13.05.1960
Neðri deild: 81. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3162 í B-deild Alþingistíðinda. (1504)

118. mál, landnám, ræktun og byggingar í sveitum

Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Þetta litla frv., sem fyrir liggur á þskj. 280, hefur verið til meðferðar í hv. landbn. N. öll er því hlynnt að mæla með því, að frv. verði samþ., en minni hl. n. er á því að samþ. einnig brtt. frá hv. 4. þm. Austf., sem er að finna á þskj. 350.

N. leitaði umsagnar landnámsstjóra um þetta frv. og fékk frá honum bréf, sem fylgir með nál. meiri hl. á þskj. 407. Mælir hann eindregið með því, að þetta frv. verði samþ., og lýsir þeirri nauðsyn, sem á því er.

Nú er það svo, að bæði brtt. á þskj. 350 og önnur brtt. á þskj. 439, frá hv. 1. þm. Norðurl. v., fara fram á það að leggja í þetta fjárveitingar strax, og segja má, að á því sé náttúrlega nokkur nauðsyn. En þó er það ekki alveg óhjákvæmilegt, vegna þess að eins og stendur, er til fé til þess að framkvæma lögin a.m.k. þetta ár og sennilega líka það næsta, og vegna þess að búið er að afgreiða fjárlög fyrir alllöngu og nú er komið fram undir þinglok, þori ég ekki að treysta því, að frv. nái fram að ganga, ef gera á þá kröfu nú, að því fylgi að ákveða fjárveitingar nú strax. Ég vil þess vegna leyfa mér að óska þess, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, óbreytt, því að þetta hefur mjög mikla þýðingu fyrir þá fátæku bændur, sem yrðu aðnjótandi þessa litla styrks, sem þarna er um að ræða, því að eins og hv. þm. vita, hefur aðstaða á undanförnum árum og meira að segja frá því 1957, þegar lögin voru sett, mjög mikið versnað fyrir alla menn með byggingar og ekki sízt sveitamenn, og það, sem sérstaklega gerir það að verkum, er, að aðstaða sveitamannanna er allt önnur en í þéttbýlinu varðandi íbúðarhúsa- og útihúsabyggingar. Fram að þessu hefur það verið svo í þéttbýlinu, að verðhækkun húsanna hefur alltaf fylgt verðhækkunum á byggingarkostnaði. Í sveitunum er þetta alveg gagnstætt, því að allir þeir menn, sem byggja þar íbúðarhús, verða að kasta í það töluvert mikilli fjárupphæð, sem þeir fá aldrei aftur, og víða gerist það svo, ef byggt er upp á jörð, að þá hverfur hið upphaflega landverð inn í framkvæmdirnar, þannig að víða er ekki hægt að selja jörðina fyrir það verð, sem húsið kostaði, eins og nú er komið á síðustu árum.

Ég veit, að mönnum er ljóst, að ég viðurkenni, að það er þörf á að hækka þennan styrk, eins og hv. 1. þm. Norðurl. v. leggur til.

En ég vil ekki hætta á það að setja frv. í hættu á þessu þingi vegna þess, að það kosti fjárveitingu nú þegar.