02.06.1960
Neðri deild: 93. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2969 í B-deild Alþingistíðinda. (1142)
162. mál, verðlagsmál
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Í tilefni af því, sem hv. síðasti þm. sagði um Ed., er ég honum ekki að öllu leyti sammála. Ég álít, að sú breyt., sem Ed. hefur gert á ákvæðunum um verðlagsdóminn, sé til bóta og eigi þess v egna að standa. Öðru máli gegnir svo um þá breyt., sem d. hefur gert á 1. gr., en við þá grein hef ég borið fram sérstaka brtt. og aðra til vara og vil ég aðeins gera stutta grein fyrir þeim ástæðum, sem til þess liggja.
Ég hef áður staðið að till. um skipan verðlagsdóms eða verðlagsnefndar réttara sagt, sem væri skipuð á þann hátt, að viðkomandi stéttir tilnefndu nm., þ.e. neytendur annars vegar og svo fulltrúar verzlana og verzlanafyrirtækja hins vegar. Þegar ég stóð að þeirri brtt., hafði ég það fyrirkomulag til hliðsjónar, sem hefur verið í sambandi við verðlagningu landbúnaðarafurða og hefur gefizt vel þar, og ég taldi ekki óeðlilegt, að slíkt fyrirkomulag gæti einnig gefizt vel í þessu sambandi.
Og það er líka rétt að athuga, að hvaða afstöðu sem menn hafa til kaupmannastéttarinnar og verzlunarfyrirtækja yfirleitt, finnst mér, að það sé sanngirnismál, að þeir aðilar fái samningsrétt um hagsmunamál sín í samræmi við það, sem aðrar stéttir hafa, og ég sé ekki, að það eigi að stafa nein hætta af því, ef það er gert með líkum hætti og nú er gengið frá verðlagsákvörðunum landbúnaðarins.
Hv. d. féllst ekki á þessa brtt., sem ég hafði flutt ásamt öðrum þm. um þetta efni, og virðist enn ekki vera þeirrar skoðunar, að það sé rétt að veita verzlunarfyrirtækjum og verzlunarstéttinni samningsrétt um þessi hagsmunamál sín, og hefðu menn þó getað búizt við því, að afstaða Sjálfstfl., eftir allar hans yfirlýsingar um þessi mál, hefði ekki orðið á þá lund, að hann stuðlaði að því, að slík till. væri felld.
Nú hefur orðið nokkur breyt. í Ed. á því fyrirkomulagi á skipan verðlagsnefndar, sem Nd. gekk frá, á þá leið, að í staðinn fyrir, að Nd. gerði ráð fyrir því, að í verðlagsnefndinni væru fimm nm., ráðuneytisstjórinn í viðskmrn. og 4 þingkjörnir menn, þá er nú gert ráð fyrir 5 þingkjörnum mönnum og ráðuneytisstjóranum að auki og hann hafi tvö atkv., ef jöfn atkv. verða í n. Ég tel, að þessi breyt. sé til hins verra. Ég áleit strax, að það væri óheppilegt fyrirkomulag, og flutti brtt. í sambandi við það að láta ráðuneytisstjórann í viðskmrn. sitja í verðlagsnefndinni, vegna þess að það væri óeðlilegt af ýmsum ástæðum, að ráðuneytisstjóri fjallaði sérstaklega um þessi mál og hefði þetta sem aukastarf, að það væri heldur óheppilegt að gera ráðuneytisstjóra að eins konar oddamönnum í slíkum gerðardómum eins og þessum og það samræmdist ekki starfi þeirra. Þess vegna flutti ég í Nd. við 3. umr. þá brtt., að í staðinn fyrir ráðuneytisstjórann væri oddamaður tilnefndur frá hæstarétti. Það fékkst ekki samþ. En nú, þegar búið er að breyta þessu fyrirkomulagi í það horf að tilnefna 5 nm. af Alþ., sýnist mér, að það eigi ekki lengur að vera þörf fyrir ráðuneytisstjórann sem oddamann, því að það er þá orðinn þegar oddamaður af hálfu hinna þingkjörnu