02.06.1960
Neðri deild: 95. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3004 í B-deild Alþingistíðinda. (1181)
175. mál, Háskóli Íslands
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Mér finnst fara að tíðkast nú hin breiðu spjótin. Hefur hv. Ed. annaðhvort án vitundar hæstv. ríkisstjórnar eða með vitund einhverra úr henni tekið upp á því að gerbreyta frv., sem kvartað var yfir hér í Nd. að hefði verið lagt seint fyrir og þurfti á alveg sérstakri sanngirni að halda til þess að afgreiða það í þessari hv. d. frá menntmn., sem hafði með það að gera, og frá d., þannig að það hefði ekki gengið svona skjótt, ef mönnum hefði dottið í hug, að maður ætti að fá þetta endursent svo að segja á siðasta degi þingsins með stórbreytingum. Og ég er hræddur um, að ef þetta á að fara að verða vani hér um afgreiðslu mála, verði að fara að athuga dálítið betur um þingsköpin og rétt okkar þm. til þess að afgreiða lög frá Alþingi.
Það er svo mælt fyrir í Sþ., þegar þar eru afgreiddar, þó að það séu ekki nema litlar og lélegar tillögur, sem kosta peninga, að það skuli hafa um þær tvær umr., en þegar ákveðið er að setja lög, þurfa þó að vera 3 umr. í hvorri deild. En nú á að bæta inn í, stofna ný embætti og annað slíkt og gefa Nd. eina umr. um það mál til þess að ákveða það. Ég verð að segja það í fyrsta lagi viðvíkjandi þessu, að ég kann ekki við svona vinnubrögð. Það stendur yfirleitt aldrei á mér að vera með því að veita afbrigði í þingi, ég álít það sjálfsagðan hlut. En ég vildi aðeins mótmæla svona aðförum með því fyrir mitt leyti að leggja til að neita um afbrigði, ef á að fara að taka Alþ. þessum tökum til þess að pína mál í gegn. Ég vil taka það fram strax í upphafi, ef það er meiningin að afgreiða þetta mál, eins og það nú liggur fyrir, og breyta því ekki í þessari hv. d., að ég álít ósvinnu og ókurteisi gagnvart Alþ. að fara svona að.
Mér er tjáð, að að einhverju leyti standi háskólaráð á bak við þetta. Ég heyrði það ekki svo nákvæmlega, sem upp var lesið, og hefði kunnað betur við, að það hefði legið hér fyrir prentað með þeim undirskriftum, sem þar eiga að vera, þannig að við hefðum getað séð það og athugað og kannske þá kallað á okkar fund menn úr háskólaráðinu til þess að ræða við þá um þetta. Þann rétt hafa nefndir þessarar hv. d. að geta talað við embættismenn ríkisins, en ekki að hlýða þeim og beygja sig í auðmýkt. Sá tími er liðinn, að embættismenn ríkisvaldsins geti skipað Alþ. fyrir verkum, og það þurfa jafnt háskólaprófessorar og aðrir embættismenn ríkisins að gera sér ljóst, a.m.k. meðan þeir hafa þá ekki eitthvert herravald á bak við sig til þess að reka þingið heim og fangelsa þingmenn, eins og í voru mikla vinalandi, því fyrirmyndarlýðræðislandi, Tyrklandi. Þar kann að vera, að háskólaprófessorum þyki það þægilegt og geti jafnvel verið einhver framför í því, að þeir geri sig allstóra og segi þingi fyrir verkum. En meðan við erum kosnir af almenningi í landinu til þess að stjórna þessu landi, kann ég ekki við það, að embættismenn utan þessara veggja segi okkur fyrir um, hvernig við eigum að stjórna hér. Ég hef sjálfur staðið í því við þá aðalendurskoðun, sem fór fram á háskólalögunum fyrir þremur árum, að hafa með háskólaráð að gera og taka þar þátt í, einmitt í menntmn. þessarar hv. d., heildarendurskoðun á l. um háskólann, og ég kann ekki við það, að farið sé að kasta hér inn til okkar á síðustu stundu einhvers konar kákbreytingum á þessum lögum, án þess að okkur gefist tækifæri til þess að ræða þetta almennilega og hugsa um þetta. Og ég held, að Háskóli Íslands hafi ekki þurft að kvarta yfir því, að hann hafi ekki yfirleitt átt hauk í horni, þar sem er sá flokkur a.m.k., sem ég tala fyrir, og mér finnst það þess vegna mjög hart, að það sé farið að beita þannig aðförum af hálfu háskólaráðs eða manna úr því, að ætla að neyða menn svo að segja á síðustu stundum Alþingis til að fara að ræða svona mál og láta í ljós sínar tillögur um það og gefa ekki neinn eðlilegan umhugsunarfrest til þess að geta rætt þessi mál, svo að af einhverju viti sé. Ég hafði því satt að segja ekki búizt við því, að við mundum á þessari kvöldstund eiga að fara að ræða endurskoðun á háskólal., svo og svo mörg ný prófessorsembætti, nýja deild í háskólanum og nýja skiptingu á háskólanum. Og ég sé satt að segja alls ekki, hvað það er eiginlega, sem rekur þannig á eftir, og hef hvergi getað fengið neina skýringu á því, enda held ég, að enginn þm. hafi fengið neina skýringu á því. Ég held meira að segja, að þegar þetta var afgr. í Ed., hafi fæstir menn í Ed, vitað, hvað þeir voru að gera, með allri virðingu fyrir þeirri hv. deild. A.m.k. treystu menn sér ekki almennt til þess að ræða þetta mál þar, vegna þess að þeir þekktu litið inn á það, og enginn tók til máls við 3. umr., heldur var þessu ýtt í gegn með einhvers konar rýtingi á bak við tjöldin á nokkrum mínútum.
