25.05.1960
Neðri deild: 88. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2843 í B-deild Alþingistíðinda. (1066)
112. mál, útsvör
Frsm. 2. minni hl. (Jón Skaftason):
Herra forseti. Í umr. þeim, sem orðið hafa um útsvarsfrv. í gær og í dag, hefur lítið nýtt upplýsist um hin mörgu vafaatriði, sem í frv. er að finna og um var spurt í gær af mér o.fl. Engin rök hefur heldur verið komið fram með fyrir þeirri ákvörðun að rífa útsvarsþáttinn út úr þeirri heildarendurskoðun, sem nú fer fram á tekjustofnum sveitarfélaganna.
Frsm. meiri hl. heilbr.- og félmn., hv. 3. þm. Sunnl., margendurtók það í ræðu sinni í gær, að frv. það, sem við erum að ræða í hv. d., væri aðeins bráðabirgðafrv., tími hefði ekki enn þá unnizt til þess að undirbúa heildarreglur um veltuútsvör, sagði hann, tími ekki unnizt til þess að kynna sér nægilega vel hina ýmsu útsvarsstiga, sem í gildi hafa verið, og álagningarreglur, sem verið hafa í sveitarfélögunum á undanförnum árum, o.fl., o.fl. í sama dúr. Ræða hans í gær var í megindráttum einn samfelldur afsökunaróður — með tilbrigðum þó — fyrir þeim vinnubrögðum, sem hér á að viðhafa í þessu máli.
Hv. þm, sagði m.a. í gær, að eðlilegt væri og sanngjarnt, að samvinnufélög greiddu útsvör eftir sömu reglum og aðrir aðilar, sem svipaðan rekstur hefðu, þau nytu sömu eða svipaðrar fyrirgreiðslu af hálfu sveitarfélaganna og aðrir aðilar, götur væru gerðar fyrir þau, rafmagn og vatn tengt við fyrirtæki þeirra. Þessi yfirlýsing hv. þm. er mjög einkennandi fyrir þann háværa áróður, sem mikill holtónn er þó venjulegast i, sem notaður hefur verið að undanförnu og haldið uppi af andstæðingum samvinnufélaganna. Hér er nefnilega algerlega litið fram hjá kjarna málsins. Ef samvinnuaðili t.d. rekur verzlun í einu bæjarfélagi og kaupmaður sömuleiðis á sama stað og þeir verzla báðir með sömu vöruna, þá telja þessir menn, að þetta tvennt sé alveg sambærilegt. Ef sláturhús samvinnumanna fyrirfinnst á einum stað og sláturhús í einkaeign líka, þá eru þetta taldir sambærilegir aðilar skattalega séð. Á hitt er ekki lítið eða minnzt, sem þó hlýtur að skipta meginmáli, að eðli þessa rekstrar er gerólíkt. Þótt samvinnuaðilinn endurgreiði sannarlega allan hagnað af rekstrinum til félagsmanna, en hinn aðilinn taki allan ágóðann til sín sem gróða, þá skiptir það þá engu. Hér á að lögleiða reglur, sem ákveða, að veltuútsvör skuli lögð eftir sömu reglum á báða þessa aðila þrátt fyrir þennan meginmun á tilganginum með rekstri þeirra. Það er eðlilegt, að samvinnufyrirtækin greiði til þeirra sveitarfélaga, sem þau starfa í, eitthvert gjald fyrir aðstöðu þá, sem þau þar njóta óneitanlega og bæjarfélagið kostar. Það hafa samvinnufélögin líka gert umfram aðra, þar sem samvinnuskatturinn er. Hvort hann er nógu hár til þess að standa undir þeim kostnaði, sem bæjarfélögin verða að láta af hendi til þess að búa fyrirtækjunum rekstrarskilyrði, það verður svo aftur annað mál. Ég er ekki neinn talsmaður skattfríðinda til handa samvinnurekstrinum í landinu. Þar tel ég, að allir, sem sambærilegir eru, eigi að sitja við nákvæmlega sama borð. Ég fæ ekki heldur séð, að sá árangur, sem samvinnufyrirtækin hafa náð í viðskiptalífinu á undanförnum árum, sé fenginn vegna sérréttinda þeirra á sviði skatta- og útsvarsmála. Samvinnutryggingar t.d., sem á örfáum árum hafa orðið stærsta tryggingafélag landsins, hafa verið skattlagðar og útsvarslagðar eins og um hlutafélag væri að ræða. Skipadeild Sambands ísi. samvinnufélaga, sem nú er orðin eigandi að stærsta skipaflota í eigu íslenzks aðila, hefur goldið há útsvör og skatta til ríkis og bæja á undanförnum