03.12.1959
Neðri deild: 9. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í B-deild Alþingistíðinda. (151)
30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Forseti (BGr):
Út af mótmælum þeim, sem fram hafa verið borin, vil ég benda á í fyrsta lagi, að þessi umræða hefur staðið á sjöundu klukkustund, í öðru lagi, að þetta er áttundi fundur deildarinnar með stuttu millibili, þar sem allar umræður hafa í raun og veru efnislega verið um það sama og umr. hér í kvöld, og í þriðja lagi, að í þessari deild hefur verið sýnt umburðarlyndi í sambandi við umræður utan dagskrár, sem mun ekki vera venjulegt, og þær umræður snerust enn fremur allar um þetta sama mál að kjarna til. Loks vil ég benda á, að sú till., sem fram er komin, er samkv. ótvíræðri heimild í þingsköpum. Samkv. þingsköpunum er það deildarinnar að kveða á um það, hvort hún samþ. þessa tillögu eða hafnar henni.