En ef það er meiningin, að við eigum að fara að ræða hér endurskoðun á háskólal., skal ég taka þátt í því. Það er ekki nema það, sem hægt er að heimta af okkur. Háskólinn er 50 ára nú á næsta ári, og ég geng út frá því, að það hefði verið mjög viðkunnanlegt, að Alþingi Íslendinga hefði þá gert þær breyt. á Háskóla Íslands, sem það teldi heppilegastar. Og ef það er háskólaráð, sem stendur á bak við þessa brtt., má ég þá spyrja: Er þetta þá það, sem háskólaráð óskar eftir að sé gert fyrir Háskóla Íslands á 50 ára afmæli hans? Er þetta allur stórhugurinn? Eru þetta allar óskirnar? Hvað er það þá, sem hér er í gangi, eða eru einhverjar tilviljanir þarna að verki? Datt einhverjum manni úr háskólaráðinu í hug að kasta inn einhverri brtt. og síðan átti Alþ. að gleypa við þessu og þar með búið? Er það svona, sem á að afgreiða lög um Háskóla Íslands?
Ég verð að segja það, að það hefur oft komið fram ýmiss konar krítik á háskólann, og það er máske eðlilegt, eins og með fleiri stofnanir í okkar unga endurreista lýðveldi, að okkur gangi erfiðlega með það. En eitt af því, sem mér hefur fundizt vera erfiðast í sambandi við háskólann og þá stefnu, sem tekin væri með hans löggjöf, það er, að það virðist loða svo mikið við hans gamla uppruna, að hann sé fyrst og fremst hugsaður sem embættismannaskóli. Af því, að hann er stofnaður upprunalega úr prestaskólanum og læknaskólanum og slíku, loðir það við hann, og jafnvel ýmsum af þeim æðstu mönnum, sem eiga sæti við þá stofnun, hættir við að hugsa þennan skóla sem embættismannaskóla. Og ég held, að ef á að fara að ræða endurskoðun á háskólalögunum, sé nauðsynlegt, að við alþm. gerum okkur það ljóst, að við ætlumst til meira af háskólanum en hann sé embættismannaskóli. Við höfum stolt fyrir hönd Háskóla Íslands, við höfum stolt fyrir hönd íslenzku þjóðarinnar og gerum kröfu til þess, að háskólinn sé stofnun, sem hún geti litið upp til, geti jafnvel litið upp til meira en nokkurrar annarrar stofnunar. Og eitt af því, sem þarf að gerast, til þess að háskólinn verði slík stofnun, það er, að jafnhliða því, sem hann er embættismannaskóli, verði hann vísindamiðstöð, ekki aðeins vísindamiðstöð þannig, að prófessorarnir sjálfir geti stundað vísindi og Alþ. og ríkisstj. gefi þeim aðstöðu til þess, heldur líka frá hinu sjónarmiðinu, að háskólinn og kennslan í honum sé rekin með það fyrir augum, að hann útskrifi vísindamenn, að hann útskrifi menn, sem séu færir um að hafa vísindaleg störf með höndum og sinna slíkum störfum. Ég skal segja, af hverju ég legg áherzlu á þetta og minni á það.
Þegar lagafrv. var lagt hér fyrir Alþ. 1956, á þskj. 415, var tekið fram í 1, gr. þess lagafrv., eins og það lá fyrir, með leyfi hæstv. forseta: „Háskóli Íslands skal vera vísindaleg rannsóknarstofnun og vísindaleg fræðslustofnun, er veitir nemendum sínum menntun til þess að gegna ýmsum embættum og störfum í þjóðfélaginu.“
Það var háskólaráð, sem hafði undirbúið þetta frv. og lagt það hér fyrir. Í meðferð Alþ. og það einmitt hér í Nd. var bætt aftan við þetta um að veita nemendum menntun til að gegna ýmsum embættum og störfum í þjóðfélaginu: „og til þess að sinna sjálfstætt vísindalegum verkefnum.“ Alþingi sá ástæðu til þess að bæta því aftan við það, sem prófessorar háskólans höfðu undirbúið, það frv., að þeir skyldu veita nemendum sínum menntun með tilliti til þess, að þeir yrðu færir um að sinna sjálfstætt vísindalegum verkefnum.
M.ö.o.: það væri ekki bara hlutverk Háskóla Íslands að útskrifa embættismenn, Háskóli Íslands ætti ekki bara að vera embættismannaskóli, hann ætti líka að vera skóli, sem útskrifaði vísindamenn. Alþ. sagði með þessari samþykkt í 1. gr. Háskóla Íslands og háskólaráði, hvað Alþ. ætlaðist til af þeim og hvað háskólaráð ætti að hugsa um, þegar það væri að undirbúa till. um breyt. á háskólalögunum. Nú veit ég, og það vita allir þm, líka, að hvað snertir embættismenn og embættismannaskóla, að svo miklu leyti sem háskólinn er slíkur, þá er alltaf tilhneiging — og háskólinn er ekki einn um það, það eru margar stofnanir — til að auka við það, sem fyrir er, það sem kallað hefur verið á síðari tímum Parkinsons-lögmálið, sem virðist vera mjög að verki. Og það virðist vera svo, að bara ef einhverjum háskólaprófessor, t.d. í Ed., dettur í hug að bæta við einhverja deild í háskólanum t.d. einu embætti, þá sé bara samkv. Parkinsons-lögmálinu alveg sjálfsagt að samþykkja þetta, það sé alltaf hægt að finna nóg verkefni handa einum prófessor í viðbót. En ég held, að við eigum ekki hér á Alþ. að afgreiða lög eftir Parkinsons-lögmálinu. Ég held, að við eigum að afgreiða mál út frá því sjónarmiði, hvað við álítum nauðsynlegt fyrir þjóðina. Og þegar við hugsum um slíkt viðvíkjandi háskólanum, held ég, að við verðum að muna eftir því, að auk þess sem hann útskrifar embættismenn, lækna, lögfræðinga, presta, þá eigi háskólinn að sjá um að standa á allháu stigi hvað vísindi snertir. Og það er á tveimur sviðum, sem við hljótum að gera þær kröfur til háskólans eða athuga, að hve miklu leyti við getum orðið við þeim kröfum. Það er annars vegar hvað snertir þau hugvísindi, sem við hann eru, og hins vegar hvað snertir þau raunvísindi, sem við gjarnan vildum að við hann væru.
