02.12.1959
Efri deild: 8. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í B-deild Alþingistíðinda. (125)
30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Fjmrh. ( Gunnar Thoroddsen ):
Herra forseti. Brtt. á þskj. 48 frá hv. 9. þm. Reykv., sem hann mælti nú fyrir, hafa í sér fólgið gott mál og gagnlegt. Þær eru um það, að fjórðungur söluskattsins skuli renna til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og skuli úr honum aftur ganga til sveitarfélaganna. Þetta mál hefur oft verið flutt hér á hv. Alþingi. Fyrst var það árið 1951, sem ég flutti það mál, en eins og hv. 9. þm. Reykv, gat um, þá stöðvaðist það vegna þess, að ráðherrar Framsfl., sem áttu sæti í þáverandi ríkisstj., hótuðu því að rjúfa stjórnarsamvinnuna, ef þetta mál ætti fram að ganga. Síðan hefur þetta mál verið flutt a.m.k. tvisvar sinnum, m.a. í tíð þeirrar stjórnar, sem hv. 9. þm. Reykv. studdi af alhug, vinstri stjórnarinnar. Málið fékkst ekki fram þá og naut ekki stuðnings þessa hv. þm. á þeim árum. Hins vegar fékkst í annað skiptið, sem málið var flutt í tíð þeirrar stjórnar, í staðinn samþ. einróma ályktun Ed. um að skora á ríkisstj. að undirbúa fyrir næsta þing löggjöf um tekjustofna sveitarfélaganna. Sú till. var flutt af fjhn. þessarar hv. d. einróma og samþ. hér með samhlj. atkv. Áhugi þeirrar stjórnar og félmrh. þáverandi, Hannibals Valdimarssonar, var ekki meiri en svo, að ekkert var að þessu máli unnið og ríkisstj. lagði ekki fram, eins og hv. Ed. hafði fyrir hana lagt, neinar till. um þetta mál, hvorki á næsta þingi né síðar. Þar sem hv. flm. till. vildi rekja nokkuð gang þessara mála, þá tel ég rétt að bæta þessu inn í sagnaritun hans, svo að nokkru réttari mynd fáist en stundum vill verða, þegar Alþb. og samherjar þess innan lands og utan eru að skýra söguna.
Varðandi þessa till., þá er hún sem sagt gott mál og gagnlegt og brýn þörf á því, að sveitarfélögin fái nýja tekjustofna. Hins vegar er þessari till. stórspillt með annarri till., sem flokksbróðir hv. þm. flytur um það, að framlengingin og þar með hluti sveitarfélaganna af söluskatti skuli aðeins gilda í tvo mánuði næsta árs, þ.e.a.s. janúar og febrúar. Í lok febrúar á þetta að falla úr gildi.
Ég tel brýna nauðsyn bera til að fá umbætur á tekjumálum sveitarfélaganna, ekki til tveggja mánaða, heldur verulegar og varanlegar úrbætur. Eins og hv. þm. tók fram, segir svo í forsetaúrskurði um verkaskiptingu ráðherranna, að fjmrh. hafi einnig með höndum tekjustofna sveitarfélaganna og gjaldskrár þeirra. Ég býst ekki við, að neinn geti til þess ætlazt, að á þeim 11 dögum, sem síðan eru liðnir, að ég hafi samið eða látið semja fullbúið frv. um tekjustofna sveitarfélaganna, og því ekki hægt að ætlast til þess, að slíkt liggi fyrir nú. Hins vegar vil ég taka það fram, að á þessum fáu dögum, síðan núverandi ríkisstj. tók til starfa, er þegar hafinn undirbúningur að löggjöf um nýja tekjustofna, og verður þannig að því máli unnið, að frv. til slíkrar löggjafar megi leggja fyrir Alþ., þegar það kemur saman eftir þingfrestunina. Af þessum ástæðum og eins og málið liggur fyrir er að sjálfsögðu ekki hægt og ekki heppilegt að samþ. till. hins hv. þm. á þskj. 48.