30.11.1959
Efri deild: 6. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Það er oft getíð um það í fornbókmenntum þjóðarinnar, þegar frásögn er að ná hámarki af orrustum, sem fram fóru, þá gerðist skammt stórra höggva milli. Mér virðist, að um þennan leik, sem leikinn er hér í kvöld og e.t.v. í nótt hér á hv. Alþingi, megi að vissu leyti segja, að hér gerist skammt stórra höggva milli og hér séu mörg vopn á lofti í senn, því að fyrir skömmu vorum við að fjalla um frv., sem fól í sér framlengingu á viðauka við vitagjald, stimpilgjald og álag á innlendar tollvörutegundir, jafnhliða því frv. lágu fyrir nokkur önnur, svo að þetta var eins konar fimmburafæðing, eins og lýst hefur verið hér í umr., en nú eru allt í einu þessi mörgu fóstur lögð til hliðar, en einu stærra fóstri komið hér á framfæri, sem virðist þó óneitanlega bera mjög mikinn svip af hinum fimm og má ætla að sé alsystkini þeirra a.m.k. Og þessu nýja fóstri er útbýtt hér á þessum fundi og ákveðið að taka þetta þskj. hér til umræðu nú með afbrigðum.

Ég hafði ekkí búið mig undir það að ræða um þetta frv., sem nýlega hefur verið útbýtt, um bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga, og mér hefur ekki unnizt tími til að lesa frv. frá orði til orðs. En mér sýnist fljótt á litið, að efni þess muni vera svipað eða jafnvel shlj. þeim þskj., sem við höfum haft hér til meðferðar og umræðu undanfarið, og mun ég því leitast við að segja um þetta nokkur orð, þó að ég sé ekki búinn að kynna mér efni þessa frv.

Það er sýnilegt, að þetta frv., sem nú er tekið til umr., um bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga, hefur að geyma ákvæði um verulega tekjuöflun ríkissjóði til handa. En þau ákvæði frv., sem eru veigamest að því leyti, að þau munu eiga að skila ríkissjóði langsamlega hæstum fjárhæðum, ef lögfest verða og framkvæmd, eru ákvæðin í 4. gr. þessa frv. um söluskattinn. Ég mun því hefja mál mitt á því að fara nokkrum orðum um þann þátt málsins.

Söluskatturinn hefur verið til meðferðar á hv. Alþingi nokkur undanfarin ár, þar sem ákvæðin um hann hafa verið framlengd frá ári til árs. En það er eftirtektarvert, þegar litið er á þessi ákvæði um söluskattinn, sem eru framlenging á gildi III. kafla laga nr. 100 frá 1948, um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna, að þá er kveðið svo að orði í frv., og er það í samræmi við það, sem verið hefur í lögum að undanförnu, að ákvæðin um tekjuöflun, sem sett eru í III. kafla laga nr. 100 1948, skuli gilda um næsta fjárhagsár. Hér er ekki vísað í ákveðnar greinar, heldur svo að orði komizt, að ákvæðin um tekjuöflun í III. kafla nefndra laga skuli halda gildi sínu. Þetta er óvenjulegt orðalag, að ég ætla, því að samkvæmt þingsköpum eiga frv, að vera með lagasniði, og venja er að vísa í ákveðnar greinar frv., en ekki aðeins ótiltekin ákvæði í einhverri grein, þ.e.a.s. sumt úr einhverri grein og annað ekki. En þetta óvenjulega á sína sögu og söluskatturinn eins og um hann hefur verið fjallað hér á hv. Alþingi.

Fyrir 15 árum var komið á fót stjórnarsamstarfi hér í landi, og hlaut sú stjórn nafnið nýsköpunarstjórn. Hún birti þinginu og þjóðinni alllanga stefnuskrá, þegar hún settist að völdum, og tvö atriði í þeirri stefnuskrá eru á þá leið, að ríkisstj. lofaði því að beita sér fyrir, að af erlendum gjaldeyri bankanna í Bretlandi og Bandaríkjunum yrði eigi minna en 300 millj. ísl. kr. komið fyrir á sérstökum reikningi, — það yrði lagt á sérstakan reikning og þeim gjaldeyri mætti eigi ráðstafa án samþykkis ríkisstj. og eingöngu til kaupa á tækjum, sem síðar voru nánar flokkuð. Og annað ákvæði í þessum stjórnarsamningi er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Með því að fjárlagafrv. það, er nú liggur fyrir Alþingi, er raunverulega með stórkostlegum tekjuhalla og er auk þess þannig úr garði gert, að ekki verður með nokkru móti hjá því komizt að hækka útgjöld til verklegra framkvæmda verulega frá því, sem þar er áætlað, mun stjórnin til neydd að leggja á allháa nýja skatta, þar eð hún telur sér skylt að gera það, sem unnt er, til að afgreiða hallalaus fjárlög. Verður leitazt við að leggja skattana á þá, er helzt fá undir þeim risið, og þá fyrst og fremst á stríðsgróðann. Skattar á lágtekjumenn verði ekki hækkaðir. Eftirlit með framtölum verður skerpt.“

