07.04.1960
Efri deild: 57. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3067 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)

26. mál, útsvör

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft frv. þetta til meðferðar og skilað nál. á þskj. 293. Er n. sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Er þar alveg um sömu afstöðu að ræða og allshn. Nd. tók til frv., þegar það var til meðferðar í þeirri deild.

Í þessu frv. felst sú breyting á gildandi útsvarslögum, að bæjar- og sveitarfélögum verði heimilað að leggja útsvar á alla síldarverkun og verzlun með síldarafurðir, sem á sér stað innan viðkomandi bæjar- eða sveitarfélags. Þetta hefur ekki verið heimilt fram til þessa, nema síldarverkun eða verzlun hafi verið talin heimilisföst atvinnustofnun á þeim stað, þar sem hún hefur farið fram. Nú er það svo í mörgum tilfellum, að þeir, sem t.d. salta síld, hvort sem það eru einstaklingar eða félög, telja heimilisfang sitt ekki á þeim stað, þar sem söltunin fer fram. Hafa dómstólar í slíkum tilfellum talið, að síldarsaltandi væri ekki heimilisfastur á söltunarstaðnum og honum sé því ekki skylt að greiða útsvar á þeim stað. Þetta byggja dómstólarnir á því, að síldarverkunin standi yfir svo skamman hluta úr árinu og yfirstjórn starfseminnar sé að jafnaði þar, sem síldarverkandinn telur sitt heimilisfang. Hafa mjög oft orðið málaferli út af útsvarsskyldu í slíkum tilfellum. Síðasta dæmi þess er hæstaréttardómur, sem kveðinn var upp fyrir um það bil mánuði, þar sem einstaklingur, sem saltaði síld á Húsavík, en var búsettur annars staðar, var sýknaður af kröfu Húsavíkurkaupstaðar um útsvarsskyldu vegna söltunarinnar.

Með þeim skilningi, sem dómstólar hafa lagt í ákvæði útsvarslaganna að þessu leyti, eru þau alls ófullnægjandi fyrir þá staði, sem byggja tilveru sína atvinnulega séð að miklu leyti á síldarsöltun og síldarvinnslu, þar sem mikill hluti þessa atvinnurekstrar ber enga útsvarsskyldu gagnvart viðkomandi bæjar- eða sveitarfélagi. Úr þessu er frv. ætlað að bæta.

Það eru einkum kaupstaðir og kauptún á Norður- og Austurlandi, sem gætu orðið hart úti í þessum efnum að óbreyttum lögum. Má þar til nefna Siglufjörð, Dalvík, Húsavík og Raufarhöfn auk ýmissa kauptúna á Austurlandi.

Það getur ekki talizt réttlátt, að aðkomumenn og aðkomufyrirtæki geti gerzt þátttakendur í aðalatvinnurekstri síldarbæja án útsvarsskyldu til bæjarins og án þess að þurfa að greiða þar nokkuð til bæjarfélagsins fyrir þá aðstöðu, sem veitt er. Samkvæmt núgildandi útsvarslögum er að vísu heimilt að skipta útsvörum, þegar tiltekin skilyrði eru fyrir hendi. Þær reglur eru þó ærið flóknar og erfiðar í framkvæmd. Í sumum tilfellum gæti þessi heimild bætt lítils háttar úr fyrir atvinnustaðnum, þar sem síldarvinnsla fer fram. Þessi heimild er þó miklu minna virði en rétturinn til að leggja útsvör á beint, m.a. fyrir þá sök, að mismunandi álagningarreglur geta gilt á heimilisstaðnum og atvinnustaðnum. Hugsum okkur t.d., að hlutafélag, skrásett einhvers staðar uppi í sveit, ræki síldarsöltun á Siglufirði. Réttur Siglufjarðarbæjar til að fá hluta af útsvarinu frá heimilissveitinni væri þá mjög lítils virði, en að óbreyttum lögum yrði Siglufjarðarbær að una við þetta og það eins, þótt allar tekjur hlutafélagsins væru fengnar vegna síldarsöltunarinnar.

Að lokum má benda á, að í frv, er kveðið svo á, að ekki skuli leggja útsvar á aðila í heimilissveit hans af þeim atvinnurekstri við síldarverzlun og síldarvinnslu, sem útsvarsskyldur er annars staðar. Er hér um eðlilegt og sjálfsagt ákvæði að ræða til þess að koma í veg fyrir tvísköttun.