árum. En Eimskipafélag Íslands, sem er langtum eldra félag, hefur notið algerra skatt- og útsvarsfríðinda allt til ársins 1955. Útflutningsdeild Sambands ísl. samvinnufélaga hefur greitt skatta og útsvör á undanförnum árum, en Sölusamband ísl. fiskframleiðenda hefur verið skatt- og útsvarsfrjálst. Innflutningsdeild Sambands ísl. samvinnufélaga hefur sömuleiðis greitt skatta og útsvör á undanförnum árum, en Impuni, innflutningssamband heildsala, hefur verið skatt- og útsvarsfrjálst. Þessi dæmi ættu að nægja til þess að sanna haldleysi þeirrar kenningar, að árangur sá, sem samvinnusamtökin hafa náð í viðskiptalífinu, sé að þakka einhverjum sérstökum skattfríðindum, sem þau hafi notið á undanförnum árum.
Þá bar mjög á því sjónarmiði í ræðu hv. þm., sem ég hef leyft mér að kalla sveitarstjórnarsjónarmið, sem er ekki óeðlilegt, þar sem hann er bæjarstjóri í einum af stærri kaupstöðum þessa lands. Ég hef orðið var við þetta sama sjónarmið hjá mörgum þm., sem ég hef rætt við um þessi mál, að þeir hafa haldið því fram, að útsvarsstigarnir í þeirra sveitarfélögum þyrftu að vera hærri en þeir eru í Reykjavík. Ég skal ekki neita því, að svo sé ástatt um mörg sveitarfélaganna. En ályktanirnar, sem þessir ágætu menn draga af þessari staðreynd, eru harla einkennilegar og óraunsæjar. Öllum þeim mönnum, sem þekkja til þessara mála, er ljós orsök þessa, en hún er að sjálfsögðu sú, að gjaldþol gjaldenda í þessum sveitarfélögum, sem eiga við fjárskort að stríða, er ekkert sambærilegt við gjaldþol t.d. gjaldenda í Reykjavík. Hér í Reykjavík eru, eins og áður hefur komið fram, ríkiseinkasölur yfirleitt staðsettar, t.d. áfengissalan og tóbakseinkasalan, sem guldu í bæjarsjóð Reykjavíkur á s.l. ári 11.1 millj. í útsvar, og hér eru líka staðsett heildsölufyrirtæki, skipafélög, starfsmenn ríkisins og ríkisstofnana, og þessir aðilar greiða allir há útsvör í bæjarsjóð Reykjavíkur. En öllum er þeim það sameiginlegt, að þeir inna af höndum þjónustu, sem er fyrir landið allt. Það er þetta, sem gerir það að verkum, að í Reykjavík og ýmsum öðrum sveitarfélögum, sem hafa innan sinna vébanda stóra viðskiptaaðila, sem hafa viðskiptasvæði, sem nær yfir þrjár sýslur, er hægt að búa við lægri útsvarsstiga en hægt er að gera víða annars staðar. En hvaða vit er það hjá þessum forustumönnum sveitarfélaganna, sem fé skortir, að vilja fara þá leið út úr þessum vanda að leggja hærri útsvör á einstaklinga og atvinnurekstur hjá sér heldur en er í þeim sveitarfélögum, sem þessarar sérstöðu njóta? Þar eru yfirleitt gjaldendur miklu tekjulægri og yfirleitt fátækari, og hvaða réttlæti er í því, að þeir menn, sem eru tekjulægri og hafa alla vega minna gjaldþol, séu skattlagðir meira í sínum sveitarfélögum en hefði verið gert, ef þeir hefðu t.d. átt heimilisfestu hér í Reykjavík? Slík afstaða hlýtur að enda með ósköpum, enda er fyrir því nokkur reynsla. Þeir eru ekki fáir, atvinnurekendurnir, sem flúið hafa byggðarlög sín af þessari ástæðu, og enginn komið í staðinn til þess að standa undir þeim gjöldum, sem sveitarfélagið óneitanlega hefur orðið að leggja á. Einasta leiðin út úr þessu öngþveiti er auðvitað sú að taka til algerrar endurskoðunar löggjöfina um tekjustofna sveitarfélaganna. Og að því eiga þessir ágætu menn, bæjarstjórar og sveitarstjórar, að einbeita sér. Þeir eiga að beita krafti sínum til þess að knýja þá endurskoðun fram sem fyrst, því að það er eina leiðin, sem getur bætt úr þessu. Það að ætla að fara að skattleggja gjaldendur í sínum sveitarfélögum umfram það, sem þeir eru skattlagðir hér í Reykjavík, er hrein endileysa og hlýtur að enda með ósköpum.