Það er augljóst af þessu, að eitt meginverkefni, sem þessi stjórn lofaði að leysa af hendi, var það að gefa ávísanir á gjaldeyri, sem þjóðin átti, og að skattarnir skyldu verða lagðir á þá, sem helzt fá undir þeim risið, og að eftirlit með framtölum skyldi skerpt. Reynslan var sú, að það virtist ganga greiðlega og takast vel að gefa ávísanir á gjaldeyrinn, sem þjóðin átti, því að hann eyddist á skömmum tíma. Hitt urðu menn minna varir við, að skattar á lágtekjumönnum væru mikið lækkaðir eða eftirlit með framtölum stórlega skerpt.

En þegar þessi ríkisstj. hafði setíð um það bil tveggja ára skeið, var svo komið á því heimili, — eins og merkur Íslendingur hefur áður komizt að orði, — að „félagsbræður ei finnast þar“. Og síðasta verk þess ráðh., sem fór með sjávarútvegsmál í nýsköpunarstjórninni, var að flytja — eða beita sér fyrir því, að flutt yrði inn á Alþingi — það nýmæli, að ríkissjóður skyldi taka ábyrgð á afurðaverði bátaflotans. Þegar hann hafði komið því í verk að beita sér fyrir því, að þetta nýmæli yrði flutt inn á Alþingi, þá stóð hann upp úr stólnum.

Með þessu frv. um ríkisábyrgð á afurðaverði bátaflotans fylgdu þó ekki till. eða ákvæði, sem voru nægileg trygging fyrir því, að fé yrði fyrir hendi til að standa við þau útgjöld, sem af þessu kynni að leiða. Það kom vitanlega eins og margt fleira í hlut þeirra, sem við

tóku, að sjá fyrir þeim þætti málsins. Og þá gerist það, að þessi lög, sem hér er vitnað til um framlengingu á, voru sett að tilhlutun stjórnar Stefáns Jóh. Stefánssonar og þeirra flokka, sem hana studdu, og lagður á söluskattur til þess að standa straum af greiðslu svonefnds dýrtíðarsjóðs, sem skyldi standa straum af bótum til framleiðslunnar vegna hins háa verðlags, sem orðið var í landinu, enda ber þessi kafli, sem nú á að framlengja með þessu frv., heitíð III. kafli l. nr. 100 1948, um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna. Enn þá ber kaflinn þetta heiti.

Síðan þessi skattur var á lagður í því skyni, sem ég nú hef greint, hefur hann verið framlengdur frá ári til árs, og þær tekjur hafa ýmist gengið beint til stuðnings atvinnuvegunum eða orðið skattstofn ríkissjóði til handa.

En öll eru þessi ákvæði allflókin. Að uppistöðum til er 4. gr. þessa frv. framlenging á l. nr. 100 1948. En þó fela ákvæði greinarinnar í sér breyt. frá þeim lögum, og í lögum um útflutningssjóð eru sérákvæði um söluskatt, sem nokkur ástæða er til að skoða í samhengi við þetta frv., þar sem raunverulega er um sama skattstofninn að ræða. 40. gr. laga um útflutningssjóð o.fl. er þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Af sölu þeirri og veltu, sem skattskyld er samkv. b-lið 22. gr. III. kafla laga nr. 100 1948, sbr. l. nr. 82 1957 eða önnur lög, er í stað þeirra koma, skal greiða sérstakt gjald, er nemi 6% af umræddri sölu og veltu.“

