03.12.1959
Neðri deild: 8. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í B-deild Alþingistíðinda. (141)

30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga

Fjmrh. ( Gunnar Thoroddsen ):

Herra forseti. Ýmis gjörið og gjaldaviðaukar til ríkissjóðs hafa um mörg undanfarin ár verið framlengd til eins árs í senn. Þetta frv. felur í sér framlengingu á þessum sömu lögum, og er í því engin efnisbreyting frá því, sem verið hefur. Þessi lög eru talin upp í grg. þessa frv. Þau eru fimm að tölu, en er, eins og ég gat um, steypt hér saman í eitt, og kemur þetta frv. í stað þeirra mála, sem lögð voru fram á þessu hv. Alþingi sem mál nr. 7, 8, 9, 10 og 16. Þau gjöld, sem hér er um að ræða, eru vitagjald, stimpilgjald, lestagjald, skipagjöld, gjöld af ýmsum innlendum tollvörutegundum, skemmtanaskattur, gjöld samkv. lögum um bifreiðaskatt, gjöld samkv. lögum um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna, þ.e.a.s. framlenging á söluskatti, og enn fremur nokkrar breytingar á tollskrá.

Eftir atvikum þótti réttara að steypa þessum fimm lögum saman í eitt frv., og hefur þetta frv. verið afgr. óbreytt í gegnum Ed.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.