26.04.1960
Neðri deild: 71. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3112 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)
70. mál, sala tveggja jarða í Austur-Húnavatnssýslu
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Ég skal ekki fara mikið í það hér í sambandi við þetta frv. að ræða um stefnur í jarðeignamálum, því að það gæti orðið nokkuð langt, enda þótt ræða hv. 3. þm. Reykv. (EOl) gæfi nokkurt tilefni til þess. En það mál hefur verið mjög til meðferðar hér á undanförnum árum og einkum á tímabili á fjórða tug þessarar aldar, og yfirleitt hefur það orðið ofan á hér á hv. Alþ. og á meðal þjóðarinnar, að það væri heppilegasta leiðin, að hver ábúandi ætti sína jörð. Það er kunnugt, að ríkið á töluvert mikinn hóp af jörðum, sem stjórnað er af jarðeignadeild ríkisins og heyrir undir jarðakaupasjóð, en mér er nokkuð kunnugt um það sem áður starfandi manni í fasteignamati, að það er hér um bil gegnumgangandi regla, að jarðirnar allar, sem eru í opinberri eigu, eru verst setnar af öllum jörðum í landinu.
Varðandi þessar tvær jarðir, sem báðar eru litlar jarðir og ekki mjög verðmiklar, a.m.k. önnur þeirra, — það eru orðnar töluvert verðmiklar umbætur á hinni, eins og ég gat um áðan, — þá skýrði ég nokkuð frá aðstöðunni með þær og þeim vilja, sem fram kemur hjá sýslunefndinni í Austur-Húnavatnssýslu, sem er alveg einhuga í þessu máli, að það er síður en svo, að það séu meiri líkur til þess, að auknar verði umbætur á þessum jörðum, ef þær eru áfram í eigu sýslunnar, meira að segja nokkurn veginn víst, að önnur þeirra fari í eyði á þessu vori, ef ekki fæst heimild til þess að selja hana samkv. þessu frv.
Það er rétt, sem hv. 3. þm. Reykv. gat um, að þessar jarðir heita kristfjárjarðir. En þær eru eigi að síður eign Austur-Húnavatnssýslu. Þær eru gefnar þannig, að það sé sýslan, sem á þær. Og hv. landbn. hefur athugað þetta mál allrækilega og borið saman við þau lög, sem um þetta gilda, og það, sem sérstaklega er ástæða til að vitna í, er það, sem ég gat um í minni framsöguræðu, að eftirlitsnefnd opinberra sjóða hefur athugað þetta mál og mælir með því, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem hún leggur til. Í áliti þeirra segir svo:
„Eftirlitsnefnd hafa á liðnum árum borizt nokkrar slíkar beiðnir. Hefur þeim jafnan fylgt mat dómkvaddra manna og stundum tilboð um hærra verð en matsmenn höfðu ákveðið. Nefndin hefur jafnan, að þeim upplýsingum fengnum og öðrum, er hún hefur getað aflað sér, veitt samþykki sitt til sölu. Eru nefndinni ljósir þeir erfiðleikar, sem á því eru fyrir sjóðina sem landeiganda að uppfylla þær skyldur, sem inna ber af höndum gagnvart leiguliða.“
Ég legg áherzlu á og undirstrika þessi orð eftirlitsnefndar opinberra sjóða, að það hefur reynzt svo, að í þessu tilfelli sýslunefnd Austur-Húnavatnssýslu hefur ekki talið sér það fært og ekki gert það að uppfylla, svo sem annars mætti ætla, þær skyldur, sem gert er ráð fyrir varðandi umbætur, en hins vegar leyft leiguliðunum að veðsetja jarðirnar fyrir umbótum. Þess vegna er það, að það gildir alveg sama regla um þessar tvær litlu jarðir og almennt gerist um ríkisjarðir, að meðan þær eru í opinberri eigu, eru miklu meiri örðugleikar á því, að þær séu vel setnar og gerðar á þeim þær umbætur, sem æskilegt er, heldur en ef jarðirnar eru í eigu ábúendanna sjálfra.
Nú er ástandið um jarðasölu ákaflega mikið breytt frá því, sem verið hefur á undangengnum áratugum. Á öllu tímabilinu frá því um aldamót og ég hugsa fram um 1955, allt að því, þá hefur verið kapp eftir að fá keyptar jarðir og töluverð eftirspurn eftir þeim. Nú er þetta gersamlega breytt, því að ég hygg, að það sé almennasta reglan, að nú sé ekki hægt að selja neina jörð. Ég hef talað við fasteignasala, sem hafa á hendinni töluvert margar jarðir, og þeir segja mér, að það séu engir möguleikar á að selja þær, ef eigi að selja þær á frjálsum markaði.
Hér er farið fram á það með þessar tvær litlu jarðir, að þær séu seldar eftir mati dómkvaddra manna, og mér þykir það mjög undarlegt, ef hv. Alþ. ætlar að fara að setja fótinn fyrir þessa beiðni, með tilliti til þess, að það sé stefna einhverra manna hér innan sala þingsins, að það sé heppilegasta leiðin, að ríkið eða það opinbera, héruðin eða bæjarfélögin, eigi helzt allar fasteignir. Ég hefði haldið, að sú stefna ætti ekki svo mikið fylgi hér innan sala þingsins, að það væri þess vegna ástæða til að setja fótinn fyrir þetta litla frumvarp.
Um það, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. (SkG) vék að, að það hefði verið hægt að byggja þessar jarðir á erfðafestu, þá hefur það ekki verið gert og ekki verið um það sótt. Ábúandinn, sem var á Meðalheimi um nokkur ár, var frábærlega duglegur maður og gerði þar stórkostlegar umbætur. Hann missti heilsuna og varð að fara þaðan burt, og þeir, sem þar eru nú, hafa ekkert um það sótt að fá erfðafestu, en þeir óska mjög eftir að fá beitilandið keypt, því að það er ekkert annað en beitilandið, sem er þar eftir, sem sýslan á. En eins og ég tók fram áðan, er það svo varðandi hina jörðina, Hamar, að það eru allar líkur til þess, að hún fari í eyði á þessu vori, ef þessi heimild verður ekki samþ., og meira að segja ekki alveg víst, að það sé tryggt, að ábúandinn vilji ganga að þeim kostum, sem fram á er farið í þessu frv.
Hér er þess vegna um svo mikið smámál að ræða, að mér þykir mjög undarlegt, ef hv. Alþ. getur ekki fallizt á það með landbn. að samþ. þetta frv.