Þegar þetta er borið saman, þá er auðsætt, að hér er um allflókna lagasetningu að ræða og ákvæðin í þrennum lögum og þannig samanslungin, að ég hef ekki á þeim fáu mínútum, síðan þetta frv. var lagt hér fram, getað athugað það til hlítar, og það kom ekki fram í ræðu hæstv. fjmrh., hvort hann hefði gert sér far um að greina þessa þætti í sundur. En það er eftirtektarvert, að 40. gr. laganna um útflutningssjóð o.fl. grundvallast á b-lið 22. gr. III. kafla laga nr. 100 1948, eða m.ö.o. ákvæðum, sem standa í því frv., sem hér er til umræðu. Og ef þessi l. nr. 100 1948 gilda ekki einhvern hluta úr árinu, þá bara er vísað í einhver önnur lög, sem kunna að koma í þeirra stað. Þetta er svona mikil dvergasmíð allt saman og ber náttúrlega að vissu leyti vott um, hvað þm. eru miklir hagleiksmenn á lagasmiðar. En full ástæða er til að benda á þetta og að sú n., sem fær þetta frv. til athugunar, geri sér far um að glöggva sig á þessu alveg frá rótum.

En þessi gr., sem hér er höfð að uppistöðu gagnvart 40. gr. l. um útflutningssjóð o.fl., er um það, að greiða skuli 3% söluskatt af annarri sölu eða veltu en áður er talin, þar með talin umboðssala, sala eða afhending, vinna og þjónusta látin í té af iðnaðarmönnum og iðnfyrirtækjum, matsölu, veitinga- og gistihúsum, sýningar í kvikmyndahúsum, leikhúsum, flutningastarfsemi, lausafjárleiga og þess háttar. Af sölu bóksala á bókum í umboðssölu skal þó aðeins greiða skattinn af umboðsþóknun hans. Í öðrum umboðssöluviðskiptum skal smásali eða annar umboðssali greiða söluskatt af öllu heildarandvirði varanna frá sér.

Ég tók það fram, að síðan söluskatturinn var lagður á vegna bóta til handa útflutningsatvinnuvegum þjóðarinnar, hefur það fé, sem innheimt hefur verið samkv. þeim gjaldstofni, ýmist gengið beint til þarfa atvinnuveganna eða orðið sem tekjuliður í fjárlagafrv. Og í fjárlögum þessa árs má enn greinilega sjá sambandið þar á milli. Tekjur af söluskatti eru í fjárl. þessa árs áætlaðar 151 millj. og 400 þús. kr., en til gjalda á 19. gr. fjárl. er aftur á móti fært framlag til útflutningssjóðs 152 millj. og 100 þús. kr. eða að heita má sama upphæð og söluskatturinn gefur. Ég sé í fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir og fyrrv. fjmrh. hefur lagt fram, að söluskatturinn mun vera áætláður ofur lítið lægri tekjustofn á næsta ári en stendur í fjárl. þessa árs. En á móti því vegur það, að út úr fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir fyrir árið 1960, er kippt eigi minna en 100 millj. kr. af framlagi því, sem á þessu ári gengur til útflutningssjóðs. En þetta sýnir þó, að enn er greinilegt samband milli söluskattsins og afkomu atvinnuveganna, þ.e.a.s. útflutningssjóðsins, — stuðnings við atvinnuvegina af almannafé, — og það leiðir til þess, að um leið og fjallað er um þetta frv., þ.e.a.s. þessi ákvæði, sem felast nú í einni grein þessa frv., sem hér er til umræðu, þá er alls kostar eðlilegt, að þm. geri sér nokkra grein fyrir því, svo sem auðið er á þessum tíma, hverjar horfur eru um afkomu atvinnuveganna og hvernig horfur eru í efnahagsmálum þjóðarinnar í heild. Þetta eru jafnframt rök fyrir því, að það er ekki eðlilegt að taka þennan þátt, sem á að gefa ríkissjóði eða útflutningssjóði um 150 millj. kr., einan út úr samhengi við aðstoð við atvinnuvegina og efnahagsmál þjóðarinnar í heild og afgr. þetta hér á Alþingi með afbrigðum og í flaustri. Það er alls ekki eðlilegt. Hitt er eðlilegt og raunar sjálfsögð vinnubrögð, hvað sem er um ákvæðin, sem í hinum greinum frv. felast, að nokkuð sé staldrað við og heildarmyndin af þjóðarbúskapnum skoðuð betur en orðið er, áður en þessi 150 millj. kr. skattur, sem raunverulega gengur til útflutningssjóðs, er lögfestur.

