03.12.1959
Neðri deild: 9. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í B-deild Alþingistíðinda. (150)
30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég vil mótmæla því, að skornar verði nú niður umræður um það mál, sem hér er á dagskrá. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því, að hér er um að ræða mál, sem þannig er til komið á þskj., að steypt hefur verið saman fimm reglulegum þingmálum og búið til eitt þingmál úr þeim. Áður var hér búið að leggja fram á hv. Alþingi fimm frv. um fimm mismunandi mál, en þeim var síðan steypt saman í eitt frv., til þess vitanlega að reyna að koma í veg fyrir, að alþm. gætu með eðlilegum hætti fengið að ræða um þessi málefni samkv. því, sem þeir eiga rétt á samkv. þingsköpum. En til viðbótar því, að þessum fimm mjög óskyldu málum á marga lund er nú steypt saman í eitt mál, þá á svo að takmarka ræðutíma manna um þetta eina mál meira en dæmi eru til um áður á Alþingi. Ég vil algerlega mótmæla þessu, og ég geri kröfu til þess, að ég, sem kvaddi mér hljóðs um þetta mál og hef ekki enn þá fengið að taka til máls um þetta mál, sem hér er á dagskrá, að ég, sem kvaddi mér hljóðs hér fyrir löngu, fái að flytja mál mitt hér, án þess að ræðutími minn verði skertur sérstaklega. Ég vil líka segja það, að mér þykir það alveg furðulegt af hæstv. ríkisstj., að hún skuli gera kröfur um það til forseta þessarar d. að efna til ófriðar hér í þinginu á þennan hátt. Það mega allir sjá, að það boðar enga gæfu fyrir þessa ríkisstj., að hún skuli efna til ófriðar með slíkum hætti sem hún gerir hér í sambandi við þetta mál. Hér er um hreint ofbeldisverk að ræða gagnvart þingmönnum, og það er alveg áreiðanlegt, að ef hæstv. ríkisstjórn ætlar að knýja fram þetta ofbeldi á þingmönnum, þá verður munað eftir því.
Ég geri svo þá kröfu til hæstv. forseta, að hann sjái til þess, að þeir, sem kvöddu sér hér hljóðs um þetta mál strax í upphafi umræðna, fái að tala um málið, án þess að ræðutími þeirra verði sérstaklega skorinn niður.