02.06.1960
Neðri deild: 95. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3038 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)

175. mál, Háskóli Íslands

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. Af því að ég var einn af þeim, sem greiddu atkvæði á móti afbrigðum í þessu máli, er það var tekið til umræðu hér í kvöld, vildi ég ekki láta umr, fara fram hjá án þess að segja fáein orð. Ég skal að öðru leyti ekki vera mjög langorður. Maður gerir það ekki að jafnaði að greiða atkvæði á móti afbrigðum, og ástæðan til þess, að ég gerði það, var sú, að ég taldi meðferð málsins hér í þinginu ekki vera eins og hún ætti að vera. Málið er lagt fyrir 27. maí, fyrir örfáum dögum, og þegar það er lagt fyrir, óskar menntmrh. þess sérstaklega, að því sé flýtt, og við þeirri ósk var orðið. Síðan sendi að vísu menntmn. Ed. það til háskólaráðs, og svo kemur hér og er nú lesið upp álit háskólaráðs, og þm. hafa ekki fengið að sjá það fyrir sér á borðum, verða aðeins að styðjast við það, sem þeir hafa heyrt úr því lesið hér upp einu sinni úr ræðustól. Þegar málið kemur aftur nú til þessarar hv. d. frá hv. Ed., er búið að breyta því þannig, að það á að stofna hella háskóladeild, og þessi d, stendur frammi fyrir því, að hún eigi annaðhvort að samþykkja þetta eðafella það og þar með að láta málið raunverulega falla algerlega. Það er þessi meðferð, sem gerði það að verkum, að ég greiddi atkvæði á móti afbrigðum í þessu máli núna.

Ég tel, að það sé ekki rétt að fara svona með breytingar á lögum háskólans. Eins og hefur komið fram hjá öðrum hv. þm, hér í þessum umr., kom þetta mál allt of seint fram, að það skyldi ekki koma fram fyrr en fimm eða sex dögum áður en gert var ráð fyrir að slíta þinginu.

Háskólinn er sú stofnun okkar, sem við eigum að vanda vel til lagasetningar um, og ég vil benda á, að það er ekki rétt að vera mjög þétt að breyta lögum háskólans. Það á að gera sjaldan og gera það vel, þegar það er gert. Þegar háskólalögin eru tekin fyrir, á að ganga svo frá þeim, að þá sé háskólanum sniðinn stakkur, sem hann getur unað við a.m.k. nokkur ár, helzt nokkuð mörg ár, eftir því sem ástæður leyfa, en ekki að vera að gera smábreytingar á því af handahófi með örstuttu millibili. Það er venja, að slík lagasetning í stórum málum verður óskapnaður og ekkert annað. Ég vil benda á þetta, að ég tel slíka meðferð á háskólalögunum vera langt fyrir neðan virðingu Alþingis.