01.03.1960
Neðri deild: 40. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3107 í B-deild Alþingistíðinda. (1384)

70. mál, sala tveggja jarða í Austur-Húnavatnssýslu

Björn Pálsson:

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð, sem ég vildi segja um þetta mál, vegna þess að ég er þessum hlutum kunnugri en flestir aðrir.

Það er í fyrsta lagi það, að sýslunefndin óskar að mega selja jarðirnar. Þetta er ekki pólitískt mál heima fyrir, heldur vilji allra sýslunefndarmannanna, og ástæðan er sú, að það er ógerlegt að leigja jarðir nú. Við höfum oft verið í vandræðum með þessar jarðir. Ég átti sæti í sýslunefnd alllengi, og við vorum oft í vandræðum og óskuðum þess að hafa heimild til þess að selja jarðirnar. Ábúðarlögin eru þannig, og það er þannig ástandið í landinu, að það má heita ógerlegt að leigja jarðir. Það er fullerfitt að halda þeim í byggð, þó að bændurnir eigi þær sjálfir. Það varð úr, að leyft var að veðsetja jarðirnar, til þess að hægt væri að byggja upp á þeim. Svo brann íbúðarhúsið, eins og áður hefur verið fram tekið hér, á annarri jörðinni, og það er óvíst, að hægt sé að koma henni í byggð framvegis. Helzt er þó að reyna að selja þessar jarðir, ef þær eiga að haldast í byggð. Ég mun því greiða atkv, með því, að jarðirnar verði seldar, og satt að segja held ég, að ástandið sé þannig í landinu, að það ætti að gera það, sem hægt er, til þess að bændurnir ættu jarðirnar sjálfir, því að þá mundu þeir frekar tolla við búskapinn.