02.05.1960
Neðri deild: 74. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3124 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)

70. mál, sala tveggja jarða í Austur-Húnavatnssýslu

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það urðu við 2. umr. þessa máls nokkrar umræður um, í fyrsta lagi almennt, hvort rétt væri að gera ráðstafanir til þess að selja slíkar jarðir sem þarna væri um að ræða, þeirrar tegundar jarðir, og í öðru lagi, hvaða stefnu skyldi hafa í þessum málum yfirleitt. Ég vil vekja athygli hv. d. á því, að þetta er mál, sem rætt hefur verið hér undanfarið hvað eftir annað og valdið allmiklum ágreiningi, einmitt um þessar sérstöku jarðir. 1950 lét þáv. ríkisstj. útbúa mjög ýtarlega skýrslu og útbýtti síðar hér í hv. d. miklu þskj., þ. e. þskj. 258 1952, er heitir: Greinargerð félmrn. um kristfjárjarðir og aðrar sambærilegar jarðeignir og var sérstaklega lagt fram vegna þess, að á Alþ. 1950 hafði verið samþ. svo hljóðandi þáltill., með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram athugun á eignar- og umráðarétti yfir kristfjárjörðum og öðrum eignum, sem líkt stendur á um, og gefa Alþingi skýrslu um niðurstöður þeirrar athugunar, svo fljótt sem verða má.“

Það var þessi ályktun, sem hafði verið samþykkt 1950, sem gaf félmrn. tilefni til þess að láta þessa athugun fara fram. Þessi skýrsla, sem síðan var útbýtt 1952 og er þskj. 258, var upp á 39 síður, og allmikill partur í þessari skýrslu, þar sem gefur að líta yfirlit yfir kristfjárjarðir og aðrar slíkar, yfirlitið sjálft, bara upptalning jarðanna og kvaðanna á þeim, nær yfir 12 síður í þessari skýrslu, en að mestu leyti er hinn sögulegi partur af þessari skýrslu tekinn saman af dr. Guðbrandi Jónssyni. Hér er sem sé um að ræða jarðir alveg sérstakrar tegundar. Það er ekki um að ræða einhverjar venjulegar ríkisjarðir, því síður, að það sé um að ræða einhverjar jarðir, sem sýslunefnd Austur-Húnavatnssýslu raunverulega eigi, heldur er hér um að ræða jarðir, sem eru í hennar vörzlu og hún getur ekki ráðstafað nema með sérstöku samþykki Alþingis, og jarðir, sem spurning er um, hvort Alþ. geti á löglegan hátt yfirleitt ráðstafað.

Í þessari skýrslu er á bls. 11 sérstaklega tilgreint um þessar tvær jarðir, sem hér fjallar um. Kristfjárjarðirnar skiptast eiginlega í tvennt, annars vegar í kristfjárjarðir og hins vegar jarðir í fátækraeign, eins og það er kallað. Um þessar tvær jarðir, sem er um að ræða, Hamar og Meðalheim, fjallar á bls. 11. Gjafabréfið fyrir jörðinni Hamri er gefið út 15. febr. 1656. Gefandi er þá Guðmundur Hákonarson sýslumaður, og jörðin er gefin fátækum í Húnavatnssýslu. Spurningin, sem liggur fyrir, þegar maður er að ræða um svona hluti, er sem sé, hvaða virðingu menn vilja bera fyrir ákvörðunum, sem gerðar hafa verið af einstaklingum í mjög góðu skyni. Jörðin Meðalheimur í Torfalækjarhreppi er gefin með gjafabréfi 10. maí 1763. Gefandi hennar er Bjarni Halldórsson sýslumaður. Jörðin er gefin fátækum í Húnavatnssýslu, og skyldi afgjaldið renna til allra hreppa sýslunnar. M.ö.o.: fyrir tveim til þremur öldum eru þessar ráðstafanir gerðar, að gefa þessar jarðir til handa fátækum í þessari sýslu, og nú hyggst sem sé sýslunefnd annarrar þessarar sýslu að gera þarna ráðstafanir til þess að breyta þessu.

