09.02.1960
Efri deild: 17. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3079 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)

52. mál, sjúkrahúsalög

Flm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Við hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB) höfum leyft okkur að flytja frv. það, sem hér liggur fyrir til 1. umr. og er frv. til l. um breyt. á l. um sjúkrahús, nr. 93 31. des. 1953. Breyt. sú, sem hér er farið fram á að gerð verði á nefndum lögum, er í því fólgin, að ráðherra fái heimild til þess að viðurkenna umfram það, sem ákveðið er í núgildandi lögum, eitt fjórðungssjúkrahús á Vesturlandi. Höfum við flm. frv. þá sérstaklega í huga sjúkrahúsið á Akranesi. En það er, sem kunnugt er, rekið af Akraneskaupstað, en veitir þjónustu sjúklingum úr öllum byggðum Vesturlands og víðar, svo sem sjá má af skýrslum sjúkrahússins. Af 13488 legudögum sjúklinga á sjúkrahúsinu á s.l. ári var tæpur helmingur legudaganna vegna sjúklinga, sem búsetu áttu utan Akraness, og er jafnan mikil eftirspurn eftir sjúkravist víða að. Það er óhætt að fullyrða, að sjúkrahúsið á Akranesi nýtur mikils álits, enda hefur það á að skipa úrvalslæknum og hjúkrunarliði, auk þess sem telja má, að það sé vel búið tækjum, miðað við stærð þess, og stöðugt unnið að því að endurbæta og kaupa ný og fullkomin tæki, eftir því sem tök eru á. Rekstrarafkoma sjúkrahússins er hins vegar mjög erfið, svo sem margra annarra slíkra húsa, sem eiga við svipuð kjör að búa. Veldur það mörgum áhyggjum, hversu erfiðlega gengur að treysta fjárhagslegan rekstur sjúkrahúsanna. Því verður ekki móti mælt, að það er sanngirniskrafa, þegar í hlut á sjúkrahús, sem eins stendur á um og sjúkrahúsið á Akranesi, sem veitir sjúklingum í jafnstóru byggðarlagi og hér um ræðir afbragðsþjónustu, að það njóti styrks úr ríkissjóði til jafns við það, sem ríflegast er og hliðstætt má teljast um önnur sambærileg sjúkrahús.

Þegar lögin um fjórðungssjúkrahús voru sett, hlýtur það að hafa vakað fyrir þeim, sem að setningu þeirrar löggjafar stóðu, að stefna bæri að því að koma á fót nokkrum sjúkrahúsum utan Reykjavíkur, sem væru búin fullkomnum tækjum, svo að ekki þyrfti að fara með alla sjúklinga til sjúkrahúsanna í Reykjavík, enda er það á ýmsan hátt hagkvæmara fyrir þá, sem á sjúkravist þurfa að halda úti á landsbyggðinni, að geta átt þess kost að komast á sjúkrahús í sínu héraði, heldur en vera fluttir um langan veg til Reykjavíkur. Það ber vissulega að fagna þeirri þróun, sem átt hefur sér stað í þessum efnum. Það er eðlilegt, að ríkissjóður styðji þá viðleitni vel og á sem jafnastan hátt.

Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um málið á þessu stigi, en geri það að till. minni að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og félmn.