04.12.1959
Neðri deild: 12. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í B-deild Alþingistíðinda. (108)

16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960

Fjmrh. ( Gunnar Thoroddsen ):

Herra forseti. Varnir hv. þm. eru aðeins tvær. Önnur er sú, að það hafi ekki verið honum að kenna, að fjárlagafrv. væri rúma 4 mánuði í n, árið 1956–57, heldur hafi aðrir borið þar sök á og þá fyrst og fremst fjmrh., sem hann studdi þá, núv. 1. þm. Austf. (EystJ). Það má vel vera rétt, enda tók ég það fram í ræðu minni, að hann væri þar auðvitað samábyrgur.

Varðandi það, að fjárlög hafi verið afgreidd seint eða ekki fyrr en í aprílmánuði nú á yfirstandandi ári og að þá hafi setíð stjórn, sem hann hafi ekki átt þátt í eða ekki stutt, þá vil ég minna á það, að á síðasta þingi voru auðvitað sérstakar ástæður, þar sem stjórn hrökklast frá völdum í miðju kafi, eftir að fjárlagafrv. er búið að liggja á annan mánuð í fjvn., og því auðvitað nokkuð eðlileg vinnubrögð, að undir slíkum kringumstæðum taki það lengri tíma.

Ég hef ekki út af fyrir sig verið með ádeilur og ég hef ekki að fyrra bragði haft neinar ádeilur á hv. 6. þm. Sunnl. fyrir vinnubrögð fjvn. undir hans forustu. Ég hef aðeins bent honum á það, að honum farist manna sízt að vera með ádeilur hér á vinnubrögð í þessum efnum, í sambandi við afgreiðslu fjárlaga, því að ég tel, að þeir eigi að forðast að kasta grjóti, sem í glerhúsi búa.