02.06.1960
Neðri deild: 95. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3055 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)

175. mál, Háskóli Íslands

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Það er auðheyrt á því, sem kemur frá hæstv. menntmrh., að honum er ekki rótt út af því, sem upplýst er um meðferð hans á þessu máli. Býst ég ekki við, að það hafi farið fram hjá neinum, sem hlustað hefur á málflutning ráðherrans í nótt. Ég hef aðeins örstutta aths. og skal minnast á tvennt í örfáum setningum.

Það er til dæmis um málflutning hæstv. ráðh., að hann segir, að meðferð málsins hér í þinginu hafi verið alveg eðlileg, þangað til fleygurinn var rekinn í málið í Ed. Honum finnst það alveg óeðlilegt, að Ed. geti komið fram sínum vilja um að breyta málinu. En hann sér ekkert athugavert við það, þó að fyrir hans eftirrekstur hafi málið verið afgr. hér frá þessari d., án þess að beðið væri eftir umsögn háskólaráðs. En það liggur ljóst fyrir, að það var afgr. hér frá d., áður en sú umsögn var komin. Það finnst ráðh. ekkert athugavert.

Og svo þetta: Ég spurði hæstv. ráðh. að því, hvers vegna það hefði dregizt svo furðulega, að þetta mál hefði verið lagt fyrir þingið. Hann segir, að til þess liggi alveg eðlilegar ástæður, menn verði að skilja það. Landlæknirinn hafi þurft margar vikur til þess að skoða málið, og er hann þó þessum efnum þaulkunnugur og hefur alla aðstöðu til að komast fljótlega að niðurstöðu um þau. Ráðh. hafi þurft margar vikur, jafnvel mánuði. Þá hafi ekki verið hægt að taka ákvörðun, á meðan hæstv. heilbrmrh. var fjarverandi, enda þótt allir viti, að öðrum hæstv. ráðh. var falið að fara með heilbrigðismál á meðan og hann gat auðvitað alveg eins tekið afstöðu til þessa máls eins og sá ráðh., sem burt fór. M.ö.o.: allir þeir, sem komu nálægt málinu, þurftu margar vikur eða mánuði hver til þess að átta sig á því. En handa Alþingi var alveg nógu gott að ætla 5 eða 6 daga fyrir 6 umr. Það var nógur tími fyrir þm. til að setja sig inn í málið.

Ætli nokkuð sýni betur ávirðingar hæstv. ráðh. í málinu en einmitt þetta, að allir aðrir þurftu að sjálfsögðu vikur og mánuði, en það var nóg fyrir Alþ. að hafa örfáa daga?