Hv. 3. þm. Sunnl. sagði, að samkv. frv. um bráðabirgðabreyt. á l. um útsvör væri sveitarfélögunum heimilt að velja á milli allra þeirra stiga, sem í frv. væru. Þetta er nú að vísu ekki nema hálfur sannleikur. Hrepparnir mega að vísu velja um kaupstaðastigann og Reykjavíkurstigann og kaupstaðirnir mega fara upp í Reykjavíkurstigann, þannig að valið upp á við má segja að sé frjálst. En hina leiðina má ekki velja. Reykjavík getur ekki farið í kaupstaðastigann og kaupstaðirnir ekki í hreppastigann. Auk þess get ég ómögulega fengið inn í mitt höfuð annað en það, að í l. mgr. 9. gr. frv., eins og það liggur nú fyrir eftir 2. umr., sé lagt bann við því, að bæjarfélög utan Reykjavíkur geti notað veltustigann, sem þar er, og m.a. þá notið þeirra frádráttarliða, sem í veltustiga Reykjavíkur eru. Ég hygg, að öllum, sem lesa frv., hljóti að vera þetta ljóst, og ég hélt, að þessu mundi verða breytt, af því að mér skildist á hv. 3. þm. Sunnl., þegar við ræddum þetta atriði í heilbr.- og félmn., að þetta mundi vera misskilningur hjá mér. En ég skil frv. a.m.k. þannig.
Hv. þm. sagði einnig, að hann teldi æskilegast, að einn útsvarsstigi gilti í öllum kaupstöðunum. Það er eðlilegt, og mér skildist, að hann meinti þá Reykjavíkurstigann. En ég er sannfærður um það, eins og frv., sem við erum nú að ræða, ber raunar með sér, að þetta er ekki hægt nema samfara mikilli breyt. á löggjöfinni um tekjustofna sveitarfélaganna, alveg eins og mér er það fyllilega ljóst, að afnám veltuútsvarsins eins og út af fyrir sig er ekki hægt að framkvæma, nema löggjöfin um tekjustofna sveitarfélaganna sé öll tekin samtímis til endurskoðunar. Ef á að lögbjóða, að bæjarfélög utan Reykjavíkur verði að nota Reykjavíkurstigann án þess að breyta nokkru öðru, þá þýðir það, að í þeim bæjarfélögum verður ekki hægt að halda uppi framkvæmdum í neitt nándar nærri svipuðum mæli og nú er gert í Reykjavík. Ég rakti hér í gær dæmið um útsvörin í Kópavogi og Reykjavík 4 seinustu árin, eða frá 1957 til 1960, og sýndi fram á það með tölum, að Reykjavíkurbær hefur í tekjur af útsvörum helmingi meira á íbúa en við í Kópavogi höfum. Þar af leiðandi getur Reykjavíkurbær gert næstum helmingi meira fyrir sitt fólk en við getum framkvæmt í Kópavogi. Þess vegna er það út í bláinn að mínu viti að halda, að hægt sé að lögbjóða Reykjavíkurstigann fyrir aðra kaupstaði, nema samtímis fari fram endurskoðun á löggjöfinni um tekjustofna sveitarfélaganna, eins og nú er að unnið.