Þegar við þess vegna athugum, hvar við viljum láta setja prófessora, þá held ég, að við verðum að athuga það út frá því sjónarmiði, hvar okkur finnst æskilegast, að nýjum prófessorsembættum sé komið upp, ef á að fara að fjölga þeim. Og ég skal manna sízt draga úr því almennt, að prófessorsembættum sé fjölgað við Háskóla Íslands, ef það er vel undirbúið, ef það er gert á sómasamlegan hátt, en ekki stolizt til þess, og ef það er gert þannig, að það hafi þó verið hægt áður að ræða og koma einhverjum rökum að viðvíkjandi slíkum málum. Ég verð að segja hvað hugvísindin snertir, að þá er það fyrst og fremst ein deild við háskólann, sem ég álit að eigi að auka og eigi að bæta prófessorum við, ef við viljum sýna Háskóla Íslands þann sóma, sem okkur ber að sýna honum. Þetta er eini háskólinn, sem við eigum, og háskóli, sem við eigum að geta verið stoltir af. Og sú deild, sem ég álít að ætti að bæta við í fyrst af öllu, það er það, sem nú er kallað formlega heimspekideild, það sem við köllum oft í daglegu tali norrænudeildina. Ég álít það ekki vansalaust, hvað lítið stolt íslenzka þjóðin hefur sett í að útbúa norrænudeildina almennilega. Við Íslendingar höfum hvað snertir tungu okkar og raunar einnig hvað snertir sögu okkar og bókmenntir sérstöðu í fyrsta lagi meðal allra germanskra þjóða, og í öðru lagi höfum við sérstöðu í Evrópu. Við erum sú eina af germönsku þjóðunum, sem heldur því máli eða líku því máli, sem upprunalega var talað, tiltölulega ómenguðu af latneskum áhrifum. Við tölum tungu, sem er raunverulega hvað Evrópu snertir og jafnvel þótt víðar væri leitað sú eina klassíska tunga, sem uppi er í veröldinni að heita má, vegna þess að þær tungur, eins og grískan, eru svo ólíkar, þær nýju, að það er vart sama mál lengur. Ef við og okkar vísindamenn við háskólann hefðum verulegt stolt um, hvað þjóð okkar ætti að gera við háskóla sinn, finnst mér, að sú fyrsta till., sem ætti að liggja fyrir frá þeim, væri að gera norrænudeildina við háskólann að myndarlegustu og öflugustu deildinni í germönskum fræðum, sem til væri við nokkurn germanskan háskóla, þannig að hingað yrðu menn að leita, vegna þess að hér væru svo færir vísindamenn og prófessorar í slíkum efnum, ef menn ætluðu að öðlast þá þekkingu, sem bezta væri hægt að fá í þeim greinum, þannig að það þætti sjálfsagt, að þeir menn, sem ættu að læra slík mál, ættu yfirleitt að læra sín eigin mál sem vísindamenn, hvort sem það eru Þjóðverjar, Englendingar eða Skandinavar eða þeir, sem væru að nema slíkt í öðrum löndum utan germönsku þjóðanna, — þeir þættu ekki menn með mönnum í sínum vísindagreinum, fyrr en þeir væru búnir að koma hingað og vera hér við háskóla okkar um nokkurt skeið, vegna þess, hvernig hann og prófessorar hans sköruðu fram úr í slíkum málum. Þetta álít ég að þyrfti að gera, svo framarlega sem við ætluðum að sýna, að við vildum eitthvað meira með Háskóla Íslands en bara hafa hér embættismannaskóla. Og ég held, að fátt mundi vera betra til þess að undirstrika, hverja áherzlu við legðum á, að við fengjum t.d. handritin okkar heim, en við gerðum einmitt sem mest úr okkar norrænu deild við háskólann í þessum efnum. Það hefur verið þveröfugt allan þann tíma, sem Háskóli Íslands hefur starfað. Það hefur hvað eftir annað verið þannig, að í staðinn fyrir, að það kæmu tillögur og væru settar fram hér á Alþ., væri barizt fyrir að fá þetta í gegn, þá hefur það verið svo, að ýmsir færustu menn íslenzkir í norrænum fræðum hafa hlotið prófessorsembætti við háskóla annarra landa eða verið boðið prófessorsembætti þar. Og kannske þá fyrst, þegar menn horfðust í augu við, að við værum að missa þá, hefur verið talað um að stofna prófessorsembætti hér. Hvað snertir okkar háskóla og endurskoðun á háskólalöggjöfinni, þá er þetta þess vegna eitt af því fyrsta, sem okkur bæri að gera út frá okkar þjóðarstolti, út frá okkar kröfu til háskólans sem vísindastofnunar. Út frá því að gera Háskóla Íslands að slíkum háskóla eins og hann á að vera einmitt í íslenzkum fræðum, þá væri þetta það fyrsta, sem við ættum að gera, þ.e. stórfelld aukning á prófessoratölunni þar, fjölgun á þeim vísindamönnum, sem þar störfuðu og þar rannsökuðu og þar kenndu. Og þetta er ekki aðeins vegna þess, sem við ættum að gera út á við í þessu efni. Þetta er líka vegna þess, sem við eigum og verðum að gera vegna okkar eigin þjóðar. Hvernig eru rannsóknirnar og hvernig er