23.05.1960
Neðri deild: 86. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2934 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)
162. mál, verðlagsmál
Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Ég hef lagt fram nál. um þetta frv. á þskj. 499, og fylgir þar með ein brtt.
Það er hæstv. ríkisstj., sem ber þetta frv. fram. Það ber víst að skoða það sem einn þáttinn, einn af mörgum, í þeim ráðstöfunum stj., sem hún nefnir viðreisn. Samkv. frv. á opinber íhlutun um verðlag að haldast og eftirlit með verðlagi.
Mér þykir sennilegt, að þetta frv. hafi komið mörgum einkennilega fyrir sjónir, þegar það var lagt fram. Undanfarnar vikur og mánuði hefur ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar birt margar fagurorðaðar yfirlýsingar um verzlunarfrelsi hér á landi, yfirlýsingar um afnám hafta og frjálsræði á viðskiptasviðinu. Manni hefur skilizt, að frjáls samkeppni í viðskiptalífinu ætti að leysa ríkisafskiptin af hólmi. Stór orð hafa verið sögð og rituð um það, hvað þetta hefði mikla þýðingu til að bæta hag landsmanna.
Hinn 3. febr. í vetur var útbýtt hér í þd. frv. ríkisstj. um efnahagsmál. Í aths., sem því frv. fylgdu, var m.a. boðað, að gerðar yrðu víðtækar ráðstafanir í viðskiptamálum. Sagt var frá því, að stjórnin hefði tryggt landinu 20 millj. dollara lán hjá alþjóðastofnunum. Lánið kvaðst stjórnin ætla að nota til að koma verzluninni á heilbrigðan grundvöll, innleiða verzlunarfrelsi, en leysa höft af landsmönnum. Í aths. með þessu frv. segir svo á einum stað m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Höftin takmarka eðlilega samkeppni í innflutningsverzluninni og stuðla þannig beinlínis að hærra vöruverði og minni þjónustu við neytendur en ella mundi. Það er ekki á færi neins verðlagseftirlits að hamla á móti þessu, hversu gagnlegt sem verðlagseftirlit annars kann að vera.“
Í málgögn ríkisstj. var mikið skrifað um komandi frelsisöld í sambandi við efnahagsmálafrv. ríkisstj.
Meiri hl. fjhn., fulltrúar stjórnarflokkanna þar, skilaði nál. um efnahagsmálafrv. 10. febr. Það er á þskj. 93. Í nál. skrifa þeir m.a. um stóraukið innflutningsfrelsi til þess að tryggja meiri samkeppni um verð og vöruval á markaðinum. Þannig lýstu þeir stefnu sinni 10. febr. í vetur. Aukið frelsi átti að tryggja mönnum meiri samkeppni verzlana, lægra vöruverð og meira vöruval, betri vörur, sem sagt betri þjónustu á viðskiptasviðinu. Þetta gátu menn ekki að þeirra dómi fengið, meðan höftin voru á verzluninni. Þau stuðluðu beinlínis að hærra vöruverði og minni þjónustu við neytendur, og það var ekki á færi neins verðlagseftirlits að hamla á móti þessu, sögðu stjórnarflokkarnir.
Tíminn leið og það kom annað stjórnarfrv., sem var útbýtt hér 8. apríl í vor. Það var frv. um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála. Og
þá var ekki sparað stóra letrið í blaðafrásögnum eða stóru orðin í ræðunum. Næsta dag, 9. apríl, mátti sjá stóra fyrirsögn á forsíðu Morgunblaðsins, aðalmálgagns stjórnarflokkanna. Þar stóð: „Ríkisstjórnin leggur fram frv. um viðskipta- og framkvæmdafrelsi.“ „Allt að 85–90% innflutningsins gefin frjáls.“ Þar segir enn fremur: „Frumvarp þetta markar stærsta sporið, sem stigið hefur verið á síðari árum til viðskipta- og framkvæmdafrelsis í landinu.“
Frv. fór að sjálfsögðu til fjhn. þessarar d., og nál. komu fram síðustu dagana í aprílmánuði. Í áliti sínu á þskj. 343 sagði meiri hl. n., þ.e.a.s. stjórnarstuðningsmennirnir: „Undirritaðir nm. telja, að verzlunarfrelsi það, sem stefnt er að með frv., muni verða alþjóð til hagsbóta“ o.s.frv. Og 28. dag aprílmánaðar var þetta frv. hér til 2. umr. Frsm. meiri hl. fjhn., hv. 6. landsk. (BK), flutti ræðu um málið allýtarlega. Hann sagði þar m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Takmark þessarar verzlunarpólitíkur er að gera okkur fært að vera öllum sem óháðastir í viðskiptum, að gera okkur kleift að kaupa nauðsynjar okkar í sem ríkustum mæli þar, sem þær eru beztar, ódýrastar og hentugastar, og með þeim hætti að verða aðilar að sem frjálsustum viðskiptaheimi.“
Og hann sagði enn fremur: „Við stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. erum hins vegar þeirrar skoðunar, að góð lífskjör verði helzt tryggð með sem allra víðtækustu athafna- og verzlunarfrelsi. Nú er stefnt að verzlunarkerfi, sem hefur verið nefnt fríverzlunarkerfi.“
Hann sagði fleira, hv. 6. landsk., hann sagði: „Ef viðskiptin verða frjáls, þá getur samkeppnin ein, hæfnin ein, tryggt öryggi okkar.“ Og hann sagði í framhaldi af þessu: „Persónulega leyfi ég mér að láta í ljós þá skoðun, að hin 20 ára gömlu verðlagshöft hefðu að mínum dómi einnig mátt leggjast í þá sömu gröf, því að verzlunarhöft, fjárfestingarhöft, skömmtun og verðlagshöft eru að mínu viti allt meðlimir sömu Bakkabræðrafjölskyldunnar.“ En nál. meiri hl. á þskj. 493 sýnir, að hv. 6. landsk. þm. og aðrir stuðningsmenn ríkisstj. vilja þó tryggja, að ættin deyi ekki út.
