16.05.1960
Neðri deild: 82. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2930 í B-deild Alþingistíðinda. (1104)

162. mál, verðlagsmál

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ákvæði þessa frv. eru í öllum meginatriðum samhljóða þeim ákvæðum, sem eru í gildandi lögum um verðlagseftirlit og verðlagsákvarðanir.

Þegar flutt var frv. um skipan gjaldeyris- og innflutningsmála, voru ekki tekin í það frv. ákvæði gildandi laga um verðlagsmál, heldur þótti ríkisstj. rétt að flytja um það mál sérstakt frv., enda eru rökin, sem á sínum tíma voru fyrir því að sameina ákvæði laga um gjaldeyris- og innflutningsmál og verðlagsmál, nú fallin burt, en meginrökin fyrir því voru þau, að á sínum tíma var sömu stofnuninni, innflutningsskrifstofunni, falið að fara með yfirstjórn innflutnings- og gjaldeyrismála annars vegar og verðlagsmála hins vegar. Þegar sú stofnun, innflutningsskrifstofan, er nú lögð niður og stjórn innflutningsmálanna er fengin í hendur gjaldeyrisbönkunum, ber að sjálfsögðu nauðsyn til þess að fela nýjum aðila, nýju stjórnvaldi ákvarðanir um verðlagsmál, og þegar svo er komið, er engin ástæða til þess lengur, heldur þvert á móti óeðlilegt að hafa lagaákvæði um innflutningsmál annars vegar og verðlagsmál hins vegar í sömu löggjöfinni. Það var þess vegna, sem ákveðið var að taka upp þann sið, sem í gildi var, áður en innflutningsskrifstofunni voru falin þessi tvö verkefni, þ.e. að í gildi skyldu vera tvenn lög, annars vegar um innflutnings- og gjaldeyrismál og hins vegar um verðlagsmál.

Í 1. gr. þessa frv. er ákveðið, að með verðlagsákvarðanir skuli fara 5 manna nefnd og skuli formaður hennar vera ráðuneytisstjórinn í viðskmrn., en hinir 4 nm. kosnir hlutbundinni kosningu í Sþ., þegar lög þessi taka gildi, og síðan eftir hverjar alþingiskosningar.

Það á ekki að þurfa að gera ráð fyrir því samkvæmt þeirri reynslu, sem fengizt hefur undanfarin ár, að störf þessarar nefndar þurfi að vera viðamikil. Hún ætti ekki að þurfa að halda fundi oftar en t.d. tvisvar í mánuði til þess að taka þær ákvarðanir, sem verðlagsstjóri og starfsmenn hans búa undir fundi hennar, svo að það á ekki að þurfa að gera ráð fyrir því, að hér verði um mikið starf að ræða, og þar af leiðandi ekki, að af störfum nefndarinnar þurfi að hljótast mikill kostnaður. Að öðru leyti eru ákvæði þessa frv., eins og ég gat um áðan, efnislega svo að segja alveg samhljóða þeim ákvæðum, sem nú eru í gildi um verðlag. Þó er um að ræða nokkrar minni háttar breyt., sem mér þykir rétt að vekja athygli á í örfáum orðum.

Það eru felld niður ákvæði gildandi laga um skyldur verðlagsstjóra til þess að vekja athygli innflutningsyfirvalda á því, ef innflutt vara er seld á mismunandi verði, og um skyldu hans til að gera samanburð á verðlagi og gæðum íslenzkrar og erlendrar iðnaðarvöru. Ástæðan til þess, að þessi ákvæði eru felld niður, er sú, að í þann áratug, sem þau hafa verið í gildi, hafa þau aldrei komið til framkvæmda, þeim hefur aldrei verið beitt. Þykir ástæðulaust að vera að hafa slíkan dauðan lagabókstaf áfram í gildi.

Þá er verðlagsnefnd í þessu frv. heimilað að fela verðlagsstjóra að taka verðlagsákvarðanir að nokkru leyti í sínu umboði. Í gildandi lögum tekur hliðstætt ákvæði aðeins til trúnaðarmanna verðlagsyfirvalda, en þetta orðalag í gildandi lögum frá 1950 er tekið að erfðum frá eldra fyrirkomulagi, sem nú hefur lengi verið breytt. Í reyndinni hefur skipun þessara mála verið sú, að einungis verðlagsstjóra, en ekki trúnaðarmönnum hans utan Reykjavíkur eða öðrum undirmönnum hans hér í Reykjavík, hefur verið falið að taka slíkar ákvarðanir, og er ástæðulaust að hafa slík ákvæði í lögum. Hitt er nauðsynlegt, að verðlagsnefnd eins og innflutningsskrifstofan geti falið verðlagsstjóranum að taka vissar minni háttar ákvarðanir í sínu nafni, til þess að það þurfi ekki að halda fund um hvaða smáatriði sem er, og þess vegna er eðlilegt, að þessu ákvæði sé haldið í lögum svo breyttu.