starfið, það vísindalega starf, viðvíkjandi okkar eigin fræðum, okkar sögu, okkar bókmenntum? Ég er hræddur um, að það sé svo, að nokkur hluti Íslandssögunnar sé alls ekki kenndur við háskólann. Ég er hræddur um, að það sé svo, að við, sem erum að heimta handritin heim, veitum ekki einu sinni aðstöðu eða tíma fyrir þá vísindamenn, sem við viljum hafa til þess að lesa þau handrit, sem eru til hérna heima. Og ég er hræddur um, hvað snertir íslenzka sögu, hagsögu, bókmenntasögu og annað slíkt, að það vanti ákaflega tilfinnanlega, að þau vísindalegu störf séu unnin, sem þjóðin þarf á að halda að unnin séu, og er það ekki vegna þess, að þarna séu ekki ýmsir færir menn og meira að segja ágætir, heldur vegna þess, að það er ekki hugsað betur um þessa deild, sem ætti að vera stolt háskólans og stolt þjóðarinnar, heldur en þetta. Enda virðist komið svo, að í staðinn fyrir, að fyrir nokkrum öldum var það svo, að það vorum við íslendingar, sem skrifuðum sögu þeirra manna, sem þá þóttu frægastir á Norðurlöndum, og geymdum hana handa Norðurlandaþjóðunum, þá er það farið að verða svo nú, að það eru háskólakennarar við erlenda háskóla, t.d. sænska háskóla, sem skrifa sögu þeirra manna á Íslandi, sem þykja frægastir á Norðurlöndum nú. M.ö.o.: það er horft upp á það af hálfu stjórnarvaldanna og hálfu Alþingis og mér liggur við að segja af hálfu háskólaráðs, að það sé ekki aukið, eins og vísindalegur heiður Háskóla Íslands og þjóðarstolt íslendinga ætti að krefjast, við þá deild, sem ætti fyrst og fremst að vera stolt þjóðarinnar í þessum efnum. Af hverju? Ég get svo sem gert mér í hugarlund, af hverju það muni vera. Það er vafalaust ekki þörf á að útskrifa nein ósköp af embættismönnum í íslenzkum fræðum, það er ekki rúm fyrir svo marga, ef allt er hugsað út frá því. En okkur vantar aftur á móti menn í vísindastörf, sem þarna þarf að vinna, og okkur vantar aðstæður, sem við gæfum þeim. Ég held þess vegna, að ef við eigum að fara að endurskoða háskólalöggjöfina, fara að bæta við nýjum prófessorum, þá sé þetta eitt af því, sem við eigum fyrst og fremst að athuga.
Ég sé það á þeirri þróun, sem verður með prófessorana í deildum háskólans, að það er ein deild, sem þar ýtir mest á eftir og eykur, það er læknadeildin. Það er ýmislegt gott um það að segja. Þó er ég ekki fjarri því, að það mætti, áður en miklar breytingar eru gerðar á læknadeildinni, endurskoða þá deild og hennar kennslu og hennar kennsluform og athuga dálítið, hvernig það er erlendis nú. Ég er hræddur um, að það sé allmargt í fyrirkomulagi læknadeildarinnar, sem sé úrelt, með þeirri gífurlegu þróun í sérfræði, sem við höfum nú, og ég er hræddur um, eftir þeim litlu kynnum, sem ég hef af því, að nágrannaþjóðir okkar margar séu búnar að breyta þarna nokkuð mikið um. En læknadeildin hefur reynzt hér allmiklu íhaldssamari í þessum efnum. Ég held það komi m.a. fram í því, að nám sé orðið mun lengra í læknadeildinni en eðlilegt væri og jafnvel sum af þeim fögum, sem þar eru kennd, orki tvímælis að væri nauðsynlegt að læra fyrir alla þá, sem ætla að verða læknar. Og svo mikið er víst, án þess að ég skuli fara sérstaklega að ræða það efni nú, það yrði vafalaust of langt, að mér er grunur á, að prófessorarnir við læknadeild háskólans hafi breytt á móti anda laganna með þeirri reglugerð, sem þeir fengu gefna út, eftir að háskólalögin voru samþ. 1957. Því frv. var þá nokkuð breytt í meðferð Alþ., og ég vissi, að þá voru sumir prófessorar læknadeildarinnar nokkuð óánægðir með það, og ég er hræddur um í sambandi við ýmis reglugerðaratriði viðvíkjandi prófum og öðru slíku, að einmitt það, sem menntmn. þessarar hv. d. var fullvissuð um, að ekki yrði gert, hafi verið gert eftir á, þannig að það hefur svo að segja verið farið í kringum lögin. Og sú framkoma, sem við urðum fyrir í sambandi við þau bráðabirgðaákvæði, sem þá voru sett, og framkvæmd þeirra af hálfu þess prófessors, sem með það hafði að gera, bar ekki vott um sérstaklega mikla virðingu fyrir Alþ. og lögunum af hálfu þess prófessors, sem hafði með það að gera, þannig að háskólaráðið getur samkvæmt þeirri framkomu, sem það sýndi þá eða ákveðnir menn úr prófessorastétt háskólans, ekki vænzt þess, að við, sem þá reynslu fengum og þá vorum í menntmn. þessarar hv. d., hlaupum allt of mikið til, þannig að hægt sé að vingsa okkur eins og einhverjum prikum, þegar einhverjir og einhverjir prófessorar vilja.