Eins og kunnugt er, þá er í löggjöfinni um útflutningssjóð o.fl. kveðið á um margháttaðar bætur til handa atvinnuvegunum, og þessar bætur eru flokkaðar bæði eftir því, á hvaða tíma útgerð er stunduð, og eins eftir því, hvers konar skip eiga í hlut og með hvaða veiðitækjum er fiskað.

Það er ákveðið í 3. gr. l. um útflutningssjóð, að á verðmæti útfluttra vara, sem framleiddar eru eftir 14. maí 1958, skuli greiða ýmist 80% eða 55% eða 70% bætur, eftir því, um hvers konar framleiðslu er að ræða.

Þá eru ákvæði í útflutningssjóðslögunum um aðstoð við togaraflotann, bæði fastar greiðslur og bætur í öðru formi, og í þeim sömu lögum eru enn fremur ákvæði um útflutningsbætur á landbúnaðarafurðir, sem seldar eru úr landi.

Á þingt í fyrra, þ.e.a.s. í nóvember og desember 1958, var þessi löggjöf tekin til nokkurrar athugunar í sambandi við samninga, sem þá var verið að undirbúa um bætur til bátaútvegsins. Við þá athugun, sem þá fór fram, þótti það koma í ljós, að ákvæði útflutningssjóðslaganna, sem sett voru 1958, mundu ekki fyllilega veita atvinnuvegunum þær bætur, sem þörf væri á. Í grg. fyrir frv. um breyt. á i. um útflutningssjóð o.fl., sem lagt var fyrir Alþingi s.l. vetur og flutt var, eftir að stjórnarskiptin urðu, af þáv. forsrh., er gerð nokkur grein fyrir því, hvaða horfur voru þá um afkomu sjávarútvegsins og hvaða ráðstafanir fyrrv. ríkisstj., þ.e.a.s. vinstri stjórnin, hafði gert í því sambandi. Í þeirri grg. frv., sem þáv. forsrh. lagði fyrir á Alþingi s.l. vetur, segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Á vegum fyrrv. ríkisstj. (þ.e. vinstri stjórnarinnar) var í októbermánuði s.l. gerð athugun á því, hver áhrif þær hækkanir grunnkaups og kaupgreiðslu samkv. vísitölu, sem átt höfðu sér stað, síðan lögin um útflutningssjóð voru sett, hefðu haft á rekstrarkostnað útflutningsatvinnuveganna. Þessar hækkanir kaupgjalds voru, eins og kunnugt er, 10.7% umfram það, sem útflutningssjóðslögin höfðu gert ráð fyrir, að því er verkamenn snerti, og 7.1% að því er flestar aðrar starfsgreinar snerti. Niðurstöður þessarar athugunar voru þær, að af völdum kauphækkananna væri rekstrarkostnáður útflutningsatvinnuveganna orðinn um 6% hærri en sá kostnaður, sem bætur útflutningssjóðslaganna voru miðaðar við, og til þess að jafna metin mundi þurfa nýja hækkun bóta, að upphæð um 105 millj. króna. Þessar áætlanir voru miðaðar við kaupgreiðsluvísitölu 185 og byggðust enn fremur á þeirri forsendu, að skiptaverð á fiski til bátasjómanna hækkaði ekki meir en kaupgjald verkamanna hafði hækkað, eftir að útflutningssjóðslögin höfðu verið sett.“

Og hér segir enn fremur:

„Sú athugun, sem hér að framan getur, var almenns eðlis, og gat því ekki verið um að ræða nákvæmar niðurstöður um afkomu hinna einstöku greina útflutningsframleiðslunnar. Á hinn bóginn hafði nefnd manna, er starfaði á vegum útflutningssjóðs, unnið að því síðan á s.l. sumri að kynna sér eins nákvæmlega og föng voru á afkomu hverrar greinar útflutningsframleiðslunnar um sig, en niðurstöður þessarar n. lágu ekki fyrir fyrr en í desember.“

Hér kemur það svo greinilega fram sem verða má, að meðan vinstri stjórnin sat, þá var hafizt handa um það þegar í októbermánuði 1958 að láta gera athuganir á afkomu sjávarútvegsins og reyna að draga upp heildarmynd af því, hverra bóta væri þörf framleiðslunni til handa, og hafa þá heildarmynd nokkurn veginn tiltæka a.m.k. snemma í desember 1958. Og hér kemur það enn fremur fram í grg. með frv. fyrrv. ríkisstj., að þessi athugun, sem gerð var að tilhlutun vinstri stjórnarinnar og á hennar vegum, var bæði almenns eðlis og enn fremur um einstaka þætti þessara mála. Með þessu er það staðfest, hvernig vinstri stjórnin bjó í hendur þeirra, er við tóku að þessu leyti.