Í gildandi lögum eru ákvæði um, að verðlagsstjóra sé heimilt að birta nöfn þeirra, sem gera síg seka um óhóflega álagningu. Þessi ákvæði eru felld niður, enda hefur þeim aldrei verið beitt í þau nær 10 ár, sem þau hafa verið í gildi. Ástæðan til þess, að þessi ákvæði voru upphaflega tekin upp, var sú, að þau voru tekin upp jafnhliða því, sem ákveðið var að fella mjög mörg verðlagsákvæði úr gildi eða gefa álagningu frjálsa að mjög verulegu leyti. Þá þótti löggjafanum rétt að hafa í verðlagslögum þann hemil á því, að álagningarfrelsið yrði ekki misnotað, að heimilt væri að birta nöfn þeirra manna, sem gerðu sig seka um óhóflega álagningu, og var gert ráð fyrir, að ráðh. setti reglur um það, hvað teljast skyldi óhófleg álagning. Nú hefur hins vegar framkvæmd verðlagsmála aftur breytzt í það horf, að nær allar vörur og þjónusta eru háð verðlagsákvæðum, þannig að það ástand, sem var, þegar þetta ákvæði var lögleitt, er ekki lengur fyrir hendi og þess vegna alveg ástæðulaust að hafa slík lagaákvæði í gildi, enda hefur reynslan einnig sýnt, að mjög erfitt væri að framkvæma þau. Það væri miklum erfiðleikum bundið fyrir ráðherra að skera úr um, hvað teljast skyldi óhæfileg álagning á þær vörur, sem engin verðlagsákvæði gilda um, enda hefur það aldrei verið gert, ráðherra hefur aldrei gefið út neina slíka reglugerð, neinar slíkar reglur, og verðlagsstjóri aldrei beitt þeirri lagaheimild, sem í gildi hefur verið, til þess að birta nöfn þeirra manna, sem misnota álagningarfrelsið þannig að leggja meira á en hæfilegt geti talizt. Þess vegna telur ríkisstj. rétt að fella þennan lagabókstaf, sem einnig hefur verið algerlega dauður, úr gildi.

Ef verðlagsnefnd telur, að einhvers staðar hafi verið lagt of mikið á þá vöru, sem verðlagsákvæði gilda ekki um, hefur hún samkvæmt þessu frv. heimild til þess að setja lagaákvæði um hámarksálagningu á þá vöru þegar í stað, og ætti það að sjálfsögðu að vera næg trygging fyrir því, að um óhóflega álagningu sé ekki að ræða.

Þá er mælt svo fyrir í 8. gr. þessa frv., að útsöluverð skuli miðast við það innkaupsverð, sem lagt er til grundvallar við greiðslu aðflutningsgjalda, ef það verð er lægra en greinir á innkaupareikningi vegna galla eða skemmda. Slík framkvæmd virðist sjálfsögð, en lagaákvæði um þetta efni eru óskýr, og féll nýlega dómur í hæstarétti, þar sem kveðið var svo á, að ekki væri skylt að miða útsöluverð við það innkaupsverð, sem lagt hefði verið til grundvallar við greiðslu aðflutningsgjalda, þó að það hafi verið lægra en greinir á innflutningsreikningi vegna galla eða skemmda. Þykir því rétt að taka af öll tvímæli um þetta og hafa lagaákvæðin svo skýr, að ekki þurfi að koma til slíks. Ef ekki væri kveðið á um þetta í lögum núna, mundi dómur hæstaréttar í þessu efni að sjálfsögðu gilda áfram eða sú regla, sem hann skapaði.

Í 12. gr. frv. er kveðið svo á, að meðdómendur í verðlagsdómi skuli skipaðir til 3 ára, en ekki til eins árs, eins og nú er. Það er eðlilegt til að skapa nokkru meiri festu, að skipunartími þeirra sé lengdur frá því, sem verið hefur.

Að síðustu eru í 20. gr. sektir nokkuð hækkaðar frá ákvæðum gildandi laga, sem eru orðin 10 ára gömul, með tilliti til þeirrar rýrnunar á verðmæti peninga, sem átt hefur sér stað, síðan þau lög voru sett.

Þetta eru einu breytingarnar, sem þetta frv. gerir ráð fyrir á gildandi verðlagslögum, og eins og hv. þdm. heyra, eru þær allar mjög smávægilegar, að frátalinni þeirri breytingu, sem samkvæmt eðli málsins hlýtur að verða á yfirstjórn verðlagsmálanna, á þeim aðila, sem með sjálfar verðlagsákvarðanirnar fer. Það er stefna núv. ríkisstj. að halda verðlagseftirliti og gera ráðstafanir til þess, að það geti verið haldgott, þannig að þær verðhækkanir, sem hljóta að sigla í kjölfar þeirrar gengisbreytingar, sem nýlega hefur verið ákvörðuð, verði ekki meiri en gengisbreytingin sjálf gefur beint eða óbeint tilefni til.

Að svo mæltu legg ég til, herra forseti, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjvn.