02.12.1959
Efri deild: 8. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í B-deild Alþingistíðinda. (128)
30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Hv. 9. þm. Reykv. (AGl) sagði hér áðan, að sig furðaði á því, að ég hefði farið þeim orðum um söluskattinn, að það væri ágætur skattstofn. Ég skal nú taka það fram, að það gætir að því leyti nokkurs misskilnings hjá hv. þm., að þegar ég tók þannig til orða, var ég ekki fyrst og fremst að lýsa mínum persónulegu skoðunum á söluskattinum, kostum hans og göllum. Ég tel, að ekki sé ástæða til þess í sambandi við þá bráðabirgðaafgreiðslu á þessum málum, sem hér liggur fyrir, enda býst ég við, að bæði þeir tekjustofnar, sem hér um ræðir, og skattakerfið í heild verði endurskoðað í nánustu framtíð, þannig að það gefist þá tilefni til að ræða þau mál ýtarlegar síðar á þinginu. Ég benti hins vegar á það sem staðreynd, að allir hv. þm. höfðu a.m.k. á undanförnum þrem þingum samþykkt framlengingu söluskattsins einróma, og dró af því þá einföldu ályktun, að hvað sem liði ágreiningi um annað, þá hefði þó verið eining um ágæti þess skattstofns.
Ég skal þó taka það fram, að í þessu liggur auðvitað ekki, að ég og hv. 9. þm. Reykv. ásamt öðrum, sem að þessu stóðu, höfum sérstaka ánægju af því að leggja skatta á landslýðinn. Við viðurkenndum tekjuþörf ríkissjóðs á þessum tíma og höfðum ekki tilbúnar till. um aðra skatta, sem við töldum betri. Ég tel það ekki í neinu ósamræmi við þetta, þó að ég jafnframt segði, að það sama ætti auðvitað við um söluskattinn og alla aðra skattstofna ríkisins, að hann hefði sína ágalla.
Hv. 9. þm. Reykv. nefndi nokkur þeirra raka, sem oft hafa verið borin fram gegn söluskattinum, og í þeim er vissulega nokkur sannleikskjarni. En minna mætti þó hv. 9. þm. Reykv. á það, að þrjú undanfarin ár hefur hann verið í stjórnaraðstöðu, og telji hann þennan skattstofn svo mjög ómögulegan, hefði hann þá átt að beita áhrifum sínum til þess, að hann yrði afnuminn eða a.m.k. verstu ágallarnir sniðnir af honum. Þrátt fyrir þetta komst hv. þm. þó að þeirri niðurstöðu, að ekki væri hægt að afnema söluskattinn að svo stöddu. Og ef ég tók rétt eftir, lýsti hann því meira að segja yfir, að hann mundi greiða atkv. með framlengingu söluskattsins, aðeins ef samþ. yrðu nokkrar brtt., sem hann ber fram um ráðstöfun þessa skatts.
Ég ætla nú ekki að ræða, svo að neinu nemi, þessar brtt. hv. þm., enda hefur hæstv. fjmrh. þegar gert því máli skil. Ég vil þó aðeins benda á það, að ég dreg mjög í efa, að samþykkt þeirra till., sem hv. þm. ber fram, mundi á þessu stigi málsins verða til þess að greiða fyrir því ágæta málefni, að mínu áliti, að bæjar og sveitarfélögunum sé séð fyrir auknum tekjustofnum, m.a. í þeirri mynd, að eitthvað meira eða minna af söluskattinum renni til þeirra. En ástæðan til þess er sú, að eins og kunnugt er, þá hefur jöfnunarsjóður bæjar- og sveitarfélaga nú ákveðnu hlutverki að gegna, og þau lög, sem nú gilda um jöfnunarsjóðinn, eru miðuð við þetta hlutverk, m.a. þær reglur, sem gilda um úthlutun fjár úr sjóðnum eða skiptingu þess fjár, sem bæjar- og sveitarfélögin fá úr sjóðnum, á milli þeirra. Ég held, að það mundi verða nokkuð út í bláinn að fara að samþ. slíka aukna tekjuöflun til sjóðsins og nýjar reglur um úthlutun þess fjár, sem breyttu hlutverki sjóðsins til samræmis við það aukna fé, sem hann fengi til umráða.