Í Morgunblaðinu 30. apríl eru birtir aðalþættirnir úr hinni miklu ræðu frsm. meiri hl., hv. 6. landsk. þm., um þetta frv., sem blaðið kallar fríverzlunarfrumvarp ríkisstj. Yfirskrift blaðsins er með stóru letri þannig: „Í frjálsu þjóðfélagi er farsæld einstaklinganna bezt tryggð.“ Og á einum stað segir þar: „Frjálsa utanríkisverzlun kvað Birgir Kjaran enn fremur m.a. tryggja þjóðinni ódýrari vörur, betri vörur, meira vörumagn og aukið vöruval.“
Leiðari Morgunblaðsins sama dag er um ræðu Birgis, og hann ber yfirskriftina „Lífskjörin og frelsið.“ Þetta var 30. dag aprílmánaðar í vor.
Þetta mál ríkisstj., frv. um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, var túlkað þannig, að það markaði tímamót í verzlunarsögu íslenzku þjóðarinnar. Það var ekkert minna. Það er ekkert undarlegt, þótt ýmsir menn, sem hafa fengizt við viðskiptastörf að undanförnu, gerðu sér vonir um aukið frelsi og bjartari framtíð eftir allar þessar skorinorðu yfirlýsingar stjórnarflokkanna um, að þeir væru að leysa höft af þjóðinni. Mönnum var sagt, að 85–90% af vöruinnflutningnum yrðu frjáls. Kaupsýslumenn gerðu sér eðlilega vonir um, að nú gætu þeir fengið að njóta krafta sinna og sýna, hvers þeir væru megnugir, óheftir af ríkisvaldinu. Þeir gerðu sér vonir um að geta nú sýnt í verki, hverju frjálsa samkeppnin gæti áorkað. Nú skyldu þeir reyna að tryggja þjóðinni ódýrari vörur, betri vörur, meira vörumagn og aukið vöruval, eins og hv. 6. landsk. hafði orðað það.
En svo kom krossmessuhretið. Hinn 13. maí er útbýtt stjórnarfrv. um verðlagsmál, sem hér liggur fyrir. Hvernig stendur á þessu? Hvers vegna verðlagsnefnd og verðlagseftirlit, úr því að verzlunin á að verða frjáls? Þar sem verzlun og viðskipti eru frjáls og samkeppnin fær að njóta sín, er engin þörf fyrir slíka ríkisíhlutun um verðlagsmál. En þetta er víst samt einn af mörgum þáttum í viðreisnarráðstöfunum hæstv. ríkisstj. Vafalaust eru skýringar á þessu í aðalmálgagni stjórnarflokkanna, og ég lít í Morgunblaðið næsta dag, krossmessudaginn 14. maí. Nú, en hvernig má þetta vera? Það er ekki eitt orð á forsíðunni um þetta mál, eitt af viðreisnarfrumvörpum ríkisstj. Í stað þess má lesa á forsíðunni með stóru letri: „Kvennagullið Alf Khan dó í bílslysi.“ Ég fletti blaðinu við, það hlýtur þó að vera á fyrstu opnunni eitthvað um þetta viðreisnarmál. Nei, nei, fyrst á 8. síðu í Morgunblaðinu er smágrein, og þar er sagt frá þessu merka stjórnarfrumvarpi. Yfirskriftin á þeirri smágrein er „Skipulagsbreyting á stjórn verðlagsmála.“
En þó að lítið væri sagt frá málinu í Morgunblaðinu, hefur það fráleitt farið fram hjá mönnum, og þeir, sem lagt höfðu trúnað á það, að stjórnarflokkarnir ætluðu að standa við fyrirheitin um afnám hafta, frjálsa verzlun og bætt kjör landsmanna eftir þeim leiðum, urðu sem þrumu lostnir. Þeir sáu nú, að stjórnarflokkarnir trúðu ekki sjálfir á öll sín fagurmæli um frelsið í viðskiptalífinu. Það var ekki frjáls verzlun og samkeppni á því sviði, sem áttí að gefa landsmönnum kost á ódýrari vörum og betri verzlunarþjónustu, tryggja þjóðinni betri viðskiptakjör, betri lífskjör, nei, það er þingkjörin nefnd fjögurra manna og einn ráðuneytisstjórinn í stjórnarráðinu.