Hv. þm. sagði enn fremur, þóttist hafa það eftir mér, að ég hefði sagt í gær, að lögbjóða ætti veltuútsvör. Ég minnist ekki þess að hafa sagt það. Ég hygg, að ég hafi talað um, að lögbjóða ætti heimild til álagningar veltuútsvara, sem hefði ekki áður verið í lögum, en helgast af ákvæðunum um álagningu eftir efnum og ástæðum í 4. gr. laga frá 1945. Hv. þm. sagði líka, að öllum sveitarfélögum væri í sjálfsvald sett, hvað þau notuðu af veltuprósentum, sem ætti að heimila. Ég hygg, að hv. þm. sé alveg fullvel um það kunnugt, að öll sveitarfélaganna — eða a.m.k. langflest — munu fara í hámark þeirrar löglegu prósentu, strax eftir að frv. er orðið að lögum. Veltuprósentan og stigarnir eru nefnilega samdir miðað við ástand þessara mála, eins og það er í dag, og miðað við þá tekjuþörf, sem sveitarfélögin telja sig þurfa að fullnægja. Og það er gefið mál, að sveitarfélögin flestöll hafa ekki nokkrar leiðir til þess að innheimta það, sem þau þurfa af fjármagni á hverju ári, með því að leggja á tekjur einar og eignir. Þau verða að nota veltuprósentuna, eins háa og lög frekast leyfa, þar sem aðrar tekjur hrökkva ekki til til þess að gefa nægilegar tekjur.
Þá talaði hann einnig um, að eðlilegt væri — eða ég skildi hann þannig — heimildarákvæðið í 3. gr. frv. um, að hreppsnefndir og niðurjöfnunarnefndir mættu taka framtöl, sem skattstjórar og skattanefndir hafa venjulega rannsakað mjög náið, og fara með þau eins og einskisverð plögg. Ég tel þetta algera óhæfu. Sannleikurinn er sá, að krítíska endurskoðunin á framtölum fer yfirleitt fram hjá skattstjórunum, og ég þykist þekkja svo mikið til þessara mála, að ég megi leyfa mér að fullyrða, að sú vinna, sem niðurjöfnunarnefndirnar leggja í það að gagnrýna framtöl, sé ekki neitt sambærileg við það, sem skattstjórarnir gera, af eðlilegum ástæðum. Niðurjöfnunarnefndirnar eiga samkv. lögum að byggja mjög á verkum skattstjóranna í sambandi við álagningu útsvara. Þessi heimildarákvæði tel ég því að nái engri átt, svo rúm eins og þau eru. Þau gefa hreppsnefndum og niðurjöfnunarnefndum óeðlilega mikið vald. Þær gefa þeim t.d. vald til þess að strika út í einu lagi allar fyrningarafskriftir hjá fyrirtækjum, og það er ekkert aðhald um það, að þær geti ekki beitt því eftir því, hvernig hugur þeirra stendur til viðkomandi aðila. Þær geta leyft einum að telja fram fullar afskriftir, þó að þær banni öðrum að gera það. Það er ekki heldur rétt hjá hv. þm., að það sé krafizt fullkominna sannana hjá yfirskattanefndum og ríkisskattanefnd fyrir þeim breyt., sem niðurjöfnunarnefndir kunna að gera á framtölum. Framkvæmdin hefur sýnt annað í mörgum tilfellum. Mér er það kunnugt, ég hef unnið hjá t.d. ríkisskattanefnd. Í mörgum tilfellum hafa þar verið — og eins hjá yfirskattanefndum –staðfestar áætlanir, sem hafa þótt sanngjarnar, en engan veginn færðar fullar sönnur á, t.d. ef maður leggur svipaðan skilning í orðið sönnur og gert er fyrir dómstólunum. Þar eru kröfurnar allt aðrar og miklu slakari. Skattayfirvöld hafa nefnilega — yfirskattanefnd og ríkisskattanefnd — verulega rúmt vald til þess að meta og vega þær breytingar, sem niðurjöfnunarnefndir kunna að gera á framtölunum.
