02.06.1960
Neðri deild: 95. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3045 í B-deild Alþingistíðinda. (1193)

175. mál, Háskóli Íslands

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég hef aldrei farið neitt dult með það, að ég hef mestu mætur á hv. 1, þm. Austf. (EystJ). Þess vegna þótti mér beinlínis miður, að hann skyldi verða til þess á elleftu stundu og um miðja nótt hér að hefja umræður í máli á veg, sem honum er því miður sízt til sóma, því að ræða hans öll áðan bar þess glöggan vott, að hann hafði engan veginn sett sig inn í málið með þeim hætti, sem eðlilegt var að hann hefði gert og er hans vandi um þau mál, sem hann annars hefur áhuga á. Ég játa fúslega, að mér rann í skap við að heyra mann eins og hann fara með digurmæli og svigurmæli í minn garð, sem voru jafnfullkomlega órökstudd og ég hef í aðalatriðum sýnt fram á, og skal nú bæta því við, sem hann gaf tilefni til í sinni seinni ræðu að ég gerði.

Hvað er það í raun og veru, sem hér hefur gerzt, góðir þdm.? Hér er um að ræða stjfrv. um stofnun þriggja prófessorsembætta við háskólann, stjfrv., sem enginn ágreiningur var um í þessari d. og enginn ágreiningur var um í hv. Ed., fyrr en háskólaráð undir forustu flokksbróður hv. 1. þm. Austf. beitir sér fyrir breyt. á frv. Sú breyt. er þó ekki hættulegri eða alvarlegri en svo, að hv. Ed. samþykkir hana með öllum atkv. gegn einu. Þegar málið kemur aftur hingað til Nd., verður það fyrst að stórdeiluefni. Deiluefnið er alls ekki upphaflega stjórnarfrv. Það, sem veldur deilunum hér, er brtt., sem gerð er á frv. fyrir beiðni háskólaráðs undir forustu flokksbróður hv. 1. þm. Austf., og eftir að einn annar hv. þm. hefur hafið mótmæli gegn frv. vegna þessarar brtt., rís hv. 1. þm. Austf. upp á elleftu stundu og hefur mikla sókn gegn upphaflega frv., sem báðar þd. voru búnar að afgreiða algerlega samhljóða. Hvað er hér eiginlega að gerast? Ég hefði sannarlega unnt hv. 1. þm. Austf. miklu veglegra og betra hlutverks á síðasta starfsdegi þingsins en leika annan eins leik og þennan, og ég skil satt að segja ekki, hvað honum gengur til að leika þennan leik. Það er alveg óskiljanlegt.

Hv. þm. spurði nú, hvers vegna frv. hefði verið lagt svona seint fram, ekki fyrr en 27. maí. Það var ég búinn að skýra rækilega hér í þessari d., búinn að gera það í hv. Ed., það voru frsm. beggja deilda búnir að gera hvor í sinni deild. Til þess liggja mjög eðlilegar skýringar. Að stofni til er þetta frv. gamall kunningi hér frá þessari hv. d., upphaflega flutt samkv. beinum tilmælum háskólaráðs og læknadeildar. Frv. dagaði þá uppi, vegna þess að upp kom deila um efnisatriði í frv. Þá var því ekki haldið áfram. Skömmu eftir það rofnaði sú stjórn, sem setið hafði, þegar frv. var fyrst flutt. Alþfl.-stjórnin, sem þá tók við, vildi ekki gera þetta mál að sinu, ekki flytja það á þingi, sem hafði allt önnur verkefni, enda stóðu þá fyrir dyrum tvennar kosningar. Það var talið eðlilegt að láta frv. um stofnun prófessorsembættis í geðlæknisfræðum bíða myndunar meirihlutastjórnar. Þegar sú stjórn var mynduð nú í nóvember s.l., stóðu fyrir dyrum landlæknisskipti, og það var talið eðlilegt bæði í heilbrmrn. og menntmrn. að bíða þess, að hinn nýi landlæknir gæti kynnt sér þann efniságreining, sem upp hafði komið um málið hér í þessari hv. d., og léti í ljós skoðun sína á málinu. Hann gerði það ekki á fyrstu starfsvikum sínum, og getur enginn láð honum það. En um það leyti, sem hinn nýi landlæknir lét skoðun sína í ljós á málinu, fór hæstv. heilbrmrh. á Genfarfundinn og var fjarverandi í 2 mánuði. Hæstv. heilbrmrh. kom ekki til landsins fyrr en — að því er ég held — 13., 14. eða 15. maí, en hann var annar höfuðaðili að þessu máli. Það dróst því ekki nema um það bil 10 daga, frá því að þeir aðilar, sem þurftu um málið að fjalla, höfðu aðstöðu til þess að fjalla um það, þangað til málið kom fyrir hið háa Alþingi. Að kalla þetta lélegan málarekstur af minni hálfu er auðvitað hin mesta ósanngirni og á sér ekki minnstu stoð.

