08.03.1960
Neðri deild: 44. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3072 í B-deild Alþingistíðinda. (1264)
72. mál, ráðstöfun erfðafjárskatts og erfðafjár til vinnuheimila
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Á Alþingi í fyrravetur flutti ég ásamt nokkrum öðrum þingmönnum till. til þál. um vinnuheimili og vistheimili fyrir aldrað fólk og það fólk, sem hafi skerta starfsorku. Var gert ráð fyrir í þeirri till., að skipuð yrði milliþn. til að semja frv. að löggjöf um þetta efni, bæði að leita eftir möguleikum til þess, að þetta fólk gæti fundið starf við sitt hæfi, svo að starfsorka þess yrði nýtt, og enn fremur að fjármálum við uppbyggingu þessara stofnana yrði komið fyrir í löggjöf. Mér er kunnugt um það, að starfandi er milliþn. í þessu máli, til þess að vinna að lausn þess, eins og farið var fram á í till. og hugsað var með henni.
Þetta mál, sem hér er til umr., grípur nokkuð inn á það svið, sem till. fjallaði um. Ég vildi því mega vænta þess, að milliþn., sem hefur þetta mál til meðferðar, megi hraða störfum sinum og að heildarlöggjöf verði sett um þetta efni. Hins vegar má vel vera, að meðan slík heildarlöggjöf er ekki fram komin eða samþykkt orðin, þá sé nauðsynlegt að gera þá breytingu, sem hér liggur fyrir. Ég vildi aðeins minna á það, að þetta verk er verið að vinna, og vænti þess, að það verði unnið svo sem til var ætlazt, enda er nauðsynlegt, eins og flm. benti hér á, hv. 2. þm. Norðurl. e., að þessum málum verði komið á þann grundvöll, að sveitarfélög og þær stofnanir aðrar eða samtök, sem vilja beita sér fyrir þeim, geti unnið að framgangi málsins, en það hefur verið lítt framkvæmanlegt við þá fjárhagsaðstoð, sem fyrir hendi er.
En ég vil aðeins að lokum leggja áherzlu á það, að heildarskipulag á þessum málum verði fundið, svo sem nú er unnið að.