Um veltuútsvörin vildi ég aðeins bæta örfáum orðum við það, sem ég hef áður sagt og ég held að hafi ekki verið mikið rætt hér við þessar umr., en það er það öryggisleysi, sem heimildin til álagningar veltuútsvara hefur á allan rekstur í landinu. Sannleikurinn er sá, að ef það á að vera heimilt, að niðurjöfnunarnefndir geti ári síðar ákveðið, að þessi og þessi rekstur skuli bera 3% veltugjald, sem kannske var árið áður 1%, eða fari jafnvel upp í 5%, eins og dæmi eru til, þá er um óþolandi öryggisleysi að ræða. Einu sinni var lagt á Hamrafellið, rekstur þess, 5% veltugjald í Reykjavík, hækkað í einu um að ég held 2 eða 3%. Þessi óvissa er óþolandi fyrir allan rekstur í landinu, Það er ekki hægt að gera neinar áætlanir með fullri vissu um, að þær standist, fyrir fram, ef sveitarfélögunum á að vera heimilt að ákveða eftir á, að þetta og þetta mikið skuli tekið í veltuútsvör af rekstri fyrirtækja.
Ég bar fram hér nokkrar fsp. í gær, þegar við ræddum þetta frv. við 2. umr. Ég innti m.a. þá eftir því, hver væri velta umboðssölufyrirtækja. Ég spurði einnig um það að gefnu tilefni v egna þeirra undanþáguákvæða, sem sláturhús og mjólkurbú eiga að hafa frá greiðslu veltuútsvara, þá spurði ég um það, hver væri velta þessara aðila. Við þessum spurningum og fleiri hefur ekkert svar fengizt. Ég vildi því leyfa mér að ítreka enn þá einu sinni þessar fsp. mínar og vonast til þess, að hv. frsm, heilbr.- og félmn. telji sér fært að svara þeim hér á eftir.
Ég vil þá að síðustu víkja að einu atriði í ræðu hv. síðasta ræðumanns, 3. þm. Reykv. (EOI), sem raunar hv. 4. landsk. þm. (HV) kom líka inn á í gær, þar sem ég er þeim ekki sammála. Þeir hafa talað um það, að samræming stiga og það að lögbjóða stiga, fáa stiga, það væri óeðlileg árás á sjálfstæði sveitarfélaganna, eins og þeir hafa kallað það, og farið um þetta mörgum orðum. Fyrir mér lítur dæmið hins vegar dálítið öðruvísi út. Í fyrsta lagi: Menn verða að gera það upp við sig í eitt skipti fyrir öll, hvort það verði talið réttmætt, að menn greiði misjöfn útsvör eftir því, hvar þeir eru staðsettir í landinu, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir. Báðir þessir þm. hafa mótmælt þessu kröftuglega, og er ég þeim að því leyti algerlega sammála. Þeir hafa talið það óhæfu að byrja útsvarsstigann á 7000 kr. í sveitahreppum, en í 25 þús. kr. í Reykjavík. Og þeir hafa báðir tveir talið það óhæfu, að menn greiddu mishá útsvör af sömu tekjum eftir því, hvar þeir væru búsettir. Nú er það staðreynd, að ef menn eru á því, að þetta sé óhæfa, þá er aðeins ein leið til þess að tryggja, að þetta verði ekki gert áfram, og hún er sú að lögbjóða einn og sama útsvars- og skattstiga fyrir allt landið. Það er nefnilega ekki hægt að gera hvort tveggja í senn að segja, að sveitarfélögin skuli algerlega vera sjálfráð um það, hvað þau leggja á og hvaða útsvarsstiga þau noti, og samtímis segja, að útsvörin skuli vera þau sömu um allt land.