Þá sagði hv. þm, í lok ræðu sinnar, að hann hefði enn þá ekki heyrt, hvers vegna málinu lægi svona mikið á. Hér ber enn allt að sama brunni. Hann hefur ekki heyrt það, sem um málið hefur verið sagt. Ástæðurnar til þess, að málinu liggur mikið á, eru tvær. Annars vegar sú, að það má ekki dragast lengur, að yfirlæknisembættinu á Kleppi sé ráðstafað. Það er búið að dragast of lengi og það mátti undir engum kringumstæðum bíða aðgerða næsta þings. Um þetta eru allir aðilar sammála, heilbrmrn., landlæknir, læknadeild háskólans og stjórnendur Kleppsspítalans. Hin ástæðan til þess, að málið má ekki dragast til næsta þings, er rökin fyrir stofnun prófessorsembættis í efnafræði. Trausti Ólafsson, sem gegnt hefur því embætti undanfarið, hefur nú nýlega sagt því endanlega af sér sökum heilsubrests, og verður að ráða fullgildan mann í hans stað fyrir haustið. Það er ekki hægt að gera, nema gengið sé formlega frá stofnun þessa embættis, því að embætti Trausta hefur ekki verið formlegt prófessorsembætti, heldur hefur hann einungis haft prófessorsnafnbót og prófessorslaun. Það er því ekki hægt að ráða formlega prófessor í efnafræði í haust, nema þetta frv. nái fram að ganga.

Það, sem segja má með nokkrum sanni, að ekki sé nauðsyn á að afgreiða núna, er stofnun embættisins í eðlisfræði við verkfræðideildina. Það mætti að skaðlausu bíða — og þó ekki að skaðlausu, því að ég tel það vera svo mikið framfaraspor, sem þar er um að ræða, að tvímælalaust sé til bóta, að það gerist sem fyrst.

Þá sagði hv. þm. enn, að ég hefði enga umsögn látið fylgja frv., eins og skylt væri, og endurtók fyrri röksemdir sínar nú með því að lesa tilvitnað ákvæði í háskólalögunum um það, að ríkisstjórn væri skylt að bera undir háskólaráð brtt. við háskólalögin. Ég vil taka það skýrt fram hér, að þessum skilningi andmæli ég algerlega. Ef ríkisstj. væri skylt að bera undir háskólaráð brtt. við háskólalögin, áður en hún leggur þær fram, þá er þingmönnum líka skylt að bera undir háskólaráð brtt., sem þeir leggja fram. Og nú spyr ég: Dettur nokkrum heilvita manni í hug að skilja lagaákvæðið svona? Það hvarflar ekki að mér, að hv. 1. þm. Austf. láti sér detta í hug, að önnur eins lagaskýring komi til greina. Það getur ekki gilt annað um þm. í þessu efni en ríkisstj. Ef ekki má bera fram neinar till. án þess að spyrja háskólaráð, gildir það um alla, sem hafa rétt til að bera tillögurnar fram, en slíkt er auðvitað fráleitt. Ákvæðið þýðir að vísu ekkert að lögum, það er einungis ábending um það, að það sé eins konar kurteisisskylda Alþingis að gefa háskólanum kost á að segja til um breyt. á háskólalögunum, meðan þau eru til meðferðar í þinginu. Er hafið yfir allan efa, að þetta er réttur skilningur.