Hingað til hafa menn farið allvarlega í þessa hluti. Ég tók eftir því, að hv. 5. þm. Norðurl. v. (BP) — hann er víst ekki hér inni núna —hélt hér allmikla ræðu um þetta og fannst það eiginlega skipta litlu máli, hvaða ráðstafanir menn gerðu í þessu, því að bolsévikar ættu til að taka jarðir af aðalsmönnum og gefa þær bændum. Jú, vissulega, það hefur komið fyrir, að fátækir bændur hafi sameinazt verkalýð stórborga og gert byltingu í löndum, þar sem yfir 90% af jörðunum var í eign aðals, og það hefur líka komið fyrir, að fátækir bændur hafi sameinazt borgurum í bæjum og gert byltingu í landi, þar sem yfir 90% af jörðum var í eign aðals og kirkna. Fyrra dæmið gerðist í Rússlandi 1917, hitt í Frakklandi 1789, og bændurnir hafa tekið þessar jarðir af aðlinum og skipt þeim upp á milli sín, og hvort tveggja hefur verið mjög skynsamlegt. En það er ekki um þetta að ræða hér. Mér þykir mjög vænt um, að hv. 5. þm. Norðurl. v. skuli taka afstöðu með slíkum bændabyltingum, en það er ekki um þá hluti að ræða hér. Við erum hér að ræða um einmitt, hvort við viljum virða þann rétt og þá ákvörðun, sem menn hafa tekið á ákveðnum tíma um að ráðstafa sinni eign, eða hvort við viljum ekki virða það, hvort við viljum brjóta það, og það er alltaf varhugavert fordæmi, ef menn fara að brjóta slíkt. Byltingar eru venjulega undantekningarástand í þjóðfélagi, og það, sem gerist venjulega eftir hverja byltingu, er, að þeir, sem sigra í byltingunni, lýsa því yfir, að það, sem þeir hafi gert, sé löglegt, gera það að lögum. Það, sem við hins vegar erum að ræða um hér, er, hvort við eigum að halda það, sem löglega hefur verið gert, og það, sem við höfum ekki hugsað okkur að bylta.

Þarna er um ákvarðanir að ræða, sem gerðar hafa verið fyrir tveimur, þremur öldum um ákveðna eignarréttarráðstöfun. Það hefur verið ráðstafað í þessu tilfelli af ákveðnum sýslumönnum einkaeign þeirra í þágu almennings. Þetta hefur þannig verið gefið almenningi, hvort heldur það hefur verið gert undir þeirri forsendu, að þetta væri gefið í fátækraeign, til þess að hjálpa þeim, sem minni máttar væru, eða hvort þetta væri gefið eins og fyrir sálnaveiðar til Krists, það skiptir ekki máli í þessu sambandi. Það kemur hið sama út úr hvoru tveggja. Þetta er hugsað sem eins konar eilíf sameign, sem þessir menn hafa gefið, og á að nýtast handa þeim, sem bágt eiga.

Því hefur hér verið haldið fram af hálfu sumra forsvarsmanna þessa frv., að það væri búið að gera slíkar þjóðfélagslegar ráðstafanir síðan þetta hefði gerzt, að svona nokkurs eins og þessa væri ekki lengur þörf. Vissulega, það hafa undir áhrifum verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi verið gerðar miklar ráðstafanir. Það hefur tekizt þrátt fyrir mótspyrnu Sjálfstfl. að fá fram, að það væri afnumið, að menn skyldu missa kosningarrétt við að fara á sveit. En þó er það enn þá svo, að það eru til fátækir menn á Íslandi, og þó er það enn þá svo, að það er til fólk á Íslandi, sem fer á sveit, því miður, og það virðist vera stefna hæst.v. núv. ríkisstj. að auka fátæktina á Íslandi, að fjölga þeim, sem fátækir eru. Það virðist vera stefna hæstv. ríkisstj. að skipuleggja skort hjá almenningi, þannig að nái þessi stefna hæstv. ríkisstj. fram að ganga, verður áreiðanlega meiri þörf á því, að fátækir eigi sem flest, sem að þeim hlynnir. Ef á þess vegna að stilla þessu spursmáli almennt þannig, hvort það sé enn þá hætta á fátækt á Íslandi og slíku, ferst a.m.k. núverandi stjórnarliðum ekki að tala þar djarft, vegna þess að þeir virðast beinlínis stefna að því að koma aftur á meiri fátækt á Íslandi en verið hefur síðustu tvo áratugi. Það er það, sem snertir þann hluta þessa máls.

Hitt atriðið er svo: Að hverju á maður að stefna almennt um jarðeignirnar? Þessar jarðir eru eins konar sameign, og við skulum alveg leggja það niður fyrir okkur, hvort við álitum heppilegt að taka þær úr sameign og gera þær að séreign eða ekki. Það er skrá hér yfir þær jarðir, sem voru það sem kallað er í fátækraeign 1847, og það er skrá hér yfir þær jarðir, sem voru kristfjárjarðir 1952, og það er hér í þessari bók einnig yfirlit yfir, hvers konar jarðir þetta allt saman eru, hve dýrmætar, hve vel setnar og annað slíkt. Það hefur hvað eftir annað komið fram, að svo framarlega sem þær ráðstafanir hafa verið gerðar að selja svona jarðir, hefur það venjulega verið í þeim tilgangi, sem miðað var að með jörðunum til tjóns. Jörð eins og Kristnes, sem er ein gjafasjóðsjörð í Jóns Sigurðssonar legati, rétt hjá Akureyri, — það er dýrmætt að hafa svona jörð í opinberri eign. Við höfum lifað það, að jarðir sem verið hafa meira eða minna eða jafnvel alveg ríkissjóðsjarðir, hafa verið seldar í einstakra manna eign, en hafa svo, ef ríkið hefur þurft á þeim að halda seinna, verið metnar jafnvel á heila milljón, þegar ríkið hefur átt að kaupa þær aftur.