Þá ætla ég aðeins að gefnu tilefni að víkja örfáum orðum að ræðu hv. 5. þm. Austf. (PÞ). Hann beindi nokkrum spurningum til fjhn., aðallega varðandi tæknileg atriði í sambandi við skattalög þau, sem hér liggja fyrir. Ég skal fúslega játa það, að þessi mál bar ekki á góma á fundum n. Við létum okkur nægja — og það var í samræmi við þá meðferð, sem þessi mál hafa áður fengið í fjhn. — að lesa saman texta lagafrv. við núgildandi lög í þessu efni. Ég hef litið þannig á, að fjhn. sé ekki nein milliþinganefnd í skattamálum. Ef svo væri, þá bæri henni vitanlega að geta gefið upplýsingar um þau atriði, sem hv. þm. minntist á, eins og t.d. spurninguna um það, hvort skemmtiferðaskip greiði lægra vitagjald en skip gera almennt, hvort innheimt væri aukaálag á skemmtanaskattinn, hvort gerður væri munur — ef ég tók rétt eftir — á hreinsaðri og óhreinsaðri steinolíu o.s.frv. Allt eru þetta skattatæknileg atriði, sem mþn. í skattamálum, er hefði það hlutverk að endurskoða skattakerfið frá grunni, ætti auðvitað að kynna sér. En mér finnst ekki hægt að ætlast til þess, að fjhn., — ekki sízt í sambandi við þá bráðabirgðaafgreiðslu, sem hér er um að ræða, — hafi krufið þessi mál til mergjar.
Öllu meira get ég nú ekki um þetta sagt, e.t.v. meðfram af því, að ég er ekki í tölu þeirra hv. þdm., sem skáldskapargáfan hefur verið gefin, og harma ég það mjög. En við því er ekki að gera. En þó eru það tvö þessara atriða, sem mér finnst, að ég gæti myndað mér skoðun um. Hv. þm. taldi, ef ég tók rétt eftir, að óþarfur væri 3. liður 5. gr., vegna þess að það sama feldist í rauninni í 2. lið 5. gr. En það er á þessu sá munur, að hvað snertir 2. liðinn, þá er heimilað að undanþiggja tollahækkun þeirri, sem gert er ráð fyrir, þær vörur, sem þar eru taldar, en í 3. liðnum er heimilað að fella niður öll aðflutningsgjöld af sömu vörum, ekki eingöngu álagið á verðtollinn og vörumagnstollinn. (Gripið fram í.) Já, að því leyti, sem það er tilfellið, að 3. liðurinn komi til framkvæmda, þá fellur auðvitað niður tollahækkunin, það er alveg rétt. En 3. liðurinn er aðeins heimild, svo að það er ekki víst. Hinu er ég að vissu leyti sammála, sem hv. þm. sagði, að tollfrelsið á kaffi nær ekki tilgangi sínum sem ella vegna ákvæða 5. gr. um heimild til þess að leggja 50% álag á kaffibæti. En á þessu gæti verið sú skýring, að það, sem legið hefur fyrst og fremst til grundvaltar þeirri lækkun á aðflutningsgjöldunum og afnámi þeirra, sem hér er um að ræða, sé vísitala framfærslukostnaðar. Og ef það er þannig, að kaffibætirinn sé tiltölulega lítill liður í vísitölu framfærslukostnaðarins, þá getur vel verið, að fært hafi þótt að leggja álag á hann, þó að aðflutningsgjöld á kaffinu væru að öðru leyti afnumin.