En þessar athuganir, sem gerðar voru að segja verður í tæka tíð fyrir atbeina vinstri stjórnarinnar, leiddu til þess, að augljóst var þegar snemma vetrar 1958, að það var nauðsynlegt að auka bætur til útflutningsframleiðslunnar, og var þinginu gerð grein fyrir þeirri nauðsyn í grg. með frv. fyrrv. ríkisstj. með þessum orðum:

„Af þessum ástæðum (sem áður eru taldar) reyndist nauðsynleg aukning bóta til útflutningsframleiðslunnar verulegum mun hærri en áður hafði verið áætlað, eða 147 millj. kr., þegar miðað er við kaupgreiðsluvísitöluna 185. Ef vísitalan verður færð niður í 175 stig, lækkar þessi upphæð hins vegar um 81 millj. eða í 66 millj. En við þá upphæð verður svo að bæta þeim sérstöku bótum, sem greiða verður framleiðendum vegna þess, að kaup greiðist í janúarmánuði eftir vísitölu 202, vegna iðgjalda fyrir bráðafúatryggingu báta á árinu 1958 og hækkun bóta á síld, sem veidd er á tímabilinu 1. janúar til 15. maí, og upp í þær bætur, sem greiddar eru á annan fisk á sama tímabil.“

Síðan er niðurstaðan af þessum athugunum færð út reikningslega, svo að myndin yrði skýr, og jafnframt gefið lauslegt yfirlit yfir hag útflutningssjóðs, eins og hann stóð, þegar vinstri stjórnin skilaði af sér. Og þar sem þetta eru tölur, lagðar fram af fyrrv. forsrh., þeim er tók við stjórnarforustu af vinstri stjórninni, verður varla sagt, að ástæða sé til að vefengja þær eða hann hafi haft nokkra löngun til að gera þetta dæmi neitt fegurra í augum þingsins og almennings en hið raunverulega er. En í þessari grg, fyrrv. ríkisstj. segir svo um þetta atriði, með leyfi hæstv. forseta:

„Fjárhagsafkoma útflutningssjóðs hefur reynzt tiltölulega góð á árinu 1958, Er þetta að sjálfsögðu afleiðing þeirrar hækkunar yfirfærslu- og innflutningsgjalda, er framkvæmd var á því ári. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum hefur hagur sjóðsins breytzt úr 34 millj. kr. skuld í árslok 1957 í 5 millj. kr. sjóðseign í árslok 1958.“

Þegar þetta er athugað og menn gera sér ljóst, hvaða tökum þessi mál voru tekin, meðan vinstri stjórnin sat, að bæði almenn athugun á afkomu sjávarútvegsins og sérstök athugun á einstökum þáttum hans var sett af stað í október 1958, að myndin af þessu var orðin nokkurn veginn skýr í öndverðum desember 1958, að ráðstafanir gagnvart framleiðslunni, a.m.k. gagnvart bátaflotanum, þurfa í raun og veru að vera ákveðnar um áramót, og að nú er desembermánuður að hefjast, þá er full ástæða til í sambandi við þetta mál að bera fram þá spurningu til hæstv. ríkisstj., hvað nú hafi verið gert í þessu efni. Liggur nú fyrir athugun, bæði almenns eðlis og af einstökum þáttum sjávarútvegsins, eins og á síðustu mánuðunum eða síðustu vikunum, sem vinstri stjórnin sat? Það mætti ætla, að hæstv. félmrh. og sjútvmrh. mundi auðveldlega geta svarað þessu, þar sem hann hefur farið með sjávarútvegsmálin frá því 23. des. 1958 eða allt þetta ár. En e.t.v. er hann nú ekki hér nærstaddur, og væri þá vel, eftir að ég hef lokið máli mínu, ef aðrir hæstv. ráðh. vildu hlaupa í skarðið og gefa hér -nokkrar upplýsingar um þetta.