Ég veit ekki, hvort sýslunefnd Austur-Húnavatnssýslu hefur svo litla trú á framtíð sinnar sýslu, að hún geti ekki hugsað sér það, að þessar jarðir mundu einhvern tíma verða þarna á svæði, þar sem yrði mjög byggilegt, þessi mikla sýsla, með þessu mikla undirlendi og miklu landbúnaðarmöguleikum. Það þyrfti ekki nema virkjun Blöndu, til þess að þarna gerbreyttust allar aðstæður í þessari sýslu, og við höfum lifað það, hvað það hefur þýtt, að ríkið eða sýslurnar eða slíkar sameignarstofnanir fólksins í landinu hefðu ekki yfirráð yfir slíkum jörðum.

Ég held þess vegna, að það sé ákaflega illa farið að gera þær breytingar að taka þessar jarðir úr eign almennings og selja þær einstaklingum. Það er nokkuð sama, þótt það sé lagt í einhvern sjóð, afgjaldasjóð eða annað slíkt, því að núverandi hæstv. ríkisstj. hefur einmitt alveg sérstaklega framar öllum öðrum ríkisstj. á Íslandi gert sérstakar ráðstafanir til þess að koma hér á óðaverðbólgu og gera þannig allt fé, sem þannig yrði, alla peninga, sem fengjust fyrir slíkar jarðir, sem minnsts virði, þannig að það að selja svona jarðir núna fyrir það litla verð, sem fyrir þær fæst, er sama sem að fleygja andvirðinu og gefa þeim, sem jarðirnar eru seldar.

Hitt er svo aftur annað mál, að þeir menn, sem nýta þessar jarðir, bændurnir, sem vinna á þeim, eiga að hafa aðgang að því að nýta þessar jarðir, að því að hafa allt það gagn af þeim, sem hægt er að hafa með þeirra vinnu. Það er hægt að tryggja það með hvers konar erfðaábúð og öðru slíku, og þeim hlutum þarf bara að breyta, og það ætti ekki að vera ofverk þeirra, sem stjórna ríkinu og hafa eitthvað með landbúnaðarmál að gera, að sjá til þess, að slík stefnubreyting verði viðvíkjandi þeim jörðum, sem ríkið á, þær verði betur setnar en aðrar, að leiguliðunum þar verði gert þægilegt að búa þar, að það sé bókstaflega eins og þetta séu að öllu leyti sjálfseignarjarðir, nema hvað eitt snertir, að þeir geta ekki braskað með þær, að þeir geta ekki selt þær, að þeir geti ekki íþyngt afkomendum sínum með því að gera svo að segja afgjaldið af þessum jörðum að fjármagni.

Þess vegna er það röng stefna, sem hér er lagt til að fara inn á, og rangt að leggja þetta til. Það veldur því í fyrsta lagi, að ég er algerlega andvígur þessu frv., en svo í öðru lagi hitt, að sýslunefnd Austur-Húnavatnssýslu og Alþingi Íslendinga hefur engan rétt til þess að gera þetta, engan rétt, — er að taka sér rétt, sem það ekki á. Alþingi getur ekki gert þessa ráðstöfun. Þessi ráðstöfun kemur undir eignarréttargrein stjskr., ef á að breyta þessu. Þarna er um að ræða ákvæði, sem eru búin að vera í gildi nú um tvær til þrjár aldir, og við eigum ekki nú á því herrans ári 1960 að raska þessum ákvæðum. Það er ekkert í vegi fyrir því, að það sé hægt að hagnýta þessar jarðir að öllu leyti, semja við ábúendur þeirra um að tryggja þeim öll afnot af þeim. Hitt er rangt, og hitt er ólöglegt að selja þetta.

Eftir því sem mér er kunnugast, eru þessar jarðir engan veginn svo afskekktar, að þær þess vegna gætu ekki komið að góðum notum. Því er oft haldið fram um eyðijarðir langt fram til dala, að það sé eðlilegt að ráðstafa þeim, og hefur jafnvel verið gert nú á þessu þingi. En um þessar jarðir álít ég, að Alþ. eigi að koma í veg fyrir það, og ég veit, að þeir menn, sem sæti hafa átt hér á Alþ., lengst af sem fulltrúar bændastéttarinnar, og skynsamlegast hafa litið á þessa hluti, hafa haft skilning á þessu. Jón á Reynistað sýndi það hér í þessari d. með afstöðu sinni til ættaróðalanna, Páll Zóphóníasson sýndi það í Ed., m.a. með því að hjálpa til að stöðva kristfjárjarðafrv. fyrir nokkrum árum, að þessir menn vissu bæði, hvað landbúnaðinum var fyrir beztu og hvað rétt var í þessum efnum.

Ég vil þess vegna eindregið skora á hv. þdm. að fella þetta frv.