Hv. 3. þm. Reykv. vék líka að því áðan, að hann harmaði, að nú ætti að hverfa frá ákvæðinu um álagningu eftir efnum og ástæðum, eins og gert hefur verið hingað til. Ég harma þetta ekki. Sannleikurinn er sá, að vegna breytinga á þjóðlífi okkar Íslendinga er þetta ákvæði að verða óframkvæmanlegt, t.d. í Reykjavík, þar sem fjölmennið er orðið eins mikið og raun ber vitni um. Þar er það óframkvæmanlegt vegna þeirrar vélanotkunar, sem nú er notuð í sambandi við útreikning skatta og útsvara í Reykjavík. í stærri bæjarfélögunum er þessi regla líka að verða ónothæf. Auk þess er hægt að tryggja þessi sjónarmið, efna- og ástæðusjónaxmiðin, eftir öðrum leiðum. Það er hægt að lögbjóða skattstiga og hafa, eins og t.d. hér í frv., ákvæði um sérstakar ívilnanir, sem hægt er að finna út, eftir að búið er að leggja á eftir hinum lögboðnu stigum. Þetta er auðvelt, Öryggisleysið, sem þessi álagningarregla um efni og ástæður hafði í för með sér, var orðið algerlega óþolandi, og ég man ekki betur en einmitt blað þessara hv. þm. hafi á s.l. ári skrifað mjög um þá óhæfu, sem þá var sögð að hefði átt sér stað hér í Reykjavík í sambandi við útsvarsálagningu, að ýmsum mönnum, gjaldendum, sem voru inn undir hjá ráðandi bæjarstjórnarmeirihluta, hafi verið svo og svo mikið ívilnað um útsvör. Reglan um efni og ástæður býður slíkum ívilnunum heim.
Þá sagði 3. þm. Reykv., sem fyrr segir, að óhæfa væri í því að lögbjóða einn stiga eða fáa stiga fyrir landið, það væri óverjandi árás á sjálfstæði sveitarfélaganna. Mín skoðun er sú, að það aðhald, sem sveitarfélög fengju með því að lögbjóða einn stiga í landinu, eftir að löggjöfinni um skatta og útsvör hefði verið breytt, mundi vera aðhald, sem fæstar sveitarstjórnir mundu gráta, þegar fram í sækti. Ég veit ekki betur en það sé ein af meginkenningum sósíalista, hvar sem er í heiminum, að sjálfstæði einstaklinga eða sveitarfélaga, — það á alveg eins við um sveitarfélög, — án fjárhagslegs sjálfstæðis sé ákaflega lítils virði. Við óbreytta tekjulöggjöf sveitarfélaga og óbreytta skatta er það sjálfstæði, sem sveitarfélögunum sumum hverjum er ætlað, svipað frelsi einstaklingsins, sem hefur ekki peninga til þess að kaup sér mat fyrir næsta dag, og mér skilst á sósíalistum yfirleitt, að þeir telji það frelsi ákaflega lítils virði. Ég er sannfærður um, að sú skipan, sem á eftir að sigra hér á Íslandi í sambandi við skattamál og útsvarsmál, er sú, að þessi gjöld hvor tveggja verða sameinuð og lögð á í einu og þeim skipt á milli ríkisins og sveitarfélaganna. Sú skipan hefur marga og óumdeilanlega kosti yfir þá tvískiptingu, sem nú er í þessu, og hún ein getur tryggt það, að sveitarfélög, fámenn sveitarfélög og sveitarfélög, sem hafa ekki stórar viðskiptamiðstöðvar innan sinna vébanda, geti nokkurn veginn komizt af eins og þau, sem hafa þessa stóru viðskiptaaðila innan sinna vébanda. Ég er því sannfærður um, að því fyrr sem menn komast út úr þeim vítahring, sem við erum nú í í sambandi við tekjustofna sveitarfélaganna og skattamálin, því betra.
Ég vil að endingu aðeins segja það, að við þær umr., sem hér hafa orðið um frv. til l. um bráðabirgðabreyt. á útsvarslögum, hafi svo lítið nýtt verið upplýst af hálfu ríkisstjórnarflokkanna, að tæpast sé verjanlegt að afgreiða málið úr þessari deild, án þess að gerð sé tilraun til þess af hálfu þeirra að svara ýmsum þeim fsp, og svara að einhverju leyti þeirri gagnrýni, rökstuddu gagnrýni í mörgum tilfellum, sem hér hefur fram komið. Ég vil því vænta þess, að frsm. heilbr.- og félmn. tali hér á eftir og svari þá m.a. þeim af fsp., sem ég hef nú tvisvar sinnum borið upp, en ekki fengið svar við enn þá.