Ég held þess vegna viðvíkjandi hugvísindunum, ef þar ætti að fara að fjölga prófessorum, að þá ætti Alþ. fyrst og fremst að athuga, hvað það álítur rétt að gera viðvíkjandi þeirri deild, sem á að annast um vísindastörf í íslenzkri tungu, sögu og bókmenntum og fræða þá, sem vísindastörf eiga að iðka og öðrum að kenna í þeim efnum.
En svo er annar þáttur, sem ég að vísu er ókunnugri, en ég veit að hlýtur eðlilega að verða eitt höfuðatriði, þegar fara á að fjölga prófessorum við háskólann, þ.e. að stofna nýjar deildir, að tekinn sé til athugunar hvað raunvísindin snertir sá þáttur í starfi háskólans, sem snýr að tæknimenntun og atvinnulífi þjóðarinnar.
Þegar háskólafrv. var lagt fyrir Alþ. 1956, eins og háskólaráð þá hafði undirbúið það, var í því lagt til, að það væru fimm deildir við Háskóla Íslands. Það var sleppt úr þeirri deild, sem alltaf hefur verið nefnd á nafn
í sambandi við háskólann og kölluð var atvinnudeild, atvinnudeild háskólans. Þegar Alþ. tók þetta frv., sem háskólaráð hafði undirbúið eða ákveðnir menn úr háskólanum, til meðferðar, þótti Alþ. ekki rétt stefnt með því að fella algerlega burt atvinnudeildina úr háskólanum, jafnvel þó að hún hefði ekki verið annað en rannsóknarstofnun, sem næstum því bara að nafninu til var við hann tengd, en mun þó hafa notið á vissan hátt nokkurrar aðstoðar, sem háskólanum kom til fjárhagslega. Því var þess vegna breytt svo í meðferð Alþ. og einmitt hér í Nd., að það var bætt inn í 9. gr.: „Þá skal og starfa við Háskóla Íslands rannsóknarstofnun í þágu atvinnuveganna, er nefnist atvinnudeild háskólans.“ Af hverju breytti Alþ. þessum lögum? Af hverju breytti Alþingi því uppkasti, sem prófessorarnir við Háskóla Íslands höfðu gert, þar sem atvinnudeildin var felld burt? Alþingi breytti þessu vegna þess, að Alþingi áleit, að það ætti að taka til athugunar, hvort ekki bæri að vera við Háskóla Íslands ekki aðeins rannsóknardeild, sem héti atvinnudeild háskólans og hefði þar rannsóknarstofnun, heldur jafnvel, að inn í háskólann yrði bókstaflega tekin sjálf fræðslan í þessum efnum. Við stöndum hér frammi fyrir vandamáli, sem hefur legið fyrir þessu þingi og er verið að ræða af fullum krafti í blöðunum hér nú. Það er þessi spurning um: Hvernig á Háskóli Íslands og hvernig ætlar íslenzka þjóðin að útskrifa tæknimenntaða menn? Ætlum við einvörðungu að senda alla okkar menn, sem eiga að fá slíka menntun, til erlendra háskóla, eða ætlum við að koma hér upp við háskólann slíkum deildum? Þeir eru orðnir margir á síðustu 30 árum, vísindamennirnir, sem hafa hrakizt burt frá Íslandi vegna þess, að ekki hafa verið til störf fyrir þá við háskólann einmitt í vísindalegum fræðum, og við eigum aðelns að þakka mikilli ósérplægni og föðurlandsást ýmissa okkar beztu vísindamanna, að þeir hafa neitað ekki aðeins prófessorsembættum, heldur jafnvel tengslum í sambandi við það, sem jafnvel meiri heiður væri að, til þess að geta unnið við léleg kjör hér í föðurlandi sínu. Til allrar hamingju á þjóð okkar það mikið af gáfuðum mönnum, sem hafa fengið á undanförnum áratugum vegna okkar aðstæðna aðstöðu til þess að mennta sig, að þeir skara fram úr, ekki bara meðal okkar þjóðar, heldur jafnvel á heimsmælikvarða. En það hefur ekki verið sinnt sérstaklega um að skapa vísindalega aðstöðu handa þessum mönnum. Þeir hafa jafnvel hrakizt í burtu. En svo getur komið fyrir, ef einhverjum og einhverjum prófessor í Ed. dettur í hug af einhverjum og einhverjum orsökum að fara að stinga upp á að bæta einum prófessor við, að þá er gleypt við þessu undireins, án þess að það sé litið við því af þeim nefndum þingsins, sem um þetta ættu að hugsa, að taka málin raunverulega frá sjónarmiði Háskóla Íslands, frá sjónarmiði vísindalegrar starfsemi og frá sjónarmiði þarfa
háskólans. Hér liggur fyrir, — ég man ekki, hvort það er í þessari deild, en það liggur fyrir þinginu nú m.a. frv. um landbúnaðarháskóla, ef ég man rétt, eða till. um landbúnaðarháskóla. Það er verið að ræða í frv. um landbúnaðarháskóla um það, hvar hann skuli vera staðsettur, og það er byrjað á því, svo undarlegt sem þetta er. Kannske eigum við eftir að upplifa það einhvern tíma við 3. umr. í Ed., að bætt verði aftan í háskólalögin ákvæði: Enn fremur skal vera starfandi landbúnaðardeild. Hún skal vera uppi á Hvanneyri. — Og svo fáum við málið hér eina kvöldstund, og kannske verður menntmn. hv. d. kölluð saman, kannske fær hún hálftíma til þess að taka ákvörðun. Og það er ekki hlægilegt. Þetta er auðsjáanlega að verða vani, að svona eigi að afgreiða málin. Ég var að sjá grein nýlega í einu af blöðunum, — ég held, að það hafi verið í Morgunblaðinu, — eftir einn af okkar fræðimönnum, sem starfa nú í Ameríku, sem einmitt er að skrifa um þörfina á því að hafa deild við háskólann, sem útskrifi tæknimenntaða menn í sérstökum fræðum. Og það er engum efa bundið, að það er nauðsynlegt fyrir okkur að taka þessi mál til athugunar. Ef við ætlum að heita sjálfstæð þjóð og vera fyrst og fremst stoltir af því, sem við afrekum á því andlega sviði, eins og kallað er, okkar vísindalegu starfsemi, afrekum okkar í bókmenntum eða öðru slíku og vísindum, þá verðum við að gera þannig við okkar háskóla, gera hann þannig úr garði, að hann fullnægi þeim kröfum, sem slík þjóð gerir til hans. Við eigum ekki að hlaupa til bara, ef háskólaráð hefur samþykkt eitthvað, því að í háskólaráði eru prófessorar eða fulltrúar frá ákveðnum deildum, sem þar eru fyrir, og þeir hugsa oft og tíðum um þessar deildir. Þeir eru kannske ekki að hugsa um þær nýju deildir, sem þyrfti að veita háskólanum, og ef prófessorarnir í einhverri d. væru sæmilega ánægðir með það, þeir væru nokkuð margir þar og þeir vildu ekki gera neinar sérstakar kröfur um aukningu, jafnvel þótt þjóðinni væri nauðsyn á, þá koma þeir kannske ekki með neitt. En aðrir eru svo aftur ýtnari og pína sitt í gegn.