manna til staðar, þar sem þeir eru orðnir 5, og þá sé eðlilegt að fella ráðuneytisstjórann alveg niður, samkv. þeirri röksemd, sem ég hef hér áður flutt og minnzt á núna, að það sé óeðlilegt að hafa ráðuneytisstjóra fyrir oddamann í slíkri nefnd. Og satt að segja veit ég ekki heldur, hvernig það á að vera framkvæmanlegt, á meðan núv. ráðuneytisstjóri er í viðskmrn., vegna þess að til viðbótar starfi sínu þar er hann líka ráðuneytisstjóri í efnahagsmrn., og ef á að fara að leggja þetta starf á hann til viðbótar, að vera formaður og oddamaður í verðlagsnefnd, sér maður ekki með góðu móti, hvernig hann á að geta komizt yfir það. Af því að því hefur verið haldið fram af hæstv. ráðh., að þetta sé alveg sérstaklega dýrmætur maður, er ég næstum undrandi yfir því, að þeir skuli vilja leggja svona mikla vinnu á hann og reyna ekki að spara hann betur, og sú ástæða ætti m.a. að geta ýtt undir það, að þeir féllust á þá breyt., sem er í till. minni um að fella þátttöku hans í verðlagsnefndinni alveg niður og hafa n. aðeins skipaða hinum 5 nm., sem eru kjörnir af Alþ. Sú skipan er ríkjandi nú á mörgum sviðum. T.d. í því máli, sem kemur fyrir hér næst á eftir, er bankaráð Búnaðarbankans fært í það horf að vera skipað 5 mönnum kosnum af Alþ. og af ríkisstj. haldið fram, að það sé sérstaklega heppilegt fyrirkomulag þar. Mér fyndist, að það væri þá ekki óeðlilegt, þó að það gæti einnig átt við um verðlagsnefndina, að hafa þar aðeins 5 menn, sem eru kjörnir af Alþingi. Ef hins vegar það fæst ekki fram, að í verðlagsnefndina væru aðeins 5 menn kjörnir af Alþingi, og ef hæstv. ríkisstj. heldur fast við það að láta ráðuneytisstjórann vera formann í verðlagsnefndinni, er það ákaflega óvarlegt fyrirkomulag að láta hann sitja þar, vera þar með tvö atkvæði, ef atkv. verða jöfn, og láta hann mega sín þar meira en þá menn, sem eru kosnir á Alþ. Ég álít, að við þingmenn eigum að hafa það traust til Alþingis og bera það mikla virðingu fyrir því, að við eigum að telja menn, sem eru kjörnir af því, eiga að vera rétthærri en menn, sem eru tilnefndir í einhverja nefnd vegna þess, að þeir gegna einhverju starfi um tíma og tíma, og þess vegna, ef nm. eru hafðir 6, eins og gert er ráð fyrir núna í frv., sé eðlilegra, að það sé meiri hl. þingkjörinna nm., sem skeri úr, ef atkv. verða jöfn í n., en ráðuneytisstjórinn sé ekki látinn hafa tvöfaldan atkvæðisrétt á við hina undir þeim kringumstæðum.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð öllu fleiri. Ég hefði talið langheppilegast, að það fyrirkomulag væri haft á þessum málum, að fulltrúar viðkomandi stétta fengju að semja um það og að verzlunarmannastéttin fengi að því leyti samningsrétt eins og aðrar stéttir njóta nú. En fyrst hæstv. ríkisstj. fellst ekki á það, held ég, að það sé heppilegasta fyrirkomulagið að hafa þingkjörna nefnd til þess að annast þetta mál, og vænti þess vegna, að hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar endurskoði afstöðu sína til 1. gr. og athugi það, hvort ekki sé heppilegt að hafa það fyrirkomulag, sem felst í minni till. Meiri hl. þeirra í n. á eftir sem áður að vera tryggður, og þeir ættu þess vegna ekki að hafa á móti henni af þeirri ástæðu.