En eins og ég hef áður tekið greinilega fram, þá er samband á milli söluskattsins sem tekjustofns og ákvæða laga um útflutningssjóð um stuðning vegna atvinnuveganna. Söluskatturinn hefur stundum verið látinn ganga beint í dýrtíðarsjóð eða beint til atvinnuveganna, en á öðrum tíma, eins og t.d. núna á þessu ári, að formi til færður inn í fjárl., en samsvarandi upphæð aftur gjaldamegin til útflutningssjóðs.

Eins og hv. þm. og þjóðinni allri er kunnugt, þá gerðist það jarteikn á degi heilags Þorláks 1958, að Sjálfstfl. myndaði stjórn Alþfl., eins og orðrétt var sagt í blöðum um jólaleytið í fyrra. Sú stjórn tók við góðum arfl. Fjárlögin og reikningar útflutningssjóðs bera vitni um það. Í fjárl. þessa árs, sem sett voru, eftir að stjórn Alþfl. tók við, er nýr tekjuliður, sem hefur ekki staðið í fjárlögum undanfarinna ára, þ.e. 16. tekjuliður í 2. gr., greiðsluafgangur 1958 25 millj. kr. Þessi nýi tekjuliður í fjárlögum þessa árs er arfur, sem ríkisstj. Alþfl. tók við úr hendi vinstri stjórnarinnar, og grg., sem ég vitnaði til áðan með frv. fyrrv. ríkisstj., þ.e.a.s. frv. stjórnar Alþfl., sem flutt var að tilhlutan þáv. forsrh., skýrir óvefengjanlega frá því, hvernig hagur útflutningssjóðs stóð í árslok 1958, eða á árinu 1958 hafði hagur sjóðsins batnað þannig, að í stað 34 millj. kr. skuldar í ársbyrjun var 5 millj. kr., innstæða í árslok.

Alþfl. og málgagn hans hefur túlkað það fyrir þjóðinni allt þetta ár, að hann stæði á verði um svokallaða stöðvunarstefnu. Og þegar þjóðinni var att út í baráttu um kjördæmabreytinguna, þá var skrifað þannig í Alþýðublaðið, að kosningarnar í sumar ættu ekki að snúast um kjördæmamálið, það væri í raun og veru afgert mál með samþykkt þm. s.l. vor, kosningarnar ættu að snúast um allt annað, m.a. um atvinnulifið og m.a. um það, hvort þjóðin vildi veita Alþfl. aukið fulltingi til þess að framkvæma stöðvunarstefnuna í efnahagsmálum.

Nú fer það saman, að fyrrv. ríkisstj. tók við góðum arfi, greiðsluafgangi og góðum hag útflutningssjóðs, eins og ég hef rakið, að Alþfl. hefur fengið tækifæri til þess á þessu ári að framkvæma stöðvunarstefnuna og að nú fyrir rúmum mánuði lýstu a.m.k. tveir ráðherrar í fyrrv. stjórn því í áheyrn alþjóðar, að hagur ríkissjóðs væri góður og hagur útflutningssjóðs þannig, að hann hefði ekki í annan tíma verið betri, síðan sjóðurinn tók til starfa. En þegar þetta fer saman annars vegar og hins vegar það, að hæstv. núv. forsrh. segir, að ástandið sé svo dökkt í efnahagsmálum þjóðarinnar, eins og málgagn Sjálfstfl., Morgunblaðið, hefur birt eftir hæstv. forsrh., að á næsta ári muni vanta í ríkissjóð og útflutningssjóð a.m.k. 250 millj. kr. að öðru óbreyttu til

þess að sjá efnahagskerfi þjóðarinnar farborða, þá er full ástæða til að spyrja: Hvað er sannleikur? Hvorir segja satt, fyrrverandi og núverandi ráðh. Alþfl. eða hæstv. núv., forsrh.? Og það er enn fremur ástæða til að spyrja: Hvað líður athugun á afkomu sjávarútvegsins nú á þessu hausti og hverjar horfur eru um rekstrargrundvöll útgerðarinnar um næstu áramót? Og það er enn fremur ástæða til að spyrja, og þeirri spurningu vil ég beina til þess hæstv. ráðh. eða þeirra ráðh., sem viðstaddir eru: Er farið að undirbúa samninga við útgerðarmenn um rekstrarafkomuna á næstu vetrarvertið, eða eru þeir samningar þegar hafnir?