Svona eigum við ekki að láta Háskóla Íslands vaxa. Við eigum ekki að láta Háskóla Íslands vaxa á sama hátt og ríkiskerfið hefur vaxið hjá okkur, á sama hátt og bankakerfið hefur vaxið hjá okkur, þannig að það sé eins og einhver villigróður í hvert skipti, sem farið er að skipta um einhvern mann. Við skulum segja t.d. eins og 1950, þegar ákveðinn bankastjóri í Landsbankanum er ekki nógu þægur við Ameríkana hér á Íslandi, þá er skapaður nýr banki á Íslandi, Framkvæmdabanki Íslands. Og þannig eru bankarnir látnir vaxa á Íslandi. Svo þegar Framkvæmdabanki Íslands er kominn upp og allir eru sammála um, að það sé ekki til neins að vera að hafa hann, þá vill enginn Leggja hann niður. Parkinsonslögmálið heldur honum föstum. Og jafnvel þó að kannske maðurinn, sem við hann vinnur, væri einn af færustu mönnum til þess að vera vísindamaður, má ekki gera það. Það er þess vegna alveg ófært að taka mál eins og mál Háskóla Íslands svona tökum.
Ég tala hér um fjölgun á prófessorum og annað slíkt vegna þess, að ég veit ósköp vel, að íslenzka ríkið hefur vel efni á því, Íslenzka ríkið þykist hafa efni á því t.d. að dandalast með svo og svo marga ríkisbanka. Það þykist hafa efni á að halda uppi skrifstofum, sem gera ekki nokkurn skapaðan hlut. Það hefur í stjórnarráðinu menn, sem ráðherrarnir sjálfir vita ekki, hvað þeir eiga við að gera. Það er fullt í ríkiskerfinu af embættum, sem við höfum ekkert við að gera. En okkur vantar að fá að skapa embætti á því sviði, sem væri stolt fyrir þjóð okkar, og gefa mönnum, sem hafa framúrskarandi hæflleika til þess að vinna á vísindalegu sviði, aðstöðu til þess, og þessir menn eru venjulega ekki mennirnir, sem heimta mestu launin í þjóðfélaginu. Það er ekki gert. Ég held þess vegna, ef á að fara að taka Háskóla Íslands til endurskoðunar og lögin um hann, að það verði alvarlega að rannsaka það, eigi að fara að fjölga deildum í háskólanum, hvort við eigum ekki, sérstaklega í tilefni af því, að háskólinn verður fimmtugur á næsta ári, að gera þá endurskoðun almennilega, bæta virkilega við á þessum sviðum, annars vegar á því sviði, sem okkur er andleg og siðferðisleg nauðsyn, eins og viðvíkjandi norrænudeildinni, og hins vegar á því sviði, sem okkur er efnahagsleg nauðsyn, eins og viðvíkjandi þeim raunvísindum, sem sérstaklega snerta tæknina. Ég verð að segja það, að ef við höfum t.d. efni á því og möguleika að fara að koma upp landbúnaðarháskóla, hljótum við líka að hafa efni á að koma upp sjávarútvegsháskóla. Og ef maður á að fara að hafa iðnaðinn eins og talað er um hann hér núna og við eigum að fara að geta staðið öllum þjóðum þar á sporði, er ég hræddur um, að vísindastarf okkar í atvinnugreinum verði að fara að taka þó nokkrum stakkaskiptum. Ég held þess vegna, að það verði að athuga þessi mál mjög alvarlega, ef við erum að ræða um að fara að gera stórbreytingar í þessum fræðum.
Nú er lagt til með þeirri breyt., sem gerð var í Ed., að stofna nýja deild við Háskóla Íslands. Hingað til hafa verið þar fimm deildir. Það hefur verið guðfræðideild, læknadeild, lagadeild, heimspekideild, verkfræðideild, og lagadeildin hefur fram að þessu heitið laga- og hagfræðideild, held ég sé nafnið, sem við völdum henni. Laga- og viðskiptadeild var nafnið, sem henni var valið seinast, og í háskólalögunum er ákveðið, að þegar þrír prófessorar yrðu við viðskiptadeildina, skyldi hún verða sérstök deild. Ég kann ekki við það, að stofnuð sé ný deild í háskólanum með tveimur umr. svo að segja í Alþ. og það aðeins einni umr. í Nd. Alþ. Ég kann ekki við það. Ef á að fara að stofna nýja deild í háskólanum, vil ég, að það sé athugað betur áður, hvort það eigi að vera einhver önnur deild.
