29.04.1960
Efri deild: 67. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3143 í B-deild Alþingistíðinda. (1445)

57. mál, orlof húsmæðra

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Hv. 9. þm. Reykv. (AGl) las hér áðan upp álit eða umsögn miðstjórnar Alþýðusambands Íslands varðandi þetta frv. Í þeirri umsögn kemur það glögglega fram, að ýmis verkakvennafélög innan Alþýðusambandsins eru dálítið uggandi um sinn áhrifarétt á dreifingu þess fjár, sem félmrn. hefur skv. fjári. úthlutað til þeirrar starfsemi, sem frv. gerir ráð fyrir. Þar sem ég er dálítið kunnugur þessum umr., þykir mér rétt að taka það skýrt fram, að þessi uggur er fyrst og fremst kominn fram frá þeim verkakvennafélögum, sem eiga ekki aðild að Kvenfélagasambandi Íslands og þess vegna mundu ekki verða neinir aðilar að þeim héraðssamböndum, sem dreifa mundu þessu fé eða ráðstafa því, svo sem í 1. gr. er gert ráð fyrir. Ég hefði því talið, að það væri eitt af brýnustu verkefnum Kvenfélagasambandsins við samþykkt þessa frv. og jafnvel til þess að það nái fram að ganga, að það reyndi með öllum tiltækilegum ráðum að gera þau verkakvennafélög eða þær deildir verkakvenna, sem nú eru meðal verkamannafélaga í landinu, — þær eru nokkuð margar, þar sem ekki er um sérstök verkakvennafélög að ræða, — að gera þau aðila að þessum samtökum, þannig að ekki yrði uppi nein tortryggni um ráðstöfun þessa fjár.

Það hefur verið á tveimur undanförnum árum sá háttur á hafður, bæði árið 1958 og 1959, að félmrn, hefur úthlutað 40 þús. kr. til Alþýðusambands Íslands, en Alþýðusambandið síðan falið verkakvennafélögunum eða n. skipaðri af þeim að ráðstafa þessu fé. Að sjálfsögðu er ætlazt til með þessu frv., að þetta fé, sem Alþýðusambandið hefur til þessa haft til umráða, á þessum tveimur árum, falli nú til umráða til þeirra héraðssambanda, sem í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir. Af þessum ástæðum tel ég mjög brýna nauðsyn á, að það verði framkvæmt hið allra fyrsta og jafnvel meðan frv. er ekki til fullnustu afgreitt hér, til þess að fyrirbyggja allan misskilning, að gera þá, sem eru það ekki nú þegar, en teljast þó verkakvennafélög eða verkakvennadeildir innan ýmissa félaga, aðila að þessum samtökum, þannig að áhrifaréttur þeirra minnki ekki á dreifingu fjárins frá því, sem áður hefur verið.

Það kann áreiðanlega að flögra að ýmsum í sambandi við samþykkt þessa frv., að ekki sé nægilega tryggt framlag ríkis og bæjar- og sveitarfélaga, miðað við þau framlög, sem húsmæðrum er skylt að greiða til þessa sjóðs. Ég held þó, að sú viðleitni, sem hið opinbera hefur þegar sýnt í þessum málum, ætti að sanna, að á því muni ekki standa um framkvæmd málsins og óþarft sé af þeim ástæðum að kvíða því. Ég tel sjálfur, að frv. sem heild miði í rétta átt, og höfuðatriðið, sem ég vildi gera aths. við er, eins og ég sagði í upphafi míns máls, að það verði fyrirbyggt, svo sem kostur er á, að tortryggni innan kvenfélagasamtakanna í landinu sé um að ræða varðandi dreifingu fjárins og notagildi þess. Stefna frv. er áreiðanlega rétt. Mikilvægi þess starfs, sem húsmæður vinna í þjóðfélaginu, er viðurkennt af öllum og réttindi þeirra til orlofsdvalar áreiðanlega á fullum rökum reist. Um það efast áreiðanlega enginn, og þær athugasemdir koma væntanlega ekki fram við frv.

Ég skal skýra frá því, að þrátt fyrir þessar mínar athugasemdir, mun ég fylgja þessu frv. og tel það mikilvægt spor í rétta átt, en mælist eindregið til þess, að þau samtök, sem sjá eiga um dreifingu og notagildi fjárins, reyni að sameina undir sínum merkjum öll þau kvenfélagasamtök, hverju nafni sem þau annars nefnast, hvort sem þau eru deildir eða sérstök félög, — sameina þau undir sínum merkjum og þá muni þeirri tortryggni, sem annars kynni að vera í sambandi við framkvæmd málsins, vera útrýmt. Ég mun styðja frv., vegna þess að ég tel það mikilvægt spor í rétta átt.