Þessi mál öll, þær 150 millj. kr., sem afla á með söluskattinum, og bæturnar, sem greiddar eru úr útflutningssjóði, þau eru öll í samhengi, og sú mynd, sem þm. hafa fyrir sér, þegar þeir eiga að fara að taka afstöðu til söluskattsins, þarf að vera eins skýr og auðið er að gera hana á þessum tíma, og þessi tekjustofn, söluskatturinn, er svo hár, að það er ekki óeðlilegt, að hann taki einhverjum breytingum, hér er um svo stórfelldan tekjustofn að ræða, ef niðurstaðan kann að verða sú, að gripið yrði til nýrra úrræða á sviði efnahagsmála, þannig að náð yrði eftir öðrum leiðum og í öðru formi svipuðu marki og stefnt hefur verið að eða náð með lögunum um útflutningssjóð.

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er nú til 1. umr. Því var útbýtt hér fyrir fáum mínútum. Fjhn. þessarar deildar hefur því eðlilega ekki fjallað um það. En ég sé, að í nál., sem búið var að gefa út um annað frv., sem við höfum haft til meðferðar, um framlengingu á ákvæðunum um söluskatt, þá hefur minni hl. fjhn. lagt það til, að framlengingin gilti einungis til febrúarloka 1960, eða til sama tíma og hæstv. ríkisstj. fer fram á, að henni verði heimilað að greiða úr ríkissjóði, þó að fjárlög hafi ekki verið sett.

Ég þykist vita, að fjhn. taki nú þetta mál enn að nýju til gaumgæfilegrar athugunar, m.a. með tilliti til þeirra atriða, sem ég hef bent á, með tilliti til þess, hve þessi ákvæði um söluskattinn eru sundurleit og í mörgum lögum, og með tilliti til annarra þátta, sem vega mikið í fjárhagskerfi þjóðarinnar í heild.

Í þessu nýja frv. um bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga eru í 1. grein ákvæði, sem nokkuð hafa verið gerð að umtalsefni hér í deildinni í sambandi við annað frv. En í 3. gr. eru ákvæði um bifrefðaskatt og innheimtu hans, sem munu vera svipuð eða samhljóða frv., sem áður hafði verið lagt fram og verið hefur hér á dagskrá. Þar eru ákvæði í 3. gr. m.a. um ráðstöfun á því gjaldi, sem innheimta á sem viðauka eða álag á benzínskatt, þ. á m. ákvæði um brúasjóð. Ég tel nokkra ástæðu til að fara um þau ákvæði nokkrum orðum, en þetta er 1. umr. málsins, og gefst væntanlega tækifæri til þess að víkja að því síðar, við 2. eða 3. umr. En það er þó eitt atriði í 3. gr. þessa frv., sem ég vil leyfa mér að benda á, áður en málið fer til hv. fjhn., og það er sambandið á milli ákvæða þessa frv., sem á að framlengja, og ákvæða í lögunum um útflutningssjóð.

A-liður 3. gr. þessa frv. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Til viðbótar við innflutningsgjald af benzíni í a-lið 1. gr. laganna (þ.e.a.s. laga nr. 68 frá 1949) skal innheimta 20 aura af hverjum lítra, þar af skulu 5 aurar renna í brúasjóð og 5 aurar í sérstakan sjóð, sem varið yrði til að gera akfæra þjóðvegi milli byggðarlaga.”

En í 46. gr. laganna um útflutningssjóð o.fl. segir svo:

„Innheimta skal sérstakt innflutningsgjald af benzíni til viðbótar því gjaldi, sem ákveðið er í a-lið 1, gr. laga nr. 68 1949 og 1. tölulið 1. gr. laga nr. 92 1957. Skal gjald þetta nema 62 aurum af hverjum lítra, þar af skulu 6 aurar renna í brúasjóð og 6 aurar í sérstakan sjóð, sem varið skal til að gera akfæra þjóðvegi milli byggðarlaga, og 50 aurar til útflutningssjóðs.“

Ég bendi á þetta enn að nýju, að hér kemur fram sama eða svipað samband á milli þessara ákvæða frv. og 46. gr. útflutningssjóðslaganna og ég hafði bent á gagnvart ákvæðunum um söluskatt. Allt er þetta þannig vaxið ásamt öðru, að það er fullkomin ástæða til þess, að fjhn., sem fær þetta frv. til athugunar, taki þetta til nokkuð gaumgæfilegrar íhugunar og samræmingar og að lagasetning um þetta sé ekki hespuð af í skyndi.