03.12.1959
Neðri deild: 9. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í B-deild Alþingistíðinda. (154)

30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Í Morgunblaðinu þann 20. nóv. s.l. stóð þessi klausa, með leyfi hæstv. forseta:

„Í dag kemur Alþingi saman til fyrsta fundar, eftir að kosið hefur verið samkvæmt hinni nýju kjördæmaskipun. Það er skipað í meira samræmi við þjóðarviljann en nokkru sinni fyrr, síðan Ísland varð fullvalda ríki. Samkoma Alþingis í dag er sögulegur viðburður.“

Það var rétt hjá Morgunbl., að samkoma Alþingis þann 20. nóv. s.l. var sögulegur viðburður, svo sem raun ber nú vitni um.

Ég vil byrja ræðu mína á því að lýsa því yfir, að enda þótt ég telji, að á mér sé brotinn réttur, þar sem ég tala hér í fyrsta sinn í þessu máli, þá mun ég samt virða þá samþykkt, sem gerð hefur verið, því að ég mun hvorki á þessu traðka né neinu öðru, sem mér er til trúað. Ég vil nota þessar mínútur, sem ég hef hér til umráða, til þess að benda á það, hvað Alþingi hefur gert, hvað hefur verið aðhafzt hér á hv. Alþingi af þeim mönnum, sem nú ráða hér.

Hér hefur verið lagt fram fjárlagafrv., en það hefur engin umr. farið fram um það. Það á að senda Alþingi heim, án þess að það fái nokkra skýrslu um fjárhag ríkisins, hvorki ríkissjóðs né útflutningssjóðs. Hér hafa ekki verið lögð fram brbl., sem gefin voru út af fyrrv. ríkis,stj., og er yfirlýstur þingmeirihluti fyrir því, að þau hafi ekki lagagildi, vegna þess að tveir stærstu flokkar á Alþingi hafa lýst því yfir, að þeir mundu fella þessi lög. Það á að fresta þessu þingi þegar í upphafi, án þess að það hafi leyst af hendi nokkur þau frumskilyrði, sem hverju reglulegu Alþingi ber að ljúka. Fyrir þessu Alþingi liggja mörg þýðingarmikil mál, sem á að ræða og á að gefa upplýsingar um og á að álykta um, eins og húsnæðismálin o.fl., áður en Alþingi fer í jólafrí. Þetta er ekki heldur gert. Hér eru haldnir fundir á óvenjulegum tíma í byrjun þings, svo að það mun með fádæmum, ef ekki eindæmum, og þegar þetta dugði ekki, þá voru tekin fimm stjórnarfrv. og þeim bunkað saman í eitt til þess að fara á bak við þm. og komast fram hjá eðlilegum umræðum, til þess að hjálpa stjórninni til að senda þingið, sem er kjörið samkvæmt þjóðarviljanum, heim. Svo virðir hæstv. ríkisstj. það þing, sem er þó í samræmi við þjóðarviljann. Mér er það fullkomlega ljóst, að hæstv. ríkisstj. og ráðamönnum hér á hv. Alþingi mun takast að koma vilja sínum fram á þennan hátt, sem þeir ætla. Þeim mun takast það og e.t.v. brjóta ekki þingsköp með því og ekki stjórnarskrána, en þeir ganga götuna meðfram. Það er ekki réttlætí, sem hér er verið að hafa í heiðri. Það eru ekki eðlileg vinnubrögð á Alþingi. Það er verið að nota valdið til að sniðganga þetta til þess að koma sínum málum áfram. En eitt er víst, að þó að hæstv. ríkisstj. og ráðamenn hennar virðist nú hleypa í sig kjarki til þess að koma þessu fram, þá hræða fordæmin. Fordæmin, sem þessi hæstv. ríkisstj. hefur gefið síðan 20. nóv., munu geta orðið hættuleg í sögu íslenzku þjóðarinnar. Og eitt er víst, og það er það, að hvorki mun þessari hæstv. ríkisstj. né öðrum gefast það vei að traðka á því, sem þeim er trúað til.