13.05.1960
Neðri deild: 81. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3170 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)
118. mál, landnám, ræktun og byggingar í sveitum
Frsm. meiri hl. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Ég get nú sem flm. þessa frv. verið þakklátur öllum þeim hv. alþm., sem hér hafa talað, fyrir það, að þeir hafa allir viðurkennt þá nauðsyn, sem liggur til grundvallar þessu frv. Og sannleikurinn er náttúrlega sá, að sá ágreiningur, sem hér hefur komið fram, er í sjálfu sér minni en útlit er fyrir og er fyrst og fremst um það, hvort það skuli vera ákveðin fjárveiting til þessara hluta nú þegar eða ekki.
Ég er nú, eins og hv. þm. kannske flestir vita, formaður í nýbýlastjórn ríkisins og veit þess vegna alveg, hvernig þar eru fjárhagsástæður, og af því að nú er búið að afgreiða fjárlög og af því að ekki er nauðsynlegt að fá fjárveitingu á þessu ári til þeirra framkvæmda, sem frv. gerir ráð fyrir, vil ég ekki vera að fara fram á fjárframlög, fyrr en ég get sannað, að þeirra sé alveg brýn þörf.
En viðvíkjandi því, sem hér hefur komið fram og aðallega hjá mínum samstarfsmanni, hv. 4. þm. Austf. (ÁS), varðandi það fé, sem fram er lagt samkv. 41. gr., þ.e.a.s. ætlað eingöngu til ræktunar á þeim jörðum, sem skemmst eru komnar, þá er það ekki alls kostar rétt, vegna þess að það er tilgangurinn með VI. kafla laganna fyrst og fremst að koma í veg fyrir, að jarðir fari í eyði, og þá m.a. með því að auka ræktun. En eins og ég hef tekið hér fram og gerði greinilega við 1. umr., er ekki, eins og nú er komið, aðallega skortur á ræktun, sem er orsök til þess, að víða fara jarðir í eyði eða liggur við að jarðir fari í eyði, heldur er það skortur á húsum og skortur á samgöngum. Það eru þau tvö atriði, sem valda mestu um það, hve mikið af jörðum hefur farið í eyði.
Þess vegna er það, að þau fjárframlög, sem þarna var ákveðið með setningu laganna að leggja fram, eru ætluð fyrst og fremst til þess að koma í veg fyrir, að jarðirnar fari í eyði. Og þegar lögin voru til meðferðar hér á þingi 1957, sýndi ég fram á það mjög rækilega, að það væri ekki orðið neitt samræmi í því, hve mikill stuðningur væri af opinberri hálfu lagður fram við ræktun og húsabyggingar í sveitum landsins, vegna þess að það er miklu meiri þörf á því að leggja fram fé til húsabygginga.
Varðandi það, sem fram kom hjá hv. 6. þm. Sunnl. (KGuðj) og raunar líka hv. 2. þm. Sunnl. (HB), að þeir gætu ekki samþ. frv., ef ekki er samþykkt fjárveiting nú strax, þá finnst mér það mjög óeðlileg afstaða hjá þessum mönnum, sem voru búnir að lýsa því og hafa lýst því í ræðum sínum, að þeir væru þessu meðmæltir, að vilja fella frv., þó að það sé ekki samþ. fjárveiting nú, löngu eftir að búið er að afgreiða fjárlög, þegar vitað er, að til er fé til þess að fullnægja hlutverkinu á þessu ári.
Varðandi þá till., sem hér liggur fyrir frá hv. 1. þm. Norðurl. v. um hækkun á þessum styrk úr 25 þús. í 40 þús., þá verð ég að segja, að á því er mikil þörf, að sú hækkun verði gerð, og ég mundi ekkert vera hikandi við að samþ. þá hækkun, ef ég væri ekki smeykur við, að það yrði frv. að falli, því að það er sannarlega betra fyrir þá fátæku bændur, sem nú eru í vandræðum með það að koma húsum sínum áfram, að fá þó 25 þús. kr. styrk á þessu ári en að fá ekkert. Ég er ekki grunlaus um það, ef þessi hækkun er samþ. fyrir alla nýbýlamenn og aðra, að það geti orðið frv. að falli á þessu þingi.
Varðandi það atriði, að þetta sé mjög óljóst orðað og þess vegna þurfi reglugerð, eins og hv. 4. þm. Austf. vildi leggja til, þá eru náttúrlega svo margvíslegir hlutir í starfsemi nýbýlastjórnar, að hún verður að taka ákvörðun um þennan og hinn mann, hvort það skuli taka til greina að styrkja hann eða lána honum, eftir því, hvernig á stendur, og eins mundi það verða í þessu falli. Og eins og ég tók hér fram við 1. umr., eru það sanngjarnir menn og réttsýnir í nýbýlastjórn, að ég óttast ekkert um, að við getum ekki komið okkur saman um, hverja beri að styrkja í þessu efni og hverja ekki.
Um þær tölur, sem hv. 4. þm. Austf. nefndi um byggingar á undanförnum árum, hef ég ekkert annað að segja en það, að sem betur fer, þá er mjög farið að fækka í flestum héruðum landsins þeim heimilum, sem er ekki búið að byggja upp á, og þess vegna er það nú ár eftir ár, að byggingum íbúðarhúsa fækkar, bæði vegna getuleysis og eins hins, að það hefur verið lagt það mikið kapp undanfarið á að koma byggingunum áfram. Hinu er náttúrlega ekki hægt að neita, því að það vitum við allir, að þeir, sem eftir eiga að byggja sín íbúðarhús, eru yfirleitt fátækustu mennirnir, þeir sem örðugasta hafa aðstöðuna. Þess vegna viljum við, sem að þessu stöndum, bæta þar úr.
Ég vil þess vegna, ef um það gæti verið nokkurn veginn samkomulag, óska eftir því helzt, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. Hitt er svo náttúrlega opin leið, að taka fyrir hækkun á næsta þingi, því að það er ósköp einfalt mál, ef mönnum sýndist svo, að ákveða þá hækkun, hvort hún er þetta eða eitthvað meira en hv. 1. þm. Norðurl. v. leggur nú til.