Þetta stjórnarfrv. sýndi, að það var ekki ætlun stjórnarflokkanna að veita frelsi þrátt fyrir skrafið og skrifin um þá hluti. Það höfðu allt verið blekkingar. Ef það hefði verið ætlun þeirra, þá hefðu þeir ekki lagt fram þetta verðlagsmálafrv. sitt, því að þá var slík ríkisíhlutun um verðlagsmálin algerlega óþörf.
13. maí 1960 var óhappadagur, þá hrundu vonirnar um verzlunarfrelsið á Íslandi, þá ók bifreiðin á Ali Khan, og konurnar grétu sitt horfna gull.
Ríkisstj. ætlar að halda verðlagsafskiptunum við. Frv. hennar, sem hér liggur fyrir, er um það. Samkvæmt því á að hafa hér eftirleiðis 5 manna verðlagsnefnd, fjórir nm. skulu kosnir hér í Alþ., og ráðuneytisstjórinn í viðskmrn. á að vera á toppnum. Svo á ráðh. að skipa verðlagsstjóra, og svo á að vera sérstakur verðlagsdómur til að fjalla um brot á þessum lögum.
Það hafa áður komið fram á þessu þingi aðrar till. um skipan þessara mála. Þær er að finna á þskj. 162, í lagafrv. þeirra hv. 7. þm. Reykv. (ÞÞ) og hv. 4. þm. Reykn. (JSk). Þeir hafa lagt þar til, að verðlagsnefndin verði skipuð fulltrúum frá neytendum, þannig að Alþýðusamband Íslands, Stéttarsamband bænda og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja skipi hvert um sig einn mann í n., en Verzlunarráðið, Samband íslenzkra samvinnufélaga og Félag íslenzkra iðnrekenda tilnefni einnig hvert um sig í n., þannig að hún verði skipuð sex mönnum. Þeir leggja enn fremur til, að þegar er um að ræða verðlagningu á rekstrarvörum og þjónustu vegna útgerðarinnar, skuli fulltrúi frá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna taka sæti í n, í stað fulltrúans frá Stéttarsambandi bænda. Þeir leggja enn fremur til, að ef samkomulag næst ekki í þessari 6 manna n. um verðlagsákvarðanir, skuli ágreiningsatriðum skotið til fullnaðarúrskurðar undir þriggja manna yfirnefnd, sem sé þannig skipuð, að fulltrúar neytenda í sex manna nefndinni tilnefni einn nm., fulltrúar kaupmanna, kaupfélaga og iðnrekenda í sömu n, tilnefni einn, en hæstiréttur oddamann.
Ég lít svo á, að meðan talin er þörf fyrir verðlagseftirlit, sé þetta eðlilegri skipan en sú, sem stungið er upp á í stjórnarfrv. Þetta fyrirkomulag, sem þeir hafa lagt til að tekið yrði upp, hv. 7. þm. Reykv. og hv. 4. þm. Reykn., er mjög hliðstætt því, sem gilt hefur nú mikið á annan áratug um verðlagningu landbúnaðarvara, og það hefur gefizt þannig, að ekki eru horfur á, að frá því verði horfið.
Ég legg því til í brtt. minni á þskj. 499, að 1. gr. verði orðuð um og hún verði þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþýðusamband Íslands, Stéttarsamband bænda, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Verzlunarráð Íslands, Samband íslenzkra samvinnufélaga og Félag íslenzkra iðnrekenda tilnefni hvert um sig einn mann í verðlagsnefnd, er fer með verðlagsákvarðanir samkvæmt lögum þessum. Þegar um verðlagningu á rekstrarvörum og þjónustu vegna útgerðarinnar er að ræða, skal fulltrúi frá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna taka sæti í n. í stað fulltrúa Stéttarsambands bænda. Náist ekki samkomulag með öllum nm. um verðlagningu, skal vísa ágreiningi til sérstakrar yfirnefndar. Yfirnefndin skal skipuð þremur mönnum, einum tilnefndum af fulltrúa neytenda í sex manna nefndinni, öðrum tilnefndum af fulltrúum kaupmanna, kaupfélaga og iðnrekenda og þeim þriðja tilnefndum af hæstarétti. Yfirnefndin fellir fullnaðarúrskurð um ágreiningsatriðin.“