13.05.1960
Neðri deild: 81. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3165 í B-deild Alþingistíðinda. (1507)
118. mál, landnám, ræktun og byggingar í sveitum
Frsm. minni hl. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Árið 1957 voru sett sérstök lög um landnám, ræktun og byggingar í sveitum, sem miðuðu að því að gera þeim bændum, sem á minnstum og rýrustum jörðum búa, mögulegt að taka meira land í ræktun og gera býli sín arðvænlegri. Vissulega veitti ekki af þessu, því að búskapurinn í sveitum landsins gefur ekki meiri arð en svo, að hina mestu nauðsyn ber til þess, að einkum hinar minnstu jarðir séu bættar svo sem frekast eru föng á. Þetta hafði þá líka sérstaka þjóðhagsþýðingu vegna þess, að verðlagið á landbúnaðarafurðunum er miðað við það, að bú af tiltekinni stærð, sem fundið er út sem eins konar meðaltal af bústærð landsmanna, hafi skaplega afkomumöguleika, og með því að hafa tugi eða hundruð býla langt fyrir neðan það lágmark að stærð, gerði það allar landbúnaðarvörur í landinu óeðlilega dýrar. Það var þess vegna einnig hagur þeirra, sem voru ekki framleiðendur landbúnaðarvarnings, heldur neytendur, að þessi lög gætu komið að sem beztum notum. Þau hafa nú verið í framkvæmd síðan og gefið þá raun, að meðalbúið er talið fara stækkandi ár frá ári, og eru neytendur farnir að njóta nokkurs í því, með því að verðlagsgrundvöllur landbúnaðarvaranna verður með þeim hætti slíkur, að hægt er að miða verð til bóndans við stærra bú en áður var og þar með selja vöruna ódýrar. Það var gerð áætlun um að koma nokkrum fjölda býla í ákveðna stærð, og hefur verið unnið sleitulaust að þeirri áætlun og miðað vel. Á hinn bóginn hafa nú einhverjir hv. alþm. fundið það út, að í augnablikinu sé eitthvað af fé, sem Alþingi hefur ákveðið að verja til þess að stækka hin smæstu býli, láta þau fá aukinn jarðræktarstyrk, óeytt og komi ekki til útborgunar til viðkomandi bænda fyrr en líkast til á næsta ári, og þess vegna hefur mönnum dottið í hug að nota nú þetta fé til annarra hluta.
Hv. 2. þm. Norðurl. v. (JPálm) hefur flutt hér frv. til l. um breyt. á þessum lögum, sem ég hef nú talað um, frá 1957, á þá lund, að nýbýlastjórn verði heimilt að veita þeim bændum, sem hafa örðugan fjárhag, styrk til íbúðabygginga á sama veg og nýbýlastofnendum. Um þetta hef ég allt hið bezta að segja. Ég er því mjög samþykkur, að nýbýlastjórn verði heimilað þetta, en þó því aðeins, að hún fái jafnframt eitthvert fé til þess að framkvæma þetta með, því að það tel ég enga lausn á málinu að samþykkja, að nýbýlastjórn megi veita styrki eða framlög til ákveðinna húsbygginga og eigi að taka það fé frá ræktuninni, sem fellur til útborgunar þegar á næsta ári, ef hún þá gerir það ekki á þessu ári. Ég minnist þess, að þessi hv. flm. hefur einhverju sinni að mér áheyrandi hér í þingi haldið mikla ræðu um það, að ekki væri hægt að halda veizlu nema hafa einhver veizluföng, og á sama hátt og ég er honum sammála um það, hlýt ég nú að minna hann á, að ekki er hægt að auka framlag til ákveðinna húsbygginga nema hafa eitthvert fé til þess framlags.
Þegar landbn. hafði þetta frv. til athugunar, en hún hefur rætt það á nokkrum fundum, kom það fljótlega í ljós þar, að allir nm. voru því fylgjandi, að nýbýlastjórn fengi heimild til þess að rýmka um framlög til íbúðabygginga hjá þeim, sem höfðu þess mesta þörf í sveitum, þótt ekki væru nýbýlastofnendur. En á hinn bóginn klofnaði n. um það, að hv. stuðningsmenn ríkisstj. í n, töldu sér fært að halda veizluna, þótt engin veizluföng væru, og vildu samþykkja þetta án nokkurs framlags til þess arna. Við, sem minni hl. skipum, hv. 2. þm. Sunnl. (HB) og ég, lítum svo á, að því aðeins kæmi þetta frv. að einhverju gagni, að jafnframt kæmi til sérstakt fjárframlag í þessu skyni, og þá þegar, þegar n. hafði málið til athugunar, lá fyrir brtt. við frv. frá hv. 4. þm. Austf. (ÁS) einmitt um það, að veittar yrðu jafnframt í þessu skyni 1 millj. 250 þús. kr. En það verður að ætla, að ef á annað borð yrði farið inn á þá braut, sem frv. heimilar nýbýlastjórn, ef að lögum yrði, mundi ekki til þess duga minna fé en þar er tiltekið. Við gerum þess vegna að till. okkar, minni hl. landbn., að umrædd brtt. á þskj. 350 verði samþ., og að henni samþykktri erum við frv. fylgjandi og leggjum til, að það verði samþykkt.
Það skal fram tekið, að síðan n. fjallaði um þetta mál, hefur borizt við það önnur brtt. á þskj. 439, frá hv. 1. þm. Norðurl. v. (SkG). Sú till. kom sem sagt ekki til athugunar í landbn., þar eð hún hafði lokið við álitsgerð sína um þetta mál, áður en sú till. kom til. En að þeirri till., sem ég hef hér á minnzt, á þskj. 350, felldri, þá sýnist mér, að öll sú till. sé þess efnis, að hún samrýmist mjög því sjónarmiði, sem við, sem skipum minni hl. landbn., teljum rétt, og mundi ég fyrir mitt leyti lýsa yfir stuðningi við þá till. og teldi, að einnig með henni, þótt ekki kæmi annað til, væri frv. gert raunhæft, þannig að bændastétt landsins, þeirri sem þar um ræðir sérstaklega, þeim sem búa við erfiðan fjárhag, væri frv. gert að raunhæfu gagni, og mundi einnig greiða því atkv. að þeirri till. samþykktri. Á hinn bóginn verð ég að lýsa því yfir, að ef engin fjárveiting eða engin skylda verður lögð á ríkisvaldið til þess að koma til móts við þá fjárþörf, sem samþykkt frv. skapar, tel ég, að ekki sé neins virði að samþykkja frv. sem slíkt, og get ekki mælt sérstaklega með því.