Þá sagði hv. þm., að til sanns vegar mætti færa ummæli hans um það, að kjarnfræðinefndin hafi verið stofnuð með lögum, þegar fjárveiting til hennar var samþykkt í fjárl. 1956. Ég vil nú upplýsa hv. þm. um það, að kjarnfræðinefndin hafði starfað í mörg ár, þegar þetta fjárlagaákvæði var samþykkt. Þetta fjárlagaákvæði var samþ. samkv. till. frá mér, þegar vinstri stjórnin svonefnda útbjó fjárlagafrv. í fyrsta skipti. Þá hafði kjarnfræðinefndin starfað í — að mig minnir — fjögur eða fimm ár. Svo fjarri lagi er, að hún hafi verið stofnuð með fjárlagaákvæðinu um þetta frv. Enn þá fráleitara var hitt, að telja lagagrundvöll undir ráðunautarstörfum í þál. frá 1955 um kjarnorkumál, því að í þeirri þál. er kjarnfræðinefndin alls ekki nefnd, heldur fjallað um viss verkefni atvinnudeildar háskólans.

Hv. þm. spurði nú í þessari ræðu, klukkan meira en hálftvö á aðfaranótt föstudags, eftir sex umræður um þetta mál í tveimur deildum Alþingis, hvort meiningin væri að leggja kjarnfræðinefndina niður. Þó að hann hefði aldrei hlustað á neitt orð, sem sagt hefur verið um þessi mál hér í hv. þingi, hefði honum dugað að lesa grg. fyrir frv., og skyldi maður halda, að hann hefði einhvern tíma haft tíma til þess þrátt fyrir miklar annar, þó að hann hafi ekki setið hér á þingfundi. Í sjálfri grg. stendur skýrum stöfum, að ekki sé tilætlunin að leggja kjarnfræðinefndina niður og beinlínis ekki æskilegt, að svo sé gert. Hún á að starfa áfram sem frjáls samtök manna, sem áhuga hafa á kjarnfræðimálum, og fá tekjur sínar með frjálsum framlögum, eins og hún hefur haft frá stofnun sinni.

Hv. þm. sagði, að háskólaráði mundi ekki hafa verið sent þetta frv. fyrr en eftir að málið var afgr. út úr hv. Nd. Þetta er líka rangt. Háskólaráði var sent frv. til umsagnar frá menntmn. Nd. fyrir 2. umr. málsins í Nd.

Að síðustu, varðandi það atriði, að ríkisstj. hafi verið skylt að bera frv. undir háskólaráð, áður en það var lagt fram, vil ég enn ítreka, að till. um tvö af þessum embættum, sem frv. fjallar um, er komin frá háskólaráði og er í frv. samkv. bréfum háskólarektors til menntmrn. Ég hef ekki gengið úr skugga um bréf, sem háskólarektor sendi menntmrn. með beiðni um vissa fyrirgreiðslu af hálfu rn., hvort hann hafi áður afgreitt þau formlega í háskólaráði, það skoða ég ekki mitt verkefni. En um tvö embætti af þremur liggja fyrir bréf í menntmrn. með beiðni um flutning á Alþingi frá háskólarektor. Það átti ekki við um það þriðja, eins og ég hef margtekið fram, en um það hafði ég áður gengið úr skugga um stuðning verkfræðideildarinnar og taldi því síður en svo goðgá að flytja frv., enda hefur það líka fengið meðmæli háskólaráðs nú undir meðförum þingsins.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta og bið hv. þdm. í rauninni afsökunar á því að hafa þurft að endurtaka svo mörg af þeim atriðum, sem sumpart ég og sumpart frsm. hv. menntmn. hafa látið koma fram í umr. um þetta mál, og hefði mjög vel getað unnt hv. 1. þm. Austf. þess að hafa ekki efnt til þessara umræðna.