31.05.1960
Efri deild: 88. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2951 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)
162. mál, verðlagsmál
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Þar sem hv. frsm. minni hl. fjhn. hafa sérstaklega í framsöguræðum sínum veitzt að Sjálfstfl. í sambandi við afstöðu hans til verðlagseftirlits, þá vildi ég aðeins segja fáein orð af því tilefni, án þess að ég ætli að fara að lengja mikið þessar umr.
Ég skal nú ekki fara langt út í það að svara bunuræðu hv. 1. þm. Norðurl. e. eða reyna að skilgreina það, í hvaða holur bunur hans hafi runnið. Það er kannske dálitið erfitt að átta sig á því, eins og í fleiri greinum um afstöðu hans virðulega flokks hér á Alþ. nú í vetur, miðað við hans fyrri viðhorf í ýmsum málum, og það kom einnig í ljós í sambandi við afstöðu Framsfl. nú til frv. um verðlagseftirlit, að það er dálítið erfitt að átta sig á, hvað sá flokkur raunverulega vill. Hann sagðist mundu láta afskiptalaust frv. um verðlagseftirlit, en veittist hins vegar að Sjálfstfl. fyrir það og ríkisstj., að hún hefði brugðizt stefnu sinni með því að ætla nú að halda í verðlagseftirlitið. Raunverulega var ræða hv. þm. ekki skiljanleg á annan veg en þann, að hann væri raunverulega á móti verðlagseftirliti. öll hans ræða hné í þá átt, og hann taldi, að verðlagseftirlit væri gagnslítið. En mér er þá spurn: Hvernig stendur á því, að flokkur þessa hv. þm. hefur stutt verðlagseftirlit og það svo mjög, að hann á sínum tíma taldi, að það væri alls ekki nægilegt aðhald, sem samvinnufélögin veittu með sínu verðlagi, og því væri nauðsynlegt að hafa sérstakt verðlagseftirlit? Þegar ræða þessa hv. þm. og viðhorf hans til verðlagseftirlits er skoðað, er næsta broslegt að hlusta á ræðu hv. 5. þm. Norðurl. e. (BjörnJ), þegar hann er sérstaklega að tala um þá sem skoðanabræður og örugga samherja í sambandi við að halda niðri verðlagi, Alþb.-menn og framsóknarmenn, og er nú að gera sér vonir um, að það kunni stöku sinnum að koma fyrir, að Alþfl. hnigi þar á sveif. En það er í hans huga ekki nein efasemd um það, að framsóknarmenn og fulltrúi þeirra muni jafnan standa með Alþb. í að halda niðri álagningu, enda þótt því sé yfir lýst af hv. 1. þm. Norðurl. e., að verðlagseftirlit sé gagnslaust, og raunverulega lýst lítilli hrifningu yfir því, vægast sagt, að ríkisstj. skuli vera að halda þessu máli hér fram. Ég skal annars ekki fara lengra út í þær orðræður, en aðeins segja örfá orð varðandi afstöðu Sjálfstfl. til verðlagseftirlits yfirleitt og ástæðu þess, að Sjálfstfl, telur rétt að beita verðlagseftirliti nú, eins og sakir standa.
Það er alveg rétt, sem hér kom fram, að Sjálfstfl. er þeirrar skoðunar, að verðlagseftirlit sé engin örugg leið til þess að skapa eðlilegt og hófsamlegt verðlag. Hins vegar viðurkennir flokkurinn það og hefur gert bæði fyrr og síðar, að þegar ekki séu fyrir hendi þau skilyrði, að frjáls verðmyndun geti notið sín til hagsbóta fyrir neytendur, þannig að hætta sé á því, að hægt sé að sprengja upp verðlag vegna vöruskorts og af öðrum slíkum ástæðum, þá geti verið fullkomlega réttmætt og eðlilegt að hafa verðlagseftirlit. Barátta Sjálfstfl. fyrir frjálsri verzlun og fyrir frjálsu vöruvali og nægilegu vöruvali byggist ekki á því, að flokkurinn telji, að með því móti eigi að vera auðunnin leið fyrir kaupsýslumenn að notfæra sér gróða, heldur er það skoðun flokksins, að með slíku ástandi í viðskiptamálum, — og það er einmitt það ástand, sem að er stefnt með þeirri viðskiptastefnu, sem hæstv. núv. ríkisstj. fylgir, — sé bezt trygging fengin fyrir því, að neytendur geti fengið vöru við hagstæðustu verði. Það vita allir, sem til þekkja, að haftatímabil og vöruskortur skapar alls konar óheilbrigða verzlunarhætti og óeðlileg skilyrði til gróðamyndunar, sem eru ekki neytendum til hagsbóta, þannig að ef menn vilja viðhalda slíku ástandi, eru þeir síður en svo að búa í haginn fyrir neytendur í þjóðfélaginu.
Það er ekkert efamál, og því hefur ekki af neinum verið leynt, að með þeim víðtæku breytingum í efnahagsmálum, sem nú er verið að gera, eru kvaðir lagðar á almenning í landinu, og það er skoðun ríkisstj. og full eining um það milli stjórnarflokkanna, að það beri að sjá til þess, að þær kvaðir skiptist sem réttlátast á þjóðfélagsborgarana og allir leggi þar sitt af mörkum.