Viðvíkjandi laga- og viðskiptadeildinni vil ég segja það alveg hreinskilnislega, að hefði ég átt sæti í menntmn. þessarar d., hefði ég viljað fá að ræða í fyrsta lagi við hæstv. menntmrh., í öðru lagi við prófessora laga- og viðskiptadeildarinnar um alla kennslutilhögun í þessum málum. Mér sýnist á því litla, sem ég veit, — því miður skal ég viðurkenna, að ég veit mjög lítið um starfsemina í þeirri deild, — en mér sýnist það vera svo, að ákaflega mikill þáttur í kennslu þessarar d., laga- og viðskiptadeildar, sé nú orðinn sá að útskrifa menn, sem síðan fara svo að segja í fésýsluna. Upphaflega var lagadeildin annars vegar til þess að útskrifa okkar sýslumenn og dómara og annað slíkt, og það er takmarkað, sem við höfum not fyrir embættismenn í því kerfl, og gæti ég jafnvel trúað, að það yrði farið frekar að fækka þeim en fjölga. Mér hefur þess vegna virzt, að mjög mikið af þeim mönnum, sem fara í lögfræðideildina, fari beinlínis í hana með það fyrir augum að fara að stunda jafnvel fésýslu, og ég held þess vegna, að það væri rétt að athuga miklu betur, áður en þarna er breyting á gerð um fyrirkomulagið í þessari deild. Ég held, að það væri rétt að athuga það. Ég mun ekki fyrir fram kveða upp neinn dóm, til þess hef ég ekki þekkingu á þessu augnabliki. Ég vildi fá tækifæri sem einn af þeim aðilum, sem eiga að setja lög um þetta, til þess að setja mig inn í þetta. Ég vildi fá tækifæri til þess að ræða við þá menn, sem eru sérfræðingar í þessu, og fá að mynda mér á grundvelli þess skoðun á því, hvort það væri e.t.v. rétt að breyta þarna á einhvern hátt um þessa hlið.
Mér skilst, að jafnvel þótt farið væri að stofna það, sem mundi verða kallað viðskiptadeild, mundi það vera meiningin raunverulega fyrst og fremst að kenna það, sem hefur verið kallað viðskiptafræði. Mér skilst, að það mundi ekki vera meiningin með því að fara raunverulega eins að og við skulum segja mundi vera gert í hagfræðivísindum Kaupmannahafnarháskóla, að útskrifa hagfræðinga sömu tegundar og þar mundu vera útskrifaðir. Ég get ekki sagt um þetta, vegna þess að mér hefur ekki gefizt tækifæri til þess að ræða við nokkurn mann um þetta, áður en á að taka ákvörðun um þetta. Ég verð að segja, að ef ætti að stofna hér viðskiptadeild og hún á bara að vera viðskiptadeild, bara elns og er menn voru að fara á verzlunarháskóla í Danmörku eða eitthvað slíkt, þá held ég, að það gæti jafnvel verið allt önnur stofnun, sem væri hentug, og ætti að tengja þá kannske við verzlunarskólann eða eitthvað þess háttar. Ég efast um, að þetta væri réttasta aðferðin í sambandi við það. Ef ætti hins vegar að mynda hér fullkomna vísindalega hagfræðilega deild, er ég hræddur um, að það sé allt annað og meira, sem við erum að ráðast í. Þetta segi ég vegna þess, að það liggur alls ekki fyrir hér og hefur ekki legið fyrir menntmn. þessarar d. og enginn þm. hefur haft aðstöðu til þess að kynna sér það, hver afleiðingin af þessu yrði. Það má vel vera, að um leið og þau rök væru lögð fyrir mig, yrði ég fyrstur manna til þess að fallast á það. En ég bara læt ekki taka mig svona tökum. Það er á móti þeim kröfum, sem ég geri til mín og til annarra þingmanna, að afgreiða mál á þennan hátt. Þó að ég væri 100% með þessu máli eftir að vera búinn að kynna mér það, tek ég ekki þátt í því að afgreiða það á þennan máta. Ég vil, fyrst ég á annað borð á sæti á þingi, hafa aðstöðu til þess að ræða svona mál við þá menn, sem hafa vit á þessu, kynna mér það, og ég álít það alls ekki forsvaranlegt af hæstv. ríkisstj. og vil alveg sérstaklega skjóta því til hæstv. menntmrh., sem er sjálfur líka prófessor í þeirri deild, sem hér er um að ræða, að það er alls ekki sanngjarnt og alls ekki hægt að ætlast til þess, að við afgreiðum svona mál á þennan máta. Ég segi það ekki vegna þess, að ég vilji sýna neinn skort á samstarfi við hæstv. ríkisstj. eða hæstv. menntmrh. í þessu efni. Ég held, að hæstv. ríkisstj. þurfi ekki að kvarta yfir því, að stjórnarandstaðan hafi ekki sýnt fulla sanngirni í sambandi við afgreiðslu mála hér á Alþ. Ég skal viðurkenna um leið, að hæstv. ríkisstj. og hæstv. forseti okkar deildar hefur verið mjög samstarfsgóður um slíkt, og til þess að gott samstarf takist, verður það að hjálpast að, en þessi aðferð, sem nú er höfð hérna, er aðferð, sem stingur í stúf við allt, sem gert hefur verið fram að þessu hér á Alþ. Ég mundi sem sé vilja, áður en ég samþykkti að gera viðskiptadeildina að sérstakri deild, fá tækifæri til þess að ræða þessi mál