23.05.1960
Neðri deild: 86. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2933 í B-deild Alþingistíðinda. (1107)
162. mál, verðlagsmál
Frsm. meiri hl. (Sigurður Ingimundarson):
Herra forseti. Fjhn, hefur haft til athugunar frv. það, sem hér liggur fyrir til umr., frv. til l. um verðlagsmál, á þskj. 453. Frv. þetta er fyrst og fremst fram komið vegna þess, að fyrirhugað er, að innflutningsskrifstofan verði lögð niður, en hún fór áður með yfirstjórn verðlagsmála. Frv. gerir ráð fyrir, að í stað innflutningsnefndarinnar fari 5 manna verðlagsnefnd með verðlagsákvarðanir. Formaður hennar skal vera ráðuneytisstjórinn í viðskmrn., en hinir fjórir nm. skulu kosnir hlutbundinni kosningu í sameinuðu Alþingi, þegar lög þessi taka gildi, ef samþykkt verða, og síðan eftir hverjar alþingiskosningar og kjörið þannig gilda út hvert kjörtímabil. Að öðru leyti felur frv. ekki í sér neinar teljandi breytingar frá gildandi lögum, en safnað er á einn stað, í ein lög, öllum þeim ákvæðum um verðlagsmál, sem gilt hafa, en það eru lög nr. 35 27. apríl 1950, um verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdóm, með áorðnum breytingum og viðaukum, og VIII. kafli laga nr. 39 29. maí 1958, um útflutningssjóð o.fl.
Aðrar breytingar en þær, er lúta að nauðsynlegri breytingu á yfirstjórn verðlagsmála, eru, eins og ég gat um, mjög smávægilegar, svo sem orðalagsbreytingar vegna breyttra aðstæðna. Í 8. gr. eru þó nýmæli um, að ef tollverð vöru miðast við lægra verð en í innkaupsreikningi greinir, svo sem vegna galla eða skemmda á vörunni, skuli útsöluverð miðað við það verð, sem lagt hefur verið til grundvallar við greiðslu aðflutningsgjalda. Hefur þótt vanta lagaheimild til þeirrar framkvæmdar, og er hér með úr því bætt. — Þá eru sektir samkvæmt ákvæðum 20. gr. hækkaðar nokkuð frá því, sem áður var.
Ég geri ráð fyrir því, að lítill ágreiningur verði um afgreiðslu þessa frv., enda hafa fjórir nm. skrifað undir nál. og mæla með samþykkt þess, þó að þeir að vísu áskilji sér rétt til aðkoma fram með eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma.
Að svo stöddu leggur meiri hl. því til, að frv. verði samþ. óbreytt.