Ástæðan til þess, að nú er haldið uppi verðlagseftirliti og það mjög ströngum hömlum á álagningu, byggist fyrst og fremst á þeirri nauðsyn, sem er fyrir hendi að halda verðlagi í sem allra mestu skefjum. M.a. getur það verið nauðsynlegt um sinn vegna þess, að eðlileg og frjáls verðmyndun hefur ekki skapazt, fyrr en eðlilegt fjármálaástand er orðið í þjóðfélaginu, og því getur verðlagseftirlit verið nauðsynlegt um skeið af þessum sökum. Það er því ekki vegna þess, að einn hafi neytt annan til eins né neins, að þetta mál er hér flutt og ríkisstj. hefur beitt sér fyrir samþykkt þess með stuðningi flokka sinna. Það er um að ræða sameiginlega skoðun þessara tveggja flokka, að þetta sé eðlilegt að gera og nauðsynlegt, svo sem sakir standa.
Með þeirri breyt., sem hér er gerð á þessu frv., er ekki ætlunin sú, að Sjálfstfl. fari sérstaklega að æskja eftir tryggingu fyrir því, að hann geti fengið meiri hluta í verðlagsnefnd og ráðið verðlagningunni eftir eigin geðþótta, sem er þá þannig túlkað, að það eigi að vera sérstaklega innflytjendum í hag. Mér er ekki kunnugt um það, að ráðuneytisstjórinn í efnahagsmrn. sé sjálfstæðismaður. Það eina, sem er vitað um hans flokksafstöðu, er, að hann var eitt sinn bæjarfulltrúi kommúnista. Ég er ekki með því að segja, að hann sé í þeim flokki nú, ég hef ekki neina hugmynd um það. En mér er ekki kunnugt um, að hann hafi nokkurn tíma látið það í ljós, að hann sérstaklega styddi Sjálfstfl., þannig að það sé hægt að halda því fram, þó að Sjálfstfl. fái tvo fulltrúa í þessari sex manna nefnd, að þá hafi hann þar með tryggt sér meiri hluta. Slíkt er auðvitað gersamlega út í hött. Ráðuneytisstjórinn getur eins staðið með fulltrúum hvaða annars flokks sem er, og ég efast ekki um, að hann muni meta málin eftir því, sem hann telur sanngjarnast og réttlátast hverju sinni, og ástæðulaust að bera honum annað á brýn.
Það getur vel verið, að þetta sé sagt vegna þess, að framsóknarmenn og Alþb.-menn séu vanir því í samvinnu á milli flokka, að það sé sífellt verið að reyna að kúga annan hvorn aðilann og beygja hann undir eitthvert jarðarmen. En ég get sagt þessum hv. ágætu þm. það, að mér er ekki kunnugt um, að í sambandi við þetta mál eða önnur í samskiptum núv. stjórnarflokka hafi verið gerðar tilraunir til að kúga einn né neinn. Það hefur verið samstaða um að reyna að leysa málin á þann hátt, sem farsælast og heppilegast mætti telja fyrir þjóðfélagið, og ég held, að það sé aldrei giftusamlegur grundvöllur að neinni stjórnarsamvinnu, — kannske er vinstri stjórnin og örlög hennar ekki hvað sízt dæmi um það, hve ógiftusamlegt það er, þegar einn flokkur ætlar að fara að kúga annan á óviðurkvæmilegan hátt. En ég hygg, að það sé aldrei til farsældar fyrir neina stjórnarsamvinnu, að slíkur háttur sé á hafður, og það er a.m.k. víst í sambandi við þetta mál, að þótt þessir tveir flokkar kunni að hafa í eðli sínu einhvern skoðanamun varðandi gagnsemi verðlagseftirlits, hefur ekki verið ágreiningur um, að eins og sakir standa nú sé rétt að hafa þetta eftirlit, þó að það hins vegar sé, eins og ég áðan sagði, grundvallarskoðun okkar sjálfstæðismanna, að þegar nauðsynlegar og eðlilegar forsendur eru fyrir hendi í þjóðfélaginu, sé það miklum mun vænlegra fyrir almenning, að þau eðlilegu viðskiptalögmál séu látin njóta sín, heldur en það, þó að reynt sé að beita verðlagseftirliti og þannig halda niðri verðlagi, þegar hins vegar er við að stríða algerlega óeðlilegt ástand í viðskipta- og fjárhagsmálum. Þegar til lengdar lætur, mun það áreiðanlega sýna sig, að hið fyrra er hagsælla, enda er staðreyndin sú, að hvarvetna meðal frjálsra þjóða er stefnt að slíkum frjálsum viðskiptaháttum. Og það er einmitt í þeim anda, sem hæstv. núv, ríkisstj. vill starfa, ekki til þess að gefa einhverjum ákveðnum gróðamönnum grundvöll til þess að græða á almenningi, heldur vegna þess, að hún telur, að það verði almenningi til mestra hagsbóta.