stjórn Kaupfélags Ísfirðinga sendi hingað í vetur, eftir að útsvarslagafrv. kom fram, og vil ég því, með leyfi hæstv. forseta, leyfa mér að lesa þessa áskorun til þingsins hér upp í heyranda hljóði, — áskorunin er á þessa leið:
„Á fundi sínum hinn 3. apríl 1960 samþ. félagsstjórn Kaupfélags Ísfirðinga á Ísafirði svo hljóðandi áskorun á Alþingi:
Í sambandi við fram komið stjórnarfrv. um breyt. á útsvarslögunum skorar stjórn Kaupfélags Ísfirðinga mjög ákveðið á hv. Alþ. að fella það ákvæði frv., að veltuútsvar verði lagt á viðskipti meðlima kaupfélaganna. Í þessu sambandi vill stjórn Kaupfélags Ísfirðinga benda á þá staðreynd, að samvinnuverzlanir víða um landið þurfa að annast ýmis viðskipti, sem eru nauðsynleg þjónusta fyrir viðkomandi byggðarlög, en eru sannanlega fjárhagslegur baggi fyrir viðkomandi kaupfélög, m.a. sökum ákvarðana ríkisvaldsins í verðlagsmálum, sem engin verzlun í einstaklingseign mundi taka að sér af þeirri ástæðu. Enn fremur er það augljóst mál, að á meðan ekki er stóraukið eftirlit ríkisvaldsins með framtölum verzlunarfyrirtækja í eigu einstaklinga eða hlutafélaga frá því, sem nú er, verður hér fyrst og fremst um að ræða auknar og ósanngjarnar álögur á kaupfélögin, sem lögum samkvæmt eru háð strangri endurskoðun og árlegum aðalfundum.
Stjórn Kaupfélags Ísfirðinga vill benda á það, að ef útsvarsálagning á Ísafirði á s.l. ári hefði verið framkvæmd skv. téðu ákvæði fyrirhugaðrar löggjafar, þá hefði Kaupfélag Ísfirðinga komið til með að greiða í útsvör rösklega helmingi hærri upphæð en þær 14 verzlanir í bænum, sem eru í einstaklingseign, en verzla þó með sams konar vörur, auk þess sem Kaupfélag Ísfirðinga greiðir 40 þús. kr. á ári í samvinnuskatt.
Í stjórn Kaupfélags Ísfirðinga.
Ragnar Ásgeirsson, Björgvin Sighvatsson, Guðmundur Guðmundsson, Stefán Stefánsson, Marías Þ. Guðmundsson.
Til Alþingis, Reykjavík.“
Í viðbót við það, sem ég sagði áðan, en kemur fram í þessu bréfi, — þetta er áskorun til þingsins, — er það augljóst mál, að kaupmaður, sem rekur einkaverzlun, er með því eftirlitsleysi, sem nú er um framtöl slíkra fyrirtækja, nokkurn veginn sjálfráður um það að ákveða sjálfur, hvað hann telur sína veltu hafa verið. En slíkt er ekki á færi kaupfélags. Það verður að skila endurskoðuðum reikningum fyrir sinn aðalfund og er þannig undir opinberri gagnrýni, og við slíkan aðstöðumun yrði þarna framið ranglæti gagnvart samvinnufélögunum með því að skella veltuútsvarsákvæðunum á eins og þau eru í þessu frv.
Á þskj. 500 berum við Karl Guðjónsson fram till. um það, að öll ákvæði í frv. um það, að veltuútsvör skuli lögð á jafnt viðskipti félagsmanna í samvinnufélögunum sem utanfélagsmanna, skuli niður felld og ákvæði frv. verði á þá lund, að veltuútsvar falli einungis á utanfélagsmannaviðskipti samvinnufélaganna eftir sömu reglum og kaupmanna á sama stað. Þá held ég, að þetta yrði fyrst nokkurn veginn réttlátt gagnvart hvorum tveggja aðilanum.
Nú hef ég gert að umtalsefni þá viðleitni, sem mér finnst liggja í þessu frv. til þess að skerða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna, og ákvæðin gagnvart veltuútsvari á samvinnufélögin, jafnt á innanfélagsmannaverzlun sem utanfélagsmannaverzlun, sem ég vil kalla árásina á samvinnufélögin. Og þetta tel ég hvort tveggja af hinu illa. Í þriðja lagi er svo ákvæði í frv., sem hv. frsm. meiri hl. gerði einnig að umtalsefni, og það er í 3. gr. frv. og er um heimild gjaldþegns til þess að draga útsvar fyrra árs frá tekjum sínum, áður en útsvar er á lagt, og því er haldið fram í aths. með frv., að þetta sé mikilsvert atriði með tilliti til innheimtu útsvaranna. Ef svo væri, að þetta væri sett inn í frv. til þess fyrst og fremst að örva skilvísi manna, þá finnst mér, að ákvæðið í þessari mynd nái ekki tilgangi sínum. Þá ættu þeir menn, sem borga skilvíslega mánaðarlega eða a.m.k. reglubundið af sinni útsvarsupphæð, að fá þá upphæð, sem þeir eru búnir að greiða af útsvari fyrra árs skilvíslega, dregna frá. Það er ekki ætlunin hér. Einungis sá maður, sem hefur fulllokið útsvarsgreiðslu sinni, skal fá útsvar fyrra árs dregið frá. En skilamaðurinn, sem er búinn að borga 29 þús. af 30 þús. kr. útsvari, fær enga umbun fyrir sína skilvísi. Ég vil halda því fram, að ef tilgangurinn með þessu ákvæði í frv. væri sá að örva skilvísi manna, umbuna þeim, sem búnir eru að greiða meginþorra síns útsvars, þá eigi það að ná til allra þeirra, sem hafa sýnt skilvísi, þannig að sveitarfélagið hafi notið góðs af því. Ég verð að segja, að hár útsvarsgjaldandi, sem kæmi til gjaldkera sveitarfélagsins á gamlársdag með sínar 30 þús. kr. og fengi þannig sína útsvarsupphæð dregna frá við útsvarsálagningu næsta árs, er ekki meiri skilamaður eða hefur ekki gert sveitarfélagi sínu meiri greiða en maðurinn, sem hefur smátt og smátt greitt meginþorra síns útsvars og sveitarfélagið hefur þannig fengið það í kassann eftir hendinni yfir allt árið. Hinn síðarnefndi hefur haft sína peninga í eigin veltu og vörzlu fram á síðasta dag ársins, en hann fær það frádregið. Nei, ég held líka, að það sé auðséð, að þetta er ekki megintilgangurinn með ákvæðinu. Megintilgangurinn er sá, að háir útsvarsgreiðendur skulu fá útsvarsfríðindi. Það er augljóst mál, að maður, sem hefur 30 þúsund króna útsvar í fyrra og hefur greitt það nú fyrir 1. maí og framvegis fyrir áramót, hann fær umtalsverða útsvarslækkun, þ.e.a.s. hátekjumennirnir fá, með því að hafa greitt útsvar sitt fyrir áramót, mjög mikla lækkun á útsvari sínu næsta ár á eftir. En lágtekjumennirnir, sem hafa skilvíslega borgað þá útsvarsupphæð, sem þeim ber, fá enga ívilnun, sem um munar. Ákvæðið kæmi því hátekjumönnum fyrst og fremst til góða og mundi í ýmsum tilfellum valda því, að hátekjumennirnir fengju útsvarsbyrði, sem væri hlutfallslega léttari en á lágtekjumönnunum. Ég efast um, að stighækkun skalans næði á nokkurn hátt til slíks hátekjumanns, sem hefði fengið 30 þús. kr. útsvar ársins á undan dregið frá og þannig ákveðið miklu lægra útsvar. Ég gæti ímyndað mér, að hann væri kominn með útsvar eftir lægri skala en ýmsir lágtekjumennirnir í viðkomandi sveitarfélagi. Og það hefur þó verið talið nokkurn veginn réttmætt, það hefur verið viðurkennt sem réttmætt, að útsvarsstigar ættu að vera stighækkandi, því hærri sem tekjurnar væru, því hærri upphæð hlutfallslega væri réttmætt að menn greiddu í sveitarsjóðinn.
Ég held það sé þessi fiskur, sem liggur undir steini með ákvæðinu um heimildina til að draga útsvör frá, ef þau væru að fullu greidd fyrir áramót. Og þá verða þau eingöngu til ívilnunar fyrir hátekjumennina.
Það kemur fram í aths. með frv., að útsvörin í Reykjavík mundu lækka um 19–20% við þetta ákvæði, að menn mega draga útsvar frá, ef það er greitt fyrir áramót. Það er ekkert lítið. Og þessarar lækkunar á allt að fimmta hluta af heildarupphæð útsvaranna í Reykjavík njóta hverjir? Alveg augljóslega hátekjumennirnir í Reykjavíkurborg að langmestu leyti. En þá kemur annað, og það er það: það verður ekki einungis þannig, að lágtekjumennirnir með lágu útsvörin njóti ekki góðs af þessu sem neinu nemur, heldur verður það til þess að hækka á þeim útsvörin, því þegar búið er að lækka á hátekjumönnunum, þannig að heildarútsvarsupphæðin lækkar um 20%, þá þarf að hækka á lægri gjaldendunum sem því svarar og færa þannig til frá hátekjumönnunum og yfir á lágtekjumennina. Og þetta veldur þannig gífurlega mikilli tilfærslu á útsvarsbyrðunum af þeim með breiðu bökin yfir á þá máttarminni, með veikari bökin. Og það er þessi tilhneiging í frv., sem ég verð að lýsa mig algerlega andvígan ásamt mörgu öðru.
Í þessu atriði einu liggur sem sé tilhneiging til tilfærslu útsvarsbyrðarinnar af hátekjumönnunum og yfir á mennina með lágar tekjur og miðlungstekjur.
Ég var farinn að halda, að stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. mundu ætla að hverfa frá því að knýja þetta frv. fram á þessu þingi. Þetta er, eins og í heiti frv. segir: Bráðabirgðabreyting á lögum um útsvör. Og það stendur fyrir dyrum sem sé að gera gagngerðar breytingar á útsvarslöggjöfinni og um það rætt í athugasemdum með frv., að þeirri víðtæku endurskoðun verði sennilega lokið á næsta ári. Ég fellst því ekki á, að það sé nokkur minnsta ástæða til þess að vera að knýja þetta frv. í gegnum þingið nú, allt of vanhugsað, áreiðanlega þannig úr garði gert, að það skapar óánægju og vekur andspyrnu sveitarstjórnarmanna víðs vegar um land, og það verður ekki hægt að mæla gegn því, að gjaldendur eru beittir misrétti um útsvarsgreiðslur eftir því, hvar þeir eru búsettir á landinu, þegar búið er að lögfesta þessa 3 útsvarsstiga. Ég held það væri því að öllu leyti affarasælla fyrir hæstv. ríkisstj. og hennar flokka að hætta við afgreiðslu þessa máls nú og láta það bíða, þangað til þeir hafa haft tóm og tíma til að endurskoða útsvarslöggjöfina gagngert. Það er ekkert, sem stendur í vegi fyrir því, að það sé hægt að leggja á útsvörin á grundvelli núgildandi útsvarslaga, eftir efnum og ástæðum, með útsvarsstiga, sem hver niðurjöfnunarnefnd eða sveitarstjórn hefur búið út sér í hendur til þess að hafa til hliðsjónar. Og þannig teldi ég, að það ætti að vera, þangað til þessari vandlegu endurskoðun, sem nú er yfirstandandi, væri lokið.
Ég get því lýst því yfir, að ég er fylgjandi því, að málinu verði nú vísað frá með rökstuddri dagskrá, eins og fram kemur á nál. hv. 2. minni hl. Ég teldi það ákaflega eðlilegt, að svona stórmál, sem snerti svo mjög bæði fjárhagsafkomu og sjálfsákvörðunarrétt sveitarstjórnanna í landinu, væri ekki knúið í gegnum Alþingi, fyrr en það hefði verið sent til umsagnar öllum sveitarstjórnum landsins, og að aðalendurskoðunin færi þá fyrst fram, þegar svör hefðu borizt frá sveitarstjórnarmönnunum.
Nú liggur það fyrir, að stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga hefur lýst yfir megnri óánægju með ýmis meginatriði þessa frv., og það mundi hún varla gera að óathuguðu máli. Ég hygg, að þessi óánægja stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga sé nokkurn veginn spegilmynd af því, að sveitarstjórnirnar í landinu, sveitarstjórnarmennirnir í landinu eru síður en svo ánægðir með þessa breytingu. Og ég fæ ekki séð, að málinu liggi svo mikið á, að ekki megi leita eftir skoðunum hinna reyndu sveitarstjórnarmanna víðs vegar um landið.
En fari svo, að hin rökstudda dagskrá, sem hv. 2. minni hl. ber fram, verði felld, þá mundi ég vilja freista þess að fá fram ýmsar breyt. á frv. og þá fyrst og fremst þessar: Að landsútsvör verði á lögð og þannig jöfnuð metin milli bæjarfélaganna í landinu. Að ákvæðið um frádrátt útsvars, sé það greitt fyrir áramót, sé fellt niður, af því að það mismunar gjaldþegnunum, kemur til með að létta útsvarsbyrðar á hátekjumönnum og ekki aðeins að koma að litlu eða engu gagni fyrir lágtekjumennina, heldur til þess að þyngja útsvörin á þeim, því að þau verður að þyngja, þegar þau lækka á hátekjumönnunum, til þess að sömu heildarútsvarsupphæð verði náð. Og í þriðja lagi að nema í burtu úr frv. öll ákvæði, sem ætlast til þess, að veltuútsvör séu lögð á félagsmannaverzlun samvinnufélaga. Ég er andvígur því, að veltuútsvörin nái til annarra viðskipta samvinnufélaganna en þeirra, sem fram fara við utanfélagsmenn. En að því er þau viðskipti snertir, tel ég alveg sjálfsagt, að þau séu útsvarsskyld á sama hátt og hjá kaupmönnum, eigendum einkafyrirtækja, því að þau viðskipti samvinnufélaganna eru sama eðlis, en félagsmannaviðskiptin ekki.
Nokkrar fleiri smávægilegar breytingar felast í brtt. mínum á þskj. 503, en ég vil láta hér staðar numið.
Ég vil að síðustu taka fram, að ég vildi helzt, að þetta frv. yrði sent til umsagnar sveitarstjórnarmönnum og þannig ekki afgr. á þessu þingi, látið bíða þess, að vilji sveitarstjórnarmannanna lægi fyrir um það, í hvaða átt þeir telji nauðsynlegt og æskilegt að breyta útsvarslöggjöfinni í landinu, og að hin varanlega vandlega endurskoðun fari þá fyrst fram, þegar svör sveitarstjórnarmannanna hafa fengizt. En það yrði auðvitað að bíða næsta þings, og ég sé ekki, að nokkur gild rök hnígi að því, að þessi breyting á útsvarslögunum mætti ekki bíða til næsta þings.