03.06.1960
Efri deild: 93. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2929 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)

112. mál, útsvör

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Að sjálfsögðu er til þess ætlazt hér eftir eins og áður, að niðurjöfnunarnefndir og hreppsnefndir hafi aðgang að plöggum og upplýsingum skattanefnda. Varðandi það, hvernig eyðublöð verða útbúin í þessu sambandi, skal ég ósagt láta hér, en félmrn., sem fer með þessi mál, mun að sjálfsögðu ganga frá því á viðunandi hátt.

Varðandi hitt atriðið, að sá tími sé liðinn, sem í lögum er ákveðinn um það, hvenær jafna skuli niður útsvörum, er því til að svara, að um margra ára skeið hefur það ákvæði ekki verið tekið bókstaflega, heldur hefur það um langan aldur tíðkazt, að bæði niðurjöfnunarnefndir í kaupstöðum og hreppsnefndir í sveitum hafa jafnað niður alllöngum tíma eftir að þessi lögmælti frestur er útrunninn, og hefur ekki verið fengizt um slíkt. Ég ætla, að almennt þurfi niðurjöfnun ekki að verða miklu seinna á ferðinni nú en tíðkazt hefur undanfarin ár.