á þennan máta. Og nú sé ég á öllu, að nú er það ekki sjálfur hæstv. menntmrh., sem hefur átt upptökin að þessu. Ég veit, að hefði hann átt upptökin að þessu, hefði hann komið með þetta um leið og hann lagði það frv. fyrir þingið, sem upprunalega var lagt fyrir okkur. Ég er fyllilega sannfærður um, að það er ekki hans aðferð að ætla að skjóta inn á síðustu augnablikum svona breyt. Ég get hins vegar skilið, að það séu viss vandkvæði, jafnvel fyrir hann, einmitt í svona máli, vegna þess að hann er einmitt prófessor í þessari deild. Það er verið að auka þessa deild, það er verið að gera þessa deild sjálfstæða, og ég get vel trúað því, að hann yrði fyrir ámæli jafnvel af þeim mönnum, sem eru prófessorar með honum, ef hann að einhverju leyti setti fót fyrir slíkt. En ég vil þá, af því að ég get fyllilega skilið, að hann mundi e.t.v. verða fyrir þrýstingi frá hálfu háskólaráðs í slíkum efnum, skírskota til hans frá hinni hliðinni, skírskota til hans sem ráðh. frá mér sem þm. og mælast til þess, að við verðum ekki settir frammi fyrir slíku. Það er vitanlegt, að þetta kemur ekki að neinu gagni nú. Það er ekki undir vorprófin í vor hægt að breyta neinu um þetta. Þetta kæmi þá fyrir næsta ár, og alveg eins væri þá hægt að athuga undir næsta haust og jafnvel hægt að reyna að hafa svo góða samvinnu um það, að menn fengju aðstöðu til þess að hugsa um þessi mál. Ég vil þess vegna skírskota til hans sem ráðh., að hann setji ekki fyrir okkur þm. slíkt vandamál.
Ég hef fært hér fram rök í nokkru máli fyrir hugmyndum, sem ég hef um, hvernig ég álít að ætti að breyta háskólanum. Ég segi ekki, að það séu allt réttar hugmyndir, síður en svo. En ég vil halda því fram, að það séu hugmyndir, sem verðskuldi, að það sé hugsað um þær, og að þær séu fyllilega þess virði, að það sé hugsað jafnt um þær og hitt, hvort við bætum við einum prófessor á einum degi nú í þinginu í viðskiptadeildinni og gerum þar með viðskiptadeildina að sjálfstæðri deild í háskólanum. Ég vil þess vegna alveg eindregið, af því að ég hef haft ágæta samvinnu við hæstv. menntmrh. bæði fyrr og nú, skírskota til hans um það, að hann setji okkur ekki í þessa aðstöðu, að neyðast til þess að fara að berjast út af þessum málum núna, út af þessari breyt., sem þarna er gerð. Ég leyfi mér þess vegna að leggja fram brtt. við frv., eins og það er nú á þskj. 623, eftir 2. umr. í Ed. 2. júní. Og brtt. mín er sú, með leyfi hæstv. forseta:
„Við 1. gr. Greinin orðist svo: 2. og 5. tölul. 37. gr. orðist þannig: 2. Í læknadeild 10. 5. Í verkfræðideild 5.“ M.ö.o., að frv. verði nákvæmlega 1. gr. þess eins og hún var, þegar hæstv. menntmrh. lagði þetta frv. fyrir okkur, og eins og það var afgr. frá þessari hv. d. Og í öðru lagi, við 2. gr., eins og nú er, að greinin falli burt.
Ég hef haft lítinn tíma til þess að athuga þetta, en ég held, að þetta sé formlega rétt hjá mér. Þá mundi sem sé, ef brtt. mín væri samþ., 1. gr. verða alveg eins og hún var, þegar þetta stjórnarfrv. var lagt fyrir Alþ., og vera eins og það var, held ég líka, þegar það var afgr. frá þessari hv. d. 2. gr., eins og hún er nú, mundi falla burt. En 3. gr., sem var 2. gr., þegar þetta var lagt upphaflega fyrir, mundi halda sér eins og Ed. hefur gengið frá henni.
Ég veit ósköp vel, að hæstv. ríkisstj. hefur valdið í þessum efnum. Ég veit ósköp vel, að hún hefur sitt þinglega fylgi hér til þess að knýja svona mál fram. Ég veit vel, að það er vafalaust hægt að knýja jafnvel menn, sem væru óánægðir í stjórnarflokkunum, til þess að hlýða ríkisstj., þegar slíkt er gert. Ég efast ekki um það. Ég ætla ekki að reyna að skáka því valdi neitt. En ég ætla að skírskota til þeirrar sanngirni og þeirrar skynsemi, sem er rétt að viðhafa í meðferð mála. Og ekki sízt um mál, sem á að vera okkur eins viðkvæmt og okkur ætti að þykja eins vænt um og Háskóla Íslands, þá eigum við ekki að hrapa svona að þeim málum.
Gagnvart því frv., sem kom seint fram frá hæstv. menntmrh. um þetta efni og hann lagði hér fyrir, sýndi þessi d. og menntmn. hennar mjög góðan vilja, og það hefði ekki komið til neinna leiðinda hér í sambandi við þetta mál, ef það hefði verið afgreitt bara með þessari litlu breyt., sem gerð var á núv. 3. gr., frá Ed., þannig að ég vil eindregið mælast til þess við hæstv. menntmrh., að hann leyfi nú þessari d. að breyta þessu frv. í það horf, sem hún svo að segja gekk frá því.
Hæstv. forseta verð ég að biðja um að leita afbrigða fyrir þessari brtt„ hún er of seint fram komin og skrifleg.