24.05.1960
Neðri deild: 87. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2942 í B-deild Alþingistíðinda. (1115)
162. mál, verðlagsmál
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Skilningur sá, sem hv. 7, þm. Reykv. (ÞÞ) lýsti á 27. gr. laga um efnahagsmál og ákvæðum 3. gr. þessa frv. um verðlagsmál, er réttur og er í samræmi við þann skilning, sem ríkisstj. leggur í þessar greinar. Ákvæðin í 27. gr. efnahagsmálalaganna höfðu þýðingu fyrir þá breytingu, sem nauðsynlegt var að gera á verðlagsákvæðum í beinu framhaldi af gengisbreytingunni. Ákvæðin í 27. gr. voru eins konar leiðarvísir til verðlagsyfirvalda um, hvernig þau skyldu haga þeim. Í fyrsta lagi voru það fyrirmæli um að setja ný verðlagsákvæði, setja nýjar hlutfallstölur um hámarksálagningu, og í greininni fólst vísbending um, hvernig þessi nýju hámarksákvæði skyldu sett. En það var frá upphafi til þess ætlazt, að þessi gr., 27. gr., gilti eingöngu um þá endurskoðun verðlagsákvæða, sem fara skyldi fram þegar eftir gildistöku laganna, en byndi á engan hátt hendur verðlagsyfirvalda áfram. Þess vegna er sjálfsagt, að þegar þetta frv. hefur verið samþ., ef svo fer, þá felast þær reglur, sem verðlagsyfirvöld eiga að starfa eftir, í 3. gr. frv., þar sem svo er kveðið á, að verðlagsákvarðanir allar skuli miðaðar við þörf þeirra fyrirtækja, er hafa vel skipulagðan og hagkvæman rekstur. Þetta er einnig skoðun forstjóra innflutningsskrifstofunnar, sem nú fara með verðlagsmál, og eftir þessu telur ríkisstj., að væntanleg verðlagsnefnd eigi að starfa.